Morgunblaðið - 22.02.2017, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017
Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is
Byrjaðu daginn á
café et
croissant
Verð aðeins
690,-
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert eitthvað pirraður því þér finn-
ast hlutirnir vera að vaxa þér yfir höfuð. Er þú
reynir að róa hugann finnst þér þú endurnær-
ast.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú átt í vændum frjótt tímabil og ættir
að finna þér sem mestan tíma til sköpunar-
starfa. Ekki ná öllu hárrétt, kláraðu bara verk-
ið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að ganga úr skugga um að
ekki sé verið að ganga á rétt þinn. Best væri
að draga sig alveg í hlé, því svona barátta
skilar engu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Byrjaðu vikuna á því að sinna smá-
vægilegum þáttum sem hjálpa þér til þess að
bæta skipulagið í kringum þig. Ekki lofa ein-
hverju bara til þess að þóknast öðrum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það getur verið til bóta að nálgast verk-
efni úr nýrri átt, þegar gömlu aðferðirnar eru
hættar að duga. Farðu varlega og gakktu úr
skugga um að málstaður þinn sé þess virði
að berjast fyrir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þetta er ekki verri dagur en hver ann-
ar að reyna eitthvað nýtt í eldhúsinu. Mundu
að vinur er sá er til vamms segir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er svo margt skemmtilegt í boði
núna að þér reynist ófært að taka þátt í því.
Vertu hreinskilinn við þá, sem þú talar við.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Reyndu að fá tíma í einrúmi til
að velta vöngum yfir breytingum á starfi eða
búsetu, sem framundan kunna að vera.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er margt að gerast í kringum
þig og þú mátt hafa þig allan við svo að
straumurinn hrífi þig ekki með sér. Með því
að veita umhverfinu athygli endurnýjast
skilningarvitin og hugarástand þitt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Maður er manns gaman og það
getur verið reglulega ánægjulegt að eyða
dagstund í góðra vina hópi. Mundu bara að
aðstoð er eitt og að taka alla stjórn er annað
og það átt þú að varast.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er ómögulegt að segja hvaða
vandræði dagsins eru það besta sem hefur
fyrir þig komið, en ein þeirra eru það. Störf
þín standa fyrir sínu og þú þarft ekki að rétt-
læta þig með leikaraskap.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert fremstur meðal jafningja og átt
að vera það með lítillæti og án alls oflætis.
Ekki efast um eigin getu eða finna til van-
máttar.
Kári Stefánsson læknir var gest-ur á hádegisfundi Samtaka
eldri sjálfstæðismanna 8. febrúar sl.
Þar flutti Sveinbjörn Jónsson hon-
um þetta ljóð, sem hann kallaði
„Menntagenin“:
Skyldi Kári skaðmenntaður vera?
Skyldi hann ekki hafa neitt að gera?
Eða hefur íslensk erfðagreining
eitthvað til að styðja þessa meining?
Segjum að hann sæðisbanka opni
með sjálfan sig og líka menn að vopni
myndi vegur vitsmunanna hækka?
Vitleysingum örugglega fækka?
Vandasöm er vitsmunanna brekka
vissara að fá sér nóg að drekka
en litningarnir leysa allan vanda
lærdómsins í boði heilags anda.
Vaknar senn hinn viti borni maður
verk hans munu snjöll en ekkert blaður;
þýðir ei að þæfa gegn hans rökum
þið sem hlutuð genasafn með mökum.
Eitt sinn sagði kennari í Kína
sem kunni ávallt lexíuna sína:
„Ég tel við munum tækla þetta betur
ef tökum við upp aftur hnútaletur.“
Kárnar gaman, koðnar hitt og þetta,
konungar úr valdastólum detta;
skoplegir nú gerast skýjaglópar
skipulagðir eins þrýstihópar.
Fía á Sandi talaði um „meira kerl-
ingargrobb“ á Leirnum og orti:
Ef þú býrð við basl og vos
og berst við skuggadregla.
Málaðu á þig blíðubros
og brostu fyrir spegla.
„Kerlingargrobb eða ekki,“ svar-
aði Sigrún Haraldsdóttir:
Lostaskortur, leti og drómi
lítið okkur þreytir,
yndislegur æskuljómi
okkur Fíu skreytir.
„Við og þið …“ segir Ármann Þor-
grímsson og bætir við:
Engan drepa ætlum við
og engan meiða.
Aðeins höfum annan sið
og ekki skiljum stjórnkerfið.
Öðru vísi eruð þið
sem öllu ráðið.
Aldrei neinum gefið grið
og getið ekki haldið frið.
Kristján Runólfsson yrkir á Boðn-
armiði um mengun jarðar:
Mennirnir reika í moldryki alda,
mökkurinn þykknar við hvert gengið spor,
kynslóðir nýjar þær kaupverðið gjalda
með krankleika, þrældómi, fátækt og hor.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Menntagenin og
kerlingargrobb
Í klípu
KVIKMYNDAGAGNRÝNENDUR HATA
AÐ FERÐAST Á ÞUMLUNUM.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„300 ÁRA DÓMUR ER EKKI SVO
SLÆMUR Í DAG. MEÐ GÓÐRI HEGÐUN
GÆTIR ÞÚ VERIÐ LAUS Í ÁGÚST.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann hringir
til þess að segja að
hann elski þig.
OG ANDA
INN!
ÉG ÁBYRGIST ÞAÐ AÐ HÉR ER
HEILL SKÓLI AF FISKUM!
ÞAÐ VAR
RÉTT!
ÞÚ FANNST
LEIKSKÓLA!
ÚAR ÚÚ ÚÚ ÚÚ ÚÚ ÚÚ ÚÚ ÚÚ Ú ÚÚ ÚÚÚ ÚÚÚÚ ÚÚ ÚÚÚÚÚ Áhugafólk um verðlaunahátíðirfær heldur betur eitthvað fyrir
sinn snúð á sunnudaginn kemur þeg-
ar bæði Eddu-hátíðin og Óskars-
hátíðin fara fram í beinni útsendingu
í sjónvarpi. Varla þarf að geta þess
að á Eddunni eru íslenskar kvik-
myndir og sjónvarpsefni verðlaunað
fyrir að skara fram úr og á Ósk-
arnum er það sama gert við Holly-
wood-myndir og raunar myndir víð-
ar að.
x x x
Enda þótt Víkverja þyki sjálfsagtað verðlauna kvikmyndir og fólk
með þessum hætti hefur honum
aldrei þótt þessar hátíðir spennandi
sjónvarpsefni og hefur ekki vakað
eftir Óskarnum síðan kvikmynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börn
náttúrunnar, var tilnefnd fyrir um
aldarfjórðungi. Samt verður hann að
viðurkenna að Óskarsverðlaunahá-
tíðin er heldur skárri en Eddan enda
fer glamúr Bandaríkjamönnum yfir-
leitt betur en Íslendingum. Maður
er enn með pínulítinn kjánahroll yfir
Eddunni. Að vísu fá áhorfendur
nokkuð skemmtilegan kynni að
þessu sinni; Sólmundur Hólm gæti
auðveldlega lyft samkomunni upp.
x x x
Það verður að teljast nokkuð sér-stök ákvörðun hjá aðstand-
endum Eddunnar að velja sama
kvöld og Óskarinn fer fram; hátíðin
hlyti að fá meiri athygli og áhorf alla
aðra daga ársins. Hætt er við að hún
blikni í samanburðinum og drukkni í
umræðunni á eftir. En á tímum
„hauggláps“ er þetta ef til vill við
hæfi. Það kveikir ekki nokkur maður
orðið á sjónvarpinu nema til að horfa
á eins og eina seríu frá A til Ö.
x x x
Ef við tökum glamúrinn, glysið oghanastélið út fyrir sviga verður
áhugavert að sjá hvaða kvikmyndir
fara með sigur af hólmi á báðum
þessum hátíðum í ár. Hér heima hef-
ur spennan sjaldan verið meiri en
bæði Hjartasteinn og Eiðurinn hafa
fengið glimrandi viðtökur og dóma.
Sjáum hvað setur. Nú eða slepp-
um því að sjá og hlustum bara eftir
niðurstöðum. vikverji@mbl.is
Víkverji
En mín gæði eru það að vera nálægt
Guði, ég gerði Drottin að athvarfi
mínu og segi frá öllum verkum þínum.
(Sálm. 73:28)