Fréttablaðið - 15.11.2017, Síða 34

Fréttablaðið - 15.11.2017, Síða 34
Handknattleikssamband Íslands skoðaði fyrir áratug að fá leik Íslend-ingaliðanna Flensburg og Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta spilaðan í Egilshöllinni. Greint var frá málinu í Fréttablaðinu á þessum degi á því herrans ári 2007. Fimm Íslendingar hefðu þá tekið þátt í leiknum en Alfreð Gíslason þjálfaði Gummersbach og þeir Guðjón Valur Sig- urðsson, Róbert Gunnarsson og Sverre Jakobsson léku með liðinu. Með Flens- burg á þessum tíma léku þeir Alexander Petersson og Einar Hólmgeirsson. Leikurinn var heimaleikur Flensburg og átti að leika hann 2. febrúar árið 2008. Heimavöllur liðsins, Campushalle, var upptekinn sama dag og því fóru for- ráðamenn félagsins að skoða aðrar og frumlegri hugmyndir um hvar leikurinn gæti farið fram. Fyrsti kostur félagsins var að spila leikinn í Danmörku en danska hand- knattleikssambandið var ekki spennt fyrir því. Þá var skoðað að færa leikinn til Svíþjóðar eða Noregs og síðar Íslands. Höfðu við- ræður verið í gangi þegar fréttin birtist. Samkvæmt henni átti leikurinn að fara fram í Egilshöll og kostnaðurinn var tugir millj- óna, sem var ekki endilega mikil hindrun fyrir Íslend- inga á þessum árum. Áhorf- endur áttu að vera um tíu þúsund. Það tókst þó ekki að ná fé í þetta verkefni og því fór leikurinn aldrei fram. „Þetta dæmi myndi kosta tugi milljóna og því þyrftum við góða styrktaraðila og velgjörðarmenn til að dæmið g e n g i u p p. Draumurinn er að spila leikinn í Egilshöllinni fyrir framan þúsundir áhorfenda,“ sagði Hlynur Sigmarsson, þáverandi stjórnar- maður í HSÍ, í fréttinni. Hann var bjart- sýnn en skömmu síðar kom í ljós að kostnaðurinn var einfaldlega of mikill fyrir þetta ævintýri. Trúlega í eina skipt- ið sem það gerðist árið 2007. benediktboas@365.is Þýski stórleikurinn sem aldrei varð að veruleika Áratugur er síðan skoðað var að spila leik Íslendingaliðanna Flensburg og Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta hér á landi. Stór hugmynd sem varð ekki að veruleika. Sverre Jakobsson og Guðjón Valur Sigurðsson léku saman hjá Gummers- bach. Campushalle var upptekinn í febrúar 2008 og því þurfti Flensburg að finna nýjan heimavöll. Egilshöll kom til tals en ekki varð úr hugmyndinni. NordiCphotoS/GEtty Þetta dæmi myndi kosta tugi milljóna og því þyrftum við góða styrktar­ aðila og velgjörðarmenn til að dæmið gengi upp. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigurborg Hlíf Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn 13. nóvember sl. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 23. nóvember kl. 13. Jón Kr. Óskarsson Sigríður Ósk Jónsdóttir Ólafur S. Björnsson Magnús R. Jónsson Ásdís S. Jónsdóttir Sigurður H. Ívarsson Óskar S. Jónsson Kristín Stefánsdóttir Sigurbjörg G. Jónsdóttir Jón Ragnar Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Atli Steinarsson blaðamaður, lést á Landspítalanum 8. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. nóvember kl. 15.00. Anna Sigríður Vincens Ása St. Atladóttir Gunnar Þór Atlason Konný Agnarsdóttir Atli Steinarr Atlason barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Svanlaug Magnúsdóttir Háagerði 85, sem lést á Landspítalanum 30. október verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 17. nóvember kl. 13.00. Rebekka Sigrún Guðjónsdóttir Björn Guðmundsson Ragnheiður Guðjónsdóttir Ásdís Guðjónsdóttir Ingólfur Þórisson Helga Guðjónsdóttir Þröstur Helgason Magnús Guðjónsson Guðríður Hlöðversdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, amma og langamma, Vilhelmína Vilhjálmsdóttir áður til heimilis á Hringbraut 34, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 12. nóvember. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 17. nóvember kl. 11. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði. Sigríður Jónsdóttir Ásthildur Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Sigurður Kr. Árnason húsasmíðameistari og listmálari, Seltjarnarnesi, lést laugardaginn 11. nóvember. Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 24. nóvember klukkan 13. Vilborg Vigfúsdóttir Þór Sigurðsson Birna Elísabet Óskarsdóttir Árni Sigurðsson Kristín Björg Guðmundsdóttir Sigríður Sigurðardóttir Geir Sigurðsson Yih Chern Tsai Jelena Kuzminova Helgi Sigurðsson Evelyn Consuelo Bryner barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, Örn Ingólfsson fyrrv. framkvæmdastjóri, Bogahlíð 8, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 8. nóvember. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 17. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð. Þeim sem vildu minnast hans er bent á styrktarsjóð Söru Kristínar Arnardóttur (kt. 080115-2370). Reikningsnúmer er 0111-05-262662. Lóa Gerður Baldursdóttir Þórdís Arnardóttir Gunnlaugur Sigurjónsson Herdís B.A. Diederichs Jürgen Diederichs Örn Ingi Arnarson Sigríður Ákadóttir Baldur Arnarson Zoë Robert og barnabörn. Ástkær eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Þór Þorsteins framkvæmdastjóri, lést mánudaginn 30. október á Landakotsspítala. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 17. nóvember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Dropann, styrktarfélag barna með sykursýki. Dóra Egilson Egill Þorsteins Marta Þórðardóttir Karl Þorsteins Erla Traustadóttir Snæfríð J. Þorsteins og barnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og kærleik vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og Opa, Reinhold Paul Fischer sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þann 28.10. 2017. Sérstakar þakkir fær allt starfsfólk gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut fyrir einstaka umönnun og hlýju í garð fjölskyldunnar. Jóhanna A. Guðbjartsdóttir Barbara D. Fischer Guðjón Magnússon Andrea Bergmann Magnús Sigfússon Sara Katrín, Jóhanna Andrea og Birgitta Ósk Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir Þorsteinn Jónsson (stubbur) Keilusíðu 3f, Akureyri, lést mánudaginn 6. nóvember. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 20. nóvember kl. 13.30. Guðrún Hulda Ragúels Heimir Hermannsson Jóhann Gunnar Ragúels Íris Bjarnadóttir Steinlaug Anna Þorsteinsdóttir Árni Steinar Þorsteinsson afabörn og systkini. 1 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m I Ð v I K U D A G U r18 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð tímamót 1 5 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 7 -4 6 0 C 1 E 3 7 -4 4 D 0 1 E 3 7 -4 3 9 4 1 E 3 7 -4 2 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.