Morgunblaðið - 01.03.2017, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2017
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Á síðustu tveimur árum hafa hluta-
bréf olíufélagsins N1 hækkað um
tæp 170% í Kauphöll Íslands. Síðustu
tólf mánuði nemur hækkunin um
75%. Þegar mest lét og bréf félagsins
voru í hæstu hæðum um miðjan febr-
úar höfðu þautvöfaldast í verði á einu
ári. Eru þau félög vandfundin sem
sýnt hafa slíka frammistöðu á hluta-
bréfamarkaði hérlendis á síðustu ár-
um.
Elvar Ingi Möller hjá greiningar-
deild Arion banka segir að ýmsar
ástæður megi tína til þegar litið er yf-
ir gott gengi N1 á síðustu misserum.
„Afkoman hefur þróast á betri veg
en markaðurinn og greiningaraðilar
sáu fyrir í upphafi síðastliðins árs.
Fyrir það fyrsta var í byrjun síðasta
árs gert ráð fyrir að EBITDA yrði á
bilinu 3-3,1 milljarður króna. Síðan
uppfærðu stjórnendur N1 afko-
muspá sína þrisvar og að lokum end-
aði hún rétt yfir efri mörkum síðustu
spárinnar, sem hljóðuðu upp á 3,5-3,6
milljarða.“
Segir hann að tvennt hafi ráðið
mestu um hina góðu rekstrarniður-
stöðu. Annars vegar hafi umferðin
um þjóðvegi landsins aukist mikið,
um 13%, og sé það fordæmalaus
aukning milli ára.
„Félagið býr því vel að því að vera
með þétt þjónustunet útsölustöðva á
eldsneyti vítt og breitt um landið sem
hefur fangað þessa miklu umferðar-
aukningu sem var á síðastliðnu ári og
mátti einkum rekja til fjölgunar
ferðamanna. Sem dæmi má nefna að
á öðrum fjórðungi síðasta árs keypti
annar hver viðskiptavinur eldsneyti á
fullu verði en þriðji hver viðskipta-
vinur fyrir þremur árum. Það sýnir
ágætlega áhrif ferðamanna á rekstur
félagsins. Framlegð félagsins hefur
því aukist töluvert, þar sem stærri og
stærri hópur viðskiptavina félagsins
kaupir eldsneyti á fullu verði.“
Hitt atriðið sem Elvar Ingi nefnir
til sögunnar er hagstæð þróun á
heimsmarkaði með eldsneyti.
„Það er minni verðáhætta sökum
birgðahalds þegar heimsmarkaðs-
verðið er hækkandi því þá þurfa félög
ekki að selja birgðir sem keyptar
voru á hærra verði á grundvelli verð-
lagningar sem tekur mið af lægra
heimsmarkaðsverði.“
Hann bendir þó á að stjórnendur
N1 geri nú ráð fyrir lægri EBITDA á
þessu ári og að hún verði um 3,4-3,5
milljarðar. Þar hafi þeir helst nefnt
tvö atriði til sögunnar. Annars vegar
sjómannaverkfallið, sem nú er leyst
en hefur áhrif þar sem lítið sem ekk-
ert var veitt fyrstu tvo mánuði ársins.
Hins vegar kunni koma Costco á
markaðinn að hafa áhrif.
„Á þessum tímapunkti er erfitt að
ná utan um möguleg áhrif Costco á
eldsneytismarkaðinn hér heima. Það
mun til dæmis vafalítið skipta máli
hvort verðið verður svipað og það
sem fólk fær í gegnum afsláttarlykla
og annað þvíumlíkt eða hvort Costco
mun bjóða upp á hagstæðara verð
fyrir neytendur,“ segir Elvar Ingi.
75% hækkun síðasta árið
Mikið flug hefur verið á N1 í Kauphöll á síðustu misserum Ferðaþjónustan
haft meiri áhrif en gert var ráð fyrir Costco hefur áhrif á afkomuspá þessa árs
Þróun hlutabréfaverðs N1 – leiðrétt fyrir arðgreiðslum og lækkun hlutafjár
Heimild: Bloomberg og Arion banki
160
140
120
100
80
60
40
20
0
30
.12
. 2
01
4
28
.2.
20
15
30
.4.
20
15
30
.6.
20
15
31
.8.
20
15
31
.10
. 2
01
5
31
.12
. 2
01
5
29
.2.
20
16
30
.4.
20
16
30
.6.
20
16
31
.8.
20
16
31
.10
. 2
01
6
31
.12
. 2
01
6
28
.2.
20
17
hann um sjö ára skeið í Lundúnum
og New York, m.a. hjá ABN AMRO
og Royal Bank of Scotland. Valdi-
mar er einnig að-
júnkt við Háskóla
Íslands. Agnar
Tómas Möller,
annar stofnenda
GAMMA, mun
taka við sem
framkvæmda-
stjóri sjóða.
Þá hefur
GAMMA ráðið
Ingva Hrafn Ósk-
arsson sem framkvæmdastjóra sér-
hæfðra fjárfestinga og fyrirtækja-
verkefna. Ingvi Hrafn hefur
undanfarin ár starfað sem lögmaður
og verið meðeigandi að lög-
fræðiskrifstofunni Lögmenn
Lækjargötu. Lýður Þór Þorgeirs-
son, framkvæmdastjóri sérhæfðra
fjárfestinga, mun láta af störfum hjá
fyrirtækinu.
GAMMA er með rúmlega 120
milljarða króna í stýringu fyrir
stofnfjárfesta og efnameiri ein-
staklinga. Sjóðir í rekstri hjá félag-
inu eru meðal stærstu fjárfesta á ís-
lenskum fasteignamarkaði. Erlendis
sinnir félagið fyrirtækjaverkefnum
og fjárfestingarráðgjöf.
Valdimar Ármann mun taka við
starfi forstjóra GAMMA Capital
Management á Íslandi nú um mán-
aðamótin. Gísli Hauksson, fráfar-
andi forstjóri og annar stofnenda fé-
lagsins, mun hins vegar taka við
stjórnarformennsku á næsta aðal-
fundi. Í tilkynningu frá GAMMA
segir að ásamt því að móta stefnu fé-
lagsins á Íslandi muni Gísli stýra
uppbyggingu starfseminnar í New
York og Lundúnum.
Valdimar Ármann var á meðal
fyrstu starfsmanna GAMMA á upp-
hafsárum félagsins, en áður starfaði
GAMMA gerir breytingar á yfirstjórn
Gísli Hauksson fer í stjórnina og Valdimar Ármann tekur við sem forstjóri
Gísli
Hauksson
Valdimar
Ármann
Ingvi Hrafn
Óskarsson
1. mars 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 106.49 106.99 106.74
Sterlingspund 132.42 133.06 132.74
Kanadadalur 80.75 81.23 80.99
Dönsk króna 15.174 15.262 15.218
Norsk króna 12.724 12.798 12.761
Sænsk króna 11.799 11.869 11.834
Svissn. franki 105.96 106.56 106.26
Japanskt jen 0.9475 0.9531 0.9503
SDR 144.02 144.88 144.45
Evra 112.8 113.44 113.12
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 145.9948
Hrávöruverð
Gull 1251.9 ($/únsa)
Ál 1907.0 ($/tonn) LME
Hráolía 55.96 ($/fatið) Brent
WOW air hagnaðist um 4,3 milljarða
króna árið 2016 en árið áður nam
hagnaðurinn 1,5 milljörðum króna.
Tekjurnar jukust
um 111% milli ára
og námu 36,7
milljörðum króna
á síðasta ári.
EBITDA hagn-
aður nam 5,6
milljörðum eða
15,2% af tekjum.
Á síðasta ári
flutti WOW air
1,67 milljónir far-
þega en það er
130% fjölgun farþega frá árinu áður.
Í ár gerir félagið ráð fyrir því að
fljúga með um 3 milljónir farþega.
Á síðasta ári bætti félagið sjö þot-
um við flotann og var með tólf þotur
í rekstri í lok ársins, tvær Airbus
A320, þrjár Airbus A330 breiðþotur
og sjö Airbus A321. Fjórar af þess-
um þotum eru í eigu félagsins. Í ár
mun WOW air bæta við sig fimm nýj-
um Airbus-þotum og verður þá floti
félagsins orðinn 17 þotur.
Skúli Mogensen, forstjóri og
stofnandi WOW air, segir flug-
félagið vel í stakk búið til að mæta
vaxandi samkeppni með því að
lækka fargjöld enn frekar.
Hagnaður
WOW var
4,3 milljarðar
Skúli
Mogensen
Tekjur meira en
tvöfölduðust í fyrra
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“