Morgunblaðið - 03.02.2017, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.02.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 Karlmaður var á þriðjudaginn dæmdur í átta ára fangelsi í Hér- aðsdómi Reykjaness fyrir tilraun til manndráps, nauðgun, frelsissvipt- ingu og sérstaklega hættulega lík- amsárás gegn fyrrverandi sambýlis- konu sinni í júlí í fyrra. Kolbrún Benediktsdóttir, vara- héraðssaksóknari hjá héraðssak- sóknara Reykjaness, staðfesti þetta við mbl.is í gær. Hún sagði að dóm- urinn hefði verið í samræmi við það sem ákæruvaldið fór fram á, en lág- marksrefsing fyrir tilraun til mann- dráps er fimm ára fangelsi. Sakfellt hafi verið fyrir fleiri brot sem þyngi refsinguna. Dómurinn hefur ekki verið birtur á vefsíðu héraðsdóms, en Hæstirétt- ur staðfesti í ágúst síðastliðnum gæsluvarðhaldsúrskurð yfir mann- inum vegna málsins. Þar kom m.a. fram að hann hefði í tvígang árið 2014 ráðist á konuna og valdið henni líkamsáverkum. Í greinargerð með gæsluvarðhaldskröfunni segir að lögreglan hafi komið á heimili kon- unnar eftir að hún óskaði eftir að- stoð. Konan lýsti atburðum á þann veg að maðurinn hefði komið á heimili hennar ásamt félaga sínum og að hann hefði beðið hana um að sofa hjá þeim báðum. Hún vísaði þeim á brott en skömmu síðar kom maðurinn aftur og baðst gistingar sem hann fékk. Hann nauðgaði kon- unni síðan ítrekað, barði hana, bar hníf að hálsi hennar og hótaði henni lífláti. Konan taldi að ofbeldið hefði staðið yfir í um tvær klukkustundir. Í greinargerðinni segir einnig að samkvæmt skýrslu um réttarlækn- isfræðilega skoðun hafi áverkar á konunni samræmst frásögn hennar af atburðum. Hún bar ýmis merki um ofbeldi um allan líkamann, t.d. var hún með sprungna hljóðhimnu, skurð sem þurfti að sauma, áverka á hálsi eftir kyrkingartak og áverka á kynfærum. Blóðslettur fundust víða um íbúð konunnar. Maðurinn neitaði sök og sagðist hafa haft samfarir við konuna að hennar vilja og að þær hefðu verið harkalegar samkvæmt hennar ósk. Hann sagðist ekki vita hvernig áverkar konunnar væru tilkomnir og sagðist telja hana hafa veitt sér þá sjálf eða meitt sig við ýmis tæki- færi. Í átta ára fangelsi  Karlmaður var dæmdur fyrir tilraun til manndráps og margvíslegt ofbeldi gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni Morgunblaðið/Ómar Héraðsdómur Maðurinn fékk átta ára dóm fyrir margvíslegt ofbeldi. Stærsta ljósleiðaraverkefnið sem Fjarskiptasjóður mun styrkja í ár er í Rangárþingi eystra. Þar á að tengja 251 lögheimili og vinnustaði og fær sveitarfélagið tæplega 63 milljóna króna styrk til þess. Fjarskiptasjóður ver 450 millj- ónum til ljósleiðaravæðingar í dreif- býli á þessu ári. Sótt var um styrki til margvíslegra verkefna í 34 sveit- arfélögum. Valið er á milli þeirra þannig að þau sem geta gert sem mest fyrir sem minnstan pening fá forgang. Niðurstaðan varð sú að 23 sveitarfélög eiga kost á styrk til að tengja um 1.800 lögheimili og vinnu- staði með ljósleiðara. Verkefnin dreifast um allt land. Næst hæsti styrkurinn fer til Skag- firðinga, rúmar 53 milljónir, til að tengja 151 heimili. Þriðji hæsti styrkurinn fer til nokkurra verkefna í Snæfellsbæ, 46 milljónir. Dugar það til 134 tenginga. Hrunamanna- hreppur, Hornafjörður, Reykhóla- hreppur, Þingeyjarsveit, Vopna- fjörður og Breiðdalshreppur, Kjósarhreppur og Grundarfjörður eru einnig sveitarfélög sem tengja marga sveitabæi í ár. helgi@mbl.is Flestir tengjast í Rangárþingi eystra  1.800 ljósleiðaratengingar í dreifbýli Vertu upplýstur! blattafram.is VIÐ VILJUM GETA TREYST. ÞAÐ TRAUST ROFNAR AUÐVELDLEGA ÞEGAR HIÐ VERSTA GERIST. HVAÐ GERIR ÞÚ ÞEGAR TRAUSTIÐ ROFNAR? Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Nýjar vörur Skyrta kr. 9.800.- Str. S-XXL Litir: Off white, navy Verðhrun á útsöluvörum Vetraryfirhafnir - Sparidress - Peysur - Blússur - Bolir Laugavegi 63 • S: 551 4422 ÚTSÖLU-sprengja 50-70% afsláttur www.laxdal.is 50–70% afsláttur Síðasta útsöluvika Bonito ehf. • Friendtex • Praxis Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is •www.praxis.is Útsala Opið föstudag 14.00–18.00 laugardag 12.00–16.00 sunnudag 16.00–18.00 lokadagur 2 fyrir 1 Verslunin flytur af Friendtexvörum Allt á að seljast Úrval af fatnaði á hlægilegu verði A9 KR. 299.000,- Beolit15 KR. 69.000,- H2 KR. 26.000,- H6 KR. 43.000,- A1 KR. 34.000,- Einstök vinátta frá fyrstu hlustun lágmúla 8 · sími 530 2800 Verið velkomin í glæsilega verslun Bang & Olufsen í Lágmúla 8 og heyrið hljóminn. Það breytir öllu. Bluetooth/WiFi hátalari. Frumleg hönnun. Einstakur kröftugur hljómur, alls 480W magnarar. Bluetooth ferðahátalari. Öflugur bluetooth hátalari. Flugfreyjur sem starfa hjá Flug- félagi Íslands samþykktu nýgerð- an kjarasamning við félagið með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Rúmlega 30 flugfreyjur innan Flugfreyjufélags Íslands starfa hjá Flugfélagi Íslands. Samningar náðust hjá Ríkis- sáttasemjara að kvöldi 26. janúar, skömmu áður en boðað þriggja daga verkfall félagsins hófst hjá Flugfélagi Íslands. Ótímabundið verkfall hafði síðan verið boðað frá og með 6. febrúar. Vinnu- stöðvunum hefur nú verið afstýrt. Starfsmenn Flugfélags Íslands sem eru í Flugfreyjufélagi Ís- lands höfðu verið án kjarasamn- ings frá því á gamlársdag 2015. Félagsmenn felldu í tvígang á þeim tíma samninga sem samn- inganefnd félagsins hafði náð við Flugfélag Íslands og Samtök at- vinnulífsins. Flugfreyjur samþykktu nýjan samning Lamb Street Food Í ViðskiptaMogganum í gær var rangt farið með nafn fyrirtækisins Lamb Street Food. Beðist er vel- virðingar á mistökunum. Húsafell Missagt var í Morgunblaðinu í gær að fjallið sem var í baksýn á Grinda- víkurmynd á forsíðu væri Þorbjörn. Fjallið er Húsafell. Leiðréttist þetta hér með og er beðist velvirðingar. LEIÐRÉTT ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.