Morgunblaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017 FRÉTTASKÝRING Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Við rannsókn á þeim rútuslysum sem orðið hafa hér á landi undanfarin ár, bæði banaslysum og alvarlegum slys- um, hefur rannsóknarnefnd sam- gönguslysa (RNSA) oft orðið vör við misbrest á beltanotkun farþega. Þegar slys hafa orðið á farþegum eða bílstjórum hafa viðkomandi yfirleitt ekki verið í beltum. Ágúst Mogensen, rannsóknar- stjóri hjá RNSA, segir mikilvægt að vekja athygli farþega á nauðsyn þess að nota beltin. Öll óhöpp veki um- ræðu um öryggismálin, líkt og hið hörmulega slys í Svíþjóð á dögunum þegar rúta valt utan vegar með þeim afleiðingum að þrír skólakrakkar á leið í skíðaferðalag létust og tugir slösuðust. Ekki voru allir farþegar í beltum en nú er bílstjórinn grunaður um manndráp af gáleysi eftir 600 km akstur að næturlagi. Um tveggja hæða rútu var að ræða og eðli máls- ins samkvæmt er hætt við alvarlegri slysum um borð í slíkum bifreiðum ef eitthvað fer úrskeiðis. Hætta á alvarlegum slysum Ágúst segir RNSA vera í góðu sambandi við aðrar rannsóknar- nefndir á Norðurlöndum sem rann- sakað hafa mörg alvarleg rútuslys. Sameiginlegir fundir eru haldnir ár- lega. „Við höfum getað dregið lær- dóm af þeim og nefndirnar skipst á upplýsingum. Þegar rútur fara út af eða lenda í árekstri er hætta á mjög alvarlegum meiðslum og viðbúnaður þarf að vera mikill á vettvangi. Þetta eru engar venjulegar aðstæður. Hlúa þarf að fjölda manns og öflugan tækjabúnað þarf til að koma öku- tækjunum upp á veg eða rétta þau af,“ segir Ágúst, sem reiknar með að fá kynningu á rannsókn slyssins í norðurhluta Svíþjóðar á næsta fundi. Samkvæmt tölum frá Samgöngu- stofu hafa fleiri slasast um borð í hópferðarbílum á seinni árum. Ekk- ert banaslys hefur orðið frá árinu 2006, þegar einn lést um borð í rútu. Á síðasta ári slösuðust 42, þar af 10 alvarlega, 32 slösuðust árið 2015, 20 árið 2014 og 11 árið 2013. Aukningin síðan þá nemur um 280%. Frá árinu 2005 hafa 286 manns slasast um borð í rútum. Flestir slösuðust árið 2007, eða 61. Þetta sést nánar á meðfylgj- andi korti. Ágúst Mogensen segir þær rútur sem lent hafa í óhöppum hafa verið í margs konar ástandi. Sumar hafi verið nýlegar og í góðu standi en aðr- ar verið gamlar með bilaðan hemla- og hjólabúnað. „Hin seinni ár hafa rúturnar oftast verið nýlegar eða nýjar. Áður fyrr vildi loða við flotann að hann væri í eldri kantinum, meðalaldurinn hár og ástandið eftir því. Það er erfitt að alhæfa um rútuflotann í dag, hann hefur stækkað samfara aukinni ferðamennsku,“ segir Ágúst. Meðalaldurinn líkt og 2008 Samkvæmt upplýsingum frá Sam- göngustofu er meðalaldur rútuflot- ans í dag 13,1 ár. Fyrir fimm árum var meðalaldurinn 14,3 ár, þannig að flotinn hefur yngst á síðustu árum. Sé farið aftur til ársins 2008 var meðalaldurinn þó lægri en í dag, eða 12,7 ár. Enn sjást gamlar rútur í um- ferðinni, t.d. í akstri með skóla- krakka í ferðalög eða innanbæjar á milli skóla og sundlauga. Ágúst seg- ist hafa orðið var við þessar eldri rút- ur. Auðvitað eigi að gera kröfur um það besta þegar börn eigi í hlut. Alls eru um 2.900 hópferðarbílar skráðir í dag. Með fjölgun ferða- manna hafa fyrirtækin orðið að bæta við sig rútum, bæði notuðum og nýjum. Árið 2014 voru 102 nýjar rút- ur fluttar inn til landsins, 98 árið 2015 og 221 rúta á síðasta ári, beint úr kassanum. Það sem af er þessu ári hafa 22 nýjar rútur verið fluttar inn. Óhöpp og slys hafa verið tíðust yfir vetrarmánuðina, þegar hált er á veg- um og sviptivindasamt. Ágúst segir ástand vegakerfisins sums staðar ekki gott og oft á tíðum engar vegaxl- ir sem rútur geti nýtt sér við að mæta umferð á móti. Varðandi bílbeltin segir Ágúst að RNSA hafi stöðugt hvatt til þess að farþegar noti beltin. „Það er mismunandi eftir menn- ingu og þjóðerni farþega hvernig það gengur. Í sumum löndum er fólk ekki vant því að spenna beltin í hópferða- bílum. Reyndar hefur það líka viljað loða við hér á landi. Ef hópbifreið veltur höfum við bent á að fallið úr efstu stöðu getur jafngilt breidd bif- reiðarinnar. Fallið getur verið um og yfir tvo metra. Við höfum fjölmörg dæmi um meiðsl bara vegna þessarar fallhæðar. Við brýnum því fyrir fólki að spenna beltin,“ segir Ágúst. Hann segir farþega meðvitaðri um þennan öryggisþátt en áður. Við- skiptavinir rútufyrirtækja geri einn- ig kröfur um að belti séu í öllum rút- um, enda eigi það að vera þannig. Sérstök aðgerðaáætlun er til stað- ar hjá viðbragðsaðilum þegar rútu- slys eða önnur hópslys verða. Sam- eiginlegri aðgerðarstjórn var komið á á síðasta ári, og hefur hún gefist vel. Viðbrögð við hópslysum eru æfð reglulega en um allt land eru hóp- slysaáætlanir til staðar hjá við- bragðsaðilum. Ágúst Svansson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir sameiginlega aðgerðastjórn hafa komið sér vel í slysinu á Mos- fellsheiði í október síðastliðnum, þeg- ar rúta með rúmlega 40 farþega valt og nokkrir slösuðust alvarlega. Sam- ræming aðgerða lögreglu, slökkvi- liðs, björgunarsveita, Landspítalans og RKÍ sé gríðarlega mikilvæg. „Aðgerðir á Mosfellsheiði gengu mjög vel, þarna vorum við í miklu ná- vígi, boðleiðirnar stuttar og við nán- ast héldumst í hendur. Þetta gerði alla ákvarðanatöku auðveldari.“ Ágúst Svansson segir að með auk- inni ferðaþjónustu sé nauðsynlegt að vera vakandi fyrir auknum forvörn- um og fræðslu um öryggismál. Sam- fara fjölgun ferðamanna og aukinni umferð aukist einnig hættan á slys- um, t.d. þegar ferðamenn nemi stað- ar á miðjum vegi til að horfa á norð- urljósin eða taka myndir af umhverfinu. Ekki megi heldur gleyma hlutverki og ábyrgð rútufyr- irtækja og annarra ferðaþjónustu- fyrirtækja við að upplýsa og fræða ferðamenn. Orðsporið að veði Þórir Garðarsson, varaformaður Samtaka ferðaþjónustunnar og stjórnarformaður ferðaþjónustu- fyrirtækisins Gray Line, sem er með um 78 rútur í flota sínum, segist telja að heilt yfir sé ástand rútuflotans í dag mjög gott og fyrirtækin hafi öryggismálin í öndvegi. Langflest fyrirtækin taki þau mál mjög alvar- lega, enda sé orðspor þeirra að veði. „Flotinn hefur batnað verulega á undanförnum árum. Meira hefur ver- ið keypt af nýjum bifreiðum, sem eru öruggari og þær menga minna. Hins vegar takmarkar viðhaldsskortur á þjóðvegakerfinu öryggið verulega,“ segir Þórir og tekur veginn gegnum þjóðgarðinn á Þingvöllum sem dæmi. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur staðið til að endurbæta þann veg en ekki er enn ljóst hvaða leið verður farin í þeim efnum. „Eins og vegurinn í gegnum þjóð- garðinn er í dag er eina lausnin að breyta honum í einstefnu á efri og neðri leiðinni, þannig að bílarnir þurfi ekki að mætast á þessum kafla. Vegkantarnir eru farnir að gefa sig og nauðsynlegt er að gera end- urbætur,“ segir Þórir. Rokrassgat á Mosfellsheiði Rútur hafa einnig lent í óhöppum á Mosfellsheiði og hafnað utan vegar. Þórir segir rokið og hálkuna hafa haft mest með þau óhöpp að gera. „Þessi leið er rokrassgat. Um leið og komið er upp fyrir Skeljabrekku koma hættulegir kaflar. Þarna koma sviptivindar og menn þurfa að fara sérstaklega varlega. Vegagerðin hef- ur bætt hálkuvörnina á þessum slóð- um en betur má ef duga skal.“ Þórir segir allar rútur í dag hafa bílbelti fyrir farþega. Flestir bíl- stjórar og leiðsögumenn séu duglegir að reka áróður fyrir því að farþegar spenni beltin. Bílstjórar séu einnig samviskusamir við að fara eftir reglum um akstur og hvíldartíma. „Rútur eru að mínu mati öruggasti ferðamátinn en til þess þarf fólk að vera í beltum. Bílarnir eru þannig byggðir að þeir eiga að þola að fara á hliðina eða toppinn án þess að aflag- ast verulega,“ segir Þórir. Mismunandi eftir þjóðerni Hann telur að ekki sé hægt að setja ábyrgð í öryggismálum alfarið á bílstjórana og rútufyrirtækin. Ástand vegakerfisins skipti einnig miklu sem og veðurfarið, sem geti breyst fyrirvaralaust. Þá sé einnig mismunandi eftir þjóðerni ferða- manna hve vel sé tekið í beiðnir um að spenna beltin. Þannig sé greini- lega ekki hefð fyrir bílbeltanotkun í löndum eins og Kína. „Við þurfum bara að vera dugleg að hamra á nauðsyn þess að spenna beltin. Öðruvísi aukum við ekki ör- yggi farþega.“ Þórir bendir á að miðað við mikla umferð rútubíla um landið þurfi ekki oft að aðstoða rútur sem starfræktar eru af innlendum fyrirtækjum. Þau fari samviskusamlega eftir þeim við- miðunum um vindstyrk sem Vega- gerðin, Samgöngustofa og trygg- ingafélögin hafi gefið út, þ.e. við hvaða aðstæður sé ráðlagt að aka og fyrir hvaða ökutæki. „Hjá okkur í Gray Line eru veðurkort og sjón- varpsskjáir beintengd upp á vegg, bæði hjá vaktmönnum og þar sem bílstjórar eru. Þar er fylgst vel með því hvernig veðrið er á hverjum stað og ekki lagt í hann nema veður og færð leyfi.“ Fleiri slasast um borð í rútum  Slösuðum rútufarþegum hefur fjölgað um 280% frá árinu 2013  Misbrestur er á beltanotkun  Alls um 2.900 rútur skráðar  Rútuflotinn er að yngjast  Slæmir vegir takmarka öryggi farþega Morgunblaðið/Júlíus Rútuslys Mikill viðbúnaður var á Mosfellsheiði sl. haust þegar rúta með kínverska ferðamenn valt út af Þingvallavegi og lenti á hliðinni. Slasaðir í hópferðabílum 2005-2016 13 18 61 20 12 18 19 20 11 20 32 42 70 60 50 40 30 20 10 0 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 He im ild :S am gö ng us to fa Mikið slasaðir LátnirLítið slasaðir Samgöngustofa metur sem svo að öryggismál hópferðabíla séu heilt yfir í góðu standi. Mikill innflutn- ingur hafi verið á nýjum hóp- bifreiðum sem bendi til þess að flotinn sé að yngjast og megi ætla að nýjar rútur séu talsvert örugg- ari en þær eldri. „Slysatölur sýna að slösuðum í rútum fjölgar og veldur sú fjölgun vissulega áhyggjum en þó er fjölg- unin nokkurn veginn í takti við fjölgun ferðamanna og þar með fjölgun rútufarþega,“ segir Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri ör- yggis- og fræðsludeildar Sam- göngustofu. Hann segir Samgöngustofu ekki hafa gögn um bílbeltanotkun í rút- um en ljóst sé að hægt sé að auka hana til muna með því að tilkynna farþegum í upphafi ferðar um skyldu þeirra til að spenna beltin. „Það er reynsla flestra sem hafa upplifað slíkt að mjög margir spenna á sig beltin við að heyra slík skilaboð. Lögum samkvæmt skulu farþegar fá upplýsingar um beltaskyldu frá ökumanni, leið- sögumanni eða með mynd- eða hljóðupptöku og er það því á ábyrgð rekstraraðila hóp- bifreiðanna og ökumanna þeirra að upplýsa farþega. Samgöngu- stofa vinnur stöðugt að því að auka beltanotkun almennt og eru rútur þar ekki undanskildar,“ segir Gunnar Geir. Brýnt að auka bílbeltanotkun SAMGÖNGUSTOFA HEFUR ÁHYGGJUR AF FJÖLGUN SLASAÐRA 286 rútufarþegar hafa slasast frá árinu 2005. 42 slösuðust á síðasta ári, þar af 10 alvarlega. RÚTUSLYS »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.