Morgunblaðið - 22.02.2017, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017
Vertu upplýstur!
blattafram.is
ÞÚ ERT LÍKLEGRI
TIL AÐ GRÍPA INNÍ
EF ÞÚ HEFUR ÞEKKINGU
Á ÓÆSKILEGRI HEGÐUN
Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið
Opið kl. 11-18 alla virka daga
Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is
• Tímasparnaður
• Engin kemísk efni
• Ódýrara
• Umhverfisvænt
• 6 x hreinna - betri þrif
• Lágmarksending 3 ár
• 2ja ára ábyrgð
Fyrir baðherbergið
Fyrir gólfin
Fyrir eldhúsið Fyrir þvottinnFyrir gluggana
Fyrir
heimilið
Heimilispakkinn 2ja ára
ábyrgð
Við kennum þér að þrífa
heimilið með köldu vatni
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Kjararáð birti síðdegis í gær úrskurð
frá 31. janúar þar sem ákveðið er að
lækka laun Birnu Einarsdóttur,
bankastjóra Íslandsbanka, um 40%.
Laun Birnu hafa verið til meðferðar
hjá kjararáði síðan í júní í fyrra.
Mánaðarlaun hennar verða núna
1.131.816 krónur en samkvæmt árs-
reikningum bankans frá árinu 2015
voru þau um 3,6 milljónir. Sam-
kvæmt úrskurðinum verða laun
hennar þó rúmar tvær milljónir
króna með þeirri yfirvinnu og álagi
sem fylgir starfinu. Þá er einnig tek-
ið fram að samkvæmt ráðningar-
samningi borgar bankinn farsíma,
tölvu, nettenginu og reki öryggis-
kerfi á heimili bankastjórans. „Kjar-
aráð hefur ekki áður ákveðið banka-
stjóra Íslandsbanka hf. laun. Með
vísan til þess inn-
byrðis samræmis
sem kjararáði ber
að hafa að leiðar-
ljósi og áður er
gerð grein fyrir
er við ákvörðun
launakjara
bankastjóra Ís-
landsbanka hf.
horft til launa-
kjara forstöðu-
manna annarra fjármála- og lána-
stofnana sem undir kjararáð heyra,
svo sem bankastjóra Landsbankans
hf.,“ segir í úrskurði kjararáðs.
Ótengt starfsárangri
Vísar úrskurðurinn til mats
stjórnar Íslandsbanka sem segir að
starfsárangur núverandi banka-
stjóra hafi verið framúrskarandi og
að hann hafi sinnt starfi sínu af kost-
gæfni og verið sterkur leiðtogi
stjórnunarteymis bankans, meðal
annars í stefnumótun á umbrotatím-
um. Sérstaklega megi nefna endur-
skipulagningu lána sem Íslands-
banki hafi lokið hraðar en
keppinautar. Stjórnin segir einnig að
ljóst sé að gríðarmiklar kröfur séu
gerðar til bankastjóra um viðveru og
vinnu utan hefðbundins vinnutíma.
„Þannig sé víst að raunverulegur
vinnutími bankastjóra sé um það bil
130 klukkustundir á mánuði umfram
hefðbundinn dagvinnutíma og ekk-
ert bendi til annars en að svo verði
áfram.“ Í úrskurðinum kemur fram
að Birnu hafi gefist kostur á að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri sem
og stjórn Íslandsbanka og banka-
sýsla ríkisins. Ný lög um kjararáð
taka gildi 1. júlí og þá má búast við að
laun Birnu breytist á nýjan leik.
mhj@mbl.is
Kjararáð lækkar laun
bankastjóra um 40%
Búast má við því að laun breytist aftur 1. júlí næstkomandi
Birna
Einarsdóttir
Alls hófst smíði á 922 íbúðum í
Reykjavík í fyrra og er það svipaður
fjöldi og árið áður. Í tilkynningu á vef
Reykjavíkurborgar kemur fram að
frá árinu 1972 hafi að meðaltali verið
hafin smíði á 616 íbúðum á ári hverju.
Því sé fjöldinn síðustu tvö ár rúmlega
50% yfir því meðaltali. Þá voru full-
kláraðar 399 íbúðir árið 2016 og 388
árið 2015. Til samanburðar var ein-
ungis 271 íbúð kláruð 2014 og hófst
nýbygging á 597 íbúðum.
Gríðarleg aukning
Hin gríðarlega aukning síðustu
tveggja ára í byggingu nýrra íbúða á
sér ekki hliðstæðu á síðustu árum.
Munu þetta vera svipaðar tölur nýrra
íbúða og þegar Breiðholt og Árbær
voru í uppbyggingu 1973 og þegar
Grafarvogurinn var að byggjast upp
1986. Borgin gerir ráð fyrir að bygg-
ingartími íbúðanna sé um 2 til 3 ár og
er búist við því að fullgerðum íbúðum
muni strax byrja aðfjölga í ár. Sam-
kvæmt umhverfis- og skipulagsviði
Reykjavíkur eru 1.800 íbúðir í upp-
byggingu í dag.
Fleiri íbúðir væntanlegar
Í aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-
2030 eru skilgreindir hátt í 60 bygg-
ingarreitir þar sem gert er ráð fyrir
uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Þá er
einvörðungu verið að tala um reiti
sem gera ráð fyrir fleiri en 50 al-
mennum íbúðum. Til viðbótar við
þessa reiti eru fjölmargir smærri
reitir sem gera ráð fyrir minniháttar
fjölgun íbúða. Þar má t.d. nefna að
deiliskipulag er í undibúningi fyrir
1.500 íbúðir við Ártúnshöfða-
Elliðavog. Þá hefur deiliskipulag ver-
ið samþykkt fyrir 600 íbúðir á Hlíð-
arenda svo dæmi séu tekin.
mhj@mbl.is
Halda áfram að
bæta við íbúðum
Hófu smíði á 922 íbúðum í Reykjavík
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Uppbygging Í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar 2010-2030 eru skilgreindir
60 byggingarreitir þar sem byggðar verða 50 íbúðir eða fleiri.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Eliza Reid, forsetafrú Íslands, og
Anne-Tamare Lorre, sendiherra
Kanada á Íslandi, munu opna fyrsta
bjórinn,“ segir í
tilkynningu sem
fjölmiðlum barst
vegna setningar
bjórhátíðar sem
haldin verður á
Kex Hosteli í
miðbæ Reykja-
víkur á morgun.
Er á hátíðinni
meðal annars
verið að kynna
nýjan bjór, svo-
nefndan Nordic Söl Gose, sem
framleiddur er af bruggurum KEX
Brewing og Collective Arts Brew-
ing í brugghúsi þeirra í Toronto í
Kanada.
Kom Bessastöðum á óvart
„Þetta kom henni nú nokkuð á
óvart,“ segir Örnólfur Thorsson for-
setaritari í samtali við Morgun-
blaðið og vísar til viðbragða for-
setafrúarinnar við þeim lýsingum
sem fram koma í áðurnefndri til-
kynningu.
„Hún hafði samþykkt að mæta á
þennan viðburð á KEX Hosteli, en
hún gerði sér alls ekki grein fyrir
því að hennar nafn yrði notað í
kynningu á hátíðinni – hvað þá á
einstakri bjórtegund,“ segir Örn-
ólfur ennfremur.
Þá segir hann forsetafrúna ein-
ungis hafa ætlað að mæta á við-
burðinn til að leggja áherslu á hið
góða og trausta samband sem er á
milli Íslands og Kanada. „Það var
ekki meiningin að gera neitt annað
og allra síst að opna einhverja bjór-
flösku,“ segir hann.
Opnar sendiherrann bjór?
Benedikt Reynisson hjá KEX er
skrifaður fyrir tilkynningunni.
Hann segir Elizu forsetafrú ætla að
mæta á viðburðinn, en hún muni
hins vegar láta það vera að opna
kynningarvöruna.
„Hún mun mæta til að ræða
tengslin á milli Íslands og Kanada,“
segir hann í samtali við blaðið og
bætir við: „En sendiherra Kanada
mun hins vegar opna bjór.“
Þá segir einnig í tilkynningu að
við framleiðslu bjórsins sé m.a. not-
ast við íslenskt blóðberg og söl, en
dósina skreytir tónlistarmaðurinn
Svavar Pétur Eysteinsson.
Forsetafrú sögð
kynna nýjan bjór
Ekki meiningin að opna einhverja
bjórflösku, segir forsetaritari
Eliza
Reid
Morgunblaðið/Styrmir Kári
- með morgunkaffinu