Morgunblaðið - 03.02.2017, Side 23

Morgunblaðið - 03.02.2017, Side 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 Opinn fundur í Borgartúni 19 7. febrúar kl. 8.30–10.00 Hver er staða jafnréttis- og kynjamála í auglýsingageiranum? Hvaða máli skiptir kynjajafnvægi við mótun markaðsskilaboða? Á sameiginlegum fundi Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA) og ÍMARK verður leitað svara við þessum og fleiri spurningum. Fram koma Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra Elín Helga Sveinbjörnsdóttir formaður SÍA Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka Dóra Ísleifsdóttir prófessor í grafískri hönnun við LHÍ Kristinn G. Bjarnason framkvæmdastjóri sölu- & markaðssviðs Toyota Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri Brandenburg Selma Rut Þorsteinsdóttir listrænn stjórnandi (CD) á Pipar TBWA Fundarstjóri er Elísabet Sveinsdóttirmarkaðskona Húsið opnað kl. 8 – morgunverður í boði Arion banka. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Skráning á www.imark.is Eftir stjórnarmynd- un og umræður um stefnumál ríkistjórnar- innar situr eftir ósvör- uð spurning: Hvernig eiga öryrkjar og hluti eldri borgara að lifa af um 190 til 230 þúsund krónum á mánuði? Vilji þessir aðilar reyna að bjarga sér og afla umframtekna með vinnu, þá halda þeir í reynd eftir að- eins um 35% af þeim tekjum, sem þeir þannig afla sér og eru umfram 25 þúsund kr. á mánuði. Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkis- stjórnar segir að vísu að stefnt sé að hækkun þessa frítekjumarks, sem síðasta ríkistjórn lækkaði úr 109 þús- und kr. á mánuði í þessi 25 þúsund kr. En jafnframt er í stefnuyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar sendur ákveðinn tónn til öryrkja til hlýðni gagnvart nýju starfsgetumati, sem lækkar tryggingu þeirra til lífs- framfærslu, sem þó er langt undir framfærslukostnaði, án atvinnuleys- isbóta, ef þeir geta ekki fundið vinnu við sitt hæfi. Með breytingunni yrði núverandi frítekjumark hjá þeim einnig lækkað! Hækkanir með nýjum lögum almannatrygginga Komið hefur fram að heildar- greiðsla TR til eldri borgara og ör- yrkja 1. janúar 2017 nam nálægt 7.800 milljónum króna, en 6.500 millj- ónum 1. janúar 2016. Verulegur hluti af þeirri hækkun er vegna ákvæðis í 69. gr. eldri laga sem kveður á um að ákvörð- un skuli „taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag sam- kvæmt vísitölu neyslu- verðs“. Sú hækkun var 7,5 %, þannig að framlag ríkisins vegna breytinga fyrri ríkisstjórnar á lög- um almannatrygginga var ekki um tveir millj- arðar, eins og sagt var, heldur um 800 milljónir. Öryrkjar og eldri borgarar í fá- tæktargildru ríkisins fá sína lág- markshækkun miðað við aðra, greidda ári eftir á, samkvæmt lögum, í prósentu talið miðað við það sem þeir áður fengu. Í ársbyrjun 2016, var hækkun fyrir árið 2015, 9,7 %, þegar aðrir fengu greitt afturvirkt hækkun launa fyrir árið 2015 allt frá 15% til 35%. Nú í ársbyrjun 2017 nam hækk- unin 7,5% fyrir árið 2016. Í krónum talið um 16 þúsund kr. á mánuði fyrir utan skatt. Viðbótarhækkun eftir nýj- um lögum almannatrygginga nemur álíka hækkun til þeirra verst settu, 10 til 20 þús. kr á mánuði. Það er öll hækkunin! Samanburður við hækkun til alþingismanna Engin tillaga frá alþingismönnum hefur komið fram um að fella niður hækkun Kjararáðs daginn eftir kosn- ingar um 44% hækkun þeim til handa, meira að segja afturvirkt, þrátt fyrir að hafa fengið 7,15% hækkun 1. júní 2016 og í árslok 2015, 9,3% hækkun afturvirka. Í lögum um kjararáð segir í 2. mgr. 8. gr. laga: „Kjararáð skal ætíð taka tillit til almennrar þróunar kjaramála á vinnumarkaði.“ Hækk- unin ein á mánuði sem Kjararáð út- hlutaði alþingismönnum, og er ekki í samræmi vð ofangreint lagaákvæði, nemur hærri upphæð en grunnlaun- um lögreglumanna og kennara, og nemur tvöföldum mánaðarlaunum láglaunafólks og meira en tvöföldum lífeyri öryrkja og eldri borgara. Þessi hækkun var fyrir utan fríðindin öll og aukagreiðslurnar. Þetta nýja réttlæti ríkisstjórnar og alþingismanna er hreinn ósómi. Hvað er til ráða? Flokkur fólksins lagði til að skatt- leysismörk yrðu hækkuð upp í kr. 300 þúsund krónur á mánuði, til að bæta lífeyrisþegum, öryrkjum og lág- launafólki kjararýrnun síðustu ára. Jafnframt væru skattar tveggja skattþrepa hækkuð, samsvarandi þeim ávinningi. sem hækkun skattleysismarka gæfi þeim tekju- hærri. Hvers vegna hafa skattleys- ismörkin ekki verið hækkuð, fremur en lækkun skatta hjá þeim efna- meiri? Hvernig eiga þeir lægst settu að ná fram rétti til að lifa? Eftir Halldór Gunnarsson » Öryrkjar og eldri borgarar í fátækt- argildru ríkisins fá sína lágmarkshækkun miðað við aðra, greidda ári eft- ir á, samkvæmt lögum, í prósentu reiknað. Halldór Gunnarsson Höfundur er varaformaður Flokks fólksins. Þann 5.12. 2016 var í Kastljósi fjallað um fjársýslu dómara við Hæstarétt. Fram kom að Markús Sigur- björnsson dómari var fyrir „hrunið“ haustið 2008 að sýsla með eigin fjármuni upp á tugi milljóna. Fjármála- umsvif dómarans sam- ræmast ekki starfs- skyldum hans. Við þá sýslan var hann þ. 29.9. 2008 og dagana þar í kring. Á þeim dögum átti hann að dæma í hæstaréttarmálinu nr. 610/2007. Málflutningur var 24.9. 2008 og var dómur kveðinn upp 2.10. 2008. Mark- ús er eini dómari málsins sem enn starfar við réttinn. Dómararnir lásu ekki málsgögnin. Sannanlega ekki aðra heimildina, sem þeir byggðu dóminn á. Markús var of upptekinn við eigin fjársýslu til að sinna starfi sínu. Úrlausnarefnið var eignarréttur landskipta á jarðartorfunni Ytri- Sólheimar. Deilan snérist um eign- arhlutfall í óskiptri sameign torf- unnar. Dómkrafa sóknaraðila, eig- enda Ytri-Sólheima 3, var að staðfest yrði með dómi að eign þeirra í sam- eign væri 25%. Krafan studdist eink- um við: Kaupbréf Erlings Brynjólfs- sonar á 25 H að fornu mati úr torfunni, dagsett 30.1. 1905. Þá voru 14 heimildir um að torfan er 100 H að fornu mati. Í þriðja lagi var krafa um að stjórnarskrárvarinn eignarréttur gangi framar landskiptalögum. Til varnar í héraði og Hæstarétti voru Einar Þorsteinsson og Eyrún Sæmundsdóttir í Sólheimahjáleigu, ásamt dóttur og tengdasyni. Kröfð- ust þau að torfunni yrði skipt sam- kvæmt landskiptalögum. Mikið bar á milli hjá aðilum málsins: Hjáleigan er að fornu mati 7,33% af torfunni, en 15,5% samkvæmt landskiptalögum. Verjendur hlutu stuðning aðila sem er skráður eigandi að 4% parti í torf- unni. Í gögnum málsins liggur fyrir að á tuttugustu öld hefur stjórnsýsl- an smíðað hverja kórvilluna eftir aðra um eignahluti torfunnar og á það ekki síst við um fyrrgreindan 4% part Eystri-Sólheimasystkina. Þær flækjur eru slíkar að ekki er kostur að greiða þær hér. Tvímæli eru um hvort þau systkin eru eigendur að partinum eða Elín Einarsdóttir. Sækjendur töpuðu málinu í héraði. Taldi dómurinn ekki heimilt að dæma á grundvelli eignarrétt- arákvæða Stjórnarskrár. Dómnum bæri að lúta ákvæðum laga nr. 46/ 1941. Hæstarétti var nokkur vandi á höndum: Annars vegar lagði sókn- araðili fram víðtækar heimildir um eignarhlut sinn og krafðist þess að hann væri varinn. Hins vegar bar dómnum að horfa einnig til land- skiptalaga. Telja má að tilvísun sækj- enda í Stjórnarskrá hafi knúið rétt- inn til að hafa meira við. Málið var dómtekið með fimm dómurum. Rótina að deilu málsaðila má rekja til laga nr. 46/1941, sem eru einstök að endemum, hvort heldur vísað er til íslensks eða evrópsks réttar. Lög- in leyfa þrjú sönnunargögn! Flestum er í brjóst lögð sú réttlætiskennd að öll tiltæk sönnunargögn beri að skoða í dómsmáli. Það er, svo dæmi séu tekin, leyfilegt að meta sönn- unargildi hnífs í morðmáli og kaup- bréf hafa um aldir, hér- lendis sem erlendis, verið gild til sönnunar í eignarrétti. Raunar eru þinglýst eignaskjöl, oft- ast kaupbréf, þau sönn- unargögn sem best tryggja eignarhald. Sá kross er lagður á herðar dómara að meta hvað teljist gild sönnun ef skjöl eru véfengd. Núverandi land- skiptalög tilgreina að í eignarrétti landskipta skuli fara eftir skráðu hlutfalli í þremur prentuðum jarðabókum. Ekki er bannað að skoða fleira. Dómarar hafa hins veg- ar fegnir stokkið í það skjól að ekki megi skipta landi eftir öðrum heim- ildum þrátt fyrir að jarðabækur eru gerðar fyrir skattheimtu og kaup- bréf fyrir eignarrétt. Það er einfald- ara að skoða fá sönnunargögn, en mörg! Hæstiréttur hafnaði dómkröfu sóknaraðila með tvíþættri tilvísun í Jarðatal Johnsens 1847. Þar er torf- an skráð bæði 107,5 H og 120 1/6 H og þá óvíst hvort 25 H séu 25% af torfunni. Johnsen vitnar rangt í frumheim- ild frá árinu 1805. Frumheimildin til- greinir að torfan öll er 100 H og heimildina lagði ég fyrir réttinn. – Dómstóllinn byggði á heimild sem vitnar rangt í frumheimild. Þá skráir Johnsen dýrleikann 120 1/6 H eftir Jarðabók Skúla fógeta 1760. Ég tel það bera vott um þekkingarskort á fornum jarðabókum að tortryggja ekki skráninguna. Dómurum ber að afla sér þekkingar á þeim gögnum, sem þeir byggja dóma sína á. Um dóminn skrifaði ég á árinu 2009 greinar í þetta blað með heitinu Glámskyggn heimildarýni Hæsta- réttar. Í tuttugu ár hef ég leitað að for- sendum Skúla. Fyrir þremur árum fann ég ítarlega skráningu Lýðs sýslumanns frá Dyrhólaþingi 10.11. 1759 með undirskriftum þingvotta. Þar er torfan skráð 100 H. Í haust var frumheimild Skúla; skýrslur sýslumanna frá árunum 1753-54, lögð í hendur mér. Skýrsla Þorsteins Bjarnasonar um Dyrhólahrepp hrekur skráninguna í jarðabók Skúla. Báðar stoðir dómsins eru hrundar. Markús er ber að því að meta meir að sýsla með fjármuni sína dagana fyrir bankahrunið haustið 2008, en að gegna skyldu sinni. Hann las ekki dómsskjalið, sem hann byggði dóm sinn á. Skjalið sem ég lagði í hendur honum. Hann dæmdi mig til að greiða all- an málskostnað og í kjölfarið tapaði ég eignum á hrakvirði. Hvort mun virðing Hæstaréttar skaðast af veru Markúsar Sigur- björnssonar við dómstólinn? Glámskyggn hæstaréttardómari Eftir Tómas Ísleifsson Tómas Ísleifsson » Skrif um dóm í eign- arréttarmáli byggð- um á heimild frá 1847 þvert á 14 heimildir. Heimildin er villuheim- ild. Frumheimildin var í höndum dómara máls- ins. Höfundur er líffræðingur. Atvinnublað alla laugardaga mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.