Morgunblaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2017 sækja sig á Akranesi. Ég hafði þá mér til fulltingis góðvin okkar beggja, séra Björn Jónsson, fyrr- verandi sóknarprest. Við fengum höfðinglegar móttökur heima hjá Rikka og Hallberu, fylgdumst með fótboltalandsleik í sjónvarp- inu, en höfðum mestu ánægjuna af samræðunum. Í þakkarskyni færði ég þeim Biblíu í skinnbandi með gylltum nöfnum þeirra og fann hve mikils þau mátu hana. Er ég síðar leiddi ferða- og sögu- messu frá Akraneskirkju að Innra-Hólmskirkju, Görðum og Kalmansvík, voru þau heiðurs- hjón með í för. Messunni lauk með kirkjukaffi í safnaðarheimilinu Vinaminni. Þau færðu mér þar bókina, Rikki fótboltakappi, með áletruðum nöfnum þeirra beggja sem síðan er mér kjörgripur. Rikki bauð mér svo að koma með sér á Akra- nesvöll að fylgjast með fótbolta- leik. Árangur íslenska landsliðsins síðustu árin og frábær frammi- staða þess á Evrópumótinu í fyrrasumar hafa eflaust glatt hann mjög. Þau Hallbera og Rikki hverfa af jarðnesku sjónarsviði með stuttu millibili og skilja eftir sig dugandi afkomendur, dýrmætt framlag til mannlífs og menningar á Akranesi og ríkulegan þátt í íþróttasögu Íslands. Er ég í þökk hugsa um þau hjón koma mér í hug orð postulans: „Ég hef barist góðu baráttunni, hef fullnað skeið- ið og hef varðveitt trúna. Og nú er mér geymdur sveigur réttlætis- ins.“ Guð blessi minningu Rík- harðs og Hallberu og fullkomni líf þeirra með sigursveig í upprisu- bjarma páska og lýsi ástvinum þeirra á lífsins sigurbrautum. Gunnþór Ingason. Góður vinur og samferðamað- ur, Ríkharður Jónsson, er fallinn frá. Ég var að vaxa úr grasi í Reykjavík þegar Ríkharður kom með knattspyrnumönnum frá Akranesi til að taka þátt í Íslands- móti meistaraflokks og 2. flokks í knattspyrnu. Þeim var vel fagnað enda óvanalegt að félög utan af landi tækju þátt í Íslandsmóti á þeim tíma. En þá gerðist það sem engan hafði órað fyrir. Akurnes- ingarnir í 2. flokki unnu hvern leikinn af öðrum og stóðu uppi í lokin sem sigurvegarar Íslands- mótsins 1946. Ríkharður varð mér svo eftirminnilegur í þessum leikj- um að alla tíð síðan hef ég metið hann mikils sem knattspyrnu- mann og fór oft að horfa á leiki þegar hann spilaði á Melavellin- um. Síðar kynntist ég Ríkharði vel eftir að ég var ráðinn bæjarstjóri á Akranesi árið 1974 og með okk- ur tókst góð vinátta. Hann var kosinn í bæjarstjórn fyrir Alþýðu- flokkinn, tók þátt í meiri hluta samstarfi vinstri manna og var einn þeirra er stóðu að ráðningu minni. Það voru átök í pólitíkinni í þá daga, jafnvel enn meiri en í dag og bæjarstjórnarfundir gátu stað- ið langt fram eftir kvöldi jafnvel fram á nótt. Samvinna okkar Rík- harðs var mjög góð er við unnum að málefnum Akurnesinga sem voru margvísleg á þessum tíma, t.d. athugun á hitaveitu fyrir kaupstaðinn, framkvæmdir við höfnina og stækkun sjúkrahúss- ins. En sjúkrahúsið var Ríkharði sérstaklega hugleikið. Bæjaryfir- völd þurftu líka stundum að semja við Kvennadeild Verkalýðsfélags- ins á Akranesi og gátu þeir fundir tekið heilu næturnar. Mér fannst Ríkharður sinna starfi sínu vel sem bæjarfulltrúi, var góður í allri samvinnu og sanngjarn í þeim málum sem unnið var að. Þegar Ríkharður var formaður ÍA áttum við gott samstarf um uppbygg- ingu íþróttamannvirkja á Akra- nesi. Hann var í bygginganefnd Íþróttahússins við Vesturgötu og tók fyrstu skóflustunguna að Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum og vann á báðum stöðum mikið í sjálfboðavinnu. Að mínu mati er Ríkharður Jónsson besti knattspyrnumaður sem Ísland hefur átt og vil ég í því sambandi benda á sigurleikinn við Svíþjóð 1951 þegar Ísland vann með fjórum mörkum gegn þrem- ur og skoraði Ríkharður öll mörk Íslands. Á þeim tíma var Svíþjóð stórveldi í knattspyrnu. Því var vel við hæfi þegar hann var tekinn inn í heiðurshöll ÍSÍ árið 2015. Ég minnist Ríkharðs Jónsson- ar með virðingu og þökk. Innileg- ar samúðarkveðjur til barna hans og fjölskyldna þeirra. Magnús Oddsson, fv. bæjar- stjóri og fv. formaður ÍA. Kveðja frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands Fallinn er frá Ríkharður Jóns- son, heiðursfélagi ÍSÍ og meðlim- ur í Heiðurshöll ÍSÍ. Ríkharður var sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ, æðsta heiðurs- merki ÍSÍ, árið 1990. Þá var hann útnefndur Heiðursfélagi ÍSÍ á Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2013. Heið- ursfélaganafnbótina hljóta aðeins þeir sem starfað hafa ötullega og af hugsjón innan vébanda íþrótta- hreyfingarinnar um langt árabil. Ríkharður var tekinn í Heið- urshöll ÍSÍ árið 2015 en megin- markmiðið með Heiðurshöllinni er að heiðra og kynna framúrskar- andi afreksíþróttafólk og íþrótta- þjálfara og afrek þeirra. Ríkharður átti einstakan íþróttaferil og var eins og kunnugt er einn okkar albesti knattspyrnu- maður. Hann hóf að leika knatt- spyrnu með meistaraflokki ÍA ár- ið 1946 þá aðeins 16 ára að aldri. Það sama ár var hann valinn í landsliðshóp til að leika fyrsta landsleik Íslands í knattspyrnu. Ríkharður þjálfaði og lék með ÍA og vann með liði sínu, gullaldarliði Skagamanna, sex meistaratitla. Þá var hann formaður ÍA um ára- bil. Hann var einnig lykilmaður í ís- lenska karlalandsliðinu í knatt- spyrnu um margra ára skeið og lék alls 33 landsleiki, í flestum þeirra sem fyrirliði. Er hann með markahæstu leikmönnum lands- liðsins frá upphafi. Ríkharður þjálfaði einnig landsliðið um tíma. Ríkharður lét sig mjög varða framgang knattspyrnunnar hér á landi og var í senn frumkvöðull, fyrirmynd og goðsögn og vann óeigingjarnt og ómetanlegt starf í þágu íþróttahreyfingarinnar allr- ar. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kveður þennan mæta heiðursmann með virðingu og sendir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu hans. Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ. Kveðja frá Hvanneyri Í dag er Ríkharður Jónsson, málarameistari og landskunnur knattspyrnumaður, kvaddur hinstu kveðju. Ríkharður tilheyrði kynslóð frumherjanna sem með verkum sínum hófu íslenskan sam- tíma úr aldagömlu fari til nú- tímans. Á sviði íþrótta var hann landskunnur og goðsögn í lifanda lífi. Á vettvangi starfs síns var hann virtur og metinn bæði á heimavettvangi og á landsvísu. Það var haustið 1956 sem Rík- harður hóf að sinna verkefnum fyrir Bændaskólann á Hvanneyri þegar Guðmundur Jónsson, þá- verandi skólastjóri, fékk hann til þess að taka að sér málningar- vinnu fyrir skólann, en jafnframt að þjálfa skólapilta í knattspyrnu. Margir sem voru nemendur á þessum árum minnast samveru- stunda með Ríkharði á skólaflöt- unum með mikilli hlýju. Með þessum ráðahag hófst yfir fimmtíu ára samstarf og skapaðist náin vinátta þeirra sem á hverjum tíma stjórnuðu skólanum og Rík- harðs sem hvergi bar skugga á. Á hverju vori við skólalok mætti hann til vorverkanna sem voru misumfangsmikil eftir hag skól- ans og þegar haustaði að var hann mættur til þess að búa skólann og staðinn undir veturinn. Með sínu næma fagmannsauga mat hann og lagði til og með skilningi á getu vinnuveitandans gerði hann tillög- ur og gaf ráð. Ávallt reiðubúinn að leggja hönd að verki þó aðeins væri um að ræða smávegis viðvik til viðhalds. Hann lagði sig í líma við að gera sem mest úr þeim fjár- munum sem til reiðu voru á hverj- um tíma og hugsaði til langs tíma. Það kom stundum fyrir að húsráð- endum í íbúðum skólans þætti hann ekki nægilega litaglaður en því tók hann með „stóískri ró“ og benti góðfúslega á að þannig mætti leggja fleirum lið og því varð það svo að vera. Í dag er Ríkharður Jónsson lagður til hinstu hvílu. Á skilnað- arstund kveðjum við náinn vin og samstarfsmann og þökkum ára- tuga vináttu og allt það mikla starf sem hann vann fyrir Hvanneyrar- skóla og Hvanneyrarstað. Ástvini hans biðjum við algóðan Guð að styrkja á sorgarstund. Frumherji er fallinn frá en verk hans munu lifa um ókomna tíð, blessuð sé minning Ríkharðs Jónssonar. Magnús B. Jónsson og Steinunn Ingólfsdóttir, Sveinn Hallgrímsson og Gerður Guðnadóttir. Kveðja frá Knattspyrnu- félagi Reykjavíkur Ríkharður Jónsson, goðsögn ís- lenskrar knattspyrnu, hefur kvatt þessa jarðvist. Árangur hans og áhrif á íslenska knattspyrnu verða lengi í minnum höfð. KR og gull- aldarlið Skagamanna háðu marga baráttuna á sínum tíma og segja má að sjötti áratugur síðustu ald- ar hafi verið áratugur Skaga- manna. Þar fór Ríkharður fremst- ur í flokki, sex titlar og þrisvar í öðru sæti á 10 árum. Sumarið 1949, á 50 ára afmæli KR, fór fé- lagið í mikla keppnisferð til Nor- egs. Leikið var m.a. við Valerenga á Bislet-leikvanginum að við- stöddu fjölmenni. KR-ingar fengu góðan liðstyrk fyrir þessa keppn- isferð en Hermann Hermannsson, markmaður Vals, og Ríkharður Jónsson, þá leikmaður Fram, léku með KR í þessari ferð. Í frásögn Gunnars Guðmannssonar, Nunna, af þessari ferð segir að Ríkharður hafi fengið „beztu dóma“ fyrir leik sinn en hann skoraði þrjú mörk fyrir KR í fjórum leikjum. KR-ingar minnast Ríkharðs af mikilli virðingu og hlýhug og við þökkum honum fyrir alla leikina. KR-ingar senda aðstandendum Ríkharðs innilegar samúðarkveðj- ur. Gylfi Dalmann Aðalsteins- son, formaður KR. Í dag kveðjum við Skagamenn Ríkharð Jónsson, einn af okkar dáðustu drengjum og í huga margra Íslendinga einn af merk- ustu íþróttamönnum Íslandssög- unnar. Ríkharður fæddist á Akranesi hinn 12. nóvember 1929, sonur hjónanna Jóns Sig- urðssonar og Ragnheiðar Þórð- ardóttur. Ríkharður lauk prófum frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1950 og öðlaðist síðar meistara- réttindi í húsamálun og fleiri iðn- greinum. Knattspyrnuferill Ríkharðs Jónssonar var einstakur og væri of langt mál að telja upp öll afrek hans á því sviði. Nafn hans og bæj- arfélagsins hafa verið samofin á knattspyrnuvellinum og Akranes notið ríkulega þeirrar athygli sem afrek hans hafa vakið. Sigrar Rík- harðs Jónssonar hafa verið sigrar okkar Akurnesinga og framganga hans utan vallar sem innan hefur áunnið bæjarfélaginu virðingu og velvild sem styrkt hefur ímynd bæjarfélagsins ásamt því að vera ungum Skagamönnum góð fyrir- mynd. Fyrir það vil ég þakka sér- staklega. Ríkharður tók virkan þátt í bæjarmálum á Akranesi og var meðal annars bæjarfulltrúi á ár- unum 1974-1982 fyrir Alþýðu- flokkinn. Hann hafði einlægan áhuga á samfélagsmálum og setti mikinn svip á mannlíf á Akranesi um margra áratuga skeið. Rík- harður sat í knattspyrnuráði ÍA um árabil og var formaður Íþróttabandalags Akraness frá 1972-1976. Hann sat í stjórn Sjúkrahúss Akraness um áratuga skeið og var í stjórn Grundar- tangahafnar. Ríkharður var gerður að heið- ursborgara Akraness hinn 30. nóvember 2009 fyrir afrek sín og ómetanlegt framlag til samfélags- ins á Akranesi og var hann sann- arlega vel að því kominn. Hann hefur einnig verið sæmdur ridd- arakrossi hinnar íslensku fálka- orðu, heiðurskrossi KSÍ, auk þess að vera heiðursfélagi ÍA og KFÍA. Ríkharður var tekinn inn í heið- urshöll ÍSÍ hinn 30. desember 2015. Ég kynntist Ríkharði þegar ég hóf að spila knattspyrnu á Akra- nesi árið 1992 og ég á auðvelt með að skilja af hverju hann náði frá- bærum árangri bæði sem leik- maður og þjálfari. Hann hafði hugarfar sigurvegarans, var dug- legur að veita góð ráð og hvetja en líka ófeiminn að benda á það sem betur mætti fara og veita leiðsögn. Ekkert verkefni var of stórt fyrir knattspyrnumenn á Akranesi, enginn andstæðingur ósigrandi, það skyldi ávallt sýna virðingu og háttvísi og klæðast búningnum með stolti. Ég kynntist einnig lífs- förunaut Ríkharðs Jónssonar, Hallberu Leósdóttur, sem féll frá hinn 9. janúar síðastliðinn og var Ríkharði stoð og stytta á langri og farsælli lífsgöngu þeirra. Ég varð þess fljótt áskynja að þar fóru tvær hliðar á sama peningi og Hallbera var engu minni keppn- ismanneskja en Ríkharður. Það er nánast eins og skrifað í skýin að þessi samhentu hjón skuli kveðja þessa jarðvist svo til á sama tíma. Fyrir hönd Akraneskaupstaðar og bæjarstjórnar Akraness vil ég þakka Ríkharði Jónssyni fyrir ómetanlegt starf í þágu knatt- spyrnunnar og samfélagsins á Akranesi og jafnframt færi ég börnum Ríkharðs og Hallberu, fjölskyldum þeirra og aðstand- endum innilegar samúðarkveðjur. Minning um einstakan afreks- mann og ljúfmenni mun lifa með okkur Skagamönnum um ókomna tíð. Ólafur Adolfsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SNÆBJÖRG SNÆBJARNARDÓTTIR, söngkona, söngkennari og kórstjóri, Fellsmúla 13, Reykjavík, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 16. febrúar. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 3. mars klukkan 15. Ólöf S. Pálsdóttir Snæbjörn Óli Jörgensen Anna María Elíasdóttir Guðrún Birna Jörgensen Halldór Þ. Ásmundsson Snæbjörg, Harpa María, Kaj Arnar, Hildur Ása og Maríanna Erla Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, JÓNAS INGI ÁRNASON rafeindavirki, Hjallalundi 20, Akureyri, lést föstudaginn 17. febrúar á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 2. mars klukkan 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Sjúkrahús Akureyrar njóta þess. Jóhannes Árnason Sólveig Þóra Jónsdóttir Sigurður Kristinsson Árni Víðir og Ævar Ingi Jóhannessynir Björg Unnur, Kolbrún og Rúna Kristín Sigurðardætur og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSKELL TORFI BJARNASON, lést á hjúkrunarheimilinu Lundi 24. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Anna Guðný Jóhannsdóttir Ásgeir Arngrímsson Árni Áskelsson Jóhanna Marín Jónsdóttir Bjarni Áskelsson Ingibjörg H. Sigurðardóttir Guðmundur S. Áskelsson Þóra Bjarnadóttir Guðni Torfi Áskelsson Júlíana Hilmisdóttir Gestur Áskelsson Sigríður Kjartansdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir samhug, hlýju og fallegar kveðjur við fráfall ÓLAFAR NORDAL Sérstakar þakkir færum við starfsfólki kvennadeildar Landspítalans. Fyrir hönd aðstandenda, Tómas Már Sigurðsson Móðir okkar, JÓRUNN VIÐAR tónskáld, lést mánudaginn 27. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Börnin Okkar ástkæra HALLDÓRA GUNNLAUGSDÓTTIR frá Sökku, Svarfaðardal, lést á öldrunarheimilinu Hlíð 18. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fjölskylda hinnar látnu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.