Morgunblaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2017 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Meðalverð á áli var 1.600 dollarar í fyrra en er núna rétt um 1.900 dollarar, samkvæmt upplýsingum Péturs Blöndal, framkvæmda- stjóra Samáls. Pétur sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að ljóst væri að til lengri tíma væri æskilegt að jafn- vægi væri í gengi krónunnar, en líkt og fram kom í Morgunblaðinu á laugardag hefur gengisvísitalan ekki verið lægri síðan í júlí 2008. Bandaríkjadalur var skráður á tæpar 107 krónur í gær. „Sveiflur eru ekki góðar og vissulega finna álverin fyrir hækkun á launakostnaði og sterkara gengi. Það hafa verið gríðarlegar hækkanir á launa- kostnaði undanfarið samfara því að krónan er að styrkjast, þannig að það má segja að þetta komi með tvöföldum þunga á álverin,“ sagði Pétur. „Ástæðuna fyrir hækkandi ál- verði má m.a. rekja til þess að eftirspurn jókst um 5,3% í heim- inum í fyrra. Eftirspurn heldur því áfram að vaxa ört. Þar munar mest um vaxandi notkun áls í bílaiðnaði, en með því eru bíla- framleiðendur að koma til móts við kröfur stjórnvalda um spar- neytnari farartæki og minni losun gróðurhúsalofttegunda. Ál er einnig lykilefni í rafbílum vegna léttleikans, sem vegur á móti þungum rafhlöðum og eykur vegalengdina sem þeir komast á hleðslunni,“ sagði Pétur. Pétur segir að ef til vill spili líka inn í að eitt af síðustu verk- um fráfarandi Bandaríkjastjórnar hafi verið að senda kæru á hend- ur Kínverjum fyrir ólögmætar niðurgreiðslur á aðföngum til ál- iðnaðar. Þegar hafi Evrópusam- bandið, Rússland, Japan og Kan- ada tekið undir það. Þessi ríki muni ræða saman um lausn vand- ans á þessu ári. Það kunni að hafa áhrif á væntingar á markaðnum og spila inn í hækkun álverðs. Spurn eftir áli jókst um 5,3% Morgunblaðið/Ómar Straumsvík Eftirspurn jókst um rúm 5% í fyrra, en dollar veiktist mjög.  Álverð hefur hækkað um 300 dollara frá því í fyrra en dollarinn hefur stórlega veikst  Um 1.900 dollarar fást nú fyrir tonn af áli  Dollarinn á um 107 krónur Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auð- lindaráðherra, hefur að höfðu sam- ráði við Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa- dóttur, ráðherra orkumála, lagt fram á Alþingi tillögu til þingsálykt- unar um verndar- og orkunýting- aráætlun. Tillagan er efnislega sam- hljóða tillögu sem þáverandi umhverfisráðherra flutti á síðasta þingi en var ekki afgreidd og bygg- ist sömuleiðis á vinnu verkefna- stjórnar um rammaáætlun. Í tillögunni eru tvær vatnsafls- virkjanir í Þjórsá settar í nýting- arflokk ásamt Skrokkölduvirkjun, Austurgilsvirkjun, Austurengjum í Krýsuvík, tveimur jarðvarmavirkj- unum á Hengilssvæðinu og vind- orkugarðinum Blöndulundi. Sömuleiðis eru útilokaðir ýmsir virkjanakostir vegna landsvæða sem sett eru í verndarflokk, svo sem Skjálfandafljót, Héraðsvötn og Skaftá. Í báðum flokkum eru fyrir ýmsir virkjanakostir og landsvæði sem flokkuð voru við síðustu afgreiðslu rammaáætlunar, árið 2013. Þeirri flokkun er ekki breytt með nýrri flokkun samkvæmt þessari tillögu. helgi@mbl.is Leggja fram óbreyttan ramma  Virkjanakostir í nýtingu og vernd Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég sé það ekki fyrir mér að ráð- herra ákveði að flytja Landhelgis- gæsluna í einu lagi á næsta ári. Það þarf að flétta þetta inn í framtíðar- sýn fyrir starfsemina,“ segir Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sem ásamt fleiri þingmönnum Suðurkjördæmis hefur endurflutt tillögu til þings- ályktunar um að dómsmálaráðherra hefji undirbúning að flutningi Land- helgisgæslunnar til Reykjanes- bæjar. Mikið ónýtt húsnæði Þetta er í sjötta skipti sem tillaga þessa efnis er flutt á Alþingi. Frá því Silja tók sæti á Alþingi og tók þá málið upp á sína arma hefur aðeins einu sinni fengist efnisleg umræða um það í þinginu, annars hafa tillög- urnar sofnað út af. Málið snýst um að nýta húsnæði á öryggissvæðinu á Keflavíkurflug- velli fyrir Landhelgisgæsluna og koma allri starfsemi hennar á einn stað. Gæslan er þegar með nokkra starfsemi þar. Flugflotinn kæmist einnig í gott framtíðarhúsnæði og skipin fengju einkar góða hafnarað- stöðu í höfnum Reykjanesbæjar, að því er fram kemur í greinargerð. Kostnaðarsamur flutningur Fram kom í úttekt sem þáverandi innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, lét gera á árinu 2011 að kostnaðarsamt væri að flytja starf- semi Landhelgisgæslunnar, meðal annars vegna aukins flutningskostn- aðar starfsmanna frá Reykjavík til Suðurnesja. Einnig yrði verulegur kostnaður við að breyta bakvakta- fyrirkomulagi þyrlusveitar í viðveru- fyrirkomulag. Fjölga þyrfti þyrlu- flugmönnum vegna þess. Silja Dögg telur niðurstöður út- tektarinnar ekki standast. Hún hafi hrakið þær í þingræðu og hafi innan- ríkisráðherra ekki getað andmælt því. Hún segir mikilvægt til að auka öryggi að hefja breytingar á vakta- fyrirkomulagi þyrlusveitarinnar þannig að flugmennirnir yrðu alltaf á vakt á staðnum en ekki aðeins bak- vakt. Þá þyrfti að vera sérstök þyrlu- sveit á Norðausturlandi til að þjóna Norður- og Austurlandi. Aukin þjón- usta kalli vissulega á aukin fjárfram- lög til Gæslunnar. Snýst um að bæta aðstöðuna Atvinnuástand hefur gjörbreyst á Suðurnesjum á allra síðustu árum og ekki er þörf á að flytja Landhelg- isgæsluna þess vegna. Silja Dögg tekur undir það og segir málið ekki snúast um hrepparíg heldur bætta aðstöðu fyrir Landhelgisgæsluna. Þarf að flétta inn í framtíðarsýn  Tillaga um flutning Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar lögð fram á Alþingi í sjötta sinn  Flutningsmaður telur að niðurstöður úttektar um að kostnaðarsamt sé að flytja standist ekki Silja Dögg Gunnarsdóttir Georg Kr. Lárusson Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir að staðsetning stofnunarinnar sé pólitískt úrlausnarefni stjórn- valda. „Hvorki ég né stofnunin höfum því formlega skoðun á málinu. Ef stjórnvöld telja starf- seminni betur borgið annars staðar og að með flutningi sé hægt að ná fram hagræðingu í rekstrinum þá lagar Landhelg- isgæslan sig að þeirri stefnu.“ Úrlausnarefni stjórnvalda FORSTJÓRI GÆSLUNNAR Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Icelandair hefur á síðustu vikum bætt við sig tveimur farþegaþot- um af gerðinni Boeing 767-300 en félagið átti fyrir tvær þotur sömu gerðar. Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, segir þriðju breiðþotu félagsins, sem ber einkennisstafina TF-ISP, hafa komið hingað til lands fyrr á þessu ári, en fjórða vélin, TF- ISW, lenti á Keflavíkurflugvelli um nýliðna helgi. Teknar í gegn fyrir notkun „Breiðþoturnar komu til félags- ins í vetur og hafa síðan þá verið endurnýjaðar að utan og innan samkvæmt stöðlum og útlits- kröfum Icelandair,“ segir Guðjón í samtali við blaðið, en breyting- arnar voru unnar í viðhaldsstöð félagsins á Keflavíkurflugvelli og í Xiamen í suðausturhluta Kína. Er meðal annars búið að setja á þær svokallaða „winglets“ eða vængenda, líkt og eru á Boeing 757 þotum félagsins, til að draga úr eldsneytiseyðslu og endurnýja farþegarými með nýjum innrétt- ingum, afþreyingarkerfi og net- sambandi. Breiðþotur Icelandair taka 262 farþega, 80 fleiri en Boeing 757 þotur félagsins. Þoturnar eru 55 metra langar og vænghafið er 47,6 metrar. „Þriðja vélin er þegar farin að fljúga, en þessi fer í sitt fyrsta áætlunarflug á vegum Icelandair næstkomandi fimmtudag,“ segir Guðjón og bendir á að 767- vélarnar séu einkum notaðar til flugs á þá áfangastaði sem flestir farþegar fara um, s.s. Lundúnir, Kaupmannahöfn, Amsterdam, New-York, Boston og Chicago. Alls verða 30 farþegaþotur í flota Icelandair í sumar, þ.e. 26 Boeing 757 og áðurnefndar Boeing 767. Báðar framleiddar 1997 Nýjustu viðbætur Icelandair, þær TF-ISP, sem fengið hefur heitið Eldgjá, og TF-ISW, sem nefnd er Gullborg, eru fram- leiddar árið 1997, en áður voru þær í notkun hjá flugfélaginu Air New Zealand. Verða vélarnar því 20 ára á þessu ári. Fjórða 767-breiðþotan mætt Ljósmynd/Ragnar Þór Gullborg Fjórða breiðþota Icelandair stendur nú á Keflavíkurflugvelli, en vélin fer í sitt fyrsta áætlunarflug á vegum félagsins nk. fimmtudag.  Með alls 30 far- þegaþotur í sumar Arionbanki hefur tekið upp nýtt greiðslukortatímabil. Er það nú frá 27. til 26. hvers mánaðar í stað frá 22. til 21. hvers mánaðar. Í skriflegu svari Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns sam- skiptasviðs bankans, eru ástæður breytinganna sagðar bætt tækni sem geri fólki kleift að stunda viðskipti með rafrænum leiðum og m.a. skipta greiðslum og fylgjast með færslum með þeim hætti. Einnig snúist þetta um viðleitni bankans til að minnka kostnað. „Hvað varðar kostnaðinn þá virka kredit- kort í grunninn þannig að fram að eindaga kortareikningsins er öll notkun kortsins sambærileg vaxta- lausu láni. Þannig fjármagnar bank- inn kortanotkun viðskiptavina sinna fram að greiðsludegi, með tilheyr- andi kostnaði fyrir bankann. Það er töluvert dýrari útfærsla á kredit- kortakerfinu ef kortatímabilinu lýkur löngu fyrir mánaðamót,“ segir í skrif- legu svari Haraldar. vidar@mbl.is Kortatímabil breytist Forsætisnefnd Alþingis hefur geng- ið frá skipan þriggja manna ráðgef- andi nefndar sem tekur til með- ferðar erindi sem forsætisnefnd beinir til hennar um meint brot á siðareglum fyrir alþingismenn. Nefndinni er ætlað að láta í ljós álit sitt á því hvort þingmaður hafi með hátterni sínu brotið gegn háttern- isskyldum sínum og meginreglum um hátterni samkvæmt siðareglum alþingismanna. Nefndina skipa þau Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, en hún er jafnframt formaður nefndarinnar, Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, og Salvör Nordal, sérfræðingur við Sið- fræðistofnun Háskóla Íslands. Nefndin er skipuð til fimm ára. Ráðgefandi siðanefnd  Skipunartími 5 ár Morgunblaðið/Ómar Alþingi Nefndin ályktar um meint brot á siðareglum alþingismanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.