Morgunblaðið - 03.02.2017, Side 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017
Vistvænna prentumhverfi
og hagkvæmni í rekstri
Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri
og fyrsta flokks þjónusta.
www.kjaran.is | sími 510 5520
Angela Merkel,
kanslari Þýska-
lands, sótti í gær
Recep Tayyip
Erdogan Tyrk-
landsforseta
heim, en um er
að ræða fyrstu
heimsókn kansl-
arans til Tyrk-
lands frá valda-
ránstilrauninni
mislukkuðu í júlí síðastliðnum.
Að sögn fréttaveitu AFP er
megintilgangur heimsóknarinnar
að lægja þær öldur sem risið hafa
að undanförnu og bæta samskipti
og samvinnu ríkjanna tveggja. Hef-
ur Erdogan m.a. gagnrýnt ráða-
menn í Berlín fyrir að vilja ekki
framselja í hendur Tyrkja ein-
staklinga sem grunaðir eru um að-
ild að valdaránstilrauninni.
Merkel kanslari sat einnig fund
með forsætisráðherra landsins.
ANKARA Í TYRKLANDI
Merkel og Erdogan
lægja öldurnar
Angela
Merkel
Forseti Úkraínu,
Petro Poro-
shenko, segist
vilja halda þjóð-
aratkvæði um
hugsanlega inn-
göngu Úkraínu í
Atlantshafs-
bandalagið
(NATO). Frétta-
veita AFP grein-
ir frá því að um
54% þjóðarinnar vilji ganga í
varnarbandalagið, samanborið við
16% fyrir fjórum árum.
„Sem forseti verð ég að fylgja
vilja þjóðarinnar og mun því skipu-
leggja þjóðaratkvæðagreiðslu um
hugsanlega aðild að NATO,“ sagði
Poroshenko við blaðamenn í Kænu-
garði. Forsetinn nefndi hins vegar
enga tímasetningu.
KÆNUGARÐUR Í ÚKRAÍNU
Vill þjóðaratkvæði
um aðild að NATO
Petro
Poroshenko
Hundur sem varð átta ára gömlum
syni forseta Gambíu, Adama Bar-
row, að bana í síðasta mánuði hefur
verið aflífaður. Hvernig nákvæm-
lega dauða drengsins bar að er enn
óljóst og segja margir íbúar lands-
ins það tengjast galdraathöfn, að
sögn fréttaveitu AFP.
Skömmu áður en Barrow tók við
embætti forseta lést drengurinn og
þykir það renna stoðum undir áður-
nefnda kenningu innfæddra, en
fyrri forseti hafði fram að þessu
neitað að yfirgefa embættið.
Í rannsókn sem gerð var á hræi
hundsins kom m.a. í ljós að hann
var ekki haldinn hundaæði.
GAMBÍA Í AFRÍKU
Hundur varð ungum
syni forseta að bana
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við munum, frá og með deginum í
dag, fylgjast sérstaklega með Íran,“
sagði Michael Flynn, ráðgjafi forseta
Bandaríkjanna í þjóðaröryggis-
málum, á blaðamannafundi í Hvíta
húsinu í Washington DC, en á
sunnudag skutu stjórnvöld í Teher-
an á loft meðaldrægri eldflaug í til-
raunaskyni með góðum árangri. Þá
greinir þýska blaðið Die Welt frá því
að tilraunir standa einnig yfir í Íran
með stýriflaugar af gerðinni Sumar,
en slík vopn geta borið kjarnaodda
sem og hefðbundna sprengihleðslu
langar leiðir að skotmarki sínu.
Erfiðar viðureignar
Fram kemur í umfjöllun Die Welt
að Sumar-stýriflaugar séu smíðaðar
í Íran og ferðaðist ein slík flaug um
600 km vegalengd í fyrsta þekkta til-
raunaskotinu. Sérfræðingar í vopna-
þróun telja hins vegar að Sumar-
flaugar geti dregið um það bil 2.000
kílómetra og hugsanlega allt að 3.000
km ef sprengihleðslan er létt.
Þeir sérfræðingar sem þýska
blaðið ræddi við benda jafnframt á
að stýriflaugar séu um margt hættu-
legri vopn en hefðbundnar meðal- og
langdrægar eldflaugar, en þær
ferðast í lægri flughæð, sjást sjaldn-
ar á ratsjám og eiga auðveldara með
að forðast eldflaugavarnir ríkja. Þá
eru stýriflaugar ekki á lista Samein-
uðu þjóðanna yfir þau vopn sem ríkj-
um er bannað að þróa, þrátt fyrir að
geta borið kjarnaodda langar leiðir.
Michael Flynn gerði einnig skipa-
siglingar Bandaríkjanna og banda-
manna þeirra um Rauðahaf að sér-
stöku umræðuefni á blaðamanna-
fundinum, en stjórnvöld vestanhafs
telja öryggi þar mjög ábótavant.
„Ríkisstjórn Obama mistókst að
bregðast við illum aðgerðum ráða-
manna í Teheran, þ. á m. vopnaflutn-
ingum, stuðningi þeirra við hryðju-
verk og önnur brot á reglum
alþjóðasamfélagsins,“ sagði hann.
„Ríkisstjórn Trumps fordæmir þess-
ar aðgerðir Íran sem draga úr ör-
yggi, velmegun og stöðugleika um öll
Mið-Austurlönd og víðar og stofna
um leið lífum Bandaríkjamanna í
hættu,“ bætti hann við.
Geta gripið til ýmissa ráða
Donald Trump Bandaríkjaforseti
og ríkisstjórn hans hafa ekki kynnt
áform sín opinberlega varðandi Íran
og vopnatilraunir þess. „Ríkisstjórn-
in getur gripið til ýmissa ráða, við
munum gera viðeigandi ráðstafanir.
Ég mun ekki veita frekari upplýs-
ingar um þetta á þessari stundu,“
sagði embættismaður við CNN.
Tilraunir Írana valda usla
Skutu á loft meðaldrægri eldflaug á sunnudag og stýriflaug fáeinum dögum síðar
Talið að Sumar-stýriflaugar geti dregið allt að 3.000 km með kjarnaodd
AFP
Hvíta húsið Michael Flynn, ráðgjafi forsetans í þjóðaröryggismálum (t.h.),
ávarpar fjölmiðla, en við hlið hans stendur Sean Spicer fjölmiðlafulltrúi.
Stjórnvöld í Suður-Kóreu og Banda-
ríkjunum hafa ákveðið að hrinda í
framkvæmd uppsetningu á öflugu
eldflaugavarnarkerfi skammt frá
landamærum Norður-Kóreu, en tíð-
ar tilraunasprengingar og skot-
flaugaprófanir norðanmanna eru
sagðar ástæðan.
Voru það Hwang Kyo-Ahn, for-
sætisráðherra Suður-Kóreu, og
James Mattis, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, sem tilkynntu þetta
í gær, en kerfið verður sett upp síð-
ar á þessu ár. Mattis er nú staddur í
opinberri heimsókn þar í landi og er
þetta í fyrsta skipti sem ráðherra úr
ríkisstjórn Donalds Trump Banda-
ríkjaforseta fer í opinbera heimsókn
til erlends ríkis.
Um er að ræða svonefnt THAAD-
eldflaugavarnarkerfi sem grandað
getur kjarnaflaugum í mikilli hæð.
Kínverjar hafa áður lýst yfir áhyggj-
um sínum af fyrirhugaðri uppsetn-
ingu kerfisins og hefur utan-
ríkisráðherra Kína, Wang Yi, m.a.
sagt hana koma til með að hafa bein
áhrif á öryggi Kína og Rússlands.
Til hliðar má sjá mynd AFP sem
sýnir hóp stuðningsmanna ríkis-
stjórnar Trump fagna komu Mattis
til Suður-Kóreu. khj@mbl.is
Fyrstu opinberu heimsókn ráðherra úr ríkisstjórn Donalds Trump fagnað í Suður-Kóreu
Eldflauga-
skjöldurinn
ákveðinn
AFP