Morgunblaðið - 03.02.2017, Side 26

Morgunblaðið - 03.02.2017, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 ✝ Júlíus JónDaníelsson fæddist í Syðra- Garðshorni í Svarf- aðardal 6. janúar 1925. Hann lést á dvalarheimilinu Seljahlíð 20. janúar 2017. Júlíus var sonur hjónanna Daníels Júlíussonar frá Syðra-Garðshorni, f. 5. nóvember 1891, d. 14. desember 1978, og Önnu Jóhannsdóttur, f. 27. apríl 1893, d. 14. mars 1988, frá Brekkukoti í Svarfaðardal. Systkini Júlíusar voru Steinunn, f. 8. janúar 1919, látin, Jóhanna María, f. 6. desember 1921, látin, Jóhann Kristinn, f. 18. nóv- ember 1927, látinn, og Björn Garðars, f. 26. ágúst 1932. Árið 1950 eignaðist Júlíus dótturina Guðbjörgu, f. 13. september 1950, d. 11. janúar 2003. Móðir hennar er Una Runólfsdóttir, f. 7. september 1928. Guðbjörg giftist Einari Bogasyni árið 1975. Þau fluttu til Svíþjóðar ár- ið 1977 og eignuðust þrjú börn. Þau eru: Alex, f. 29. maí 1980, eiturefnafræðingur í Stokk- 8. nóvember 1957. Þau skildu. Börn þeirra eru: Ari Júlíus, f. 15. september 1990, d. 24. sept- ember 2013, og María, f. 15. mars 1992. Unnusti Maríu er Ív- ar Vincent Smárason, f. 6. sept- ember 1992. Anna Guðrún er gift Viðari Hreinssyni, f. 3. nóv- ember 1956. Börn þeirra eru Egill, f. 23. september 1984, Auður, f. 8. maí 1987, Bjarki Hreinn, f. 4. apríl 1993, og Gunnhildur, f. 6. desember 1994. Sambýliskona Egils er Rikke Poulsen, f. 11. nóvember 1987. Eiginmaður Auðar er Hrafn Fritzson, f. 24. september 1984, og börn Þorri, f. 25. janúar 2010, og Jara, f. 22. ágúst 2013. Unn- usta Bjarka er Dögg Gísladóttir, f. 17. ágúst 1993. Unnusti Gunn- hildar er Bjarni Rafn Gunn- arsson, f. 31. ágúst 1985. Ing- ólfur var kvæntur Monicu Haug, f. 19. júní 1970. Dætur þeirra eru Hrafnhildur Sif, f. 3. sept- ember 2001, og Sara Lilja, f. 3. júní 2003. Júlíus stundaði bú- fræðinám í Uppsölum í Svíþjóð 1946-1951 og starfaði við Bún- aðarfélag Íslands frá 1954. Sum- arið 1959 fluttu Júlíus og Þur- íður í Svarfaðardal og bjuggu lengst af í Syðra-Garðshorni til 1976. Þá fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur. Júlíus fékk starf við Búnaðarblaðið Frey og starfaði þar til starfsloka. Útför Júlíusar fer fram frá Seljakirkju í dag, 3. febrúar 2017, og hefst klukkan 13. hólmi, Bogi, f. 4. nóvember 1981, rafvirki í Skurup, og Ólavía Lára, f. 2. júlí 1991, nemi í Tommelilla. Alex er kvæntur Denise Thun og barn þeirra er Felicia. Bogi er kvæntur Elisabeth Einars- son. Barn þeirra er Freja. Unnusti Láru er Robin Fjun Sjöstrand. Þann 5. júlí 1958 gekk Júlíus að eiga Þuríði Árna- dóttur íþróttakennara, f. 23. júlí 1933, d. 11. mars 2016. For- eldrar Þuríðar voru hjónin Ólafía Guðrún Helgadóttir frá Patreksfirði, f. 10. september 1900, d. 6. apríl 1954, og Árni Árnason frá Hurðarbaki í Flóa, f. 23. apríl 1893, d. 30. ágúst 1977. Börn Þuríðar og Júlíusar eru: Árni Daníel, f. 31. júlí 1959, Anna Guðrún, f. 20. júní 1961, og Ingólfur, f. 4. maí 1970, d. 22. apríl 2013. Árni Daníel er kvæntur Birnu Gunnarsdóttur, f. 12. mars 1965, sonur þeirra er Pétur Xiaofeng, f. 24. apríl 2007. Fyrri eiginkona Árna Daníels er Sigríður Pálsdóttir, f. Þegar ég kynntist Júlíusi tengdaföður mínum fyrir 34 ár- um var eins og við hefðum alltaf þekkst. Kannski var það sameig- inlegur uppruni og staða. Sveita- menn á mölinni, menn tveggja heima, hann með vott af fortíð- arþrá og trega yfir að hafa yf- irgefið sveitina, ég með vaxandi fræðilegan áhuga á bændasam- félagi fyrri tíma. Við gátum endalaust spjallað og skipst á sögum af litríku mannlífi. Hann kunni þó miklu fleiri sögur úr Svarfaðardal en ég úr minni sveit og að auki hafsjó af vísum. Ekki leið á löngu áður en við höfðum komið á samskiptahátt- um með sérkennilegum ávörpum og smástríðni, „það verða fimm- tíu krónur“ sagði hann ef hann gerði manni greiða, „þú sendir bara reikning“ svaraði ég. Við vorum sammála um margt en rótgrónasta samkomulagið var að vera ósammála í pólitík. Hann var framsóknarmaður í merg og bein þó að hann hefði kosið Kvennalistann á sínum tíma. Við stríddum hvor öðrum á pólitík til hinstu stundar og höfðum báðir gaman af. Júlíus las mikið af því sem ég skrifaði um dagana og var óspar á hrós, hvort sem það voru harð- snúnar bókmenntaritgerðir á dönsku eða ævisögur á íslensku. Það var ómetanlegt fyrir sjálf- stætt starfandi fræðimann að eiga hann að með hvatningu og stuðning þegar syrti í álinn. Sjálfur var hann fræðimaður að eðlisfari, fluggreindur, gagn- menntaður og sílesandi, vel rit- fær og hélt fróðleik til haga. Hann var iðinn myndasmiður og tók myndir við öll hugsanleg tækifæri. „Þetta er heimild,“ sagði hann þegar hann smellti af mynd, hirðumaður um allar heimildir. Hann lét oft stækka gamlar myndir, merkti þær og gaf öðrum. Júlíus var söngelskur gleði- maður en svo góðviljaður að hann fann aldrei að því að ég gæti ekkert sungið. Hið svarf- dælska söltunarfélag var merk- ur félagsskapur um söng og söngvatn sem Júlíus átti með bræðrum og vinum, Jóhanni og Birni, Halldóri mági sínum, Hjalta í Ytra-Garðshorni og fleirum. Þeir drukku og sungu af hjartans lyst, jafnvel nýortar vísur og kvæði. Mesta gleði hafði Júlíus þó af afkomendum sínum. Þau Þuríð- ur nutu þess að fá barnabörnin í heimsókn, spjalla við þau og syngja með þeim. Oft hafði hann á orði hve vitlaus hann hefði ver- ið á yngri árum, því þá ætlaði hann að pipra. Á mannamótum var hann hrókur alls fagnaðar, hafði gít- arinn með í fjölskylduveislur og leiddi söng. Hann var vinamarg- ur og lét sér annt um hagi fólks, bætti og fegraði lífið í kringum sig. Á dvalarheimilinu Seljahlíð, þar sem hann var síðustu æviár- in og naut frábærrar umönnun- ar, var hann vinsæll vegna gamansemi sinnar og góðvildar. Hann gerði sér far um að læra hrafl úr tungumálum starfsfólks og kunni nokkrar setningar á pólsku og fleiri tungumálum. Júlíus var svo lánsamur að halda góðu minni, sagnagleði og sálarþreki allt til loka, þótt ýmis áföll dyndu yfir síðustu árin og líkaminn hrörnaði svo hann átti erfitt um gang. Öllu slíku mót- læti tók hann með djúpri ró og æðruleysi. Að leiðarlokum, þeg- ar Júlíus er fallinn frá, þokar treginn um síðir fyrir björtum minningum og þakklæti fyrir vináttu og góða samfylgd heið- ursmanns. Viðar Hreinsson. Minn kæri vinur og svili, Júl- íus Jón Daníelsson, er kominn til himna, með honum er fallinn frá margslunginn maður með ríka kímnigáfu og oft stríðnin upp- máluð. Júlíus var með góða bassarödd og söng í kórum, bæði í Svarfaðardal og hér fyrir sunn- an. Oft tókum við lagið saman og það varð honum tilefni til að segja nú er gaman, krakkar. Júl- íus var víðlesinn og skarpur í hugsun. Hann var búfræðingur að mennt og vann sem ritstjóri hjá búnaðarritinu Frey. Júlíus og Þuríður kona hans bjuggu í Syðra-Garðshorni í Svarfaðardal. Þar var oft glatt á hjalla þegar Júlíus og bræður hans héldu sviðaveislur með miklum söng og gamanmálum. Þuríður var hörkudugleg kona og kenndi við Húsabakka- skóla með búskapnum. Þau fluttu til Reykjavíkur 1976 og kenndi Þuríður við Breiðholts- skóla til starfsloka. Þuríður lést 11. mars 2016, þar með eru þessi heiðurshjón bæði fallin frá. Votta ég börnum og öllum ætt- ingjum og vinum samúð og vona að minningin um þessi heiðurs- hjón verði þeim huggun harmi gegn. Theódór Óskarsson. Núna ert þú víst farinn, frændi. Tapaðir að lokum slagn- um við Elli kerlingu sem þú hef- ur samt haft flestum mönnum betur í baráttunni við. Í mínum augum varst þú sérstakari mað- ur en flestir aðrir sem ég hef kynnst og þín er því ómögulegt að minnast eins og en flestra annarra. Við vorum sveitungar, frænd- ur og unnum á sama vinnustað í áratugi þannig að margt urðum við að lifa saman. Fyrstu minningarnar eru þeg- ar það fréttist norður í Svarf- aðardal að von væri á nýjum ábúanda í Syðra-Garðshorn eitt vorið. Þetta var brottfluttur son- ur fullorðnu hjónanna sem þar bjuggu sem var að koma til bú- skapar með fjölskyldu sinni. Þetta varst þú. Sveitungar þínir brugðust við með fögnuði og kusu þig eiginlega strax sem oddvita sveitarinnar. Ég hafði þá sem barn litla þekkingu á sveit- arstjórnarmálum en í minning- unni virðist mér að þú hafir verið dáður í þessu starfi af nánast hverjum manni fyrir þína ljúf- mannlegu og glaðlegu fram- komu. Oft minnist ég þín keyr- andi á jeppanum syngjandi sæll og glaður, þó að engin yrðu per- sónuleg kynni á þessum tíma enda hlutfallslegur aldursmunur það mikill. Frá þeim tíma held ég samt að báðir hafi vitað af til- vist hins og jafnvel aðeins fylgst með hvað henti hvorn annan. Búskaparvera þín varð ekki löng að þessu sinni. Ég lagðist brátt þegar ég stækkaði í landaflakk en á þeim góðu árum fluttir þú norður í dalinn góða aftur og fórst að uppfræða ungdóminn á Dalvík en áður hafði ég fengið góða viðkynningu af bræðrum þínum báðum í því starfi. Aldrei kynntist ég þér sem kennara en ætla að þar hafir þú jafnvel verið bræðrabetrungur og áreiðanlega hefur hin einstaka glaðværð þín fallið í kramið hjá ungviðinu. Eftir einhver starfsár mín hjá BÍ birtist þú síðan sem starfs- maður á búnaðarblaðinu Frey, sem þá naut virðingar meðal bænda. Þú komst ekki þar til starfa sem ókunnur maður þar sem þú hafðir einhver ár áður en til búskapar kom í Syðra-Garðs- horni starfað sem aðstoðarmað- ur við blaðið hjá gömlum sveit- unga okkar Gísla Kristjánssyni. Þarna starfaðir þú meðan starfs- ævin entist sem blaðamaður og ritstjóri. Hin fjölhæfa þekking þín á öllum sviðum starfsins nýttist þér einkar vel. Ekkert vafamál er að meðal starfsfólks naust þú mikilla vinsælda vegna þíns einstaka ljúfa skaps og léttu lundar og aldrei langt í að tónar sönglaganna heyrðust. Þar sem ég er rati í öllu sem að tónlist lýtur lágu áhugasvið okkar ekki saman þar. Okkar mesta sameig- inlega áhugamál var hins vegar áreiðanlega dalurinn fagri fyrir norðan. Nokkrar ógleymanlegar ferðirnar áttum við þangað sam- an þegar báðir töldu sig þurfa að sækja þangað aukinn lífskraft. Minning þín, frændi góður, verður ávallt slegin töfraljóma. Þín einstaka lífsgleði og létta lund mun hlýja okkur um ókom- in ár sem nutu þeirra forréttinda að kynnast því vel. Öllum nánustu aðstandendum votta ég innilega samúð mína við fráfall Júlíusar Jóns Daníelsson- ar. Jón Viðar Jónmundsson. Ég kveð hér með í dag elsku- legan og góðan frænda, sem ég kem til með að sakna mikið. Hann Júlíus móðurbróðir minn var ekki bara frændi með stóru F-i, heldur líka góður vinur sem ég hafði óendanlega mikið gam- an af að hitta og umgangast. Við vorum nefnilega svo líkir á mörgum sviðum, höfðum sama húmor og hlógum oft dátt að bröndurum og fyndni hvor ann- ars. Ég kynntist Júlíusi snemma er mamma fór að fara með mig norður í Svarfaðardal í heimsókn til ömmu og afa. Júlíus og fjöl- skylda, sem þá bjó fyrir norðan, urðu fljótlega snar þáttur í lífi mínu, enda gestrisni og hlýlegt viðmót þeirra einstakt og svo átti hann börn sem voru á mínu reki og ég lék mér alltaf við. Börn Júlíusar og Þuríðar hafa ætíð síðan verið mér náin og kær og mikil vinátta ætíð verið með okkur. Alltaf stóðu allar dyr mér og minni fjölskyldu opnar og alltaf var ég velkominn til þeirra. Þessi bönd urðu því órjúfanleg og tengsl okkar því náin og sterk og styrktust bara með tímanum, sérstaklega eftir að þau fluttu hingað suður. Til Júlíusar og fjölskyldu gat ég alltaf kíkt í heimsókn, nánast hvenær sem var. Júlíus var þannig að hann var alltaf tilbú- inn að taka á móti fólki og spjalla um daginn og veginn. Hann var ekki maður sem bar tilfinningar sínar á torg þó svo að hann hefði haft ærnar ástæður til nú í seinni tíð. Hann missti elstu dóttur sína skyndilega á besta aldri, missti yngsta son sinn rétt fertugan úr stuttum og erfiðum veikindum, missti barnabarn sviplega, og ofan á allt þetta, að þurfa að vera viðskila við hana Þuríði sína í mörg ár vegna bar- áttu hennar við langvinnan og erfiðan sjúkdóm. Í öllu þessu hélt hann í glaðværðina og jafn- aðargeðið og í æðruleysi sínu bar hann harm sinn í hljóði. Júl- íus kom líka úr þannig fjölskyldu og umhverfi norður í Svarfaðar- dal þar sem ætíð ríkti mikil já- kvæðni, velvild og gæska, sem og söngur og gleði, sem var það vegarnesti sem mótaði Júlíus og lífshlaup hans. Hann var maður sem barst ekki á enda nægju- semi honum í blóð borin. Í seinni tíð var eini lúxusinn sem gladdi hann að fá sér einn og einn bjór og sagði ég honum þegar ég heimsótti hann að ég væri kom- inn með „meðulin“ hans og tók hann þá jafnan mikinn fjörkipp af gleði. Þetta voru dásamlegar stundir sem við áttum saman nú í seinni tíð og hann naut þessi greinilega að fá mig í heimsókn til „gamla frænda“ eins og hann orðaði það. Hann spurði alltaf út í fjölskyldu mína, hvernig þeim vegnaði og bað alltaf að heilsa þeim. Hann sagði mér oft skemmtisögur af sér og bræðr- um sínum hér áður fyrr, sem og frægðarsögur af sér og íþrótta- afrekum sínum hér heima sem og frá námsárum sínum í Sví- þjóð. En nú hefur Júlíus frændi kvatt þennan heim og nú er eng- inn Júlíus lengur til að heim- sækja og spjalla við og skiptast á brandörum við. En minningin lifir um góðan og kærleiksríkan frænda. Takk fyrir skemmtileg- heitin, góðsemi og gæsku í minn garð. Ég og fjölskylda mín send- um eftirlifandi börnum hans Júl- íusar sem og tengdabörnum og barnabörnum, innilegar samúða- kveðjur. Þinn systursonur, Örn og fjölskylda. Lítill drengsnáði stóð á hlaðinu í Laugahlíð og horfði á fuglana á Tjarnartjörninni. Hann vissi vel um flug fuglanna um óravíddir himinsins en minna um hæfileika þeirra til sunds á vötnum. Snjólaug var nærri og heyrði drenginn tvinna saman blótsyrðum um afa sinn og bæta við að hann væri „ljúgur“ að segja að öndin væri fugl! Sagan fékk vængi og hefur allt síðan þá flögrað um landið. Júlíus Dan og Gunnar skóla- stjóri á Húsabakka voru liðtækir í því að halda ljúgarasögunni um mig á lofti bæði norðanlands og sunnan. Til hennar má rekja L- ið sem bættist alltaf við nafn mitt á jólakortum frá Júlíusi og hefur sjálfsagt einhvern tíma ruglað póstdreifingarfólk. Það stóð fyrir „ljúgur“! Við vorum hreppsmálarar í Svarfaðardal um tíma; Páll mál- ari, ömmubróðir minn, bræðurn- ir Júlíus og Jóhann Daníelssynir og ég. Við máluðum skólabygg- ingar, sundskálann og þinghúsið og skemmtum um leið hver öðr- um með sögum, glensi og gam- anmálum. Stundum líka með því að fá okkur eina ölkollu eða tvær. Þeir Syðra-Garðshorns- bræður og Páll voru endalaus uppspretta sagna og kveðskapar um menn og málefni í Svarfaðar- dal sem langyngsti maðurinn í hópnum skemmti sér við að hlusta á og hlæja að með þeim. Hláturinn sem kraumaði í þess- um vinum mínum við hverja sögu heyri ég alltaf innra með mér síðan. Líklega hefur Júlíus verið mestur sagnamaður þessara þriggja. Það streymdu frá hon- um sögurnar og þær voru óspart færðar í stílinn með leikrænum tilburðum og eftirhermum. Þjálfun í slíku fékk hann góða frá unga aldri á því fróma menn- ingar- og æskuheimili sínu Syðra-Garðshorni þar sem söng- ur og sagnamál voru ríkur þátt- ur í uppeldinu. Söngmaður var Júlíus líka góður og hafði yndi af tónlist. Öllum þessum hæfileik- um sínum hélt þessi sómamaður til dánardags. Heimsóknir til hans í Seljahlíð voru sagna- og menningarstundir með ómældri kátínu og gleði og svolítilli lögg í glasi. Svarfaðardalur liðins tíma lifnaði við. Lítið er sjálfsagt eftir af lit- unum sem við félagarnir skildum eftir okkur á veggjum og loftum í Svarfaðardal, búið að mála yfir þá með nýjum. En yfir fallegar minningar málar enginn og þær á ég margar frá samverunni með Júlíusi og þeim hinum hrepps- málurunum. Til dæmis þegar „ljúgurinn“ var aftur mættur í Laugahlíð en nú til þess að mála ásamt Júlíusi. Við gerðum það að okkar áliti skammlaust þar til ketilhúsið var eitt eftir. Hvaða lit setur maður á ketilhús? Jú, við ákváðum að skella saman öllum afgöngum sem við áttum en urð- um furðu lostnir yfir þeim und- arlega lit sem við okkur blasti. Máluðum samt. Við skírðum þennan nýja lit „furðulosta“! Jón Baldvin (BL) Halldórsson. Það er gott að eiga góðar minningar um góðan vin, Júlíus Jón Daníelsson. Við Júlíus áttum samleið um tíma, hvor við störf á vettvangi landbúnaðarins í Bændahöll, hann, sem annar rit- stjóra Búnaðarritsins Freys, ég við tímabundið verkefni að úr- ræðum til atvinnufjölbreytni í sveitum. Mín fyrsta minning um Júlíus er um mann, gjarnan á áberandi rauðri skyrtu, sem oft birtist um miðjan dag í seturými Stéttar- sambands bænda, framan við skrifstofu mína, og las dagblöð- in, sem þar lágu frammi, en sjálfur hafði Júlíus starfsaðstöðu á gangi Búnaðarfélagsins á sömu hæð. Síðar áttum við svo samleið í starfi þar sem ákveðið var að gera verkefni mínu skil í Frey og fjalla þar um og hvetja bænda- fólk til að skoða úrræði sem gætu gefið hliðartekjur við hefð- bundinn búskap. Þessu var kom- ið í framkvæmd með skipulögð- um heimsóknum út í héruðum, með fundum og ráðstefnum. Júl- íus tók viðtöl og sagði frá í Frey, allt til að upplýsa og hvetja. Löng og mörg ferðalög vítt um land gáfu tilefni til að kynn- ast vel og um margt var spurt og spjallað. Júlíus var í senn bæði fræðandi og spurull. Hann átti þann góða hæfileika að leiða samræður áfram og skapa þá áhugaverða frásögn, samtal og trúnað. Eftir hverja heimsókn varð til skýrsla/ferðasaga sem Júlíus fór yfir. „Ég vil að þú skrifir eftir mig,“ sagði hann eitt sinn. Seinna færði ég honum þessar frásagnir í samantekt sem honum þótti vænt um og vitnaði oft til. Nú er komið að því að standa við sitt og það er mér mikill heiður að minnast þessa góða og trausta vinar. Þó Júlíus væri fróður um margt voru þó ýmsir staðir á landinu, sem hann hafði aldrei komið til eða dvalið á, Vest- mannaeyjar þar á meðal. Það var því okkur hjónum mikil ánægja að eiga helgi á Heimaey með Þuríði og Júlíusi í sumar- blíðu og njóta saman fegurðar eyjanna. Þá áttum við og skemmtilega samveru í bústað okkar í Grímsnesinu. Þar leið tíminn í svarfdælskum anda við gleði og söng og þá voru viðhöfð hans skemmtilegu orðatiltæki, sem hann greip oft til, „skál, góðir hálsar og sænskir menn“ og gjarnan „og vil ég að það verði fært til bókar“. Fjölskyldu Júlíusar færum við innilegar samúðarkveðjur, bless- uð sé minning hans. Arnaldur Mar Bjarnason. Einn af ágætum og eftir- minnilegum sonum Dalsins er genginn til feðra sinna. Harmur er að slíkum fréttum, jafnvel þótt langri og fagurri lífsgöngu sé nú lokið. Hvíldin er líka góð eftir langar göngur. Júlíus Daní- elsson var í hópi einstakra vina minna, margfróður, gefandi og kunni þá list að slá á strengi lífs- ins, alltaf jákvæður og svo var „húmorinn“ aldrei langt undan. Er ég fyrst kynntist þeim bræðrum frá Syðra-Garðshorni tókust fljótlega góð og vinsam- leg kynni er sífellt styrktust. Það sama er að segja um börnin þeirra og fjölskyldur. Í sumum tilfellum „erfðist“ þessi vinátta til barna okkar og þar er í dag sönn og mikil vinátta. Kynni okkar Júlíusar Dan hófust er við kenndum báðir við Dalvíkur- skóla. Síðar kenndum við Þur- íður kona hans á Húsabakka. Þau bjuggu þá í Syðra-Garðs- horni. Ég minnist daglangrar veru hjá þeim hjónum ein jólin. Börnin léku sér saman og margt var skrafað og tekið lagið. Ógleymanleg jólagleði í sveit- inni, mikil veisla. Júlíus var afar kurteis maður. Eitt sinn er kennarar við Dalvík- urskóla háðu knattleik við sjó- menn á sjómannadaginn var Júl- íus settur í markið. Gárungarnir sögðu að sigur sjómanna hefði helgast af því hversu markmað- urinn vék sér fimlega frá bolt- Júlíus Jón Daníelsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.