Fréttablaðið - 15.11.2017, Side 28

Fréttablaðið - 15.11.2017, Side 28
Það hefur varla farið fram hjá nein- um núlifandi Íslendingi að ferða- þjónusta hefur á undanförnum árum vaxið frá því að vera nokkurs konar sumarvertíð yfir í að vera stærsta útflutningsgrein þjóðar- innar. Þrátt fyrir óhjákvæmilega vaxtarverki í kjölfar ævintýralegrar aukningar getum við í heildina verið nokkuð sátt við hvernig til hefur tekist við að þróa og aðlaga þjónustuframboðið. Þannig hafa fjöldamörg ný og spennandi fyrir- tæki orðið til og um tíma virtist sem engin leið væri að tapa peningum á því að starfrækja félag í ferðaþjón- ustu. Það er þó vitaskuld einföldun og að baki liggur mikil vinna og ein- urð fólks sem gjarnan hefur mikla ástríðu fyrir því sem það gerir. Fyrir marga er ferðaþjónusta næstum því lífsstíll fremur en starf. En nú eru ákveðnar blikur á lofti í greininni. Sterkari króna og miklar kostnaðarverðshækkanir, einkum launakostnaður, eru farnar að setja strik í reikninginn í rekstri sem er í eðli sínu fremur mannaflsfrekur. Þá eru vísbendingar um að búið sé að verðleggja áfangastaðinn Ísland út af ákveðnum mörkuðum. En hverjar sem ástæðurnar eru er það sannarlega eðlilegur hluti þróunar atvinnugreina að fara í gegnum þrengingar. Þær eru raunar oftar en ekki hreyfiafl breytinga og sam- eininga fyrirtækja. Til verða stærri og öflugri einingar með sterkari rekstrargrundvöll og meira bol- magn til að takast á við sveiflur. Vel framkvæmdar sameiningar ættu að öðru óbreyttu að spara kostnað við ýmsa miðlæga þjón- ustu, s.s. bókanir, sölu- og markaðs- mál, bókhald og fjármál. Að auki geta sameinuð félög í einhverjum tilfellum nýtt rekstrarfjármuni betur og boðið viðskiptavinum stærri hluta af virðiskeðjunni. Framangreint gerir það að verkum að rými skapast til sérhæfingar í störfum sem aftur frelsar tíma fyrir eigendur og/eða stjórnendur til að einblína á kjarnareksturinn og stefnu félagsins fram á við. Með því næst meiri yfirsýn og líkur aukast á betri árangri. Það er auðveldara en marga grunar að eiga „besta ár sögunnar“ í sölu og tekjum en skila engu að síður litlum hagnaði, eða jafnvel tapi, af því að yfirsýn yfir rekstrarkostnaðinn skorti. Besta ár sögunnar? Sigrún Hjartardóttir verkefnastjóri í Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka. Þann 12. október síðast-liðinn gekk dómur í Hæstarétti Íslands þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að Íslands- banki hefði brotið gegn tilteknum ákvæðum laga um neytendalán með því að tilgreina ekki í lánssamningi við lántaka við hvaða aðstæður vextir á láni hans gætu breyst. Lán- takinn hafði fengið lán hjá bank- anum sem bar breytilega vexti, en í skuldabréfinu sem var gefið út í tilefni lántökunnar kom ekki fram hvaða utanaðkomandi þættir gætu haft áhrif til hækkunar eða lækk- unar á vöxtunum. Dómurinn hefur það í för með sér að Íslandsbanka er bannað að breyta vöxtum lánsins. Lán lántakans verður því í reynd lán með föstum en ekki breytilegum vöxtum. Dómurinn er um margt áhuga- verður og felur í sér áréttingu á mikilvægi upplýsingagjafar þegar kemur að neytendalánum. Í dóm- inum reyndi einungis á skýringu eldri laga um neytendalán frá árinu 1994 og verða fjármálafyrirtæki (og lífeyrissjóðir) að gæta að því að sambærileg ákvæði um þessi atriði í nýju lögunum frá árinu 2013 eru jafnvel enn strangari. Ýmsir þankar hafa leitað á höfunda þessarar greinar eftir uppkvaðningu dómsins sem þeim fannst rétt að setja niður á blað í fáeinum orðum. Varða þær einungis skýringu á eldri lögunum frá 1994, sem reyndi á í fyrrgreind- um dómi. Ætla verður að fordæmisgildi dómsins sé líklega takmarkað við það þegar ekkert kemur fram í skuldabréfi/lánssamningi um hvað geti leitt til breytingar á vöxtum. Hæstiréttur áréttar einmitt sérstak- lega í forsendum sínum að ekkert hafi komið fram um þetta í skulda- bréfinu sem þar um ræddi og taldi rétturinn þegar af þeim sökum að skilmálar þess hafi ekki uppfyllt skilyrði laga um neytendalán. Þeirri spurningu er því ósvarað hvernig fara eigi með skilmála þar sem ein- hverjar (en þó ekki tæmandi) upp- lýsingar um þetta atriði koma fram. Lánskjör og vextir Seðlabankans Varla er hægt að gera þá kröfu til lánveitanda að hann tilgreini með tæmandi hætti hvaða atriði geti haft áhrif til breytingar á vöxtum. Slíkt væri, að mati greinarhöfunda, of ströng túlkun á lögunum, enda eru engar vísbendingar um það, hvorki í lögunum né frumvarpinu sem lagt var fram á Alþingi, hversu ítarlegar upplýsingarnar eigi að vera. Hafa verður í huga að tilgangur þeirra ákvæða sem reyndi á í dómi Hæsta- réttar er að veita neytandanum helstu upplýsingar um lánveiting- una á aðgengilegu formi, svo að hann sé betur í stakk búinn til þess að leggja mat á áhætturnar af lán- veitingunni. Of miklar, flóknar og tæknilegar upplýsingar gætu í raun snúist upp í andhverfu sína að þessu leyti. Að okkar mati gæti af þeim sökum dugað að nefna í dæmaskyni þau helstu atriði sem geta haft áhrif á vextina. Hæstiréttur gæti talið slíka skilmála lögmæta. Hér skal þó tekið fram að í nýju neytendalána- lögunum eru skýrari fyrirmæli um hvaða upplýsingar lánveitanda ber að veita að þessu leyti. Þá má einnig velta því fyrir sér hvort óþarft sé fyrir fjármála- fyrirtæki að tilgreina augljós atriði sem geta haft áhrif til breytingar á vöxtum, eins og t.d. vaxtaákvarð- anir Seðlabanka Íslands. Ekki er ósanngjarnt að ætlast til þess að almennum neytanda, sem tekur lán með breytilegum vöxtum, eigi að vera kunnugt um að vaxtastig Seðlabankans geti haft áhrif á láns- kjör hans. Er það enda augljóslega fyrirsjáanlegt fyrir neytendur, sem aðra, að þegar samið er um heimild til hækkunar á vöxtum eigi slík heimild að minnsta kosti við þegar kostnaður lánveitanda af láni til neytanda hækkar. Er rétt í þessu efni meðal annars að hafa í huga ákvæði 3. mgr. 14. gr. neytendalánalaganna frá 1994 en af því ákvæði leiddi að neytandi varð að bera kostnaðar- auka af láni, þótt hann hafi ekki verið tilgreindur í lánssamningi, ef lánveitandinn gat sannað að lán- taka mátti vera um hann kunnugt. Virðist þetta síðastnefnda atriði ekki hafa komið til sérstakrar skoð- unar í hinum nýlega dómi eða verið reifað þar sérstaklega. Þarf skýrari línur Hér hafa verið leidd rök að því að ekki megi draga afdráttarlausar ályktanir af forsendum hins nýlega dóms. Virðist því ljóst að Hæsti- réttur þurfi að fjalla nánar um þau atriði sem hér hafa verið rakin í fleiri dómum svo skýrari línur fáist. Að lokum eru ýmis uppgjörs- atriði sem gæti þurft að huga að, og ekki er fjallað um í dóminum, ekki ósvipað því sem gerðist í eftir- málum gengistryggingadómanna. Endurreikna þarf þau lán sem fela í sér ólögmæt eða ófullnægjandi ákvæði um breytilega vexti og falla með skýrum hætti undir fyrrgreint fordæmi. Þá geta risið álitaefni um til dæmis endurkröfurétt neytenda sem þegar hafa greitt upp lán sín, mögulega fyrningu krafna þeirra, gildi fullnaðarkvittana og fleiri atriði. Við öllum þessum atriðum verða dómstólar væntanlega að veita endanleg svör. Á ávallt að greina tilefni vaxtahækkunar í lánssamningi við neytendur? Arnar Þór Stefánsson og Víðir Smári Petersen hæstaréttarlögmenn hjá LEX Í síðasta mánuði féll dómur í Hæstarétti Íslands þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að Íslandsbanki hefði brotið gegn tilteknum ákvæðum laga um neyt- endalán með því að tilgreina ekki í lánssamningi við lántaka við hvaða aðstæður vextir á láni hans gætu breyst. FréttAbLAðið/GVA Varla er hægt að gera þá kröfu til lánveitanda að hann tilgreini með tæmandi hætti hvaða atriði geti haft áhrif til breytingar á vöxtum. – Tengir þig við framtíðina! Sjónvarpsdreifikerfi fyrir hótel, gistiheimili og skip. Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660 oreind@oreind.is • www.oreind.is 1 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m I Ð v I K U D A G U r8 markaðurinn 1 5 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 7 -4 A F C 1 E 3 7 -4 9 C 0 1 E 3 7 -4 8 8 4 1 E 3 7 -4 7 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.