Morgunblaðið - 22.02.2017, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2017
Tuttugu árum eftir að hannsveik vini sína er MarkRenton (Ewan McGregor)enn á hlaupum. Hlaupin
eru hins vegar ekki á fjölförnum
vegi í Edinborg, heldur á hlaupa-
bretti í líkamsræktarstöð í Amster-
dam, þar sem hann hefur alið mann-
inn í tuttugu ár. Hægt og bítandi
orðið miðaldra á meðan Iggy Pop
syngur í iPhone-heyrnartólin hans
um „Lust for life“.
Og þá kemur áfallið, sem ýtir
Renton aftur heim til fátækrahverfa
Edinborgar, þar sem hans bíður
uppgjör við vinina sem hann sveik
fyrir öllum þessum árum. Og hvað
finnur hann á heimaslóðunum? Sick
Boy (Jonny Lee Miller) rekur bar
frænku sinnar, sem er í niðurníðslu,
milli þess sem hann reynir að finna
skjótfenginn gróða með því að
svindla á háum sem lágum. Spud
(Ewen Bremner) er ennþá fíkill, at-
vinnulaus og við það að missa
tengslin við konu sína og barn. Og
Begbie (Robert Carlyle) er enn í
fangelsi og dreymir þar á hverjum
degi um það sem hann muni gera við
Renton ef hann þá nokkurn tímann
sleppur út.
Þannig er stöðumyndin við upphaf
seinni Trainspotting-myndarinnar,
en sú fyrri var með umdeildari lista-
verkum tíunda áratugarins og skaut
Danny Boyle á stjörnuhimininn sem
leikstjóra, og þeim McGregor og
Carlyle sem leikurum. Sú mynd sem
slík stendur algjörlega á eigin fót-
um, en engu að síður hefur verið
hvíslað um gerð framhaldsmyndar
nánast frá því að Trainspotting sló í
gegn. Irvine Welsh, höfundur bók-
arinnar sem fyrri myndin er byggð
á, skrifaði meira að segja fram-
haldsbók sem tók upp þráðinn tíu
árum síðar, og er byggt aðeins á
henni í framhaldsmyndinni.
Það fyrsta sem hægt er að segja
um T2 Trainspotting er að hún er
afskaplega vel úr garði gerð. Boyle
sýnir okkur enn og aftur hversu
góður og myndrænn leikstjóri hann
er, þar sem ljós og skuggar geta
sagt meiri sögu en það sem leikar-
arnir einir eru að segja eða gera þá
stundina. Tónlistin styður svo við
uppbyggingu myndarinnar þannig
að eftir er tekið.
Leikararnir standa sig allir prýð-
isvel, einkum Robert Carlyle sem
brjálæðingurinn Begbie. Það er þó
Ewen Bremner í hlutverki hins ein-
falda Spuds sem ber af og veitir T2
Trainspotting ákveðinn miðpunkt
þegar hann finnur sjálfan sig óvænt
sem rithöfund að skrifa um lífs-
reynslu sína.
Kvenpersónur eru hins vegar
ekki fyrirferðarmiklar og þær sem
birtust í fyrri myndinni sjást hér
einungis í hálfgerðri mýflugumynd.
Í þeirra stað er komin Veróníka
(Anjela Nedyalkova), búlgörsk
fylgdardama og kærasta Sick Boy,
sem Renton ágirnist. Nedyalkova
gæðir Veróníku góðu lífi. Persóna
hennar verður miðlæg í frásögninni,
þar sem uppgjör við gamlar syndir
og ný svik taka sviðið, ásamt mjög
miklum skammti af „næntís“-
nostalgíu.
En þegar farið er út í það, er það
kannski sú sama nostalgía sem er
helsti galli myndarinnar. Boyle
gengur mjög langt til þess að minna
fólk á gömlu myndina, klippir til at-
riði úr henni og uppfærir í nýrri
mynd. Gæti það stuðað einhverja og
dregur nokkuð úr skemmtanagild-
inu fyrir þá sem ekki hafa séð fyrri
myndina.
Þá er því miður nokkuð um atriði
sem virðast eingöngu til þess fallin
að setja ögn meira kjöt á beinin,
svona nokkurn veginn úr samhengi
við hina stærri mynd. Það er þó rétt
að geta þess að hún verður aldrei
langdregin, líkt og talsverð hætta
hefði getað orðið á, og Boyle tekst að
vefa söguna saman þannig að hún
haldi áhorfandanum allan tímann.
Myndina skortir þó sitt eigið „stóra
atriði“, sem fólk á eftir að minnast
um langa tíð, líkt og fyrri myndin
hafði í hrönnum.
Á heildina litið er T2 Trainspott-
ing því mynd sem er alveg þess virði
að sjá fyrir aðdáendur gömlu mynd-
arinnar. Hún nær kannski ekki
sömu hæðum og fyrri myndin, en
færir okkur vel ígrundaðar hugsanir
um það hvað felist í vináttu, svikum
og því að hafa smá „lust for life“
þegar bestu árin virðast vera kirfi-
lega að baki.
Uppgjör og nostalgía Þeir Sick Boy og Renton (Jonny Lee Miller og Ewan McGregor) rifja upp gamla tíma ásamt
Veróníku (Anjela Nedyalkova), kærustu Sick Boy sem tilheyrir annarri kynslóð en gömlu jálkarnir.
Uppgjör, svik og
ólgandi fortíðarþrá
Smárabíó, Háskólabíó og
Borgarbíó Akureyri
T2 Trainspotting bbbmn
Leikstjóri: Danny Boyle. Handrit: John
Hodge, byggt á bókum Irvine Welsh.
Leikarar: Ewan McGregor, Ewen Brem-
ner, Jonny Lee Miller, Robert Carlyle,
Kelly Macdonald og Anjela Nedyalkova.
Stóra-Bretland 2017, 117 mínútur.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR
Týnd skáldsaga eftir Walt Whitman
er nú aðgengileg lesendum að
kostnaðarlausu á vef The Walt
Whitman Quarterly Review. Frá
þessu greinir The Guardian. Skáld-
sagan sem nefnist The Life and Ad-
ventures of Jack Engle var upp-
haflega framhaldssaga í Sunday
Dispatch árið 1852 án þess að höf-
undar væri getið.
Zachary Turpin, hjá Háskólanum
í Houston, rakti skáldsöguna, sem
er 36 þúsund orð að lengd, til Whit-
man þegar hann bar saman minn-
ispunkta skáldsins og úrklippur
sem varðveist
höfðu. Turpin
lýsir sögunni sem
„fyndinni, gáska-
fullri, skapandi,
fullri af óvæntum
vendingum og
kostulegri lítilli
bók“. Hún þykir
varpa nýju ljósi á
mótunarár Whit-
man sem skálds
en söguna skrifaði hann á svipuðum
tíma og upphaf epíska tímamóta-
ljóðsins Leaves of Grass.
Týnd skáldsaga Whitman aðgengileg
Walt
Whitman
Melkorka Telka Ólafsdóttir fjallar
um aðlaganir á skáldsögum fyrir
leiksvið á Bókakaffi í Gerðubergi í
kvöld kl. 20 en slíkar aðlaganir
hafa verið áberandi á fjölum stóru
leikhúsanna í vetur.
Melkorka Tekla starfar sem leik-
listarráðunautur í Þjóðleikhúsinu
og hefur tengst uppsetningum
fjölda leiksýninga, auk þess að hafa
leikstýrt nokkrum sýningum, bæði
á nýjum íslenskum verkum og er-
lendum. Hún er höfundur leik-
gerðar að skáldsögunni Tímaþjófn-
um sem sýnd verður í Þjóðleikhús-
inu seinni hluta vetrar.
Í erindi sínu mun hún fjalla um
leikgerðir í víðu samhengi, með
áherslu á þrjár leikgerðir sem
frumsýndar eru fyrri hluta þessa
leikárs í Þjóðleikhúsinu: Gott fólk,
eftir skáldsögu Vals Grettissonar;
Maður sem heitir Ove eftir vinsælli
skáldsögu Svíans Fredriks Back-
man; og Djöflaeyjuna, eftir bók
Einars Kárasonar. Melkorka var
einn af handritshöfundum síðast-
nefnda verksins.
Bókakaffi í Gerðubergi er hluti
kaffikvölda í Gerðubergi og haldið
mánaðarlega yfir vetrarmánuðina,
fjórða miðvikudagskvöld í mánuði.
Bókakaffi Melkorka Telka Ólafs-
dóttir verður í Gerðubergi í kvöld.
Fjallar um aðlaganir á
skáldsögum fyrir leiksvið
Hraðþrif
á meðan þú bíður
Hraðþrif opin virka daga frá 8-18,
um helgar frá 10-17. Engar tímapantanir.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Verð frá 4.300,-
(fólksbíll)
Bíllinn er þrifinn létt
að innan á u.þ.b.
10 mínútum.
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 10.30
SÝND KL. 5.30, 8, 10.30
SÝND KL. 5.40SÝND KL. 5.40
SÝND KL. 8, 10.30