Morgunblaðið - 03.02.2017, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017
HERRASKÓR
Skechers Flex Advantage,
léttir herra leðurskór með
Memory Foam innleggi.
Stærðir 41,5-47,5
40%
afsláttur
7.797
Verð áður 12.995
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Eigumnokkur ný hjólhýsi til afhendingar í vor.
Flott fjölskylduhús. Kojur og tvíbreytt rúm, ALDE hitakerfi,
12volta kerfi, TFT stjórnskjár og sjónvarpsarmur
Hobby 560 UKF Excellent Verð frá aðeins: 4.545.000.-
Hobby 560 UKF Prestige Verð frá aðeins: 4.625.000.-
Hobby 620 CKF Prestige Verð frá aðeins: 4.795.000.-
Útvegum einnig aðrar gerðir af Hobby hjólhýsum. Leitið tilboða!
Sendu fyrirspurn á bilo@bilo.is
Ný Hobby hjólhýsi á frábæru verði - tryggið ykkur lægsta verð
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ríkisstjórn Bretlands lagði í gær
fram áætlun sína að útgöngu Bret-
lands úr Evrópusambandinu, öðru
nafni Brexit, eftir að neðri deild
breska þingsins samþykkti með mikl-
um meirihluta að hleypa málinu
áfram til nefndarstarfs og seinni um-
ræðu. Gert er ráð fyrir að sú umræða
fari fram í næstu viku.
David Davis, ráðherra Brexit-
mála, sagði að ríkisstjórnin stefndi að
því að mynda „nýtt, jákvætt og upp-
byggilegt samband“ við Evrópusam-
bandið eftir útgönguna, sem myndi
þjóna hagsmunum beggja.
Á meðal þess sem ríkisstjórnin
leggur til í áætlun sinni er að ný lög
verði sett um innflytjenda- og tolla-
mál, auk þess sem ítrekað er að Bret-
ar muni yfirgefa innri markað Evr-
ópusambandsins. Í staðinn verði sóst
eftir því að gera nýjan fríverslunar-
samning við sambandið.
Þá vill ríkisstjórnin að samið verði
við Evrópusambandið sem fyrst um
tvíhliða réttindi þeirra ríkisborgara
sambandsins sem búa nú þegar í
Bretlandi, sem og Breta sem búa í
löndum Evrópusambandsins. „Ég
ætla ekki að kasta mönnum út úr
landinu,“ sagði Davis.
„Þetta er sjálfsvíg!“
Fyrri umræða neðri deildarinnar
um útgönguna stóð yfir í tvo daga og
lauk loks á miðvikudagskvöld þegar
gengið var til atkvæða. 498 þingmenn
samþykktu frumvarpið en 114 voru
andvígir því.
Það voru einkum skoskir þjóð-
ernissinnar og uppreisnarmenn í
Verkamannaflokknum sem greiddu
atkvæði gegn málinu, en Jeremy
Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokks-
ins, hafði fyrirskipað þingmönnum
sínum, með allra hörðustu skilmálum,
að þeir ættu að greiða atkvæði með
því, þar sem þjóðarvilji ætti að fá að
ráða. 47 þingmenn Verkamanna-
flokksins urðu ekki við þeirri bón, og
tveir ráðherrar í skuggaráðuneyti
Corbyns sögðu af sér svo þeir gætu
kosið gegn málinu. Þá greiddu þrjár
af svonefndum „svipum“ Verka-
mannaflokksins, það er þeir þing-
menn sem eiga að tryggja að almenn-
ir þingmenn fylgi vilja
flokksforystunnar í málum, einnig at-
kvæði gegn því. Sagði talsmaður Cor-
byns að framtíð þeirra og hugsanleg
viðurlög yrðu ákveðin síðar.
Umræðan í þinginu þótti tilfinn-
ingarík á köflum, og heyrðist einn
þingmaður stjórnarandstöðunnar
hrópa upp yfir sig „Þetta er sjálfs-
víg!“ þegar úrslit atkvæðagreiðslunn-
ar voru gerð heyrinkunnug.
Gert er ráð fyrir að neðri deildin
samþykki frumvarpið í næstu viku
eftir aðra umræðu og fer málið þá
fyrir lávarðadeildina. Gert er ráð fyr-
ir að hún taki málið fyrir 20. febrúar
næstkomandi, en málið þarf einnig að
vera samþykkt í gegnum tvær um-
ræður áður en það verður að lögum.
Theresa May forsætisráðherra hefur
sagt að hún vilji að Brexit hafi hlotið
samþykki þingsins fyrir 7. mars
næstkomandi, en hún hyggst virkja
50. grein Lissabon-sáttmálans fyrir
lok þess mánaðar.
Íhaldsflokkurinn er hins vegar
ekki með meirihluta í lávarðadeild-
inni og er talið óvíst á þessari stundu
hvort lávarðarnir vilji tefja fram-
göngu málsins.
Fyrstu skrefin að Brexit stigin
Neðri deild breska þingsins samþykkti Brexit-mál ríkisstjórnarinnar með yfirgnæfandi meirihluta
eftir fyrri umræðu Seinni umræðan verður í næstu viku Skoskir þjóðernissinnar afgerandi á móti
AFP
Brexit Neðri deild breska þingsins samþykkti með umtalsverðum meiri-
hluta að senda Brexit-mál ríkisstjórnarinnar áfram til annarrar umræðu.
Hagstofa Færeyja áætlar að Fær-
eyingar verði orðnir 50.000 talsins í
lok febrúar eða byrjun mars næst-
komandi. Samkvæmt nýjustu mann-
fjöldatölum eru Færeyingar nú
49.820 talsins, en þær eru miðaðar
við stöðuna eins og hún var 1.
desember síðastliðinn.
Samkvæmt tölum hagstofunnar
voru Færeyingar einungis um 5.000
talsins í upphafi 19. aldarinnar, þeg-
ar mannfjöldinn tók að rísa. Í upp-
hafi tíunda áratugarins voru um
47.000 manns búsettir í Færeyjum
en niðursveifla í efnahagslífinu kom í
veg fyrir að þeir næðu 50.000 manns.
Þá tók um tíu ár áður en mannfjöld-
inn náði fyrri hæðum.
Svipaða sögu var að segja fyrir
um áratug, þegar mannfjöldinn náði
hæst um 48.600 manns, áður en
efnahagshrunið 2008 leiddi til þess
að fólk fluttist á brott að nýju.
Í viðtali við heimasíðuna arbeids-
livinorden.org segir Henrik Old,
samgöngu- og atvinnuvegaráðherra
Færeyja, að allt stefni í rétta átt.
Mestu hafi skipt að fá Færeyinga
sem læri erlendis til þess að snúa
aftur heim eftir útskrift. Þá hafi
gangagerð gjörbreytt vinnumarkaði
eyjanna. sgs@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Færeyjar Færeyingar verða brátt orðnir 50.000 talsins.
Færeyingar verða
brátt fimmtíu þúsund
Aldrei fleiri búsettir í Færeyjum