Morgunblaðið - 03.02.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Við kynnum nýjan Mitsubishi ASX. Þessi snaggaralegi fjórhjóladrifni sportjeppi skilar þér miklu
afli á mjúkan og sparneytinn hátt. Þú situr hærra, hefur meira rými og finnur hvernig þægindin gera
aksturinn að hreinni upplifun. Taktu snúning á ASX og leyfðu skilningarvitunum að skemmta sér.
Mitsubishi ASX 4x4
Instyle ClearTec dísil, sjálfskiptur frá:
4.890.000 kr.
FYRIR HUGSANDI FÓLK
NÝR MITSUBISHI ASX 4x4
5 ára ábyrgð
FRAMÚR VONUM
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar hef-
ur hafnað umsókn Iceland Resourc-
es ehf. um leyfi fyrir rannsóknar-
borunum eftir gulli í Þormóðsdal
við Hafravatn. Afstaða bæjaryfir-
valda við afgreiðslu málsins í haust
var á sömu lund. Fulltrúar fyrir-
tækisins lögðu eftir það fram fleiri
gögn, sem Mosfellingar telja þó
engu breyta í málinu enda hafi eng-
ar nýjar upplýsingar komið fram.
Útgáfa á framkvæmdaleyfi sam-
ræmist ekki heldur aðalskipulagi
Mosfellsbæjar sem gildir til ársins
2030. Það eru forsvarsmenn fyr-
irtækisins Melmis sem gerðu sam-
komulag við NAMA og Iceland
Resources um áformaðar rann-
sóknir í Þormóðsdal. Þær áttu að
felst í kjarnaborunum, að skafa of-
an af bergi og grafa skurði og
greina efnin sem þarf mætti finna.
Afsvar er ekki úrslitaatriði
Lengi hafa verið vísbendingar
um að gull væri í Þormóðsdal. Mest-
ar líkur eru á slíku í fornum háhita-
kerfum og á fyrrnefndum slóðum
hafa mælst einhver hæstu gullgildi
á Íslandi hingað til. Fyrst fannst
gull í Þormóðsdal árið 1908 og voru
rannsóknir gerðar á svæðinu nokk-
ur ár eftir það og gull þar unnið.
Áratugum síðar var þráðurinn aft-
ur tekinn upp og málið hefur aldrei
sofnað.
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
framkvæmdastjóri Iceland Resour-
ces sagði í samtali við Morgun-
blaðið afsvar Mosfellsbæjar nú ekki
neitt úrslitaatriði, enda hefði af-
staða sveitarfélagsins öðru fremur
byggst á óvissu um hvað í raun
mætti gera innan þeirra takmarka
sem skipulagslög settu. Því verði að
yfirfara málin að nýju og eyða
óvissunni sem til staðar er. Allir viti
að vegferðin sé löng og fyrirstöður
margar.
Á síðasta ári veitti Orkustofnun
Iceland Resources leyfi til gullleitar
á víðfeðmu svæði í Vopnafirði og
þar verður farið í rannsóknir á
næstu misserum. Þá liggja fyrir
umsóknir um leyfi til leitar á
Reykjanesi, í Arnarfirði, á Trölla-
skaga og við Stóru-Laxá og Hvera-
gerði. Aflað hefur verið skráðra
heimilda um að gull megi finna á
þessum svæðum. „Menn horfa til
þessara svæða í ljósi vitneskju og í
Þormóðsdal er klárlega gull,“ segir
Vilhjálmur Þór.
Gullgröftur er ekki
á aðalskipulaginu
Afsvar um leit að gulli í Þormóðsdal
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þormóðsdalur Hér fannst gull fyrir
rúmri öld og áfram er leitað.
Langflestir vilja vinna nálægt heim-
ili sínu sé þess kostur, eða í innan við
5 til 15 mínútna ferðalengd. Mjög fá-
ir eru tilbúnir að
ferðast meira en
30 mínútur dag-
lega til vinnu jafn-
vel þó svo að um
draumastarf væri
að ræða. Þetta er
meðal þess sem
kemur fram í
rannsóknum á
ferðamynstri og
vinnusóknar-
svæðum sem
Lilja G. Karlsdóttir, samgönguverk-
fræðingur hjá Viaplan, hefur unnið
fyrir hluta landsins, í samstarfi við
innanríkisráðuneytið, Skipulags-
stofnun og Byggðastofnun með
styrk frá Rannsóknarsjóði Vega-
gerðarinnar. Lilja skoðar búsetu
starfsfólks á vinnustöðum til að fá
hugmynd um ferðamynstur og getur
út frá því skilgreint vinnusóknar-
svæði. Nýlega birtust niðurstöður
um norðanverða Vestfirði en Lilja
hefur einnig unnið rannsóknir fyrir
Austurland, Norðurland og höfuð-
borgarsvæðið.
Styrkja byggðir með sköttum
Á engu þeirra svæða sem Lilja
hefur skoðað er fólk tilbúið að
ferðast langt til vinnu frá heimili
sínu. Vegna þessa bendir fátt til þess
að vinnusóknarsvæði landshluta
stækki með tilkomu jarðganga,
vegalengdirnar séu enn oft það mikl-
ar.
„Vegna þessa þarf að spyrja hvort
það ætti að leggja áherslu á að
styrkja byggðirnar í staðinn fyrir að
gera ráð fyrir að það séu allir til-
búnir til að ferðast lengra til vinnu,“
segir Lilja.
Niðurstöður rannsóknanna sýni
að fólk kýs að vinna nálægt heima-
byggð og þá megi velta fyrir sér
hvort framtíðarstefnan eigi að vera
sú að reyna að stækka atvinnusvæði
og fá fólk til að ferðast meira eða
hvort framtíðarstefnan eigi frekar
að vera sú að reyna að styrkja fleiri
byggðarsvæði. „Á Norðurlöndunum
er notast við skattaafslátt á akstri
fólks til vinnu, þegar það þarf að
ferðast meira en 20 km til vinnu. Það
er gert til þess að reyna að styðja við
dreifðari byggðir [...] hér sé slíkur
skattaafsláttur ekki til staðar og því
ljóst að það er dýrt fyrir fólk að
keyra langar vegalengdir til vinnu
hérlendis,“ segir í niðurstöðum
skýrslunnar um Vestfirði.
Spurð hvort eitthvað hafi komið á
óvart í rannsóknunum svarar Lilja
að ferðavilji fólks hafi ekki verið eins
mikill og hún hafi búist við. „Þá kom
val um ferðamáta mér á óvart en úti
á landi nota 60 til 65% íbúa bíl til að
koma sér til vinnu en 80% á höfuð-
borgarsvæðinu og má velta því fyrir
sér hvort íbúar höfuðborgarsvæðis-
ins séu almennt að ferðast lengri
vegalengdir en íbúar landsbyggðar-
innar eða hvort það sé mögulega
vaninn og eitthvað í umhverfi og
skipulagi höfuðborgarsvæðisins sem
gerir það að verkum að fólk þar not-
ar frekar bílinn,“ segir Lilja.
Vondir vegir fæla frá
Niðurstöður rannsóknarinnar á
norðanverðum Vestfjörðum sýna
skýrt að Ísafjörður er vinnusóknar-
svæði fyrir bæjarkjarnana í kring,
utan Þingeyrar. Litlu bæjarkjarn-
arnir teljast ekki vinnusóknarsvæði
Ísafjarðar, en það er þá helst til Bol-
ungarvíkur sem Ísfirðingar sækja
vinnu en þangað eru 20 km og góður
vegur. Einnig kemur fram að hinir
ýmsu vegakaflar hræða fólk, Súða-
víkurhlíð er þar fremst í flokki, þá
Gemlufallsheiði og Flateyrarvegur
og getur það haft áhrif á vinnusókn-
arsvæði. Þá vildu margir að Vest-
fjarðagöng yrðu tvöfölduð.
ingveldur@mbl.is
Jarðgöng stækka ekki
vinnusóknarsvæði
Langflestir á Íslandi vilja vinna nálægt heimili sínu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Suðureyri Við Súgandafjörð.
Lilja Guðríður
Karlsdóttir