Fréttablaðið - 27.11.2017, Page 18

Fréttablaðið - 27.11.2017, Page 18
Draumamark Gylfa í miðri martröð Everton Gylfi Þór Sigurðsson skoraði glæsilegt mark fyrir Everton gegn Southampton í gær. Það dugði skammt því að stjóralaust lið Everton tapaði 4-1 og er í vondum málum. fótbolti Í dag eru nákvæmlega fimm vikur síðan Ronald Koeman var látinn taka pokann sinn hjá Everton eftir 2-5 tap fyrir Arsenal á Goodison Park. Nú, fimm vikum síðar, er staða Everton engu skárri. Liðið er enn stjóralaust og tapar hverjum leiknum á fætur öðrum. Í síðustu tveimur leikjum hefur Everton mátt þola auðmýkjandi töp fyrir Atalanta og Southampton. Ítalirnir komu á Goodison Park í Evrópudeildinni á fimmtudaginn og fóru heim með 1-5 sigur í farteskinu. Og í gær rúllaði Southampton yfir Everton, 4-1, á velli heilagrar Maríu. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði mark Everton og það var af dýrari gerð- inni. Íslenski landsliðsmaðurinn lék þá á tvo varnarmenn Southampton og skaut boltanum í slána, stöngina, aftur í slána og inn og jafnaði metin í 1-1 á lokamínútu fyrri hálfleiks. Aldrei séð svona mark „Ég hef aldrei séð mark þar sem boltinn fer þrisvar sinnum í tré- verkið áður en hann fer inn. Því- líkt mark,“ skrifaði Southampton- hetjan Matt Le Tissier á Twitter. Það er maður sem veit sitthvað um falleg mörk enda skoraði hann þau nokkur á sínum tíma. Mark Gylfa, sem var hans fyrsta fyrir Everton í ensku úrvalsdeild- inni, var þó aðeins plástur á sárið því Southampton var miklu sterkari aðilinn í leiknum í gær. Hálfleiks- tölurnar gáfu alls ekki rétta mynd af gangi mála. Dusan Tadic kom Southamp- ton yfir á 18. mínútu eftir frábæra Leikmaður helgarinnar Raheem Sterling var maðurinn á bak við sigur Manchester City á nýliðum Hudders­ field. Sterling fiskaði vítaspyrnuna sem Sergio Aguero jafnaði leikinn úr þegar seinni hálfleikur var nýhafinn og hann skoraði svo sigurmarkið á 84. mínútu. Sterling var besti maður vallarins á John Smith’s leikvanginum í Huddersfield og með sigur­ markinu minnka vonir nágrannanna í Manchester United um að hægt sé að ná í hælana á City liðinu. Mark Sterlings var hans áttunda í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og tólfta í öllum keppnum. Englendingurinn er nú þegar búinn að ná sínum besta árangri í markaskorun og eru aðeins átján leikir búnir af tímabilinu, en hann hefur aldrei áður skorað meira en 11 mörk á tímabili. Stóru málin eftir helgina í enska boltanum Stærstu úrslitin Tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Mamadou Sakho skoraði sigur­ mark Crystal Palace gegn Stoke á Selhurst Park. Undir stjórn Roys Hodgson hefur Palace rétt úr kútnum og er nú aðeins þremur stigum frá öruggu sæti. Hvað kom á óvart? Stjóralaust lið West Brom fór á Wemb­ ley og náði í stig gegn Tottenham. Gary Megson stýrði West Brom á laugardaginn og teiknaði upp sterkan varnarleik sem Totten­ ham átti í miklum vandræðum með að brjóta niður. Harry Kane skoraði á endanum en West Brom getur vel við stigið unað. Mestu vonbrigðin Everton fær þennan titil enn og aftur. Eftir frábært jöfn­ unarmark Gylfa Þórs Sigurðssonar rétt fyrir lok fyrri hálfleiks voru vonir um að Everton næði að rétta úr kútnum. Liðið spilaði hins vegar hrikalega illa og var komið tveimur mörkum undir þegar korter var liðið af seinni hálfleik. skyndisókn og sendingu Ryans Bertrand sem átti skínandi góðan leik eins og hinn bakvörðurinn, Cédric Soares. Bertrand lagði upp annað mark heimamanna fyrir Charlie Austin á 52. mínútu. Sex mínútum síðar skoraði Austin nánast alveg eins mark, með skalla eftir fyrirgjöf frá vinstri. Þremur mínútum fyrir leikslok skoraði Steven Davis, fyrir- liði South ampton, svo fjórða markið með góðu skoti. Dýrlingarnir eru vel spilandi en oftast nær mjög bitlausir. Fyrir leik- inn í gær var liðið aðeins búið að skora níu mörk í 12 deildarleikjum. Stíflan brast hins vegar gegn Everton sem hefur nú fengið á sig 28 mörk í ensku úrvalsdeildinni, flest allra liða. Hræðilegur varnarleikur Everton hefur ekki náð að fylla skarðið sem Romelu Lukaku skildi eftir sig í framlínunni. Það er slæmt en til að bæta gráu ofan á svart kann liðið ekki lengur að verjast. Phil Jagielka og sérstaklega Ashley Williams hafa elst hratt, Mic- hael Keane hefur valdið vonbrigð- um eftir að hafa komið frá Burnley Enska úrvalsdeildin Staðan Úrslit 13. umferðar 2017-18 West Ham - Leicester 1-1 0­1 Marc Albrighton (8.), 1­1 Manuel Lanzini (45.). Crystal Palace - Stoke 2-1 0­1 Xherdan Shaqiri (53.), 1­1 Ruben Loftus­ Cheek (56.), 2­1 Mamadou Sakho (90+2.). Man. Utd. - Brighton 1-0 1­0 Lewis Dunk, sjálfsmark (66.). Newcastle - Watford 0-3 0­1 Will Hughes (19.,) 0­2 DeAndre Yedlin, sjálfsmark (45+1.), 0­3 Andre Gray (62.). Swansea - Bournemouth 0-0 Tottenham - West Brom 1-1 0­1 Salomon Rondon (4.), 1­1 Harry Kane (74.), Liverpool - Chelsea 1-1 1­0 Mohamed Salah (65.), 1­1 Willian (85.). Southampton - Everton 4-1 1­0 Dusan Tadic (18.), 1­1 Gylfi Þór Sigurðs­ son (45.), 2­1 Charlie Austin (52.), 3­1 Charlie Austin (58.), 4­1 Steven Davis (87.). Burnley - Arsenal 0-1 0­1 Alexis Sanchez, víti (92.). Huddersfield - Man. City 1-2 1­0 Nicolás Otamendi, sjálfsmark (45+1.), 1­1 Sergio Agüero, víti (47.), 1­2 Raheem Sterling (84.). FÉLAG L U J T MÖRK S Man. City 13 12 1 0 42-8 37 Man. Utd. 13 9 2 2 28-6 29 Chelsea 13 8 2 3 24-11 26 Arsenal 13 8 1 4 23-16 25 Tottenham 13 7 3 3 21-10 24 Liverpool 13 6 5 2 25-18 23 Burnley 13 6 4 3 12-10 22 Watford 13 6 3 4 22-21 21 Brighton 13 4 4 5 13-14 16 S’ton 13 4 4 5 13-15 16 Huddersf. 13 4 3 6 9-19 15 Leicester 13 3 5 5 17-19 14 B’mouth 13 4 2 7 11-14 14 Newcastle 13 4 2 7 11-17 14 Stoke 13 3 4 6 16-26 13 Everton 13 3 3 7 13-28 12 West Brom 13 2 5 6 10-19 11 West Ham 13 2 4 7 12-26 10 Swansea 13 2 3 8 7-15 9 C. Palace 13 2 2 9 8-25 8 Okkar menn Íslendingar í efstu tveimur deildunum á Englandi Everton Gylfi Þór Sigurðsson Skoraði eina mark Everton sem steinlá fyrir South­ ampton. Þetta var fyrsta mark Gylfa í deildinni á tímabilinu. Cardiff City Aron Einar Gunnarsson Var ekki með í 0­2 sigri á Nottingham Forest vegna meiðsla. Reading Jón Daði Böðvarsson Kom inn á 73. mínútu í markalausu jafntefli við Sheffield Wednesday. Aston Villa Birkir Bjarnason Var ekki í leikmannahóp Aston Villa sem sigraði Ipswich Town 2­0. Bristol City Hörður B. Magnússon Spilaði allan leikinn í ótrú­ legum 2­3 endurkomu­ sigri á Hull City. Burnley Jóhann Berg Guðm. Var með bestu mönnum vallarins í tapi gegn Arsenal og átti besta færi Burnley í leiknum. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Everton í ensku úrvalsdeildinni þegar hann jafnaði metin á síðustu mínútum fyrri hálfleiks í leik liðsins gegn Southampton. Mark Gylfa var einkar glæsilegt, en boltinn fór í stöngina, slána, aftur í stöngina og að lokum í netið. Þetta var aðeins annað mark Gylfa á tímabilinu. NoRDiCPHoToS/GETTy 2 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 m Á n U D A G U r18 S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð 2 7 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 5 4 -0 A 5 4 1 E 5 4 -0 9 1 8 1 E 5 4 -0 7 D C 1 E 5 4 -0 6 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.