Morgunblaðið - 22.02.2017, Page 12

Morgunblaðið - 22.02.2017, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017 Sími: 535 1200 | sala@iskraft.is | iskraft.is Fjöldi þekktra vörumerkja sem fagmaðurinn þekkir og treystir Fáðu ráð hjá fagmönnum um val á lýsingu HEILDARLAUSNIR í lýsingu og ljósabúnaði Ljós frá Steypa Viður Ál Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Meðgangan hófstupp úr aldamót-um, þótt henn-ar nánustu hefðu lengi vel ekki hug- mynd um að Sigurbjörg Friðriksdóttir gengi með ljóðskáld í maganum. Hún var enda ekkert að flíka ljóðunum sínum, sem hún tók upp á að yrkja „á gamalsaldri“, eins og hún segir. En ald- ur er afstætt hugtak. A.m.k. mat forlagið Partus það svo að ljóð þessarar 57 ára konu verðskulduðu að vera gefin út í bók í seríunni Með- gönguljóð, sem ætluð er til að koma upprennandi ljóðskáldum á fram- færi. Gáttatif leit dagsins ljós í fyrra og er fyrsta ljóðabók Sigurbjargar. Áður hafði birst eftir hana ljóð í dagatalsbókinni Konur eiga orðið allan ársins hring. „Ég fann ekki þörf hjá mér til að skrifa fyrr en hin síðari ár. Ljóðin í Gáttatifi eru bernskuljóð í þeim skilningi að þau eru með fyrstu ljóð- unum mínum. Þar sem ég er svo ung í ljóðagerðinni get ég með réttu kall- ast ungskáld,“ segir Sigurbjörg og brosir. Eftir útgáfu bókarinnar, sem er sú 15. í röð Meðgönguljóða, fannst henni sér opnast nýr heimur. „Mjög lærdómsríkt og skemmtilegt að fá að taka þátt í þessu starfi með grasrótinni, sækja ljóðakvöld og ýmsa viðburði í tengslum við útgáf- una, til dæmis að hittast og sauma bækurnar saman, eins og við gerð- um, þrjú ungskáldin, sem gáfum út Meðgönguljóð á sama tíma.“ Sigurbjörg er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum, en fluttist með fjölskyldu sinni til Hvammstanga eftir gos þar sem faðir hennar gerði út á rækjuveiðar á litum báti. Hún giftist Skúla Þórðarsyni frá Hvammstanga. Þau héldu til náms í Noregi, bjuggu þar í nokkur ár og Sigurbjörg tók tannfræðipróf frá Háskólanum í Ósló. Eftir heimkom- una lauk hún prófi í uppeldis- og kennslufræði frá Kennaraháskóla Íslands. Síðan hafa þau hjónin búið bæði á Blönduósi og Hvammstanga, en settust að í Hvalfjarðarsveit fyrir þremur árum. Sigurbjörg hefur starfað við tannfræðslu og sem leik- og grunnskóla- kennari allan sinn starfs- feril og er núna deildar- stjóri í leikskólanum Skýjaborgum í sinni sveit. Svo yrkir hún þeg- ar andinn kemur yfir hana. „Ég sest aldrei niður og ákveð að nú ætli ég að skrifa ljóð, það er frekar að ljóðin komi til mín þegar ég er í ákveðnu hugar- ástandi. Síðan tekur við ferli, ég spái og spekúlera, klíp venjulega eitthvað af frumgerð- inni því ég er meira fyrir knappt form en langt. Upphaflega hugsaði ég ljóðin í Gáttatifi sem stök ljóð, en eftir að ég fór að vinna með Jóni Kalman, rithöfundi, sem var minn ritstjóri, sá ég að þau mynda ákveðna samfellu; þema í kringum tilfinningar, sorgina og söknuðinn, þótt sums staðar örli líka á gleðinni og kannski smá kaldhæðni,“ segir Sigurbjörg. Hún var ekki í vandræðum með nafn bókarinnar. Gáttatif kom til hennar, rétt eins og ljóðin. „Orð yfir óreglulegan hjartslátt er vel við hæfi í ljósi þess að í fyrstu fannst mér mikil óregla í þessum ljóðum mínum, þau vera alls konar og úr öllum átt- um.“ Persónulegur tónn Ljóðin í Gáttatifi eru með per- sónulegum tón og benda mörg hver til að hún hafi gengið í gegnum erf- iða lífsreynslu. Sigurbjörg neitar því ekki, en eins og í ljóðum sínum er hún ekki orðmörg um þann atburð Ungskáldin eru á öll- um aldri … líka 57 ára „Ljóðin í Gáttatifi eru bernskuljóð í þeim skilningi að þau eru með fyrstu ljóð- unum mínum,“ segir Sigurbjörg Friðriksdóttir, sem sendi frá sér sína fyrstu ljóða- bók, komin hátt á sextugsaldur. Hún segist hvergi nærri vera hætt. Hinn heimurinn Sigurbjörg er mjög ánægð með bókarkápu Gátta- tifs. Hún segist nánast hafa orðið grátklökk þegar hún sá myndina, sem er eftir Elínu Eddu, nema í Listaháskóla Íslands, ljóðskáld og myndasöguhöfund. „Afar falleg mynd og lýsandi fyrir óræðnina í ljóðunum; fólkið, hafið og klettarnir eru í mínum huga eins og svolítið handan þessa heims“, segir hún. Rótin, félag um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda, efnir til um- ræðukvölds á Hallveigarstöðum, Tún- götu 14, kl. 20 í kvöld, 22. febrúar. Sigríður Björnsdóttir heldur erindi um lokaverkefni sitt í BA-námi í sál- fræði, sem fjallar um áhrif erfiðra upplifana í æsku á heilsufar og lífs- gæði síðar á ævinni. Þátttakendur í rannsókninni voru nemendur við Háskólann á Akureyri og skjólstæðingar tveggja starfs- endurhæfingarstöðva. Niðurstöður hennar leiddu m.a. í ljós að munur er á lífsgæðum þátttakenda eftir fjölda áfalla. Fólk í starfsendurhæfingu reyndist hafa orðið fyrir helmingi fleiri áföllum en háskólanemendur. Þeirri spurningu var velt upp hvort áfallaúrvinnsla þyrfti að vera hluti af starfsendurhæfingu. Sigríður er framkvæmdastjóri Blátt áfram, forvarnarverkefnis gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum. Allir eru velkomnir. Vefsíðan www.rotin.is Morgunblaðið/Jón Sig Lífsgæði Úrtakið í rannsókninni var 577 einstaklingar, á aldrinum 18 til 62 ára. Áhrif áfalla í æsku á heilsufar Viðkoma er ný viðburðaröð á vegum Borgarbókasafnsins í Kringlunni og Sólheimum, þar sem boðið er upp á áhugaverða dagskrá fjórða fimmtu- dag í mánuði. Á morgun kl. 17.30, fimmdaginn 23. febrúar, mun Heba Aljaraki frá Sýrlandi hafa viðkomu í Kringlunni. Hún er menntaður lög- fræðingur með sérþekkingu á rétt- indum kvenna og hefur hefur verið á Íslandi frá því í janúar árið 2016 ásamt eiginmanni sínum og tveimur dætrum. Heba Aljaraki mun segja sögu sína og frá reynslu sinni af því að vera flóttamaður hér á landi. Erindi hennar fer fram á ensku. Endilega … … hlýðið á reynslusögu flóttamanns Frá Sýrlandi Aljaraki kom til Íslands í fyrra ásamt fjölskyldu sinni. Leikfélag Selfoss frumsýnir verkið Uppspuni frá rótum kl. 20 föstudag- inn 24. febrúar í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið er eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason en þeir hafa samið fjölda leikrita saman og hver í sínu lagi. Auk þess eru þeir allir í hljómsveitinni Ljótu hálfvitunum. Verkið er fjölskyldusaga þar sem saman eru komnir fjórir ættliðir og hefst þegar Sigurður gamli, sem var í senn eiginmaður, pabbi, afi og langafi annarra persóna verksins, er nýlátinn. Fjölskyldusagan er rakin í grófum dráttum í öfugri tímalínu og spannar mestalla 20. öldina. Skin og skúrir skiptast á í samskiptum ólíkra póla friðar, ófriðar, náttúrusinna og fram- kvæmdasinna, brottfluttra og að- fluttra auk ýmissa annarra litbrigða manneskjunnar. Fjöldi skemmtilegra laga er í sýningunni. Leikstjóri er Þórey Sigþórsdóttir, leikkona og leikstjóri. Alls eru 15 leik- arar í sýningunni, bæði reyndar kempur sem og rísandi stjörnur. Auk þess er fjöldi fólks sem vinnur hin fjölmörgu en gríðarlega mikilvægu handtök baksviðs. Leikritið verður síðan á fjölunum 26. febrúar, 2., 4. og 5. mars. Nánari upplýsingar á síðunni „Upp- spuni frá rótum“ á Facebook. Litbrigði manneskjunnar speglast í fjölskyldusögu á 20. öld Uppspuni frá rótum er runninn undan rifjum Ljótu hálfvitanna Leikarar 15 leikarar eru í sýningunni, bæði reyndar kempur og rísandi stjörnur. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.