Morgunblaðið - 22.02.2017, Síða 6

Morgunblaðið - 22.02.2017, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017 Bjarni Benediktsson forsætisráð- herra sagði á Alþingi í gær að engin sanngirni fengist í umræðuna um hækkanir kjararáðs og stöðuna á vinnumarkaði eins og vinnumarkaðs- módelið væri í dag. Það væri mölbrot- ið. Þetta kom fram í svari hans í óund- irbúnum fyrirspurnatíma við spurningu Jóns Þórs Ólafssonar, þingmanns Pírata, um úrskurð kjara- ráðs og komandi kjarasamninga. Jón Þór er fyrsti flutningsmaður frumvarps þingmanna Pírata þar sem lagt er til að kjararáði verði gert að taka nýja ákvörðun í síðasta lagi 28. febrúar um kjör þingmanna og ráðherra sem feli í sér launalækkun. Fram kom í máli Bjarna að þingið hefði í tvígang bæði 2005 og 2009 lækkað laun þingmanna og æðstu ráðamanna. Sagði hann óþolandi að þurfa að takast á um kjör þingmanna og ráðherra við þingmenn. „[…] ég kæri mig í sjálfu sér bara ekkert um það að hafa neitt með kjör þingmanna að gera,“ sagði Bjarni. Hann sagðist á sínum tíma hafa lagt erindi inn í forsætisnefnd þings- ins þar sem hvatt var til þess að starfstengdar greiðslur yrðu teknar til endurskoðunar. „Niðurstaðan jafngildir 150 þúsund króna launa- lækkun kjörinna fulltrúa. Það er skýrt skref. Alveg óumdeilanlega er verið að lækka kjör þeirra sem hér eru inni vegna deilunnar um niður- stöður kjararáðs,“ sagði hann. Bjarni spurði hvað gera ætti við tímabilið frá 2009 til 2013 þegar allir þeir sem heyrðu undir kjararáð fengu 15% launalækkun og síðan launa- frystingu á sama tíma og bæði al- menni og opinberi markaðurinn hafi farið á flug með talsvert miklum hækkunum. Bjarni sagði að ekki hefði þurft úr- skurð kjararáðs „til þess að læknar tækju hér skurðstofur í gíslingu. Það þurfti heldur ekkert kjararáð eða úr- skurði frá því til þess að loka hér skólastofum í marga mánuði. Ég hef enga trú á því að það fáist einhver sanngirni í þessa umræðu eins og vinnumarkaðsmódelið er í dag. Það er einfaldlega mölbrotið“. omfr@mbl.is Segir vinnumarkaðsmódelið mölbrotið Morgunblaðið/ Eggert Forsætisráðherra Bjarni Benediktsson sagði að ekki hefði þurft úrskurð kjararáðs „til þess að læknar tækju hér skurðstofur í gíslingu“.  Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segist ekki kæra sig um að hafa neitt með kjör þingmanna að gera  Píratar vilja gera kjararáði að ákveða launalækkun þingmanna og ráðamanna fyrir mánaðamót Samningavið- ræður eru ekki hafnar milli Læknafélags Ís- lands og samn- inganefndar rík- isins vegna nýs kjarasamnings fyrir lækna. Samningar sem gerðir voru í byrjun árs 2015 eftir verkfallsaðgerðir lækna renn- ur út í lok aprílmánaðar. Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, segir að samninganefnd félagsins sé að leggja lokahönd á kröfugerð. Von- ast hann til að byrjað verði að funda með fulltrúum ríkisins í næsta mánuði. „Við höfum að mörgu leyti verið ánægðir með samninginn. Það eru þó ákveðin atriði sem illa hefur gengið að koma í framkvæmd og hefur það valdið deilum og pirringi hjá læknum. Þarf að orða þau skýr- ar,“ segir Þorbjörn. helgi@mbl.is Læknar ganga frá kröfugerð  Fundir með ríkinu hefjast fljótlega Þorbjörn Jónsson „Kjarasamningar um 70% launafólks eru komnir í upp- nám, m.a. vegna ákvarðana Kjararáðs um tugprósenta hækkanir á launum ráðamanna. Með samþykkt frumvarpsins sýnir Alþingi fordæmi í átt til sátta,“ segir í greinargerð frum- varps Pírata. Vilja þeir að kjar- aráði verði gert að taka nýja ákvörðun og að launin skuli fylgja almennri launaþróun frá 11. júní 2013. Í úrskurði kjar- aráðs var miðað við tímabilið frá 2006. Í átt til sátta FRUMVARP PÍRATA Einn lést og tveir slösuðust í hörð- um árekstri jeppa og fólksbíls á Reykjanesbraut, austan við Brunn- hólma í gærmorgun. Fram kom í tilkynningu frá lögreglunni að henni hefði borist tilkynning um slysið klukkan 6.48 en bílarnir tveir voru að mætast. Talið er að annarri bifreiðinni hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming. Hinn látni var farþegi í annarri bifreið- inni, en ekki hafa fengist frekari upplýsingar um líðan hinna slös- uðu. Var Reykjanesbraut lokað vegna slyssins á meðan björgunaraðilar athöfnuðu sig og ollu tafir á umferð um Reykjanesbrautina því að seinkun varð á flugi véla frá Kefla- víkurflugvelli síðar um morguninn. Er þetta annað banaslysið í um- ferðinni hér á landi það sem af er þessu ári en 18 ára stúlka lést í bíl- slysi á Grindavíkurvegi, norðan við afleggjarann að Bláa lóninu hinn 12. janúar síðastliðinn. Frá árinu 2007 til 2016 hafa orðið sex alvar- leg slys á um fimm kílómetra kafla á Reykjanesbrautinni sem nær frá tvöföldun og rétt austur fyrir Krýsuvíkurgatnamótin. Á þessum vegarkafla er ein akrein í hvora átt. Alls hafa slys og óhöpp verið 131 á þessu tíu ára tímabili, sam- kvæmt upplýsingum Samgöngu- stofu. Af þeim 28 slysum, sem flokkast alvarleg eða slys með litlum meiðslum, áttu sjö þeirra sér stað á gatnamótunum við Krýsuvík. Banaslys á slysakafla  Annað banaslysið í umferðinni á árinu Álverið í Straumsvík Krýsuvíkurvegur Reykjane sbraut Heimild: Samgöngustofa Tíðni slysa á Reykjanesbraut frá og með Krýsuvíkurgatnamótum að tvöföldun 2007 0 2 3 11 16 2008 0 0 3 5 8 2009 0 2 4 11 17 2010 0 1 0 9 10 2011 0 0 0 9 9 2012 0 0 3 5 8 2013 0 0 3 9 12 2014 0 0 1 6 7 2015 0 1 4 20 25 2016 0 0 1 18 19 Samtals 0 6 22 103 131 Banaslys Alvarleg slys Slys með litlum meiðslum Óhöpp án meiðsla Slys og óhöpp alls Ferðamenn sem rölta upp og niður Laugaveg- inn, aðalverslunargötuna í miðbæ Reykjavíkur, máta sig í hlutverki víkinga með því að smeygja höfði undir hjálm. Vekur þetta mikla lukku. geta gert ýmislegt sér til skemmtunar. Til dæmis stendur þeim og öðrum vegfarendum til boða að Gaman er að prófa að vera víkingur Morgunblaðið/Eggert Mannlífið við Laugaveginn er fjölbreytt og skemmtilegt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.