Morgunblaðið - 03.02.2017, Síða 14

Morgunblaðið - 03.02.2017, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 RÝMINGARSALA 30% AFSLÁTTUR Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is Opið virk a dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 Stór viðarsög áður 195.000 nú 136.500 Þykktarhefill/ afréttari áður 298.000 nú 208.600 Hjólsög áður 24.900 nú 17.430 Spónsuga áður 98.700 nú 69.090 Hjólsög m. löndum áður 29.500 nú 20.650 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þarna eru vegir sem við höfum umsjón með og okkur hefði fundist heppilegra að það hefði verið leitað umsagnar okkar á fyrri stigum. Al- mennt erum við ekki sannfærðir um að það sé til góðs að lækka umferð- arhraðann á Miklubraut og Sæ- braut, þó að við séum vissulega hlynntir því að auka umferðarör- yggi þar sem hægt er að koma því við,“ segir Hreinn Haraldsson vega- málastjóri um þær hugmyndir sem uppi eru hjá Reykjavíkurborg að lækka umferðarhraða á vissum göt- um, eins og Sæbraut og Miklu- braut/Hringbraut, vestan Kringlu- mýrarbrautar. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær var sú tillaga minni- hluta umhverfis- og skipulagsráðs felld á fundi sl. þriðjudag að leita umsagnar hjá Vegagerðinni, lög- reglunni, Samgöngustofu og sam- tökum sveitarfélaga áður en skýrsla starfshóps um lækkun umferðar- hraða yrði tekin til afgreiðslu. Í bókun sinni tók meirihluti ráðsins fram að þegar stakar aðgerðir kæmu til framkvæmda yrði samráð haft við viðkomandi umsagnaraðila. Á valdi lögreglustjóra Hreinn bendir á að það sé á valdi lögreglustjóra að heimila breyting- ar á umferðarhraða innan þéttbýlis, sveitarfélög geti aðeins lagt fram tillögur um slíkt. Utan þéttbýlis er það Vegagerðin sem ákveður leyfi- legan ökuhraða. Hreinn vonast til að heyra frá borginni á síðari stig- um málsins, áður en tillaga verður lögð fyrir lögreglustjóra. „Það er okkar hlutverk að setja upp skilti og taka þau niður, eftir því sem við á, þannig að það er ekki hægt annað en að eiga samráð við okkur þegar svona breytingar eru gerðar á vegum sem við berum ábyrgð á,“ segir Hreinn, sem efast um gildi þess að lækka hraða á göt- um eins og Sæbraut. Það hafi t.d. sýnt sig að hraðahindranir dragi ekki úr útblæstri og mengun frá bifreiðum. Vegagerðin sé almennt hlynnt aðgerðum sem auki umferð- aröryggi en sýna þurfi fram á að svona aðgerð, eins og lækkun á hraða niður í 50 eða 40 km, geri það. Samgöngustofa hefur ekki fjallað um þessi áform borgarinnar, eða verið leitað þangað eftir umsögn. Þórhildur Elínardóttir, upplýsinga- fulltrúi Samgöngustofu, segist reikna með því að á síðari stigum verði leitað til stofnunarinnar þegar formlegar tillögur liggi fyrir frá Reykjavíkurborg, sé tekið mið af bókun umhverfis- og skipulagsráðs. „Almennt eykur það umferðarör- yggi að minnka ökuhraða og Sam- göngustofa hefur verið því fylgjandi að gætt sé hófs í hraða ökutækja,“ segir Þórhildur. Tryggja þarf mannafla Ómar Smári Ármannsson, að- stoðaryfirlögregluþjónn hjá umferð- ardeild lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu, segist reikna með því að borgin leggi tillögur fram til lög- reglustjóra þegar þær liggi fyrir, til samþykktar eða synjunar. Fyrr muni lögreglan ekki skoða málið. Minnir Ómar Smári á það hlut- verk lögreglunnar að fylgjast með ökuhraða. Verði þessar breytingar gerðar þá þurfi að tryggja að lög- reglan geti sinnt eftirlitinu sem skyldi. „Ef um víðtækar tillögur er að ræða, sem hafa áhrif á stór og mikil svæði, þá þarf bæði mannafla og tækjabúnað til að hafa eftirlit með því. Ef ekki er hægt að fram- fylgja svona breytingum þá hafa þær lítinn tilgang,“ segir Ómar Smári. Páll Guðjónsson, framkvæmda- stjóri Samtaka sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu (SSH), segir mál- ið ekki hafa komið inn á borð SSH. Um pólitískan samstarfsvettvang sé að ræða og umferð um stofnbrautir snerti samtökin vissulega þó að þau séu ekki stjórnvald. „Þessar for- sendur duga samt alveg til að eiga um þetta samtal. Það eru ákveðnar forsendur í svæðisskipulagi höfuð- borgarsvæðisins um umferðina. Umferðarkerfið er hryggjarstykkið í svæðisskipulaginu,“ segir Páll og telur rétt að ræða hvort svona hug- myndir hafi áhrif á heildina. Minnir hann á samstarf sveitarfélaganna um Borgarlínu, þar sem efla á al- menningssamgöngur. Tengingar á milli sveitarfélaganna þurfi að vera í lagi og þar sé hraði á stofnbraut- um eitt atriði sem þurfi að skoða. Ekki sannfærðir um hraðalækkun  Vegamálastjóri efast um gildi þess að draga úr ökuhraða á Sæbraut  Telur heppilegra að borgin hefði haft samráð á fyrri stigum málsins  Segir hraðahindranir ekki draga úr útblæstri og mengun Morgunblaðið/Júlíus Ökuhraði Lögreglan hefur eftirlit með umferðarhraða á vegum úti, hvort sem er innanbæjar eða á þjóðvegum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.