Morgunblaðið - 22.02.2017, Qupperneq 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017
Áhorfendakosning hjá Örvarpinu, þar sem áhorf-
endur geta valið sína uppáhaldsörmynd, stendur
nú yfir en sl. haust valdi valnefnd Örvarpsins, þau
Tinna Hrafnsdóttir og Sindri Bergmann, 12 mynd-
ir til birtingar á vef Örvarpsins á RÚV. Ein mynd
verður á endanum valin örmynd ársins 2016 og
verða allar myndirnar 12 sýndar 28. febrúar kl. 18
á Stockfish-kvikmyndahátíðinni í Bíó Paradís. Til-
kynnt verður um verðlaunin og þau afhent á hátíð-
inni 4. mars. Hér er hægt að horfa á myndirnar 12
og kjósa þá bestu á vef RÚV.
Úr Mömmu martröð eftir
Laufeyju Elíasdóttur.
Kosið um bestu örmyndina
Kvöld í París er yfirskrift tónleika í
menningarhúsinu Hannesarholti í
kvöld, miðvikudag, og hefjast þeir
klukkan 20. Einar Bjartur Egilsson
píanóleikari og Nadia Monczak
fiðluleikari flytja þá rómantísk verk
eftir tónskáldin César Franck, Jules
Massenet, Ernest Chausson og
Frédéric Chopin.
Einar Bjartur hóf píanónám sjö
ára í Tónlistarskólanum í Reykjahlíð
við Mývatn. Síðar fluttist hann til
Reykjavíkur og stundaði nám í Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar.
Haustið 2010 hóf hann svo nám í
Listaháskóla Íslands undir hand-
leiðslu Peters Máté og útskrifaðist
þaðan vorið 2013. Í janúar það ár lék
hann einleik í píanókonsert F.
Poulencs með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Á árunum 2013 til 2015 stund-
aði Einar meistaranám í Maastricht.
Hann hlaut árið 2014 styrk úr Minn-
ingarsjóði um Birgi Einarsson.
Einar hefur samið tónlist fyrir
nokkrar stuttmyndir, til dæmis
þýsku myndina Windspiele, og síðla
árs 2015 gaf hann út sína fyrstu
hljómplötu að nafni Heimkoma með
eigin tónsmíðum. Hann hefur spilað
á tónlistarhátíðum í Hollandi og
starfað með kórum bæði þar og hér
heima. Um þessar mundir starfar
hann sem píanókennari og meðleik-
ari við Tónlistarskóla Árnesinga.
Nadia Monczak hóf fiðlunám fjög-
urra ára gömul í Póllandi. Síðan hef-
ur ferill hennar mótast bæði í Kan-
ada og Evrópu. Hún hefur haldið
tónleika í mörgum löndum, leikið
einleik með virtum hljómsveitum og
sem kammertónlistarmaður hefur
hún starfað í mörgum hópum.
Í haust er á döfinni hjá Monczak
einleikur í Carnegie Hall í New York
og í Kursaal Interlaken í Sviss.
Boðið verður upp á léttan kvöld-
verð á undan tónleikunum.
Fiðluleikarinn Nadia Monczak. Píanóleikarinn Einar Bjartur.
Parísarkvöld í
Hannesarholti
Félagsskapurinn Vinir gamla bæj-
arins í Múlakoti stendur fyrir góu-
gleði og fræðslukvöldi á Hótel Sel-
fossi í kvöld, miðvikudag, kl. 20.
Á dagskrá kvöldsins er kvik-
mynd eftir Erik Skibsted um ferð-
ir danska myndlistarmannsins Jo-
hannes Larsen og fylgdarmanns
hans, Ólafs Túbals, myndlistar-
manns og bónda í Múlakoti, um Ís-
land sumrin 1927 og 1930. Larsen
hafði verið falið að gera teikn-
ingar í danska hátíðarútgáfu Ís-
lendingasagnanna. Johannes Lar-
sen-safnið á Fjóni hefur í tvígang
sent leiðangur til Íslands fyrir
gerð þessarar myndar og var í
bæði skipti myndað töluvert í
Fljótshlíðinni og Múlakoti. Í kvik-
myndinni eru líka myndskeið af
Einari Fal Ingólfssyni ljósmynd-
ara frá því í sumar þegar hann
ferðaðist í fótspor félaganna og
tók ljósmyndir af stöðum þar sem
Larsen teiknaði. Afrakstur þess er
viðamikil sýning sem nú er í Jo-
hannes Larsen-safninu, til 26.
mars.
Eftir kaffihlé flytur Ásta Frið-
riksdóttir listfræðingur erindið
„Menning í Múlakoti“. Það byggist
á meistararitgerð Ástu, þar sem
hún fjallar um listmálara sem
unnu í Múlakoti.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Gamli bærinn Unnið er að uppbyggingu gamla bæjarins í Múlakoti þar sem
kunnir listamenn dvöldu löngum á liðinni öld, þar á meðal Johannes Larsen.
Góugleði Múlakotsvina
Það er ekki nóg með að Batman þurfi að kljást
við glæpamennina í Gotham borg, heldur þarf
hann að ala upp dreng sem hann hefur ætt-
leitt.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 75/100
IMDb 7,9/10
Laugarásbíó 17.40
Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 17.40
Sambíóin Akureyri 17.40
The Lego Batman Movie Fifty Shades Darker16
Christian berst við innri djöfla sína og Anastasía lendir í heift
þeirra kvenna sem á undan henni komu.
Metacritic 32/100
IMDb 5,0/10
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni
20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 20.00
Smárabíó 16.50, 17.10,
19.50, 22.30
Borgarbíó Akureyri 17.40,
20.00
Gamlinginn 2 IMDb 6,5/10
Gamlinginn fer í ferðalag um
alla Evrópu í leit að rússneskri
gosdrykkjauppskrift sem hann
týndi snemma á áttunda ára-
tug síðustu aldar.
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.20
Sambíóin Kringlunni 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00
Sambíóin Keflavík 20.00
La La Land Þau Mia og Sebastian eru
komin til Los Angeles til að
láta drauma sína rætast.
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 93/100
IMDb 8,5/10
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.20
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00
Sambíóin Kringlunni 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 20.00
Gold 12
Ólíklegir félagar álpast um
frumskóga Indónesíu í leit
að gulli.
Metacritic 49/100
IMDb 6,5/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 22.20
Sambíóin Keflavík 22.30
Háskólabíó 21.10
xXx: Return of
Xander Cage 12
Metacritic 42/100
IMDb 5,6/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40,
22.20
Rings 16
Metacritic 25/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.40
Sambíóin Akureyri 22.40
Hjartasteinn
Örlagarík þroskasaga sem
fjallar um sterka vináttu
tveggja drengja sem eru að
taka sín fyrstu skref inn í
unglingsárin og uppgötva
ástina.
Morgunblaðið bbbbm
IMDb 7,9/10
Smárabíó 20.10
Háskólabíó 18.10
Borgarbíó Akureyri 17.40
Bíó Paradís 22.30
John Wick:
Chapter 2 16
Leigumorðingi þarf að sinna
beiðni félaga úr fortíðinni
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 75/100
IMDb 8,6/10
Laugarásbíó 17.30, 20.00,
22.30
Sambíóin Keflavík 22.30
Háskólabíó 18.10, 21.10
Borgarbíó Akureyri 22.20
The Great Wall 16
Metacritic 48/100
IMDb 6,4/10
Laugarásbíó 20.00, 22.40
Monster Trucks 12
Metacritic 41/100
IMDb 5,5/10
Sambíóin Álfabakka 17.40
Why Him? 12
Metacritic 39/100
IMDb 6,6/10
Smárabíó 19.00
Resident Evil:
The Final Chapter16
IMDb 6,2/10
Smárabíó 23.00
T2: Trainspotting 12
Tuttugu ár eru liðin síðan
Renton kom á heimaslóð-
irnar og hitti þá Sick Boy,
Begbie og Spud.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 62/100
IMDb 7,9/10
Smárabíó 17.30, 19.30,
20.00, 21.30, 22.10, 22.40
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.20
Fjallkóngar
Háskólabíó 18.00
Rogue One:
A Star Wars Story 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 66/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Syngdu Metacritic 60/100
IMDb 7,3/10
Smárabíó 15.30, 17.30
Vaiana Metacritic 81/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 17.40
Billi Blikk IMDb 5,2/10
Laugarásbíó 17.40
Smárabíó 15.20
Tröll Metacritic 45/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 15.30
Paterson
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 90/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 20.00
Moonlight
Myndin segir uppvaxtarsögu
svarts, samkynhneigðs
manns á Florida.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 99/100
IMDb 8,2/10
Bíó Paradís 17.30, 22.30
Elle/Hún
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 89/100
IMDb 7,3/10
Bíó Paradís 20.00
Besti dagur í lífi Olli
Mäki
Metacritic 91/100
IMDb 7,5/10
Bíó Paradís 22.30
Toni Erdmann
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 94/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 20.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna