Morgunblaðið - 22.02.2017, Síða 4

Morgunblaðið - 22.02.2017, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017 Er kalt hjá þér? Anddyris- hitablásarar hitataekni.is Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Erfiðasti hnúturinn á lokaspretti sjómannadeilunnar var fæðiskostn- aður sjómanna og skattgreiðslur af fæðispeningun- um. Hann losnaði ekki fyrr en sam- komulag náðist milli viðsemjend- anna í nýju sjó- mannasamning- unum um að útgerðir skuli framvegis láta skipverjum fullt fæði í té endur- gjaldslaust. Fæðishlunnindi teljast þó eftir sem áður skattskyldar tekjur sjó- manna líkt og fæðispeningarnir og ber sjómönnum að greiða tekjuskatt af þeim samkvæmt skattalögum. Spurður hver ávinningurinn sé af samkomulaginu segir Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjó- mannasambands Íslands, að hann sé heilmikill. Fæðispeningarnir sem greiddur var skattur af dugðu ekki alltaf til að greiða fæðiskostnaðinn og sjómenn þurftu því að borga sjálf- ir til viðbótar fyrir fæðið. Hólmgeir segir það vissulega rétt að almennar skattareglur gilda um frítt fæði. „Hlunnindamatið fyrir fullt fæði er 1.327 kr. á dag sem menn þurfa að borga skatt af en það eru 490 kr. á dag í lægra þrepinu og 614 kr. í efra þrepinu,“ segir hann. „Ég tel þetta vera mikinn ávinning vegna þess að fæðispeningarnir dugðu ekki alltaf fyrir fæðiskostn- aðinum. Sem dæmi má taka að áður voru þeir 1.681 króna í efsta þrepi og svo bættist orlof ofan á það þannig að þetta voru rúmar 1.800 krónur. Þegar búið var að taka skattinn af þeirri upphæð stóðu eftir 1.000 kr. upp í fæðið. Ef fæðiskostnaðurinn var 1.800 þá þurftu menn að borga 800 krónur til viðbótar en þurfa núna að borga 614 kr. Ég held líka að fæð- iskostnaðurinn hafi að jafnaði verið meiri en þessar 1.800 krónur. Þetta er því ávinningur,“ segir hann. Sjómenn hafa lengi krafist þess að fá afnám sjómannaafsláttarins bætt. Spurður um þetta bendir Hólmgeir á að stjórnvöld ætli að láta fara yfir þessi mál. ,,Ráðherrann bauð upp á skoðun á dagpeninga- og fæðismálum og ég reikna með að yfirvöld fari í þessa skoðun og komi þessum málum í eina reglu. Það kemur svo bara í ljós hvort í því verður ávinningur fyrir okkur eða ekki en við sköðumst alla vega ekki á því.“ Segir mikinn ávinning af breytingunum  Fá frítt fæði um borð en greiða skatt af hlunnindunum Morgunblaðið/Ófeigur Til veiða Útgerð lætur skipverjum fullt fæði í té án endurgjalds. Greiddur er skattur af 1.327 kr. fyrir fullt fæði á dag en ekki af því sem umfram er. Hólmgeir Jónsson Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Hólmgeir Jónsson, framkvæmda- stjóri Sjómannasambands Íslands, segir að þátttaka sjómanna í at- kvæðagreiðslunni um kjarasamning sjómanna og útgerðarmanna hafi verið góð, en alls greiddu 53,7% sjó- manna sem voru á kjörskrá atkvæði, eða 1.189 sjómenn af 2.214. „Ég vil ekki meina að þátttaka sjómanna í þessari atkvæðagreiðslu hafi verið lítil, miðað við það sem gengur og gerist, heldur hafi þátt- takan verið góð,“ sagði Hólmgeir í samtali við Morgunblaðið í gær. Hólmgeir benti á að þegar kosið var um boðun verkfalls í fyrra, hafi verið um rafræna kosningu að ræða, sem hafi staðið í heilan mánuð. „Þá var þátttakan 54,2%. Nú var ekki um rafræna kosningu að ræða og hún stóð aðeins í einn og hálfan sólarhring. Samt var þátttakan 53,7%,“ sagði Hólmgeir. Hann bend- ir á að sjómenn hafi í tvígang fellt samninga. „24. júní í fyrra, skrif- uðum við undir samning og hann fór í atkvæðagreiðslu sem stóð yfir í mánuð. Inni í þeirri atkvæða- greiðslu voru ekki Vestfirðingarnir og Sjómannafélag Íslands. Í þeirri atkvæðagreiðslu var þátttakan 38,5%. Í atkvæðagreiðslunni um boðun verkfalls voru á kjörskrá allir sjómenn sem voru á kjörskrá núna í þessari nýafstöðnu atkvæða- greiðslu. Í þeirri atkvæðagreiðslu tóku þátt 54,2% og núna 53,7% og því vil ég meina að þátttakan í at- kvæðagreiðslunni um kjarasamn- inginn hafi bara verið góð. Og ég leyfi mér að fullyrða það að þetta er með því betra sem gerist á vinnu- markaði, þegar verið er að kjósa um kjarasamninga, eða annað. Auðvitað líta menn svona atkvæðagreiðslur misjöfnum augum, en þegar því er haldið fram að þátttaka sjómanna í atkvæðagreiðslunni hafi verið léleg, þá er það ekki rétt,“ sagði Hólm- geir. Aðspurður hvort hann teldi að þeir sem væru ánægðir með samn- inga væru líklegri til þess að taka þátt í kosningu um samninga, en þeir sem væru óánægðir, sagði Hólmgeir: „Auðvitað getur maður ekkert fullyrt í þessum efnum, en reynslan hefur yfirleitt verið sú, að þeir sem eru óánægðir, kjósa frek- ar.“ Þátttaka sjómanna hafi verið góð  Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambandsins, segir reynsluna sýna að þeir sem eru óánægðir kjósi frekar en þeir sem eru ánægðir, þegar kemur að því að kjósa um kjarasamning Morgunblaðið/Golli Loðnuveiðar Loðnuflotinn fór strax til veiða, eftir samþykkt samningsins. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þorgrímur Leifsson, framkvæmda- stjóri Frostfisks og stjórnarmaður í Samtökum fiskframleiðenda og út- flytjenda (SFU), segir ómögulegt að áætla hversu miklu tjóni fisk- framleiðendur og útflytjendur hafi orðið fyrir vegna sjómannaverk- fallsins, en það sé þó ljóst að tjónið sé mjög mikið. „Auðvitað er þetta mikið tjón sem við höfum orðið fyrir,“ sagði Þorgrímur í samtali við Morgunblaðið í gær og bætti við að sjálfsagt myndi líða talsverður tími, áður en hægt væri að meta það með einhverri vissu, hversu mikið og var- anlegt tjónið væri. Neyðst til að sitja heima „Þetta er tjón fyrir okkur, fisk- framleiðendur og útflytjendur, menn sem ekkert hafa gert af sér, og hafa neyðst til þess að sitja heima á meðan sjómenn og útgerð- armenn hafa rifist í tæpar tíu vikur. Þetta er mjög alvarlegt mál, því markaðir hafa tapast, kannski í ein- hverjum tilvikum tímabundið en í öðrum tilvikum varanlega,“ sagði Þorgrímur. Hann bendir á að verslanakeðjur og veitingahúsakeðjur hafi bara samið um kaup á fiski af dönskum og pólskum uppþýðingarstöðvum til skamms eða lengri tíma. „Það getur tekið okkur langan tíma að komast þarna inn aftur. Það er nægur fiskur til í heiminum og það hefur tekið okkur langan tíma að byggja upp þessa markaði, og komast inn í þessi dýru hillupláss í verslununum. Í mínum huga er þetta mikið ábyrgðarleysi, því allt í einu var bara allt stopp. Þetta var í raun og veru það eina sem við áttum eftir, til að fá hátt verð fyrir fiskinn okkar, það eru ferskfiskhillurnar úti um víðan völl. Því það var búið að tapa frosna markaðnum í Ameríku til Rússa og saltfiskmarkaðurinn stendur ekki traustum fótum, vegna óstöðugs framboðs,“ sagði Þorgrím- ur. Í fararbroddi um langa hríð Hann segir að útflytjendur fersks fisks á Íslandi hafi verið í farar- broddi um langa hríð, því þeir hafi getað sinnt kúnnum sínum 52 vikur á ári. „Sem betur fer hefur eitthvað tekist að klóra í bakkann og senda út, vegna þessara hundrað báta sem gátu róið á meðan á verkfallinu stóð, en ég er hræddur um að það geti tekið okkur langan tíma að vinna alla okkar markaði til baka,“ sagði Þorgrímur. Tjón okkar á mörkuðum mikið  Óljóst hversu mikið tjónið verður Þorgrímur Leifsson Vinnsla hófst á ný í gær í fiskimjölsverksmiðju Síldar- vinnslunnar á Seyðisfirði í gær eftir að 2.500 tonnum af loðnu var landað úr Berki NK. Verksmiðjan var síðast í gangi í desember þegar unnið var úr kolmunna. Ljósmynd/Ómar Bogason Loðnu landað á Seyðisfirði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.