Morgunblaðið - 03.02.2017, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 03.02.2017, Blaðsíða 35
ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 Örn var 15 ára er hann fór á vertíð í Keflavík, var á vertrarvertíðum og síðan á síldveiðum á sumrin fyrir Norðurlandi og var orðinn skipstjóri er hann var 22 ára og var síðan skip- stjóri meðan hann stundaði sjó. Hann var m.a. skipstjóri á Ingiber Ólafssyni KE og Eldey KE, starfaði við þróun- araðstoð og veiðar í Suður-Kóreu á vegum FAO 1969-73. Þá festi hann og Þorsteinn, bróðir hans, kaup á Erni RE og var Örn skipstjóri á honum og gerði hann út um árabil, ásamt fleiri bátum, s.s. Erni KE 13, Erni KE 14, Guðrúnu Gísladóttur KE 15 auk þess sem hann og Þorsteinn gerðu út Er- ling KE og Búrfell KE. Örn hefur orðið vitni að og tók þátt í gífurlegum breytingum á skipakosti og veiðarfærum frá því hann fór fyrst til sjós: „Þetta eru aðallega breyt- ingar á uppsjávarveiðum, s.s. á síld- og loðnuveiði. Tæknivæðingin við veiðarnar hefur aukið mjög afköst og verkmenningu, stórbætt meðferð og verðmæti aflans og dregið úr slysa- hættu til sjós.“ Örn hætti útgerð á síðasta ári eftir farsælan feril: „Nú er maður bara í sportinu. Ég spila golf og hef gaman af laxveiði, hef veitt oft í Selá í Vopna- firði, í Laxá í Aðaldal og flestum lax- veiðiám hér sunnanlands. Ég er ekki í neinu helvítis föndri en fer oft til Flórída á veturna og geri bara það sem mér sýnist.“ Fjölskylda Eiginkona Arnar var Bergljót Stef- ánsdóttir, f. 14.5. 1938, d. 12.8. 2000, húsfreyja. Foreldrar hennar voru Stefán Jónsson, f. 29.5. 1897, d. 4.4. 1961, bóndi og eldsmiður í Keflavík, og k.h., Steinunn G Kristmunds- dóttir, f. 5.8. 1904, f. 14.11. 1975, hús- freyja. Synir Arnar og Bergljótar eru Stefán Arnarson, f. 6.4. 1962, hag- fræðingur og deildarstjóri við Seðla- bankann, búsettur á Seltjarnarnesi, en kona hans er Elín Guðjónsdóttir, starfsmaður við fjármálaráðneytið, og eiga þau tvö börn; Erlingur Arn- arson, f. 13.4. 1967, sjávarútvegsfræð- ingur í Keflavík, en kona hans er Þór- dís Lúðvíksdóttir húsfreyja og eiga þau tvö börn; Hjörtur Arnarson, f. 6.3. 1971, tölvunarfræðingur á Sel- tjarnarnesi, en kona hans er Björg Ólafsdóttir og eiga þau þrjú börn, og Örn Arnarson, f. 6.12. 1975, hagfræð- ingur hjá Samtökum fjármála- fyrirtækja, en kona hans er Rakel Guðmundsdóttir húsfreyja og eiga þau tvö börn. Dóttir Arnar frá því fyrir hjóna- band er Dagfríður Guðrún Arnar- dóttir, f. 15.3. 1958, húsfreyja í Kefla- vík, en maður hennar er Sigurvin Breiðfjörð Guðfinnsson, starfsmaður Tollgæslunnar í Leifsstöð, og eiga þau tvo syni. Sambýliskona Arnar er Ingunn Þóroddsdóttir, f. 11.9. 1949, kennari. Systkini Arnar: Steinn Erlingsson, f. 1939, vélstjóri í Keflavík; Steinunn Erlingsdóttir, f. 1941, húsfreyja í Keflavík; Þorsteinn Erlingsson, f. 1943, útgerðarmaður í Keflavík; Kristjana Pálína Erlingsdóttir, f. 1949, lengst af starfsmaður við Frí- höfnina í Leifsstöð, búsett í Keflavík, og Stefanía Erlingsdóttir, f. 1953, verslunarmaður hjá Máli og menn- ingu. Hálfbróðir Arnar er Ólafur Böðvar Erlingsson, f. 1.8. 1934, pípulagn- ingameistari í Sandgerði. Foreldrar Arnar voru Erling Ey- land Davíðsson, f. 8.3. 1916, d. 8.9. 1974, sjómaður og síðar bifreiðar- stjóri í Garðinum og í Keflavík, og Guðrún Steinunn Gísladóttir, f. 25.2. 1916, d. 21.11. 2007, húsfreyja. Úr frændgarði Arnar Erlingssonar Örn Erlingsson Steinn Lárusson form. í Steinshúsi í Garði Steinunn Steinsdóttir húsfr. á Sólbakka Gísli Sighvatsson útgerðarm. á Sólbakka í Garði Guðrún Steinunn Gísladóttir húsfr. í Garðinum og í Keflavík Ingibjörg Gísladóttir húsfr.áSandhóli og íGerðum Sighvatur Jón Gunnlaugsson kaupm. og b. á Sandhóli Sigríður Sighvatsdóttir húsfr. í Rvík Guðmundur Jónsson togaraskip- stj. í Rvík Jón Guðmundsson hreppstj. og oddviti á Reykjum í Mosfellss.og heiðursborgari Mosfellsbæjar Jón Magnús Jónsson b.áSuður- Reykjum og frkvstj. Ísfugls Ingibjörg Halldórsdóttir húsfr. í Rvík Pálína Margrét Jónsdóttir húsfr. í Rvík Guðbrandur Hafliðason b. í Kothól og sjóm. og verkam. í Rvík Kristjana Guðbrandsd. Norðdahl húsfreyja í Reykjavík Davíð Björnsson bóksali í Winnipeg Erling Eyland Davíðsson sjóm. og bifreiðarstj. í Garð- inum og í Keflavík Guðrún Bjarnadóttir vinnuk. í A-Hún, flutti til Vesturheims Björn Hjálmarsson húsm. í A-Hún. og verkam. í Rvík Guðrún Þórðardóttir húsfr. í Steinshúsi, af Engeyjarætt Jón Þórðarson skipstj. í Rvík Sigríður Þorvaldsdóttir leikkona Þórunn Lárusdóttir leikkona Dísella Lárusdóttir óperusöngkona hjá Metropolitian óperunni Ingibjörg Lárusdóttir lögfr. og sviðsstj. hjá Icelandair Gunnar Sigurðsson fæddist ÍReykjavík 2.2. 1917. For-eldrar hans voru Sigurður Ágúst Guðmundsson skipstjóri og Gíslína Sigurðardóttir húsfreyja. Eiginkona Gunnars var Ragnhild- ur Guðmundsdóttir og eignuðust þau Guðmund og Sigurð Ágúst. Systkini Gunnars voru Sigurgísli og Bára sem bæði eru látin. Gunnar lauk vélskólaprófi og stundaði síðar nám við Brand- instruktor við Civilforsvarets Tekn- iske Skoli í í Danmörku 1966. Gunnar starfaði við síldarverk- smiðju Kveldúlfs á Hjalteyri sumrin 1940 og 1941, annaðist uppsetningu á vélasamstæðum hjá Vífilfelli í tvö ár og starfaði síðan hjá Hitaveitu Reykjavíkur 1943-58. Árið 1958 var hann ráðinn varaslökkviliðsstjóri í Reykjavík og var það til 1984. Í tíð Gunnars sem varaslökkviliðs- stjóra urðu nokkrir stórbrunar í Reykjavík. s.s. hjá Ísaga, skemmu- bruni í Örfisey og SÍS við Tryggva- götu.en mesta váin var þó Vest- mannaeyjagosið 1973. Gunnar fór strax á vettvang og fékk mikla trú á stefnubreytingu hraunrennslisins með hraunkælingu. Ásamt prófess- orunum Þorleifi Einarssyni og Trausta Einarssyni lögðu þeir á ráð- in með vatnsöflun og dælur en ljóst var að mikið vatn þyrfti til þessa verkefnis. Öflugar dælur voru ekki til í landinu og fengu þeir Svein Eiríksson, slökkviliðsstjóra á Kefla- víkurflugvelli, til að kanna hvort herinn gæti útvegað fjölda af af- kastamiklum dælum. Sendur var fjöldi af dælum til verkefnisins frá Bandaríkjunum. Þetta gríðarlega vatnsmagn sýndi fljótlega fram á mátt kælingarinnar. Þannig náðist að byggja upp varnargarða sem hægðu á rennslinu í átt til byggðar. Á sínum yngri árum keppti Gunn- ar í frjálsum íþróttum, einkum í hlaupum. Hann var formaður Aftur- eldingar 1953-55 og 1958, varafor- maður UMSK 1954-59 og formaður ÍR 1965-72. Gunnar lést 29.8. 1994. Merkir Íslendingar Gunnar Sigurðsson 90 ára Jónatan Klausen 85 ára Edda Ingveldur Larsen Lilja Helga Gunnarsdóttir 80 ára Arnfríður Gunnarsdóttir Hrafnhildur J. Grímsdóttir Hulda Sigurðardóttir Vilborg Guðrún Þórðardóttir Örn Erlingsson 75 ára Guðlaugur Gíslason Jón B. Aspar Margrét Helgadóttir Unnur Kolbrún Karlsdóttir 70 ára Anna Sigríður Zoëga Baldur Björn Borgþórsson Baldur Gunnlaugsson Birgir Hjaltalín Guðríður Friðriksdóttir Hólmfríður Bjartmarsdóttir Hrafnhildur Helgadóttir Kolbrún Þórðardóttir Kristín Emilía Daníelsdóttir Linda Helena Tryggvadóttir Margrét Petersen Miroslaw Zaleski Miyako Þórðarson Sigríður Aradóttir 60 ára Áslaug Þorvaldsdóttir Guðný Jóna Ólafsdóttir Helga Guðmundsdóttir Jovina M. +Sveinbjörns- dóttir Pétur Ástvaldsson Rannveig Benediktsdóttir Ríkharður Gústafsson Svavar Bragi Jónsson 50 ára Birna Böðvarsdóttir Eydís Arna S. Eiríksdóttir Gísli Vilberg Gunnarsson Hallgrímur Agnar Jónsson Heimir Halldórsson Hermann Friðriksson Hrafnhildur Sigurhansdóttir Ragnheiður Gróa Hafsteinsdóttir Theódór Gylfason 40 ára Arnar Líndal Sigurðsson Bjarki Þórhallsson Jóhanna Guðmunda Þórisdóttir Jón Arnar Emilsson Lilian Jensen Magnús Þór Guðmundsson Ragnar Bjarnason Skuggi Baldur Ingi Ólafsson Sylvía Svavarsdóttir 30 ára Agnar Bragi Magnússon Ásta María Kjartansdóttir Berglind Þorsteinsdóttir Edyta Silipicka Höskuldur Goði Þorbjargarson Júlíus Garðar Þorvaldsson Lumjana Memi Manuel Francesco Mewes Smári Freysson Tinna Katrín Jónsdóttir Vitalijus Orlovas Til hamingju með daginn 30 ára Agnar ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk viðskiptafræðiprófi frá HÍ og MBA frá Lynn Univers- ity í Flórída og er viðskiptastjóri hjá Já.is. Maki: Diana Parvulescu, f. 1988, starfsmaður við Bláa lónið. Foreldrar: Helen Agnars- dóttir, f. 1961, sölumaður hjá TMT, og Magnús Haukur Norðdahl, f. 1954, tamningamaður. Þau búa í Reykjavík. Agnar Bragi Magnússon 30 ára Tinna lauk prófi í fatahönnun og jóga- kennslu, syngur í hljóm- sveitum og starfar hjá Eggert feldskera. Börn: Mikael Björgvin, f. 2007, og Ronja Kolfinna, f. 2015. Foreldrar: Elísabet Árna- dóttir, f. 1958, og Jón Sig- urðsson, f. 1958. Stjúp- faðir: Eysteinn Sigurðs- son, f. 1956, og stjúp- móðir: Hafdís Búadóttir, f. 1956. Tinna Katrín Jónsdóttir 40 ára Jón Arnar býr á Akureyri, lauk prófum í rafmagnstæknifræði frá IHK og starfar hjá Lands- virkjun. Maki: Ingunn E. Eyjólfs- dóttir, f. 1978, félagsráð- gjafi. Börn: Viktor Bjarkar, f. 2008; Egill Örn, f. 2010, og Katrín Sara, f. 2015. Foreldrar: Laufey Eiríks- dóttir, f. 1951 og Emil Bjarkar Björnsson, kenn- arar á Egilsstöðum. Jón Arnar Emilsson Ármúla 15, 108 Reykjavík Sími 515 0500 fasteignakaup@fasteignakaup.is fasteignakaup.is Fasteignasalinn þinn fylgir þér alla leið í söluferlinu, frá upphafi til enda Sirrý lögg. fasteignasali Erna Vals lögg. fasteignasali Íris Hall lögg. fasteignasali

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.