Morgunblaðið - 01.03.2017, Síða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2017
lÍs en ku
ALPARNIR
s
alparnir.is
30-50% afsláttur af skíðum og skíðavörum
ÁRMÚLA 40 | SÍMI 534 2727
Svigskíði,
Gönguskíði,
Fjallaskíði,
Snjóbretti
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Niðjar og ættingjar kunna að verða
full-uppáþrengjandi. Þú kynnist nýju fólki og
kynni ykkar gætu orðið bæði stutt og löng.
Farðu þér hægar og þá gengur dæmið upp.
20. apríl - 20. maí
Naut Þetta er góður dagur til sköpunar og
skemmtana. Lykilatriðið er ekki hversu mikl-
ar tekjur þú ert með heldur hversu mikið þú
getur sparað.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur látið mörg smáverkefni
hrúgast upp á borði þínu. Vertu raunsær.
Farðu í gönguferðir eða gerðu eitthvað ann-
að sem lyftir þér upp og hressir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Dagurinn í dag er alveg kjörinn fyrir
afþreyingu og sprell með smáfólkinu. Láttu
samt ekki glepjast af óþarfa heldur sýndu
fyrirhyggju og ráðdeild.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sumir dagar eru gjöfulli en aðrir og
þessi færir þér ýmis tækifæri. Farðu í þykj-
ustuleik og láttu eins og ekkert sé.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Notaðu daginn til þess að blanda
geði við vini og félaga. Leitaðu síðan leiða til
að bæta heilsu og aðstæður annarra.
23. sept. - 22. okt.
Vog Stundum verður bara að kýla á hlutina
en ekki bíða þess að þeirra tími sé kominn.
Vertu sáttur við sjálfan þig og gakktu glaður
fram á veginn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Fólk lítur til þín um forustu og
þú vilt ógjarnan valda því vonbrigðum. Hún
er full þakklætis fyrir það sem hún hefur
borið úr býtum og áttar sig á því að ham-
ingjan fæst ekki fyrir peninga.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Láttu það ekki setja þig úr jafn-
vægi þótt eitt og annað gangi á í kringum
þig. Mundu bara að ofmetnast ekki, því
dramb er falli næst.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er ekki alltaf svo að besta
lausnin sé sú sem liggur í augum uppi. Ein-
hver gerir þér greiða sem þú kannt mjög vel
að meta. Gerðu þitt til að efla áhuga hjá
sjálfum þér og öðrum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að hrista af þér slenið,
bretta upp ermarnar og taka þinn þátt í því
sem gera þarf. En að berja höfðinu við
steininn er það versta sem þú getur gert.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vogin má engan tíma missa við að
fylgjast með framförum sínum. Samskiptin
við okkar nánustu reynast oft ruglingsleg-
ustu og mest krefjandi verkefni okkar í líf-
inu.
Ég veit ekki hvort Hjálmar Frey-steinsson hefur haft nafna sinn
Jónsson í huga þegar hann skrifaði á
fésbókarsíðu sína:
Grimm og illskeytt Góan er
gerast veður engu lík.
Margt er það sem miður fer,
messufall í Reykjavík.
Hallmundur Guðmundsson fór að
hugsa til vorsins á Boðnarmiði þegar
Stór-Holuborgarsvæðisbúa þjakaði
snjóalög sem aldrei fyrr:
Flest sig ávallt endurtekur,
einkum það er heitið getur.
Kærast mér þá vorið vekur
vallarstör sem ilmar betur.
Gunnar J. Straumland sagði við
sjálfan sig: „Er þetta ekki rétti tíminn
til að rifja upp nokkur orð sem lýsa
mismunandi snjókomu?“
Moksturskafald, maldringur,
mulla, snjóhreytingur.
Kófviðri og klessingur,
kyngi, skafrenningur.
Kafhríð, drífa, snjóbylur,
kyngja, geyfa, maldur.
Fannburðurinn mold hylur,
fjári er hann kaldur!
Ég verð að játa að ég þekkti ekki
öll þessi orð og fletti tveim upp í orða-
bókinni: geyfa = kafald með hægum
vindi – skafrenningur, bylgusa –
óvenju dimm hríð. Síðara orðið mal-
dur = maldringur, smáger snjókoma.
Ágúst H. Bjarnason var í öðrum
hugleiðingum:
Þekkist líka þessi gamli, þjáli háttur.
Kann eg ekki kveða frekar,
kallast oftast hurðardráttur.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir var
með á köttinn:
Ef ég gæti arkað ein um óra vegu.
Út um allar traðir tvistað
treysti aldrei á banalegu.
Jón Valur Jensson heldur áfram á
Boðnarmiði: „Vetrarvísa (stirð fyrst,
skánar svo)“
Sér til snjávar, hvíts og hreins,
hjartans lifna slögin.
Að hanga inni’ er ei til neins,
allir í vetrartauin.
Fátt hefur bjargað bændum eins
og blessuð snjóalögin.
Jón Gissurarson gerði athugasemd
við þetta:
Vetrar kuldinn mjög til meins
mark á setur drögin.
Fátt hefur bagað bændur eins
og bölvuð snjóalögin.
Sigmundur Benediktsson skrifar í
Leirinn: „Í Góusól, eftir snjókomu“:
Hellir geislum heiðrík sól
hafsins flötur sindrar,
foldin klædd í fannakjól
fagurlega tindrar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Messufall, geyfa og maldur
Í klípu
„ÞEIR SEGJA AÐ HANN HAFI DÁIÐ Á
FRIÐSÆLAN HÁTT, EN ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI. ÉG
GAT ALDREI FENGIÐ HANN TIL ÞESS AÐ FARA
ÚT ÁN ÞESS AÐ LENDA Í HEILMIKLUM SLAG.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MUNDIRÐU EFTIR
SÓLARVÖRNINNI MINNI?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vilja stofna
ykkar eigin fjölskyldu.
ÞAÐ ERU VISSULEGA
MÖRG KATTARMYNDBÖND
Á NETINU
AUÐVITAÐ…
ÞESS VEGNA VAR
ÞAÐ FUNDIÐ UPP
ÞESSI FISKUR ER NÁNAST HRÁR!
HANN ER
ÓÆTUR!
JÆJA, ÞAÐ
ERU AÐRIR
SEM ERU
ÓSAMMÁLA
ÞÉR!
Samsæriskenningar af ýmsumtoga hafa fengið byr undir báða
vængi undanfarin ár. Kenningar
þessar eru af ýmsum toga og miss-
annfærandi eins og gengur. Ýmsir
telja að hryðjuverkasamtökin al-
Qaeda hafi ekki staðið að baki árás-
unum á tvíburaturnana í New York
og varnarmálaráðuneytið í Wash-
ington 11. september 2001, heldur
hafi búið að baki samsæri banda-
rískra stjórnvalda eða gyðinga. Til-
gangurinn hafi verið að búa til átyllu
til að láta til skarar skríða til að
tryggja yfirráð yfir olíu, undiroka
múslima eða eitthvað annað að eigin
vali.
x x x
Svo eru þeir sem telja að helstuvalda- og áhrifamenn heims séu
eðlur í felubúningum, sem hafi í huga
að koma á nýrri heimsskipan og ala á
ótta með því að hleypa öllu í bál og
brand. Hryðjuverkin 11. september
2001 eru vitaskuld hluti af samsær-
inu. Á næstunni er væntanlegur
hingað til lands David Icke, sem hef-
ur verið kallaður konungur samsær-
iskenninganna. Hann kveðst sann-
færður um að skriðdýr í mannsmynd
stjórni helstu stofnunum heims og
ætlar að reifa kenningar sínar í tíu
klukkustunda löngum fyrirlestri í
Hörpu í lok mánaðar. Líklegt er að
þar muni meðal annars koma fram að
tunglið sé geimstöð og hafi verið
komið fyrir á braut um jörðu.
x x x
Þýski menningarsagnfræðingurinnMichael Butter segir í viðtali við
Der Spiegel að samsæriskenningar
séu síður en svo nýjar af nálinni.
Hann telur hæpið að halda því fram
að þeir sem trúi á slíkar kenningar
séu með lausa skrúfu og bendir á að
annar hver Bandaríkjamaður trúi á
að minnsta kosti eina slíka.
Butter segir að margir hneigist til
að trúa á samsæriskenningar vegna
þess að þá sé hægt að útiloka tilvilj-
anir. Hann segir að sprenging hafi
orðið í samsæriskenningum í kjölfar
upplýsingarinnar. Á 18. öld hafi trúin
á guðlega áætlun að baki sköp-
unarverkinu þar sem allt fékk til-
gang gefið eftir. Til þess að rétta af
tilgangshallann hafi samsærismenn-
irnir leyst guð af hólmi.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn
leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina.
(Jóh. 10:11)