Morgunblaðið - 22.02.2017, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 53. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Banaslys á Reykjanesbraut
2. Strætó lenti utan vegar
3. „Systir hefur gengið í reikn …“
4. Koma til að brjóta af sér
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sænski handritshöfundurinn og
leikstjórinn Måns Mårlind verður einn
gesta Stockfish-kvikmyndahátíðar-
innar sem hefst á fimmtudaginn í Bíó
Paradís. Mårlind kom að hugmynda-
vinnu og handritsskrifum dansk-
sænsku sakamálaþáttanna Broen,
eða Brúin, sem sýndir voru á RÚV við
miklar vinsældir og leikstýrði sænsku
þáttaröðinni Midnattssol, eða Mið-
nætursól, sem einnig var sýnd á RÚV.
Mårlind heldur masterklassa á
fimmtudaginn, sem rit- og handrits-
höfundurinn Huldar Breiðfjörð stýrir.
Aðrir heiðursgestir Stockfish eru
franski leikstjórinn og handritshöf-
undurinn Alain Guiraudie sem hlaut
m.a. verðlaun sem besti leikstjórinn í
Un Certain Regard-flokknum á Can-
nes fyrir kvikmynd sína Stranger by
the Lake árið 2013 og króatíski leik-
stjórinn, framleiðandinn og handrits-
höfundurinn Rajko Grlic sem þekkt-
astur er fyrir kvikmynd sína Karula.
Handritshöfundur
Broen á Stockfish
Sjóðheitir
tangótónleikar
verða haldnir í
Fella- og Hóla-
kirkju í kvöld kl.
20 og eru þeir
hluti af tónleika-
röðinni Frjáls eins
og fuglinn sem
Arnhildur Valgarðsdóttir, organisti
kirkjunnar, stendur fyrir. Á tónleik-
unum kemur Arnhildur fram með
söngkonunni Svanlaugu Jóhanns-
dóttur og munu þær m.a. frumflytja
nýjan tangó við texta Svanlaugar og
lag Ásbjargar Jónsdóttur tónskálds.
Sjóðheitur tangó í
Fella- og Hólakirkju
Á fimmtudag Austanátt, víða 8-15 m/s. Snjókoma eða él, einkum
suðaustan til á landinu. Frost 0 til 7 stig.
Á föstudag Suðaustan 10-15 og dálítil snjókoma, en þurrt norð-
anlands. Hægt hlýnandi. Hvessir síðdegis.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og suðaustan 5-13, heldur hvassara
síðdegis. Snjókoma eða él, einkum á suðaustanverðu landinu.
VEÐUR
„Við vorum með frekar nýtt lið í
haust og byrjuðum brösuglega,
en þetta hefur skánað mikið. Í
dag erum við flottir og höfum ver-
ið það í síðustu tíu leikjum. Við
höfum bætt okkur mikið, náð að
þétta vel vörnina og erum fljótir
upp og refsum liðunum sem við
spilum á móti,“ segir Óðinn Þór
Ríkharðsson, hand-
knattleiksmað-
urinn efnilegi úr
FH, um gott gengi
sitt og liðsins. »3
Flottir í síðustu
tíu leikjum
„Það var ekki slæmt að hitta á svona
dag. Ég fann eiginlega bara í fyrsta
þristinum að ég gæti orðið heitur í
skotunum. Á heildina litið var
þetta svakalega sterkur sig-
ur hjá okkur,“ segir Við-
ar Ágústsson körfu-
knattleiksmaður
úr Tindastóli
sem átti stór-
leik í öruggum
sigri Sauð-
krækinga á
Stjörnunni í
toppslag lið-
anna í fyrra-
kvöld. »4
Það var ekki slæmt
að hitta á svona dag
Sannkölluð markaveisla var í fyrstu
leikjum 16 liða úrslitanna í Meistara-
deild Evrópu í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Manchester City vann Móna-
kó, 5:3, frábærum knattspyrnuleik í
Manchester og Atlético Madrid vann
Bayer Leverkusen, 4:2, í Þýskalandi.
City-menn lentu undir, 3:2, eftir
klukkustundarleik en sneru taflinu
við á ævintýralegan hátt. »1
Mörkunum rigndi í
Meistaradeildinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Benedikt Jóhannesson, fjármála- og
efnahagsráðherra, fékk í gærkvöldi
afhent verðlaun fyrir sigur á barna-
skákmóti TR fyrir 50 árum. „Þetta
hefur verið erfið bið og bitur en hún
sýnir að þó tíminn lækni ekki öll sár,
getur það læknað að fá launin á end-
anum,“ segir hann og hlær við.
Jón Þorvaldsson, stjórnarmaður í
skákfélaginu Hugin, afhenti ráð-
herra verðlaunin að loknu Nóa Sír-
íus-mótinu 2017, gestamóti Hugins
og skákdeildar Breiðabliks. Jón var
leiðbeinandi hjá Taflfélagi Reykja-
víkur fyrir hálfri öld og stóð fyrir
fyrrnefndu barnaskákmóti 1967.
Góð skýring
„Þegar Benedikt var 12 ára bar
hann höfuð og herðar yfir alla krakk-
ana í TR og ég hafði þá á orði að
þarna væri komið einstakt efni. Ég
hét góðum verðlaunum á mótinu og
hafði í huga skákbók um töframann-
inn frá Riga, Mikhail Tal, helsta
fórnar- og fléttuskákmann þessa
tíma.“ Einhverra hluta vegna
gleymdist að afhenda Benedikt verð-
launin og það var ekki fyrr en þeir fé-
lagar hittust fyrir skömmu að sann-
leikurinn kom í ljós. Jón segist hafa
spurt Benedikt hvers vegna hann
hafi hætt að tefla, hvort það hafi ver-
ið vegna þess að leiðbeinandinn hafi
verið svo leiðinlegur. Benedikt hafi
svarað því til að það hafi ekki verið
ástæðan heldur hafi hann aldrei
fengið verðlaunin.
„Þetta er nú ekki alveg sannleik-
anum samkvæmt,“ segir Benedikt og
bætir við að á unglingsárunum hafi
hann áttað sig á því að ef hann ætlaði
að ná verulegum árangri í skák yrði
hann að eyða mjög miklum tíma í
hana. „Ég hefði ekki gert neitt annað
og var auk þess farinn að hafa áhuga
á öðru. Það réð úrslitum.“
Þegar Benedikt var fimm ára
byrjaði hann að fylgjast með Tómasi,
bróður sínum, tefla við Harald Blön-
dal, frænda þeirra. „Þannig lærði ég
mannganginn,“ segir hann og bætir
við að fljótlega hafi pabbi hans gefið
honum skákbók, þar sem farið hafi
verið yfir leyndardóma skákarinnar.
„Við það að lesa þessa bók snarfór
mér fram,“ segir hann og leggur
áherslu á að hann hafi lesið allt sem
hann hafi komist yfir um skák. „Það
er ekki nokkur vafi að ef ég hefði
fengið verðlaunin á sínum tíma hefði
ég orðið enn betri skákmaður!“
Þótt Benedikt hafi ekki lagt rækt
við skákina teflir hann reglulega og á
móti fyrir þremur árum var hann
næstur á eftir stórmeisturunum
Helga Ólafssyni, Jóhanni Hjartar-
syni, Jóni L. Árnasyni og Friðriki
Ólafssyni. „Þetta sómir sér ágætlega
í skáksögu minni,“ segir hann.
Verðlaunin í gærkvöldi voru bók,
sem var gefin út um Tal 2015. Jón
segir að þó hún sé verðmætari en sú
sem til stóð að gefa fyrir hálfri öld,
viti núverandi fjármálaráðherra að
vinningur að verðmæti 4.000 kr. 1967
standi nú í 4,3 milljónum króna mið-
að við 15% dráttarvexti. „Ég tek Jón
í sátt og geng sáttur frá taflborðinu,“
segir Benedikt um verðlaunin. Jón
vonast til þess að bókin góða örvi eig-
andann til nýrra dáða. „Benedikt
hefur þegar verið boðið að keppa á
MótX-skákhátíðinni á næsta ári og
við aðstandendur hátíðarinnar bíð-
um spenntir eftir svari frá honum.“
Fékk verðlaunin 50 árum síðar
Benedikt Jó-
hannesson sigraði
á skákmóti 1967
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skákmenn Benedikt Jóhannesson og Friðrik Ólafsson tóku eina skák í gærkvöldi og höfðu gaman af.
Ljósmynd/Markús Örn Antonsson
Skákmeistarar F.v.: Jón L. Árnason, Guðmundur Þórarinsson, Helgi Ólafs-
son, Benedikt Jóhannesson, Margeir Pétursson og Friðrik Ólafsson.