Morgunblaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 35
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017
✝ Hörður Þor-steinsson fædd-
ist á Ísafirði 22.
mars 1934. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Vest-
fjarða 29. mars
2017.
Foreldrar hans
voru Helga Guð-
mundsdóttir, f. 11.
janúar 1914, d. 31.
ágúst 1979, frá
Dvergasteini í Álftafirði og Þor-
steinn Benedikt Finnbogason, f.
22. október 1909, d. 16. júlí 1987,
frá Litlabæ í Skötufirði. Bræður
Harðar eru Bragi, f. 1935,
kvæntur Báru Einarsdóttur, og
Birkir, f. 1940, d. 2010, kvæntur
Jónínu Ólöfu Högnadóttur. Hinn
22. desember 1957 kvæntist
Hörður Fjólu Hermannsdóttur,
f. 30. október 1936. Foreldrar
hennar voru Hermann Sveins-
son, f. 11. desember 1905, d.
1995, og Guðmunda Vigfús-
Hörður bjó á Ísafirði alla tíð, að
undanskildum tveimur árum
sem þau Fjóla bjuggu í Reykja-
vík. Hann gekk í Barnaskóla og
Gagnfræðaskóla Ísafjarðar. Að
loknu námi fékk hann áhuga á
flugi, hóf flugnám í Reykjavík
og lauk einkaflugmannsprófi.
Hörður vann í mörg ár í Kaup-
félaginu á Ísafirði við ýmis störf,
einnig rak hann bensínaf-
greiðslu á Ísafirði til fjölda ára.
Síðustu 14 ár starfsævinnar
vann hann hjá Sýslumanninum á
Ísafirði. Hörður kynntist lífs-
förunaut sínum Fjólu Her-
mannsdóttur í maí 1955. Afkom-
endur þeirra eru 24. Hörður var
mikill fjölskyldumaður og leið
best með fólkið sitt í kringum
sig. Þau Fjóla höfðu yndi af
ferðalögum, margar ferðir voru
farnar til Kanarí og um landið á
húsbílnum sem þau keyptu eitt
sumarið. Hörður var meðlimur í
Lúðrasveit Ísafjarðar í 60 ár þar
sem hann spilaði á básúnu. Einn-
ig var hann félagi í Oddfellow-
reglunni Gesti og spilaði þar á
orgel í 10 ár.
Útför Harðar fer fram frá
Ísafjarðarkirkju í dag, 8. apríl
2017, og hefst athöfnin klukkan
14.
dóttir, f. 1. júlí
1909, d. 1998. Börn
Harðar og Fjólu
eru: a) Helga, fædd
6. ágúst 1957, gift
Sigurði Zófusi Sig-
urðssyni, fæddum
6. júlí 1954. Börn
þeirra eru Linda
Björk, Soffía og
Hörður. Barna-
börnin eru 5. b)
Páll, fæddur 23. júlí
1959, giftur Ölmu Guðrúnu Frí-
mannsdóttur, fæddri 28. apríl
1963. Synir þeirra eru Stefán og
Emil. Þau eiga eitt barnabarn. c)
Sonja, fædd 5. maí 1965, gift Jó-
hanni Jónassyni, fæddum 17.
ágúst 1964. Börn þeirra eru Rut,
Dagný Fjóla og Jóhann Atli.
Barnabörnin eru þrjú. d) Hauk-
ur Örn, fæddur 9. september
1975, giftur Dagnýju Krist-
insdóttur, fæddri 20. apríl 1978.
Synir þeirra eru Kristinn Breki,
Arnar Páll og Tómas Orri.
Elsku tengdapabbi minn hefur
kvatt þennan heim. Ég var 16
ára gömul þegar við Haukur fór-
um að vera saman og ég tók að
venja komur mínar á Skipagöt-
una. Örverpið var eitt eftir heima
og ég, sem elsta barn, sem
þekkti ekki annað en læti og
endalaust áreiti kunni ágætlega
að meta friðinn þar. Höddi var
yfirleitt fljótur að redda hlutun-
um. Mér er minnisstætt þegar ég
var nýkomin með bílpróf og
keyrði um á rauða Nissaninum
hans Hauks. Einn daginn kom ég
nokkuð örugglega fyrir hornið á
Skipagötunni og beint upp í bíla-
stæðið. Verra var að bíllinn heils-
aði þétt og innilega húsinu sem
Helga og Lilli bjuggu í. Þegar ég
þorði að líta upp, skelfingu lostin,
stóð Haukur ásamt foreldrum
sínum í eldhúsglugganum og
horfði á mig. Þegar ég náði að
staulast út úr bílnum voru þau
komin niður, Fjóla skipaði Hauki
að ræða þetta ekki meir og þá
þegar var Höddi á leið út í bíl-
skúr að leita að lakki til að bletta
stuðarann á bílnum. Þar með var
málið úr sögunni og Haukur
greyið gat ekkert sagt.
Höddi var góður maður, ljúfur
og þægilegur í umgengni. Hann
var ekki maður margra orða en
umhyggjusamur og passaði vel
upp á fólkið sitt. Hann var ein-
lægur áhugamaður um veðurfar
og dyggur lesandi veðursíðna
Textavarpsins. Þegar við vorum
á leið vestur var betra að hringja
í Hödda en að fara á vef Veð-
urstofunnar.
Hann var líka passasamur,
mætti ávallt á réttum tíma – og
helst hálftíma fyrr. Þegar átti að
fara flugleiðina suður voru þau
Fjóla mætt fyrst allra á völlinn
og þegar einhver kom með vél-
inni var hann mættur klukku-
tíma fyrir lendingu. Kian var
ávallt smurð í mars og hefur
bensíntankurinn aldrei farið nið-
ur fyrir helming á þeim 18 árum
sem þau hafa átt hana. Hann var
akkúrat.
Bestu stundir Hödda voru
þegar barnabörnin voru í kring-
um hann og hafa þau notið góðs
af gæsku afa því hann hefur
styrkt þau um sjoppupening þeg-
ar keyrt hefur verið á milli lands-
hluta.
Það er óhætt að segja að frá-
fall Hödda hafi komið á óvart.
Hann hafði verið slappur um
nokkra hríð en ekkert sem hann
vildi að við hefðum áhyggjur af.
Það kom því á óvart þegar hringt
var um hádegi á mánudegi, þar
sem við vorum boðuð vestur hið
fyrsta. Aðfaranótt miðvikudags
kvaddi hann okkur.
Ég kveð minn kæra tengda-
föður með söknuði, virðingu og
þakklæti fyrir allt og allt.
Dagný.
Með hjarta fullt af sorg og
þakklæti skrifa ég þessi orð um
elsku Hödda afa minn. Komið er
að kveðjustund, fyrr en mig
grunaði.
Afi var músíkalskur og barn-
góður. Hann átti ófá hljóðfæri og
okkur afabörnunum fannst gam-
an þegar við fengum að spila á
orgelið eða prófa sekkjapípuna.
Afi var í lúðrasveitinni en þegar
ég sjálf varð hluti af sveitinni
ljómaði hann allur og gaf mér
glaður hin ýmsu ráð.
Þegar ég bjó á Ísafirði var ég
tíður gestur á heimili afa og
ömmu. Eftir því sem árin liðu og
fjarlægðin jókst fækkaði heim-
sóknunum, en um leið urðu þær
enn dýrmætari.
Þegar ég loka augunum get ég
næstum séð hann glotta til mín
og smella í góm; þannig var afi.
Hann fangaði athygli okkar
barnanna – og nú síðast
barnanna minna – við hvert
tækifæri.
Ég er þakklát fyrir afa minn
og þau ár sem ég hafði með hon-
um. Hann var einstaklega
hjartahlýr og góður maður. Megi
hann hvíla í friði.
Þín afastelpa,
Dagný Fjóla.
Elsku afi.
Eftir andlát þitt fór ég að
hugsa um gamlar minningar af
þér. Ég man eftir ferðunum vest-
ur til ykkar ömmu og hversu
ótrúlega gaman og spennandi
það var. Gista hjá ykkur með
frændsystkinum mínum, borða
sofibrauð, fara í feluleiki, dást að
nammiherberginu og margt,
margt fleira. Eftir smá tíma varð
ég hins vegar hálf leiður, ég varð
leiður yfir því hversu lítið mér
fannst ég muna. Ég vissi að ég
ætti margar minningar af þér en
mér fannst ég ekki finna þær.
Eftir að hafa talað við ömmu í
fyrsta skiptið eftir andlát þitt og
rætt örlítið við hana um þig rann
það upp fyrir mér.
Afi, þú varst ekki alltaf sá sem
talaði mest. Þú lést ekki mikið
fyrir þér fara. Á einhvern hátt
varstu samt sem áður alltaf
þungamiðja alls í fjölskyldunni.
Alltaf mættur, alltaf til staðar,
alltaf að fylgjast með. Þegar þú
svo talaðir hlustaði fólk vegna
þess að það hlustaði á það sem
afi hafði að segja.
Hvíldu í friði, elsku afi minn,
tilveran verður ekki söm án þín.
Hörður Sigurðsson.
Elsku besti Höddi afi okkar er
látinn. Það er mjög skrítið að
hugsa til þess að hann hafi verið
orðinn gamall maður því þegar
við hugsum um hann munum við
ekki eftir honum gömlum, senni-
lega því hann var alltaf svo léttur
í lund og ungur í anda.
Þar sem við ólumst upp í bæn-
um og afi og amma voru á Ísa-
firði var alltaf veisla þegar við
hittumst. Þegar við komum vest-
ur var dagskrá fyrir okkur með
gönguferðum, skíðaferðum,
fjöruferðum, bíltúrum og sund-
ferðum. Afi bauð upp á uppá-
haldið sitt í kvöldsnarl, ís eða
harðfisk með smjöri, og snerist í
kringum okkur barnabörnin eins
og hann gat. Svo laumaði hann
alltaf að okkur „smá aur“, eins
og hann kallaði það, til að við
gætum keypt okkur eitthvað
skemmtilegt.
Guð blessi þig, elsku afi, og
takk fyrir allar góðu stundirnar
sem við áttum með þér. Með góð-
mennsku þinni og jákvæðni hef-
ur þú kennt okkur svo margt
sem við munum reyna eftir
fremsta megni að gera sjálfar.
Þú og amma voruð svo falleg
hjón og svo góðir vinir að betri
fyrirmyndir eru vandfundnar.
Elsku amma, mamma, Palli,
Sonja og Haukur, þið eruð hepp-
in að hafa átt svona góðan mann
og pabba.
Linda Björk og Soffía.
Þegar ég heyrði látið hans
Hödda rifjuðust upp margar
minningar frá þeim dögum þegar
ég bjó hjá Hödda og Fjólu á Ísa-
firði. Það voru góðir dagar. Ég
bjó hjá þeim meira og minna alla
mína gagnfræðaskólagöngu.
Flutti inn á þau þegar ég byrjaði
í Gagnfræðaskólanum. Þá
bjuggu þau á neðri hæðinni á
Hlíðarvegi 31. Bjuggu í tveimur
herbergjum og eldhúsi. Helga og
Palli voru þá lítil kríli. Ég fékk
herbergi með þeim en hjónin
sváfu í stofunni. Þetta var ekkert
mál sögðu þau hjón. Þegar ég lít
til baka hlýt ég stundum að hafa
pirrað litlu krílin sem allt í einu
voru komin með ungling til bú-
setu í herberginu sínu sem var
sko ekkert að fara. En aldrei
varð ég vör við annað en þeim
fyndist þetta ágætt. Við vorum
vinir og sambýlið með þeim var
yndislegt. Fjóla og Höddi reynd-
ust mér eins og ég væri fóst-
urbarnið þeirra. Ég var hjá þeim
meira og minna í fjóra vetur og
aldrei varð ég vör við annað en
ég væri bara ein af heimilisfólk-
inu, því ekki var nú plássið mikið.
Á þessum tíma tók brauðstritið
mesta tímann hjá Hödda, en allt-
af fór hann einu sinni í viku á
lúðrasveitaræfingar. Hann spil-
aði með Lúðrasveit Ísafjarðar til
fleiri ára,og hafði afskaplega
gaman af því eins og að hlusta á
músík og tala um músík.
Hann var kannski ekki maður
margra orða hann Höddi minn
en það stóð sem hann sagði.
Hann var mér alla tíð afskaplega
hlýr og góður. Þau Fjóla voru af-
skaplega samrýmd og góð hjón.
Þar sem annað var, þar var hitt.
Við höfum alltaf haldið góðu
sambandi. Þau hafa heimsótt
okkur Villa austur á firði og við
höfum heimsótt þau í okkar píla-
grímsferðum vestur á firði. Ég
talaði við Hödda í síma fyrir hálf-
um mánuði og fann að honum var
mjög brugðið en ekki reiknaði ég
með að kallið kæmi svona fljótt.
Fjólu minni, Helgu, Palla, Sonju
og Hauki og fjölskyldum þeirra
sendum við Villi samúðarkveðj-
ur.
Bryndís Þórhallsdóttir.
Hörður
Þorsteinsson
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
ÁRNÝ ALBERTSDÓTTIR,
Ósabakka 17, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans
laugardaginn 1. apríl. Útför hennar fer fram
frá Breiðholtskirkju mánudaginn 10. apríl klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á minningarkort Andartaks, Cystic
Fibrosis-samtakanna á Íslandi.
Gísli Jónasson
Ingibjörg Gísladóttir
Lauvland
Frode Lauvland
Friðbjörg Gísladóttir Ágúst Hólm Haraldsson
Margrét Inga Gísladóttir Heiðar Þór Jónsson
Jónas Sturla Gíslason
Guðbrandur Aron Gíslason
og barnabörn
Elsku yndislegi sonur okkar og faðir,
BJARNI GUÐMUNDSSON,
Langagerði 28,
lést laugardaginn 1. apríl.
Hann verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 19. apríl klukkan 15.
Elín Pálsdóttir Ásbjörn Þorleifsson
Mikael Hrafn Bjarnason
Elsku eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
SIGMUNDUR DÝRFJÖRÐ,
frá Siglufirði
lést föstudaginn 31. mars á
Landspítalanum við Hringbraut.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju
þriðjudaginn 18. apríl klukkan 15.
Berglind Guðbrandsdóttir
Kristín María Dýrfjörð Halldór Guðmundsson
Sunna Rós Dýrfjörð Tómas Joð Þorsteinsson
Ronja og Sara
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
ÓSKAR G. BALDURSSON,
Ársölum 3,
lést 31. mars. Útför hans fer fram frá
Lindakirkju miðvikudaginn 12. apríl kl. 14.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja
minnast Óskars er bent á krabbameinsdeild 11E eða líknardeild
Landspítalans í Kópavogi.
Sigþrúður B. Stefánsdóttir
Guðmundur Óskarsson
Hildur Óskarsdóttir Viðar Blöndal
Regína Ósk Óskarsdóttir Sigursveinn Þór Árnason
Trausti Óskarsson
og afabörn
Elsku mamma okkar,
KRISTINE EIDE KRISTJÁNSSON,
Aðalstræti 8,
101 Reykjavík,
lést 6. apríl. Útför fer fram frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 19. apríl klukkan 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hans Kristján Árnason
Ingunn Árnadóttir
Guðrún Árnadóttir
Einar Árnason
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
BRUNO M. HJALTESTED,
til heimilis að Borgartúni 30A í
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
fimmtudaginn 6. apríl.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 18. apríl
klukkan 13.
Jóhanna E. Sveinsdóttir
Þórður Árni Hjaltested Kristín Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGVELDUR GUÐLAUGSDÓTTIR,
Ljósheimum 22,
Reykjavík,
lést á Minni-Grund miðvikudaginn 5. apríl.
Útförin verður auglýst síðar.
Jóhanna Geirsdóttir
Gígja G. Guttridge
Edda Geirsdóttir
Sigríður Dögg Geirsdóttir Guðjón Árnason
Ingibjörg Dís Geirsdóttir Magnús Víkingur Grímsson
barnabörn og barnabarnabörn