Morgunblaðið - 03.02.2017, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017
Paterson
Nýjasta mynd kvikmyndaleikstjór-
ans Jim Jarmusch fjallar um
strætóbílstjórann Paterson (Adam
Driver), sem er ljóðelskandi og
vanafastur, og Lauru (Golshifteh
Farahani), konu hans. Myndin
dregur upp sigra og ósigra hvers-
dagslífsins með ljóðrænum hætti.
Fyrr á árinu hlaut myndin Palm
Dog-verðlaunin á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes.
Rotten Tomatoes: 96%
Rings
Þrettán ár eru liðin síðan draug-
urinn Samara lét síðast á sér kræla.
Parið Holt og Julia ákveða ásamt
kennara sínum að skoða mynd-
bandið forboðna sem sagt er særa
Samöru fram sjö dögum eftir að á
það er horft. Þau komast fljótt að
því að sagan er sönn, en einnig upp-
götvar Julia nokkuð í myndbandinu
sem enginn hafði séð áður.
Leikstjóri er F. Javier Gutiérrez, en
í aðalhluverkum eru Matilda Lutz,
Alex Roe, Johnny Galecki og Bon-
nie Morgan.
The Bye Bye Man
Árið 1960 framdi ungur maður
fjöldamorð í blokkinni þar sem
hann bjó og bar því við að Bye Bye-
maðurinn hefði sagt honum að
fremja ódæðið. Löngu síðar gera
fjögur ungmenni tilraun til að ná
sambandi við framliðið fólk og vita
ekki að þar með kalla þau yfir sig
endurkomu Bye Bye-mannsins með
skelfilegum afleiðingum. Leikstjóri
er Stacy Title, en í aðalhlutverkum
eru Douglas Smith og Doug Jones.
Rotten Tomatoes: 22%
Hair/Hárið
Rokksöngleikurinn Hárið í leik-
stjórn Milos Forman gerist á hippa-
tímabilinu þegar Víetnamstríðið
var í algleymingi. Myndin skartar
lögum á borð við „Aquarius“, „Easy
to Be Hard“ og „Frank Mills“. Með-
al leikara eru John Savage og Be-
verly D’Angelo. Myndin verður
sýnd í Bíó Paradís með íslenskum
texta í kvöld og 10. febrúar kl. 20.
Bíófrumsýningar
Ást og hryllingur
Paterson Adam Driver og
Golshifteh Farahani leika parið.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Franski leikstjórinn Valérie Leroy
hlaut í gærkvöldi verðlaunin í stutt-
myndakeppni Sólveigar Anspach fyr-
ir kvikmyndina Le Grand Bain
(Sundferðin mikla) en þær þrjár
myndir sem kepptu til úrslita voru þá
sýndar í Bíó Paradís ásamt stutt-
mynd Sólveigar Par amour.
Samkeppnin var hluti af Franskri
kvikmyndahátíð sem nú stendur yfir.
Alls voru 53 stuttmyndir eftir kven-
kyns leikstjóra sendar í keppnina, frá
Íslandi, Frakklandi, Kanada, Haítí
og Burkína Fasó. Í gærkvöldi sagði
Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri frá
myndunum sem sendar voru í keppn-
ina og sérstaklega frá þeim þremur
sem kepptu til úrslita. Að sýningu
myndanna lokinni var svo tilkynnt
hver hlyti verðlaunin og afhentu leik-
konan Didda, sem lék í nokkrum
kvikmynda Sólveigar, og Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri Leroy verð-
launin.
Leikari og leikstjóri
Stuttmynd Valérie Leroy er nær
17 mínútur að lengd. Hún fjallar um
þrítuga konu sem flytur inn í litla
íbúð í vinsælu hverfi. Hún er fyrrver-
andi sundmeistari og endar á því að
kenna nágrönnum sínum að synda,
án þess að hafa til þess sundlaug.
Leroy stundaði meistaranám í
sagnfræði en lék meðfram náminu í
gamanmyndum. Hún hefur haldið
áfram að leika og fer meðal annars
með litla rullu í Elle, opnunarkvik-
mynd Franskrar kvikmyndahátíðar í
ár. Leroy ákvað að spreyta sig á
handritsgerð og fór í nám á því sviði,
þar sem hún skrifaði sitt fyrsta hand-
rit að kvikmynd í fullri lengd og hefur
það unnið til verðlauna. Þá vann
Leroy verðlaun á stuttmynda-
maraþoninu í Valence árið 2015 en
áður hafði hún kvikmyndað stutt-
myndina sem sigraði í gærkvöldi, Le
grand bain.
Sólveig góð fyrirmynd
„Þetta kom mér verulega á óvart,“
sagði Valérie Leroy um verðlaunin.
„Ég sá samkeppnina auglýsta og bað
fyrirtækið sem dreifir kvikmyndinni
að senda hana. Reykjavík, Ísland og
Sólveig Anspach hljómaði eins og
fullkomin þrenning! Auðvitað bjóst
ég aldrei við að vinna svo það kom
mér afar skemmtilega á óvart.“
Leroy þekkir kvikmyndir Sól-
veigar vel og sagðist til að mynda
muna afar vel hvar og hvenær hún sá
fyrstu leiknu kvikmynd hennar í
fullri lengd, Haut les cœurs! (1999).
„Mér þótti hún svo huguð að gera
kvikmynd sem þessa um brjósta-
krabbamein, og gera það á svo skop-
legan hátt – það er frábær kvikmynd.
Og síðan hef ég séð allar myndir
hennar, nema eina. Þar hef ég eitt-
hvað að hlakka til.“
Ferill Leroy við handritaskrif og
leikstjórn er stuttur en þetta eru
þriðju verðlaunin sem hún hlýtur.
„Ég hef veitt einum viðtöku í Mar-
okkó, einum í París og nú í Reykjavík
– það er gaman að geta ferðast um
heiminn með myndunum sínum,“
sagði hún en þær hafa verið sýndar á
allmörgum hátíðum.
Þessi nýju stuttmyndaverðlaun
beina kastljósinu að kvenleikstjórum
og Leroy fagnaði því. „Mér finnst það
mikilvægt því karlleikstjórar eru enn
miklu fleiri en við konurnar,“ sagði
hún og bætti við að þótt hún hefði
unnið talsvert sem leikari í kvik-
myndum þá hefði hún um tíma átt
erfitt með að ímynda sér sig sem leik-
stjóra, því fyrirmyndirnar vantaði.
Sólveig og aðrir kvenbrautryðjendur
séu því mikilvæg fyrirmynd fyrir
unga kvenleikstjóra. „Þær hafa sýnt
okkur að konur geta vitaskuld jafn
vel og menn staðið á bak við tökuvél-
ina,“ sagði hún.
Ötull kvikmyndaleikstjóri
Sólveig Anspach lést úr krabba-
meini í ágúst 2015, 54 ára að aldri.
Hún var ein ötulasta kvikmynda-
gerðarkona Íslands, lengst af búsett í
Frakklandi en tók kvikmyndir sínar
einnig upp hér á landi. Hún var fædd
í Vestmannaeyjum en lærði kvik-
myndagerð í Frakklandi.
Sundnámskeið Verðlaunastuttmynd Valérie Leroy fjallar um fyrrverandi
sundmeistara sem kennir nýjum nágrönnum sínum sundtökin.
Kom verulega á óvart
Franski leikstjórinn Valérie Leroy sigraði í stuttmynda-
keppni Sólveigar Anspach á Franskri kvikmyndahátíð
Valérie Leroy Sólveig Anspach
Þýska tónskáldið og útvarps-
leikritaframleiðandinn Ulrike
Haage og slóvenski leikstjórinn
Damjan Kozole verða gestir Stock-
fish-kvikmyndahátíðarinnar sem
hefst 23. febrúar og stendur til 5.
mars. Haage samdi tónlistina við
nýjustu kvikmynd Doris Dörrie
Grüse aus Fukushima, sem sýnd
verður á hátíðinni. Á tónleikum í
Græna herberginu 1. mars kl. 21
mun Haage flytja brot úr tónlist
myndarinnar ásamt nýju efni og
verður aðgangur ókeypis. Kozole
verður viðstaddur sýningu á mynd
sinni Nocno zivljenje, en fyrir
myndina var hann valinn besti leik-
stjórinn á síðustu kvikmyndahátíð í
Karlovy Vary.
Tvær eistneskar myndir og
mynd eftir Pernillu August
Sænska kvikmyndin Den allvar-
samma leken í leikstjórn Pernillu
August verður einnig á hátíðinni,
en meðal leikara er Sverrir Guðna-
son. Á meðal annarra mynda hátíð-
arinnar eru hinar eistnesku Ema,
sem var framlag Eista til Óskars-
verðlaunanna fyrir bestu erlendu
mynd þetta árið, og Teesklejad,
sem var fyrsta eistneska myndin
sem sýnd var í keppni á kvik-
myndahátíðinni í San Sebastian.
Haage og Kozole gestir Stockfish
Móðir Ema er fyrsta eistneska myndin
sem sýnd hefur verið á hátíðinni í Cannes.
Við trúum því að fegurðin sé lifandi,
sköpuð úr tilfinningum og fulll af lífi.
Alveg eins og náttúran sjálf. Til að
viðhalda æskuljóma húðar þinnar
höfum við tínt saman immortelle,
blómið frá Korsíku sem aldrei fölnar.
Divine Cream fegrar svipbrigði þín og
hjálpar við að lagfæra helstu ummerki
öldrunar. Húðin virðist sléttari,
*Ánægja prófuð hjá
95 konum í 6 mánuði.
Húðin virðist unglegri
Mimi Thorisson er
franskur matarbloggari.
Divine Cream með Immortelle blómum
HÚÐUMHIRÐA SKÖPUÐ
FYRIR LIFANDI FEGURÐ
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
L’Occitane en Provence - Ísland
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 5
TILBOÐ KL 4
SÝND KL. 5
SÝND KL. 8, 10.10
SÝND KL. 8, 10.15
SÝND KL. 8, 10.40
SÝND KL. 5 - ísl tal
SÝND KL. 4, 6