Morgunblaðið - 22.02.2017, Side 14
● Samtök atvinnu-
lífsins (SA) hafa
auglýst eftir um-
sóknum um stjórn-
arstörf í lífeyris-
sjóðum. Leitað er
eftir einstaklingum
með fjölbreytta
reynslu og þekk-
ingu m.a. á lífeyris-
málum, stjórnun,
stefnumótun,
áætlanagerð og reikningshaldi, lög-
fræðilegum málefnum og fjármála-
markaði. Samkvæmt kjarasamningi SA
og ASÍ skipa samtökin helming stjórn-
armanna í þeim sjö lífeyrissjóðum sem
eru á samningssviði aðila. Er fram-
kvæmdastjórn SA falin tilnefning
stjórnarmanna.
Lífeyrissjóðirnir sem um er að ræða
eru Birta, Festa, Gildi, Lífeyrissjóður
Rangæinga, Lífeyrissjóður verslunar-
manna, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja
og Stapi.
Auglýst eftir stjórnar-
mönnum í lífeyrissjóði
SA Auglýst eftir
stjórnarmönnum.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Hagfræðideild Landsbankans mælir
með kaupum á hlutabréfum í Ný-
herja í nýju verðmati sem bankinn
hefur gefið út.
Verðmatið byggist á „ævintýraleg-
um“ vexti dótturfélags Nýherja,
Tempo, sem bankinn segir að sé
hraðvaxta upplýsingatæknifyrirtæki
sem auðveldlega megi færa rök fyrir
að sé verðmætara eitt og sér en rest-
in af samstæðu Nýherja til samans,
eins og það er orðað.
Verðmatið er hið fyrsta sem bank-
inn gerir á Nýherja.
Gefið upp verðmatsbil
Óvenjulegt er við verðmatið að
gefið er upp verðmatsbil. Ástæða
þess er að innbyggt í markaðsverð
Nýherja, og verðmat bankans, eru
miklar væntingar til Tempo. Nokkur
óvissa er um verðmæti Tempo og því
telur bankinn rétt að birta verðmats-
bil til að auðvelda fjárfestum að taka
sjálfir afstöðu til verðmætis félags-
ins.
Verðmatsbilið er 26,3-39,9 krónur
á hlut en dagslokagengi félagsins í
kauphöllinni í gær var 29,8 krónur á
hlut. Gengið hefur hækkað verulega
undanfarna mánuði og frá áramótum
hefur það hækkað um liðlega 46%.
Í verðmatinu segir að á aðeins
nokkrum árum hafi Tempo farið frá
því að vera lítill sproti innan TM
Software í að vera arðbærasta dótt-
urfélag Nýherja, og vöxtur þess hafi
verið ævintýralegur. Því hafi eðlilega
byggst upp væntingar um frekari
vöxt og mikil verðmæti í félaginu,
enda séu viðskiptavinir þess um
10.000 talsins í 115 löndum.
Arðbærara að selja en halda
Bent er á í matinu að líklegra sé að
meiri verðmæti felist í sölu á Tempo á
þessu ári, í stað þess að félaginu sé
haldið í samstæðu Nýherja sem leiði
áfram vöxt félagsins á SaaS-mark-
aðnum, þar sem farvegurinn hjá
stærri eigendum geti lyft félaginu á
hærri stall.
Bankinn segir að fjárhagsupplýs-
ingum Tempo sé þó ábótavant og því
verði hreinlega að giska á mikilvægar
forsendur um afkomuna. Fjárfest-
ingin sé því nokkuð áhættusöm.
Tekjur Tempo jukust um 65% árið
2015 og 30% árið 2016.
Telja bréf Nýherja
vera undirverðlögð
Áhætta Nokkur áhætta er í fjárfestingu í Nýherja þar sem mikið veltur á Tempo.
SaaS-hugbúnaður
» Tempo þróar hugbúnað fyrir
JIRA-verkefnastjórnunar- og
tímaskráningarlausnir.
» Var hluti af TM Software þar
til í byrjun árs 2015.
» SaaS stendur fyrir System
as a Service, sem er hugbún-
aður seldur og afhentur í gegn-
um netið með áskriftarfyrir-
komulagi.
» Tempo er með 10.000
viðskiptavini í 115 löndum.
Verðmæti Tempo meira en afgangurinn af samstæðunni
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017
Guðrún Antonsdóttir
lögg. fasteignasali
Vantar allar stærðir og gerðir fasteigna á sölu.
Mjög mikil eftirspurn og lítið framboð.
Núna er tækifærið ef þú vilt selja.
Hringdu núna í 697 3629
og fáðu aðstoð við að selja
þína eign, hratt og vel.
Ertu í söluhugleiðingum?
Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is
22. febrúar 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 110.39 110.91 110.65
Sterlingspund 138.19 138.87 138.53
Kanadadalur 84.56 85.06 84.81
Dönsk króna 15.775 15.867 15.821
Norsk króna 13.252 13.33 13.291
Sænsk króna 12.39 12.462 12.426
Svissn. franki 110.17 110.79 110.48
Japanskt jen 0.9712 0.9768 0.974
SDR 149.4 150.3 149.85
Evra 117.29 117.95 117.62
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.7099
Hrávöruverð
Gull 1228.7 ($/únsa)
Ál 1877.5 ($/tonn) LME
Hráolía 55.9 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
STUTT
Tryggingamiðstöðin hf. (TM) hefur
selt 3,0% hlut í Kvitholmen, sem á
100% eignarhlut í fiskeldisfyrirtæk-
inu Arnarlaxi hf., fyrir 35,7 milljónir
norskra króna eða því sem nemur
473 milljónum króna.
TM átti fyrir viðskiptin 7,4% eign-
arhlut í Kvitholmen og því jafngilda
þessi viðskipti að eignarhlutur TM
sé metinn á 89,1 milljón norskra
króna eða 1.177 milljónir króna.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins standa að baki kaupunum
nokkrir norskir fagfjárfestar. Sé
miðað við kaupverðið má áætla að
Arnarlax sé metinn á hátt í 16 millj-
arða króna.
TM fjárfesti fyrst í Arnarlaxi í
árslok 2014. Frá þeim tíma hefur
TM verið einn af stærstu hluthöfum
félagsins. TM mun eftir viðskiptin
eiga 4,4% eignarhlut í Kvitholmen.
Fram kemur í tilkynningu til
Kauphallar að ávöxtun fjárfest-
ingaeigna TM séu áætlaðar um 750
milljónir króna það sem af er ári. Er
það umfram áætlanir en á fyrsta
ársfjórðungi eru fjárfestingartekjur
áætlaðar 404 milljónir króna.
vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Arnarlax Metinn á tæpa 16 milljarða.
Norskir
kaupa í
Arnarlaxi
TM selur 3% hlut á
um 473 milljónir kr.
Elsta teppaverslun landsins, Teppa-
búðin/Litaver, hefur verið flutt í
sérdeild í innréttingaverslun Parka
við Dalveg. Rekstrarfélag Parka
keypti Teppabúðina/Litaver á síð-
asta ári en verslunin var upphaf-
lega stofnuð árið 1965. Hún var áð-
ur við Grensásveg, en allt frá
stofnun fyrirtækisins var Litaver
þar til húsa.
Gústaf B. Ólafsson, einn eigenda
Parka, segir að kaupin megi rekja
til þess að menn hafi fundið fyrir
aukinni eftirspurn eftir teppum.
„Við stigum fyrstu skrefin inn í
þennan geira með því að kaupa
Persíu á sínum tíma,“ segir Gústaf
en Persía seldi stakar mottur og
teppi.
Hann segir að teppi séu helst
seld í stórverkefni á borð við hótel,
skrifstofur og stofnanir. Lítið fari
af teppum inn á heimili fólks. „Við
höfum verið með loftaefni, innrétt-
ingar og gólfefni hjá okkur, en
þetta hefur vantað. Það var okkar
hvati að þessu skrefi,“ segir Gústaf.
Að sögn Gústafs hefur mikill
vöxtur orðið í viðskiptum Parka á
undanförnum árum. Það sé í takt
við tölur Rannsóknaseturs verslun-
arinnar sem sýndu að velta í bygg-
ingavörugeiranum jókst um 20% á
síðasta ári. „Við finnum fyrir því.
Hins vegar er minni sókn hjá
venjulegu fólki en maður hefði búist
við. Það er altalað að það sé við-
haldsþörf víða. Húsfélög hafa haldið
að sér höndum þegar kemur að því
að skipta um teppi til að mynda.
Við teljum að ein af skýringunum
geti verið sú að erfitt er að fá iðn-
aðarmenn og mönnum gengur bet-
ur að manna nýframkvæmdir held-
ur en í viðhaldsgeiranum,“ segir
Gústaf. vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Ófeigur
Nýframkvæmdir Teppi eru helst
valin í skrifstofubyggingar og hótel.
Teppaeftirspurn
ástæða kaupanna
Parki kaupir
Teppabúðina og
opnar sérdeild