Morgunblaðið - 03.02.2017, Page 39

Morgunblaðið - 03.02.2017, Page 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2017 Tilkynnt var í gær hvaða tíu bækur eru tilnefndar til Viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, fyrir árið 2016. Hagþenkir hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, náms- gögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Árið 2006 var tekin upp sú nýbreytni að tilnefna tíu höf- unda og bækur er til greina kæmu. Viðurkenningarráð Hagþenkis stendur að valinu, en það skipa að þessu sinni Baldur Sigurðsson, Guðný Hallgrímsdóttir, Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Sólrún Harðardóttir og Þórunn Blöndal. Viðurkenning Hagþenkis 2016 verður veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni um mánaðamót febrúar og mars. Verðlaunin nema einni milljón króna. Á Degi bók- arinnar 23. apríl munu Hagþenkir og Borgarbókasafnið standa fyrir kynningu á tilnefndum verkum í samstarfi við höfundana. Eftirfarandi höfundar og bækur eru tilnefnd í stafrófsröð höfunda:  Ársæll Már Arnarsson. Síðustu ár sálarinnar. Háskólaútgáfan. „Fléttað er saman á líflegan hátt hugmyndum ólíkra fræðigreina um sálina, allt frá Forn-Grikkjum til vorra daga,“ segir í umsögn ráðsins.  Bergsveinn Birgisson. Leitin að svarta víkingnum. Bjartur. „Ævintýraleg saga Geirmundar heljarskinns lifnar í samspili við fræðilega rannsókn höfundar og úr verður nýstárleg og trúverðug frá- sögn.“  Elín Bára Magnúsdóttir. Eyr- byggja saga. Efni og höfund- areinkenni. Bókmennta- og list- fræðistofnun Háskóla Íslands, og Háskólaútgáfan. „Aðgengileg greining á flókinni sögu og höfundi hennar er sett í samhengi við valdabaráttu þjóðveldisaldar.“  Garðar Gíslason. Á ferð um sam- félagið. Þjóðfélagsfræði. Mennta- málastofnun. „Vel ígrundað námsefni sem hvetur nemendur til að nota fjölbreyttar heimildir og hugsa á gagnrýninn og skapandi hátt.“  Guðrún Ingólfsdóttir. Á hverju liggja ekki vorar göfugu kellíngar. Bókmenning íslenskra kvenna frá miðöldum fram á 18. öld. Háskóla- útgáfan. „Ítarlegt verk um lítt kannað efni sem varpar ljósi á sambúð kvenna og bóka á miðöldum.“  Helgi Hallgrímsson. Fljótsdæla. Mannlíf og náttúrufar í Fljótsdals- hreppi. Skrudda. „Af alúð og víðtækri þekkingu er fléttað saman sögu, náttúru og mannlífi í Fljótsdal. Vandað og ríku- lega myndskreytt verk.“  Hrefna Róbertsdóttir og Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir (ritstj.). Lands- nefndin fyrri 1770-1771. Den is- landske Landkommission 1770-1771, I og II. Þjóðskjalasafn Íslands. Sögufélag. „Einstaklega vönduð útgáfa á frum- heimildum um íslenskt samfélag á 18. öld. Ítarlegur inngangur, orð- skýringar og vefsíða gefa verkinu aukið gildi.“  Steinunn Knútsdóttir. Lóðrétt rannsókn. Ódauðleg verk Áhuga- leikhúss atvinnumanna 2005-2015. Listaháskóli Íslands og Háskóla- útgáfan. „Óvenjuleg innsýn í hugmyndafræði um leikhús og hvernig unnið er að leikverkum frá fyrstu hugmynd til sýninga.“  Viðar Hreinsson. Jón lærði og náttúra náttúrunnar. Lesstofan. „Með nærfærnum hætti er fjallað um ævintýralegt lífshlaup manns á mörkum forneskju og nútímafræða í samhengi við evrópska vísindasögu.“  Úlfhildur Dagsdóttir. Sjónsbók. Ævintýrið um höfundinn, súrreal- isma og sýnir. JPV. „Fjallað er af þekkingu og innsæi um verk sérstæðs höfundar og ferill- inn tengdur við lífssýn hans og stefnur í listum. “ Tilnefningar Hagþenkis 2016  Tíu framúrskarandi rit tilnefnd fyrir árið 2016  Verðlaunin afhent í marsbyrjun  Verðlaunaféð nemur einni milljón Bækur tilnefndar Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis, félags höf- unda fræðirita og kennslugagna, voru kynntar í Grófarhúsi í gær. Safnanótt á Vetrarhátíð verður haldin í kvöld, en þá opna 45 söfn á öllu höfuðborgarsvæðinu dyr sínar frá kl. 18-23 og bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá. „Íbúar og gestir borgarinnar á öllum aldri geta notið yfir 120 viðburða af öllum stærðum og gerðum í söfnum á höfuðborgarsvæðinu. Það verður m.a. hægt að fara í pulsupartí í Garðskálanum í Gerðarsafni í Kópa- vogi, gera draugagrímur á Bóka- safninu á Seltjarnarnesi, fara á opn- un sýningar á verkum Ilmar Stefánsdóttur í Hafnarhúsinu, fara í jóga í Bókasafni Mosfellsbæjar, heyra spennandi þjóðsögu á Hvala- sýningunni, sjá ljósasirkus í Borgar- bókasafninu Grófinni, fara í forn- leifakjallarann á Bessastöðum, sjá alvöru víkinga á Sögusafninu, fara í ratleik í Hönnunarsafninu í Garða- bæ, fara til spákonu eða taka þátt í draugagöngu á Árbæjarsafni, sjá norðurljósin í Auroru Reykjavík, skoða myntir í Seðlabankanum, sjá drauga fortíðar í Hinu húsinu, sjá al- vöru eldsmiði og víkinga á Land- námssýningunni, hlusta á pönk- hljómsveitir í Pönksafninu, kíkja á alls konar merkilegar listsýningar á listasöfnum borgarinnar eða fara í stjörnuskoðun í Bókasafni Hafn- arfjarðar,“ segir í tilkynningu frá Höfuðborgarstofu. Sérstakur Safnanæturstrætó gengur á milli safnanna á öllu höf- uðborgarsvæðinu og auðveldar gest- um heimsóknina. „Safnanætur- strætó verður með óvenjulegu sniði í ár en Kvikmyndasafn Íslands hefur útbúið þrjá keyrandi bíósali um borð í strætó og sýnir einstakt heimildar- efni af ýmsum toga um borð.“ Vagn- arnir verða á sveimi milli kl. 18-23, en miðstöð þeirra verður á Kjarvals- stöðum. 120 viðburðir á Safnanótt Ljósmynd/ Ragnar Th. Sigurðsson Strætó Sérstakur Safnanæturstrætó gengur á milli safnanna 45. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Úti að aka (Stóra svið) Lau 4/3 kl. 20:00 Frums. Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Fös 24/3 kl. 20:00 aukas. Sun 5/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn Fim 9/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn. Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas. Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Lau 4/2 kl. 20:00 148. s Fös 17/2 kl. 20:00 152. s Fös 24/2 kl. 20:00 156. s Sun 5/2 kl. 20:00 149. s Lau 18/2 kl. 20:00 153. s Lau 25/2 kl. 20:00 157. s Fös 10/2 kl. 20:00 150. s Sun 19/2 kl. 20:00 154. s Lau 8/4 kl. 20:00 158. s Lau 11/2 kl. 20:00 151. s Fim 23/2 kl. 20:00 155. s Þri 11/4 kl. 20:00 159. s Glimmerbomban heldur áfram! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Lau 4/2 kl. 13:00 31. s Lau 25/2 kl. 13:00 34. s Sun 19/3 kl. 13:00 37. s Lau 11/2 kl. 13:00 32. s Sun 5/3 kl. 13:00 35. s Sun 26/3 kl. 13:00 38. s Sun 19/2 kl. 13:00 33. s Sun 12/3 kl. 13:00 36. s Lau 1/4 kl. 13:00 39. s Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar Ræman (Nýja sviðið) Fös 3/2 kl. 20:00 10.sýn Lau 4/2 kl. 20:00 11.sýn Fim 9/2 kl. 20:00 12.sýn Nýtt verk sem hlaut Pulitzer-verðlaunin 2014! Hún Pabbi (Litla svið ) Sun 5/2 kl. 20:00 10.sýn Fim 9/2 kl. 20:00 11.sýn Fös 10/2 kl. 20:00 12.sýn Í samstarfi við leikhópinn Trigger Warning Illska (Litla sviðið) Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00 Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00 Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar Vísindasýning Villa (Litla svið ) Fös 3/2 kl. 14:00 Fors. Lau 11/2 kl. 13:00 3. sýn Sun 19/2 kl. 13:00 6. sýn Lau 4/2 kl. 13:00 Frums. Sun 12/2 kl. 13:00 4. sýn Sun 5/2 kl. 13:00 2. sýn Lau 18/2 kl. 13:00 5. sýn Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna. Salka Valka (Stóra svið) Fös 3/2 kl. 20:00 13. sýn Fim 9/2 kl. 20:00 15 sýn Fim 16/2 kl. 20:00 17.sýn Mið 8/2 kl. 20:00 14. sýn Sun 12/2 kl. 20:00 16.sýn Sun 26/2 kl. 20:00 18.sýn Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross #islenskaoperan · Miðasala: opera.is HEFUR ÞÚ UPPLIFAÐ ÁSTARSORG? ÓPERA / LEIKRIT EFTIR POULENC & COCTEAU FRUMSÝNING 9. FEBRÚAR 2017 Í HÖRPU LEIKGERÐ OG LEIKSTJÓRN: BRYNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR FLYTJENDUR AUÐUR GUNNARSDÓTTIR, ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTTIR OG EVA ÞYRI HILMARSDÓTTIR leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Djöflaeyjan (Stóra sviðið) Lau 4/2 kl. 19:30 37.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 39.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 38.sýn Lau 4/3 kl. 19:30 40.sýn Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur! Maður sem heitir Ove (Kassinn) Lau 4/2 kl. 19:30 36.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 39.sýn Sun 19/2 kl. 19:30 42.sýn Sun 5/2 kl. 19:30 37.sýn Fös 17/2 kl. 19:30 aukasýn Fim 23/2 kl. 19:30 43.sýn Fös 10/2 kl. 19:30 38.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 41.sýn Fös 24/2 kl. 19:30 44.sýn Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik! Óþelló (Stóra sviðið) Fös 3/2 kl. 19:30 9.sýn Fös 10/2 kl. 19:30 aukasýn Fös 17/2 kl. 19:30 11.sýn Fim 9/2 kl. 19:30 10.sýn Fim 16/2 kl. 19:30 aukasýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare! Gott fólk (Kassinn) Sun 12/2 kl. 19:30 10.sýn Fim 16/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn Nýtt og ágengt íslenskt verk um ungt fólk, ástarsambönd, ofbeldi og refsingu Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 5/2 kl. 13:00 3.sýn Sun 19/2 kl. 13:00 6.sýn Sun 26/2 kl. 16:00 7.sýn Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn Sun 19/2 kl. 16:00 aukasýn Sun 5/3 kl. 13:00 10.sýn Sun 12/2 kl. 16:00 aukasýn Sun 26/2 kl. 13:00 5.sýn Sun 5/3 kl. 16:00 11.sýn Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa! Gísli á Uppsölum (Kúlan) Sun 5/2 kl. 14:00 Mið 8/2 kl. 19:30 Fim 9/2 kl. 19:30 Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins. Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 3/2 kl. 20:00 17.sýn Lau 11/2 kl. 20:00 24.sýn Sun 19/2 kl. 21:00 aukasýn Fös 3/2 kl. 22:30 18.sýn Lau 11/2 kl. 22:30 25.sýn Fim 23/2 kl. 20:00 31.sýn Lau 4/2 kl. 20:00 19.sýn Fim 16/2 kl. 20:00 26.sýn Fös 24/2 kl. 20:00 32.sýn Lau 4/2 kl. 22:30 20.sýn Fös 17/2 kl. 20:00 27.sýn Fös 24/2 kl. 22:30 33.sýn Fim 9/2 kl. 20:00 21.sýn Fös 17/2 kl. 22:30 28.sýn Lau 25/2 kl. 20:00 34.sýn Fös 10/2 kl. 20:30 22.sýn Lau 18/2 kl. 20:00 29.sýn Lau 25/2 kl. 22:30 35.sýn Fös 10/2 kl. 23:00 23.sýn Lau 18/2 kl. 22:30 30.sýn Fim 2/3 kl. 20:00 36.sýn Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Tímaþjófurinn (Kassinn) Fös 24/3 kl. 19:30 Frums Mið 29/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 31/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 2.sýn Fim 30/3 kl. 19:30 4.sýn Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi Húsið (Stóra sviðið) Lau 11/3 kl. 19:30 Frums Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga. Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 8/2 kl. 20:00 Mið 1/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00 Mið 15/2 kl. 20:00 Mið 8/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00 Mið 22/2 kl. 20:00 Mið 15/3 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Íslenski fíllinn (Brúðuloftið) Lau 4/2 kl. 13:00 Lau 11/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 13:00 Lau 4/2 kl. 15:00 Lau 11/2 kl. 15:00 Lau 18/2 kl. 15:00 Aukasýningar - aðeins þessar sýningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.