Morgunblaðið - 22.02.2017, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.02.2017, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017 ✝ Elsa Finns-dóttir fæddist 7. janúar 1938 á Ísafirði. Hún lést 12. febrúar 2017. Foreldrar henn- ar voru hjónin Finnur Magnússon, kaupmaður á Ísa- firði, f. 5. október 1909 á Flateyri, d. 8. apríl 1991, og Helga Stefáns- dóttir húsmóðir, f. 8. október 1911 í Neskaupstað, d. 11. janúar 2000. Elsa var elst þriggja systkina. Bræður hennar eru Magnús Elí- as Finnsson viðskiptafræðingur, f. 17. janúar 1946, og Stefán Finnsson læknir, f. 13. október 1947. Finnur var sonur Magnús- ar Guðmundssonar, skósmiðs á Flateyri, og Guðrúnar J. Guð- mundsdóttur húsmóður. Bróðir Finns var Magnús Bergur. Fóst- urfaðir þeirra bræðra var Elías tveir, Karl Arnar Arnarson, framkvæmdastjóri Loftmynda, f. 4. nóvember 1963, í sambúð með Rakel Eddu Ólafsdóttur leik- skólakennara, f. 24. apríl 1963, og Finnur Arnar Arnarson, myndlistarmaður og leikmynda- hönnuður, f. 25. desember 1965, kvæntur Áslaugu Thorlacius myndlistarmanni, skólastjóra Myndlistaskólans í Reykjavík, f. 11. september 1963. Börn Karls Arnars og Rakelar eru Örn Arn- ar, f. 4. maí 1991, í sambúð með Silju Jóhannsdóttur, Thelma, f. 28. nóvember 1994, í sambúð með Sindra Snæ Kolbeinssyni, Elsa Rún, f. 12. júní 1996, Matt- hildur Ylfa, f. 12. september 2001, og Karólína, f. 28. febrúar 2008. Börn Finns Arnars og Ás- laugar eru Salvör, f. 7. ágúst 1989, í sambúð með Árna Tóm- assyni, Kristján, f. 2. september 1996, Hallgerður, f. 11. sept- ember 1998, og Helga, f. 7. ágúst 2000. Dóttir Salvarar og Árna er Elsa, f. 26. maí 2016. Elsa Finnsdóttir verður jarð- sungin frá Dómkirkjunni í dag, 22. febrúar 2017, kl. 15. Kærnested Pálsson, skósmiður á Ísa- firði. Helga, móðir Elsu, var elst átta barna hjónanna Stefáns Guðmunds- sonar, íshússtjóra frá Fannadal í Norðfirði, og Sess- elju Jóhannesdótt- ur, húsmóður frá Nolli við Eyjafjörð. Elsa lauk gagn- fræðaprófi á Ísafirði og stundaði píanónám við Tónlistarskóla Ísa- fjarðar. Hún vann lengi hjá Pósti og síma, fyrst á Ísafirði og síðar í Reykjavík. Hún lauk sínum starfsferli utan heimilis sem rit- ari hjá Símanum við Ármúla. Hinn 29. júní 1963 giftist Elsa Erni Arnari Ingólfssyni stærð- fræðikennara, síðar stofnanda og framkvæmdastjóra Ísgrafs og Loftmynda, f. 28. janúar 1943 á Akureyri. Þau settust að í Reykjavík. Synir þeirra eru Það fór ekki mikið fyrir Elsu Finnsdóttur á heimsvísu en þeim mun stærra hlutverki gegndi hún í lífi okkar sem næst henni stóðum. Yndisleg amma barnanna minna og gagnvart mér dásamleg tengda- mamma og kær vinkona. Ég kynntist henni fyrir næstum þrem- ur áratugum og frá fyrsta degi kom hún fram við mig eins og ég væri hennar eigin dóttir. Hún var rausnarleg og gjafmild, svo mjög að maður varð jafnvel aðeins að gæta orða sinna því það þurfti ekki meira til en að maður lýsti velþókn- un á einhverjum hlut eða flík þá færði hún manni það við fyrsta tækifæri. Þegar hún sat hjá krökk- unum var ekki nóg með að börnin svæfu blítt og rótt þegar foreldr- arnir skiluðu sér heim heldur var iðulega búið að taka til á heimilinu og í kaupbæti gægðist peningaseð- ill undan blómapotti. Elsa var sérstaklega falleg kona með stór, dökkblá augu og hlýtt bros, hávaxin og glæsileg og hún bar aldurinn ótrúlega vel þegar ár- unum fjölgaði. Hún var fagurkeri sem naut þess að eiga fallegt heim- ili og sjálf var hún alltaf óaðfinn- anlega smart og skvísuleg til fara því hún fylgdist vel með straumum og stefnum í tískunni. Andlát hennar bar mjög brátt að. Ég hafði gert ráð fyrir að fá að njóta samvista við hana í mörg ár enn. Það er sárt að horfast í augu við þá staðreynd að kaflanum með elsku Elsu sé lokið í þessu lífi. Ég þakka fyrir mig. Ég hefði ekki get- að eignast betri tengdamóður. Áslaug Thorlacius. Það er dapurlegt og skrítið að hugsa til þess að amma Elsa muni aldrei framar veifa mér í gluggan- um á Klapparstígnum eins og drottning með stóra brosið sem fyllti augun hennar af hlýju og ást. Hún var alltaf kletturinn í lífinu mínu og minn griðastaður hefur alltaf verið á Klapparstígnum. Hún kallaði mig prinsessuna sína og við tvær vorum bestu vinkonur. Amma var einstök kona. Hún var hörkutól, sjálfstæð og ákveðin en samt svo blíð og góð, brosmild og bar af í glæsileika. Hún átti allt- af góð ráð, vildi halda friðinn og það skipti mestu máli að vera kurt- eis og góður við fólkið í kringum sig. Þannig var amma. Hún naut þess að gera vel við fólkið sitt og gerði alltaf gott betur því hún var svo grand. Hún elskaði að gefa manni að borða og ef maður vildi ekki matinn sagði hún: „Gikkurinn bað að heilsa þér!“ Hún bakaði bestu pönnukökurnar og sauð besta rjómalagaða rúsínuvelling- inn. Ég á ófáar minningar þar sem ég sit uppi á borði í gamla eldhús- inu hennar ömmu og er að hjálpa henni að útbúa eitthvað girnilegt. Allt var henni svo auðvelt og allt sem hún snerti varð að einhverju unaðslegu. Hún var meistari í að hafa það huggulegt. Þau ófáu skipti sem ég gisti fékk ég mjúkan slopp og loðna sokka til að sofa í eftir slakandi freyðibað með kertaljós og svala- drykk. Á laugardagsmorgnum var litla sjónvarpinu rúllað inn í her- bergi og ég fékk morgunmat í rúm- ið. Cocoa Puffs og útskornar brauðsneiðar með rifsberjasultu, því ekki þurfti maður að borða skorpuna hjá ömmu. Ég man hvað ég var montin þegar ég kom með vinkonur mínar í heimsókn á Klapparstíginn. Þær öfunduðu mig af því að eiga svona æðislega ömmu. Amma var líka töffari; hún vaknaði á nóttunni til að horfa á box og talaði um húð- flúrið sem hana langaði að fá sér. Hún kunni að jóðla og gerði það ósjaldan. Hún var alltaf vel tilhöfð, var með algjöra fatadellu og stund- um þegar hún hafði keypt sér eitt- hvað sagði hún: „Ekki segja afa þínum.“ Ef hann spurði var þetta bara eitthvað gamalt sem hún fann uppi í skáp. Hún var líka algjör nammigrís. Ég man eftir okkur þremur fyrir framan sjónvarpið. Hún með karamellur í vasanum sem hún var búin að taka úr bréf- unum svo afi heyrði ekki skrjáfið. Með lagni tókst henni að stinga þeim upp í sig og mig og afi tók aldrei eftir neinu. Ég á erfitt með að velja úr öllum minningunum um ömmu Elsu. Tíminn sem við eyddum saman í húsbílnum, kvöldin sem við borð- uðum á Ítalíu og ég fékk óáfengan kokteil með regnhlíf, utanlands- ferðirnar og matarboðin. Enda- laust magn af góðum minningum sem ég mun alltaf varðveita. Ég er þakklát fyrir að vera barnabarnið hennar ömmu og hafa verið svona elskuð. Ég er þakklát fyrir að hafa eignast hana Elsu mína, að amma hafi fengið að eyða með henni átta mánuðum á Klapp- arstígnum. Ég ætla að elska hana eins og amma elskaði mig, halda friðinn og búa til skemmtilegar og notalegar minningar sem hún mun alltaf eiga. Elsku hjartans amma engill, ég elska þig og sakna þín. Þar til við hittumst næst. Þín stelpa, Salvör. Elsku amma. Það er erfitt að koma því í orð hve mikið ég elska þig og hvað ég ber mikla virðingu fyrir þér en ef ég ætti að rifja upp allar mínar uppáhaldsminningar um þig yrði þessi grein að fylgja dagblaðinu sem aukablað. Þú varst besta vinkona mín, sú sem ég gat alltaf leitað til og sú sem ég treysti fyrir öllum mínum leyndarmálum. Þú vissir allt um mig og ég vissi allt um þig. Á seinustu árum urðum við svo háðar hvor annarri að það var nánast óheilbrigt en ef við hittumst ekki daglega þá töluðum við saman í síma, jafnvel þótt við hefðum ekk- ert merkilegt að segja. Mér þótti fátt skemmtilegra en að eyða heilu dögunum með þér að horfa á heimskulegt sjónvarpsefni, fara í göngutúr og baka kannski eina brúna ef við vorum í stuði. Ég gæfi hvað sem er fyrir einn dag í viðbót með þér. Þú varst svo fyndin og skemmtileg og þér tókst alltaf að plata mig með lygasögun- um þínum. Þegar þú varðst vitni að ómerkilegu rifrildi milli okkar syst- kinanna gerðir þú allt í þínu valdi til að passa að við sættumst því þú þoldir ekki að vita af því að fólki kæmi illa saman. Þú hafðir svo stórt og gott hjarta og vildir engum illt. Þegar ég hugsa um þig sé ég þig fyrst og fremst fyrir mér inni í eldhúsi á Klapparstígnum að út- rýma þínum helstu óvinum, flug- unum, með hárspreyið að vopni. Ég mun alltaf dást að einbeiting- unni og metnaðinum sem þú lagðir í hvert flugumorð og efast um að ég muni nokkurn tímann kynnast jafn staðfastri manneskju og þér. Flugurnar áttu aldrei möguleika á móti þér og þínum ofurskynfærum enda heyrðir þú allar samræður sem áttu sér stað í húsinu, sama hversu lágt var hvíslað. Þú varst svo stór hluti af lífi mínu og með dauða þínum deyr mikilvægur hluti af mér. Lífið verður aldrei hið sama án þín, elsku amma, en ég mun sakna þín alla daga það sem eftir er af því. Takk fyrir rúm 18 dásamleg ár og ótalmargar yndislegar minningar. Ég elska þig og bið Guð að geyma þig vel. Hallgerður T. Finnsdóttir. Án sorgar er engin gleði og án gleði engin sorg. Í hjarta okkar búa þær systur, við finnum þær í orð- um, myndum, sögnum, sporunum heim, sporum að heiman, í dögum og árum. Þær koma og fara, leggj- ast í dvala en rísa upp og minna á sig og gera ekki boð á undan sér. Er ég kveð þig, systir mín góð, þakka ég þér fyrir góðar stundir þar sem bestu ljóð þín voru ort með hlýju og kærleika, minnist fallegu hljómanna þinna sleginna á lítið pí- anó undir súð fyrir vestan í stof- unni litlu á dimmum vetrarkvöld- um þegar tíminn stóð í stað og saumakonurnar í næsta húsi lögðu nálarnar frá sér, afi hætti að negla skó og búðin hans pabba varð pínu- lítill tónleikasalur eina litla töfra- stund fyrir langa löngu í geislabliki stjörnuljósa himinsins yfir firðin- um snjóþunga. En svo þagnar sú harpa sem önnur, ys og þys hvers- dagsleikans tekur völdin aftur. En hvað með það ef birta lýsir upp dimma daga um hálfopnar dyr og svefninn breiddist yfir með tónum þínum í kyrrð og ró og festist í barnsins minni. Ég stikla milli stakra steina minninganna sem geyma daga og stundirnar horfnu sem ég á einn í leynihólfi mínu og enginn hefur lykil að. Ég staldra við dalalækinn okkar sem enn hjal- ar en grætur nú falinn í fönn, en í vor spyr hann mig hvar þú sért og af hverju þú komir ekki og um ljóð okkar allra sem aldrei voru ort, sem bíða því sérhvert barn er ljóð móður sinnar. Ég kveð þig með ljóðinu mínu um kveðjuna, kveðjuna heim. Það- an erum við komin og þangað leitar hugurinn á þessari stundu. Hvíl þú í friði, elsku systir. Þau kveðja mig glöð úr glugganum sínum og veifuðu mér. Og augun mín urðu rauð á litinn eins og lítil ber. Og himinninn spyr hví ertu að gráta er enginn sér. Stefán Finnsson. Elsa mágkona mín hvarf á brott frá okkur í takt við líf sitt og per- sónuleika – með því að líða frá okk- ur smátt og smátt, leggja síðan augun aftur og hverfa yfir þangað sem enginn nær til hennar. Ekkert hálfkák, engin fyrirhöfn, aðeins reisn og þetta stórkostlega „dig- nity“ sem einkenndi hana og allt sem hún snerti á. Elsa Finnsdóttir var einstök kona með sterkan persónuleika og glæsilegt yfirbragð sem engum gleymist. Nú um leið og ég set þessar línur niður gæti ég ekki unnið mér það til lífs að muna eftir galla í fari hennar. Í þrjátíu ár höf- um við átt leið um svipaðar slóðir og mér er næst að halda að Elsa hafa verið eins flekklaus mann- eskja og hægt er að vera. Það leyndist ekki neinum hve Elsa var trygg, artarsöm, glæsileg og gegn- heil. Ljóntrygg sínu fólki og virkaði eins og segull sem sogaði stórfjöl- skylduna að. Hávaxin, með fallegar hreyfingar, bros og blik í augum, sem lýsti upp og smitaði út frá sér; sterkur persónuleiki, gat allt sem hún ætlaði sér. Umhverfi hennar smekklegt og á Elsu var ekki kusk eða óreiða nærri og óhugsandi að hitta hana þannig fyrir þó óvænt bæri mann að garði. Allt í röð og reglu. Hún sjálf ábyrg og kraft- mikill dugnaðarforkur, sem sá öngva ástæðu til að læra á bíl á meðan fætur hennar báru hana þangað sem hún þurfti. Vissulega gekk hún ekki vestur á Ísafjörð, þar lágu rætur hennar. Það dugði henni að Örn væri með í för; Örn Arnar, sem hún gekk með upp að altarinu í Holtskirkju fyrir meira en 50 árum. Þaðan hefur hann ekki vikið. Fáum árum síðar ásamt Kalla og Finni sem bættu um betur eftir að þeir hleyptu heimdraganum og sáu þeim Elsu og Erni fyrir nægum félagsskap barna sem trítluðu smáfætt og síð- ar stórfætt í kringum þau á Klapp- arstígnum. Elsa var lánsöm og uppskar eins og hún sáði. Hóf ung störf hjá Pósti og síma á Ísafirði, flutti síðan suður til Reykjavíkur og hélt áfram að vinna hjá Pósti og síma sem síðan var Síminn allt fram að þeim degi sem hún fór á eftirlaun. Síðustu tíu árin hefur hún notið þess að stússa í kringum sína stóru fjölskyldu. Þau urðu tíu barnabörnin og fyrsta barnabarnið fæddist á síðasta ári og auðvitað var Salvör elsta barna- barnið hennar nærri ömmu sinni með frumburðinn. Það var engar heiðar að fara til samveru, því öll bjuggu þau nánast á sama blett- inum í 101. Bræðrum sínum tveim- ur sem voru átta og níu árum yngri var hún stoð og stytta þegar þeir fluttust til náms í Reykjavík. Elsa á stóran stað í hjarta Magnúsar, sem tregar systur sína mjög, og verður sárt saknað. Örn á alla mína samúð. Þrátt fyrir að það sé ekki í valdi okkar hér á jörð að ákveða hver annan grefur fylgir þeim sem eftir sitja eftirsjá og söknuður. Gæfa Arnar er að hafa haldið vel utan um syni og barnabörn sem ef ég þekki rétt munu fylla upp í það tóm af fremsta megni. Elsu kveð ég með tregablöndnu þakklæti í huga. Henni á ég margt að þakka og á milli okkar ríkti virð- ing sem aldrei bar skugga á hvað sem á gekk. Erni, Kalla, Finni, tengdadætrunum Áslaugu og Rak- el og börnunum öllum votta ég mína dýpstu samúð. Bergljót Davíðsdóttir. Mig langar að minnast hennar Elsu minnar í örfáum orðum. Elsu sem var allt í senn vinkona, frænka og nánast eins og systir mín þegar við vorum litlar stelpur á Ísafirði. Það voru sem sagt ekki bara fjöl- skyldubönd sem tengdu okkur heldur líka góð vinátta og hér áður fyrr ekki síst góð vinátta foreldra okkar. Við Elsa áttum því margar góðar sameiginlegar minningar en þar koma fyrst upp í huga mér sumarbústaðaferðirnar í Tungudal með foreldrum okkar í barnæsku og árin sem við unnum saman á sumrin á Ísafirði. Seinna giftumst við og fluttum til Reykjavíkur og þá urðu mennirnir okkar einnig góðir vinir. Saman áttum við marg- ar góðar stundir. Eftir að Elsa veiktist ræddum við æskuminning- ar okkar mikið, mér fannst sem það færði henni gleði þegar við gáf- um okkur tíma til þess. Síðustu árin voru Elsa og Örn einnig dugleg að bjóða mér með sér á hina ýmsu menningarvið- burði og þá sérstaklega núna síð- asta árið eftir að ég missti manninn minn. Fyrir þessar stundir er ég þakklát. Mig langar að votta fjölskyldu Elsu samúð mína. Það var fallegt að fylgjast með hve vel þau hlúðu að henni í veikindunum. Auður Viktoría Þórisdóttir. Elsa Finnsdóttir HINSTA KVEÐJA Guð geymi þig, elsku amma. Sjáumst. Helga Thorlacius Finnsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR KETILSDÓTTIR, fyrrverandi húsmóðir, Torfum, Eyjafjarðarsveit, lést laugardaginn 18. febrúar á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri. Jarðarförin auglýst síðar. Smári Helgason Anna Jóhannesdóttir Ketill Helgason Anna Gunnbjörnsdóttir Sigurjón Helgason Sólrún Sveinbergsdóttir Níels Helgason Sveinbjörg Helgadóttir Jónína Helgadóttir Kristján Gunnþórsson Guðjón Þór Helgason Erla Halls Regína Helgadóttir Gunnhildur Helgadóttir ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN HELGA JÓNSDÓTTIR, áður búsett á Kotvelli í Hvolhreppi, lést á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli mánu- daginn 20. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Guðm. Sv. Hermannsson Lovísa Sigurðardóttir Helgi Hermannsson Jónína Gróa Hermannsdóttir Hákon Mar Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR JÓHANNSDÓTTIR frá Laxárdal í Hrútafirði, Hólabergi 84, lést 20. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Aðalheiður Gunnarsdóttir Kristján Örn Frederiksen Elísabet Ragnarsdóttir Elísa Guðrún Ragnarsdóttir Sigrún Rut Ragnarsdóttir Snorri Gústafsson Jóhann Ragnarsson Jóna Guðrún Ármannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.