Morgunblaðið - 03.02.2017, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 03.02.2017, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 34. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. 1. Öðrum sleppt úr gæsluvarðhaldi 2. Játning liggur ekki fyrir 3. „Í stríð við Kína á næstu tíu árum“ 4. Úrskurðaður í áframhaldandi … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sýningin Panik með verkum Ilmar Stefánsdóttur, myndlistarkonu og leikmyndahönnuðar, verður opnuð í A-sal Listasafns Reykjavíkur í kvöld kl. 20. Klukkustund síðar fremur Ilm- ur gjörning í fjölnotasal Hafnarhúss við undirleik dúettsins Cyber. Morgunblaðið/Einar Falur Ilmur opnar sýningu og fremur gjörning  Bandaríski tón- listarmaðurinn Stephen Dorocke heldur tónleika í Mengi í kvöld kl. 21. Hann býr og starfar í Chicago þar sem hann tek- ur virkan þátt í öflugri spunasenu stórborgarinnar. Á tónleikum í Mengi mun hann einbeita sér að hljóðlátari blæbrigðum hljóð- færis síns, Resophone, sem er nokk- urs konar umbreyttur gítar. Stephen Dorocke leikur í Mengi í kvöld  Leonards Cohen verður minnst á Græna hattinum í kvöld. Eru þetta fyrstu tónleikar sveitar sem leidd er af Daníel Hjálmtýssyni. Tónleikarnir verða endurteknir á Café Rosenberg 10. febrúar og 7. apríl og eru aðeins örfáir miðar eftir. Með Daníel koma fram Benjamín Náttmörður Árnason, Magnús Jóhann Ragn- arsson, Pétur Daníel Pétursson, Snorri Örn Arnarson, Ís- old Wilberg Antonsdóttir og Guðrún Ýr Ey- fjörð. Tónleikahald til minningar um Cohen Á laugardag Sunnan og síðar suðaustan 8-13 m/s og skúrir eða él, en þurrt norðaustanlands. Austlægari og rigning eða slydda austanlands um kvöldið. Hiti 0 til 6 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 8-15 m/s og rigning eða slydda með köflum, talsverð úrkoma suðaustantil. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast suðaustanlands. VEÐUR Það urðu óvænt úrslit í Olís- deild karla í handknattleik sem fór af stað í gær eftir langt jóla- og HM-frí. Topp- liðin Afturelding og Haukar töpuðu bæði á heimavelli og þrjú neðstu liðin, Stjarnan, Grótta og Akureyri, fögnuðu öll sigrum. Botnbaráttan er orðin ansi hörð en fjögur neðstu liðin eru öll með 13 stig. Afturelding er á toppn- um, tveimur stigum á undan Haukum. »2-3 Toppliðin töpuðu bæði á heimavelli „Mér finnst alveg rosalega gaman að geta gefið eitthvað til baka til félagsins, annað en það sem maður gerir inni á vellinum og í vinnu fyrir það. Þetta er mikilvægt fyrir félagið og það er yndislegt að vera valdur að því,“ segir Gunnleifur Gunnleifsson, fyrrver- andi landsliðsmarkvörð- ur, en Breiðablik fær á fimmtu milljón fyrir þá leiki sem hann var í hópi Íslands í undankeppni EM 2016. »1, 4 Gaman að geta gefið til baka til félagsins Stjarnan komst uppfyrir KR og á topp Dominos-deildar karla í körfuknatt- leik í gærkvöld og Tindastóll styrkti stöðu sína í þriðja sætinu með því að leggja Keflvíkinga að velli. Njarðvík hélt áfram sigurgöngunni og lagði Skallagrím með góðum endaspretti í Borgarnesi og Grindvíkingar komu sér betur fyrir í efri hluta deildarinnar með því að sigra ÍR-inga. »2-3 Njarðvíkingar eru áfram á sigurbrautinni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ungmennafélag Borgarfjarðar eystri verður 100 ára í ár og efnir af því tilefni til utanvegahlaups um Dyrfjöll. Dyrfjallahlaupið fer fram 22. júlí og verður hlaupið frá Hóla- landi í Borgarfirði, í Stórurð og það- an í Bakkagerðisþorp í Borgarfirði. Skráning hefst í hlaupið um helgina og er búist við góðri þátttöku því vin- sældir utanvega- og fjallahlaupa hér á landi hafa aldrei verið meiri. „Félaga í Ungmennafélagi Borg- arfjarðar eystri hafði lengi dreymt um að halda einhverskonar hlaup á svæðinu, það hefur verið mikil sprenging í hlaupum undanfarin ár og þá sérstaklega utanvegahlaupum og nú fannst þeim vera komið gott tilefni til þess að halda eitt slíkt fyrir austan,“ segir Inga Fanney Sigurð- ardóttir hjá ThuleTrails en hún sér um framkvæmd hlaupsins. Hækkunin er áskorun Hlaupið er 23 km að lengd og er heildarhækkunin 1087 m sem er með því meira sem gerist í flestum ut- anvegahlaupum á Íslandi, að sögn Ingu Fanneyjar. „Þetta er sönn áskorun fyrir þá sem eru aðeins byrj- aðir í sportinu en laðar líka að þá sem eru reyndari. Svæðið sem hlaupið er um er stórbrotið og útsýnið flott. Þetta er vinsælt göngusvæði en það hefur ekki verið gert út á hlaupa- ferðamennsku þar. Það verður hlaupið á stígum og slóðum alla leið og að því leyti er þetta þægileg leið. Heimamenn í ungmennafélaginu völdu leiðina en þeir þekkja svæðið best og fannst þetta vera fallegasta og skemmtileg- asta leiðin til þess að bjóða upp á,“ segir Inga Fanney en hún býst við 50 til 100 þátttakendum í hlaupið í sumar. Nýjasta útivistaræðið Iðkendum fjalla- og utanvega- hlaups hefur fjölgað mikið síðustu ár og segir Inga Fanney slík hlaup tví- mælalaust vera eitt af vinsælustu „æðunum“ í útivist og hreyfingu. „Þau hafa svolítið tekið við af götu- hlaupaæðinu, enda fara þau betur með liði og fólk fær síður álagsmeiðsl í utanvegahlaupi. Svo er fólk að upp- götva þessa stórkostlegu leið til að ferðast. Það sem ég held að eigi eftir að vaxa núna er að fólk fari í fríinu sínu eða sameinist í hópa og upplifi landið hlaupandi án þess að vera endilega í keppni,“ segir Inga Fann- ey. Hægt er að skrá sig í hlaupið á vef- síðunni dyrfjallahlaup.is. Hlaupaleiðin er stórbrotin  Utanvegahlaup hlaupið um Dyrfjöll í fyrsta skipti í sumar Ljósmynd/Helgi Magnús Arngrímsson Fjallahlaup Hlaupið verður um Stórurð sem Dyrfjöll gnæfa yfir. Stórurð er í Urðardal í Hjaltastaðaþinghá og þykir stórfenglegt náttúrufyrirbrigði. Dyrfjallahlaupið fer fram 22. júlí næstkomandi og er 23 km að lengd. Allir geta byrjað að æfa utanvegahlaup, að sögn Ingu Fanneyjar, það eina sem þarf eru utanvegahlaupaskór og klæðnaður eftir veðri. „Formið kemur svo smám saman. Á Íslandi þar sem er stutt út í nátt- úruna er auðvelt að koma sér af stað. Þeir sem eru á höfuðborg- arsvæðinu geta t.d farið upp í Heiðmörk eða Öskjuhlíð til að æfa sig og bætt svo smám saman við. Þá eru mörg keppnishlaup í boði á Ís- landi.“ Inga Fanney hefur sérhæft sig í hlaupaferðamennsku og segir mikið af útlendingum koma hingað til að hlaupa, þá sérstaklega frá Norður-Ameríku þar sem utanvegahlaup eiga sér langa sögu. Þá bjóða ThuleTrails líka upp á ferðir fyrir hlaupara út fyrir land- steinana t.d. til Tenerife þar sem eyjan er skoðuð á hlaupum. Nálægð við náttúruna kostur HLAUPAFERÐAMENNSKA VAXANDI Inga Fanney Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.