Fréttablaðið - 15.11.2017, Page 44

Fréttablaðið - 15.11.2017, Page 44
1 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m I Ð v I K U D A G U r SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Hún er svo 1000% til­búin í þetta, segir Manuela Ósk Harð­ardóttir, eigandi Miss Universe Ice­land, en hún hefur dvalið með Örnu Ýri Jónsdóttur úti í Las Vegas þar sem keppnin verður haldin. Manuela hefur verið Örnu innan handar með undirbúninginn, en lokakvöld keppninnar fer fram á hótelinu Planet Hollywood Casino. „Við erum 93 sem keppum um tit­ ilinn Miss Universe. Það er heilmikil samkeppni en góður andi í hópn­ um,“ segir Arna Ýr sem er alls ekki óvön keppnum af þessu tagi. Frægt er að hún dró sig út úr keppninni Miss Grand International á síðasta ári eftir að eigandi þeirrar keppni gerði athugasemd við holdafar hennar. Á þeim tímapunkti var hún staðráðin í að taka aldrei aftur þátt í keppni af þessu tagi en um ákvörðun sína um að taka þátt í Miss Universe sagði Arna Ýr í viðtali sem birtist við hana á Vísi fyrr í haust: „Ég sagði að nú væri komið gott af lélegum keppnum og ég sætti mig ekki við neitt nema góðar keppnir. Það er það sem fólk er að misskilja. Ég ætlaði bara að hætta að láta mig hafa eitthvað sem ég væri ekki að fíla. Þessi keppni var númer 1, 2 og 3 æðisleg og þess vegna er ég í þessu.“ Þær stöllur Manuela og Arna Ýr eru duglegar að setja inn myndir á Instagram og Snapchat (@manuela­ osk) – Arna er með snappið fyrir Miss Universe Iceland (@missuniverseice) og þar geta áhugasamir fylgst með því sem gerist bak við tjöldin. „Ég nýt hverrar mínútu hérna, þetta hefur verið meiriháttar reynsla og allt allt annað en í fyrra. Það er heilmikill undirbúningur fyrir svona keppni, eitthvað sem maður gerir ekki einn. Manuela og Jorge (annar af eigendum Miss Universe Iceland) hafa stutt vel við bakið á mér og leitt mig áfram í þessu ævintýri.“ Það er til mikils að vinna og stúlk­ an sem hlýtur titilinn Miss Universe mun fá afnot af lúxusíbúð í New York í heilt ár og jafnframt fá laun þann tíma. Aðstandendur Miss Universe eru með heilmikla góðgerðarstarf­ semi og verður eitt meginhlutverk stúlkunnar sem vinnur að vera sendi­ herra keppninnnar og sinna ýmsum góðgerðarstörfum víðsvegar um heiminn. Keppnin verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni FOX og henni verður líka streymt á netið. astahrafnhildur@frettabladid.is Sigurvegarinn fær afnot af lúxusíbúð í New York í heilt ár Fegurðardrottningin Arna Ýr Jónsdóttir, fyrrverandi ungfrú Ísland og núverandi Miss Universe Iceland, keppir fyrir hönd Íslands í Miss Universe sunnudaginn 26. nóvember en keppnin fer fram í Las Vegas. Arna Ýr fær mikla athygli og er undantekningalaust spáð í topp tíu. Manuela Ósk Harðardóttir, eigandi Miss Universe Iceland, og Arna Ýr Jónsdóttir eru klárar fyrir keppnina í lok mánaðarins. Ég Sagði að Nú væri komið gott af lÉlegum keppNum og Ég Sætti mig ekki við Neitt Nema góðar keppNir. intellecta.is RÁÐNINGAR RIA Nettir og einstaklega þægilegir tveggja og þriggja sæta sófar. Holly grænt, ljós- eða dökk- grátt slitsterkt áklæði. 2ja sæta: 152 × 83 × 79 cm 52.493 kr. 69.990 kr. 3ja sæta: 192 × 83 × 79 cm 59.993 kr. 79.990 kr. SÓFA VEISLA 25% AF ÖLLUM SÓFUM www.husgagnahollin.is N Ý OG BE TRI VEFVERSLUN A LLTAF OP IN AFSLÁTTUR 28 l í f I Ð ∙ f r É T T A b l A Ð I Ð 1 5 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 7 -4 F E C 1 E 3 7 -4 E B 0 1 E 3 7 -4 D 7 4 1 E 3 7 -4 C 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.