Morgunblaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017
✝ Margrét BjörkAgnarsdóttir
fæddist á fæðing-
ardeild Sólvangs í
Hafnarfirði 27.
febrúar 1966. Hún
lést á krabbameins-
lækningadeild
Landspítalans við
Hringbraut 26.
mars 2017 eftir
stutt en erfið veik-
indi.
Foreldrar hennar voru Agnar
Bjarg Jónsson, f. 1937, frá Siglu-
firði og Kristbjörg Elma Elías-
dóttir, f. 1940, frá Ólafsvík. Mar-
grét var önnur í röð fimm
systkina. Systkini í aldursröð
eru Kolbrún Sjöfn Indriðadóttir,
f. 1960, maki Sigurjón Jónsson,
f. 1960, Agnar Páll Agnarsson,
f. 1969, maki Steinþóra Ólafs-
dóttir, f. 1970, Grétar Þór Agn-
arsson, f. 1972, maki Hilda
Ólafsdóttir, f. 1973, Linda Dögg
Agnarsdóttir, f. 1978, maki Stef-
fluttist hún til Keflavíkur og
vann þar hin ýmsu störf, þar
með talið rak hún mynd-
bandaleigur og stofnaði hrein-
gerningafyrirtækið Allt hreint
sf. ásamt vinafólki. Árið 1995
fluttist hún aftur til Hafnar-
fjarðar og vann í fjölda ára hjá
Ríkisskattstjóra þar til hún fór í
frekara nám. Hún útskrifaðist
frá háskólabrú Keilis 2009 og lá
leið hennar þaðan í mannfræði
við Háskóla Íslands og lauk hún
BS-gráðu sinni þar 2013. Hugur
hennar stefndi enn hærra og
byrjaði hún í meistaranámi í af-
brotafræði við Háskóla Íslands.
Hún vann sem launafulltrúi á
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
frá 2016 og vann þar, þar til yfir
lauk. Hagsmunamál minni-
hlutahópa voru henni hjartfólg-
in, og var hún ein af stofnendum
félagssamtakanna Williams-
samtökin á Íslandi. Hún hafði
mikla unun af matargerð, lestri
góðra bóka og af því að ferðast
bæði innan- og utanlands. Fjöl-
skyldan var þó hennar líf og
yndi og alltaf í fyrsta sæti.
Útför Margrétar fór fram í
kyrrþey 6. apríl 2017 frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði.
án Jóhann Sæ-
mundsson, f. 1975.
Margrét giftist
Gunnari Sigurðs-
syni, f. 1963, hinn
18. september
1999. Dætur þeirra
eru Birta Gyða
Gunnarsdóttir, f.
1998, og Gunn-
hildur Sól Gunn-
arsdóttir, f. 2000.
Úr fyrra sambandi
átti Margrét með Ásgeiri Hálf-
dáni Vilhjálmssyni, f. 1965, dótt-
urina Guðrúnu Ýri Ásgeirs-
dóttur, f. 1984, maki Ole
Kristian Richstad, f. 1976. Börn
þeirra eru Freyja Sofie, f. 2012,
og Cecilia Björk, f. 2015. Mar-
grét var fædd og uppalin í Hafn-
arfirði, lauk hún gagnfræða-
prófi frá Lækjarskóla og byrjaði
nám í tækniteiknun við Iðnskól-
ann í Hafnarfirði. Hún stundaði
íþróttir af kappi, bæði í hand-
bolta og í frjálsum. Árið 1983
Elsku mamma mín.
Hvað get ég sagt? Hvernig
get ég kvatt þig? Við sem ætl-
uðum að verða gamlar saman,
sitja saman á elliheimilinu, spila
kana og hlæja eins og vitleys-
ingar!
Það er mér óskiljanlegt að ég
eigi aldrei eftir að tala við þig
aftur, heyra rödd þína og hlátur,
að fá ráð við öllu mögulegu,
hvort sem er um tísku, nám og
vinnu, hjónaband, móðurhlut-
verkið eða jafnvel bara nýjustu
uppskriftina sem við vorum að
prufa. Að núna séu ekkert nema
óteljandi dýrmætar minningar
eftir.
Ein af mínum fyrstu virkilega
skýru, heilu minningum um þig
er þegar ég var um það bil fimm
ára og þú söngst fyrir mig á
hverju kvöldi fyrir háttinn. Þetta
kvöld sastu við hliðina á rúminu
mínu, straukst á mér handlegg-
inn eins og þú gerðir svo oft og
söngst hvert lagið á fætur öðru.
Ég lá þar með lokuð augun í
djúpri slökun og naut þessarar
stundar svo óskaplega. Eftir
langa stund þagnaðir þú og
stóðst rólega á fætur og gekkst í
átt að dyrunum, þú opnaðir þær
varlega og varst alveg að verða
komin út úr herberginu mínu
þegar ég hvíslaði „ég er ekki
sofnuð“ og þú snerir við, án
minnsta pirrings eða reiði, sett-
ist aftur við hliðina á mér og
söngst mig í svefn með Sofðu
unga ástin mín.
Sofðu unga ástin mín,
– úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar
nætur.
Það er margt, sem myrkrið veit,
– minn er hugur þungur.
Oft ég svarta sandinn leit
svíða grænan engireit.
Í jöklinum hljóða dauðadjúpar
sprungur.
Sofðu lengi, sofðu rótt,
seint mun best að vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
meðan hallar degi skjótt,
að mennirnir elska, missa, gráta og
sakna.
(Jóhann Sigurjónsson)
Þetta er bara ein af mörgum
minningum mínum um ást þína,
umhyggju og blíðu. Og þó að þú
hafir ekki fengið mikinn tíma
með „ömmumúsunum“ þínum,
þá búa þær vel að öllum minn-
ingunum sem þið bjugguð til
saman og við Ole munum hjálpa
þeim að hlúa að þeim og varð-
veita. Að þær viti að amma
þeirra var „Ofurmús“ með risa-
stórt hjarta, sem sá það góða og
jákvæða hvert sem hún leit. Og
að ást hennar var og er ótak-
mörkuð og býr ávallt í hjarta
okkar.
Elsku mamma mín, ég þakka
fyrir hvern dag sem ég fékk með
þér, fyrir hvert orð sem við
skiptumst á og fyrir hvern
draum sem við deildum. En
mest af öllu sit ég hér og er
þakklát fyrir að það varst akk-
úrat þú sem ég fékk fyrir móður.
Þú ert og verður alltaf leiðarljós
mitt.
Ég elska þig.
Guðrún Ýr.
Til þín.
Eins og marglit blóm á engi
óendanleikans.
Er kærleikur hugsana okkar
til þín.
Þú sem ert látin
farin á braut hins óþekkta
sem okkur eftirlifendum er hulið.
Dýrmætar minningar líða hjá
árin okkar saman.
Brosið þitt og faðmur þinn svo hlýr
þú bara þú.
En hér er ekkert sem sýnist
í gjörningar þoku og sárustu sorgum.
En þar sem þú ert
erum við hjá þér
í huga okkar og sinni.
Óskirnar fljúga víða
um alheims himna.
Í ljóðinu okkar er um þig
þessi tæra fegurð kærleikans
sem er það göfugasta og besta
í mannssálinni.
(S. Ósk Óskarsdóttir)
Hvíl í friði, elsku Magga okk-
ar.
Kveðja,
Mamma, pabbi og systkini.
Nú er komið að kveðjustund,
elsku Magga mín. Ég vildi svo
gjarnan sitja í eldhúsinu hjá þér
núna, með rjúkandi kaffibolla í
stað þess að sitja hér ein og
skrifa ótímabær minningarorð
um einstaka manneskju og vin.
Ég vildi geta deilt með þér fleiri
sögum af börnum okkar og
barnabörnum, lært meira af
reynslu þinni í málefnum fatl-
aðra og hlegið einu sinni enn að
spaugilegum minningum úr
Firðinum. Ég vil vera um stund í
háum Nokia-stígvélum og mitt-
isúlpu. Hugurinn leitar til 1976, í
Hafnarfjörðinn, upp á Álfaskeið,
í bakgarðinn hjá þér. Þar mátti
sjá okkur öllum stundum, í sitt
hvorri rólunni, syngjandi íslensk
ljóð og söngva. Við röltum á
stundum niður Álfaskeiðið og
heimsóttum bekkjarsystur, jafn-
vel alla leið í sjoppuna neðst á
Hverfisgötunni. Við leystum lífs-
ins gátur saman, og þó að ein-
stakar samræður séu mér
gleymdar er sú hlýja og já-
kvæðni sem einkenndi þig alltaf
fersk í minni mér. Þú sást alltaf
til sólar, og sú birta varpaði á
aðra ljósi.
Þú varðst ung móðir og geisl-
aðir í móðurhlutverkinu. Guðrún
Ýr, nafna mín, fæddist fyrst og
síðan bættust Birta Gyða og
Gunnhildur Sól við. Þú nefndir
þær yngri oft „Birtan mín og
Sólin“, og nafnavalið svo full-
komlega í takt við lífssýn þína.
Þegar ljóst var að Gunnhildur
Sól var lífshættulega veik stuttu
eftir fæðingu þá varst þú klettur
og fyrir mér ertu löngu orðin
móðir aldarinnar. Þú kvartaðir
aldrei, og sást alltaf eitthvað já-
kvætt við hvert lífsins spor.
Stundum var langt á milli okkar
en alltaf var eins og við hefðum
hist í gær. Við tókum bara upp
samræðurnar þar sem frá var
horfið og þú varst aldrei að flýta
þér eða með hugann við annað
en okkur.
Þú barst af í bakstri, jóla-
skreytingum, háskólanámi, í
vinnunni og jafnvel í sauma-
klúbbnum okkar litla, þar sem
þú gast alltaf rætt af einlægni
við okkur hinar og gert það að
verkum að stemningin í sauma-
klúbbnum var á 50 ára afmæl-
isári okkar jafn krúttleg og í
fyrsta saumaklúbbnum fyrir 41
ári.
Mikið er ég heppin að eiga þig
fyrir æskuvinkonu og að hafa
sungið hástöfum með þér. Svona
söngur verður ekki endurleikinn.
Ég þakka fyrir ævilangan vin-
skap, elsku Magga, og sendi
fingurkoss yfir hafið til Gunnars,
Guðrúnar Ýrar og fjölskyldu,
Birtu Gyðu og Gunnhildar Sólar.
Heyrði ég í hljóði
hljóma í svefni og vöku
eitthvert undralag.
Leitaði að ljóði,
lærði að smíða stöku
og kveða kíminn brag.
Ekki jók það álit mitt né hróður.
Engum þótti kveðskapurinn góður.
Þú varst skjólið, móðir mín,
því mildin þín
vermdi þann veika gróður.
(Örn Arnarson.)
L. Ýr Sigurðardóttir
barnalæknir.
Ég vil gjarnan lítið ljóð
láta af hendi rakna.
Eftir kynni afargóð
ég alltaf mun þín sakna.
(Guðrún V. Gísladóttir)
Innilegar samúðarkveðjur til
Gunna, Guðrúnar, Birtu og
Gunnhildar, Ole, litlu ömmu-
stelpnanna þinna, foreldra þinna
og systkina.
Elsku Magga, takk fyrir allar
góðu samverustundirnar, hlátur-
inn og hjartahlýjuna þína.
Þín
Ásgerður (Ása).
Í dag kveðjum við yndislega,
orkuríka vinkonu og hennar
verðu sárt saknað. Við áttum
margar hláturríkar stundir.
Engri manneskju höfum við
kynnst sem hefur gengið í gegn-
um jafnmargvíslega erfiðleika
með þvílíku jafnaðargeði, sem
Möggu. Það er ómetanlega lífs-
reynsla að hafa fengið að fylgja
henni í gegnum eitthvað af þeim.
Magga var fjörug og kallaði
ekki allt ömmu sína. Hún var
sannur vinur vina sinna, passaði
upp á sitt fólk og gat alltaf gefið
af sér þrátt fyrir allskyns mót-
læti. Magga var alltaf til staðar
þegar á þurfti að halda.
Við vinkonurnar hittumst
reglulega í okkar frábæra „hvít-
vínshittingi“ þar sem mikið var
skrafað og hlegið, þessar stundir
munu lifa í hjarta okkar um
ókomna tíð.
Það var svo margt eftir sem
við ætluðum að gera saman en
það var henni líkt að koma okk-
ur að óvörum og skilja okkur
orðlausar eftir. Hún gerði þetta
með reisn eins og allt annað
Elsku Magga, við hugsum til
þín og minningarnar um þig
munu ylja okkur um aldur og
ævi.
Þínar vinkonur,
Ásdís, Sigrún og Þórdís.
Margrét Björk
Agnarsdóttir
Hjartans þakkir, ættingjar, vinir og
vandamenn, fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og vináttu vegna andláts elskaðs
eiginmanns, föður og afa,
SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR,
löggilts endurskoðanda,
Dalalandi 10.
Sérstakar þakkir fá Heimahlynning og líknardeild Landspítalans
í Kópavogi.
Gleðilegt sumar!
Áslaug Benediktsdóttir Margrét Sigurðardóttir
Eyþór Sigurðsson Birgitta Sveinbjörnsdóttir
Benedikt Sigurðsson Dagný Baldvinsdóttir
Guðmundur Sigurðsson Hrafnhildur Proppé
og afabörn
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýju vegna andláts og
útfarar ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ODDNÝJAR KRISTÍNAR
ÞORKELSDÓTTUR,
Skúlagötu 15, Borgarnesi.
Trausti Jónsson
Oddný Sólveig Jónsdóttir Guðmundur Hallgrímsson
Júlíana Jónsdóttir Eiríkur Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku litli drengurinn okkar, bróðir og
barnabarn,
MIKAEL RÚNAR JÓNSSON,
Kambahrauni 58,
verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju
miðvikudaginn 12. apríl klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu
minnast hans er bent á áfalla- og styrktarsjóð Félags
sjúkraflutningamanna á Suðurlandi,
kt. 500806-1090, reiknnr. 0586-26-61090.
Elva Óskarsdóttir Jón Gísli Guðlaugsson
Aníta Ísey Einarsdóttir
Karen Elva Jónsdóttir
Hrefna Ósk Jónsdóttir
Elín Hrönn Jónsdóttir
Guðlaugur Bragi Gíslason Elín Hrönn Jónsdóttir
Óskar Hjaltason
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu vegna andláts elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KOLBRÚNAR BÆRINGS
HALLDÓRSDÓTTUR,
Hörðukór 1, Kópavogi.
Brynja Björk Kristjánsdóttir, Haukur Eiríksson
Sigrún Bærings Kristjánsdóttir, Birgir Guðjónsson
Ásthildur Dóra Bærings Kristjánsdóttir, Einar Sverrisson
Kristín Þóra Bærings Kristjánsdóttir, Eggert Þorgrímsson
ömmubörn og langömmubörn
Með fráfalli
Birnu okkar höfum
við á B5 á Land-
spítalanum misst mikilhæfan
samstarfsmann og félaga. Það
er því með söknuði og trega að
við kveðjum þessa góðu konu,
en um leið þakklæti fyrir að
hafa notið samvista við hana
og hennar leiðsagnar. Birna
kom til starfa við bæklunar-
deildina, sem þá hét A3
sjúkradeild á Borgar-
spítalanum, árið 1985 og á því
ásamt Rögnu vinkonu sinni
lengstan starfsaldur á deild-
inni, eða yfir þrjá áratugi.
Birna var afburða sjúkraliði
og þeir eru margir sjúkling-
arnir sem hafa notið góðs af
faglegum metnaði hennar og
umhyggju. Þá eru þeir ófáir
sjúkraliðanemarnir sem fengið
hafa hvatningu og handleiðslu
undir leiðsögn hennar, en
Birna hafði umsjón með verk-
legri kennslu sjúkraliðanema
til fjölda ára ásamt því að
þjálfa þá fyrir árlega keppni
iðngreina.
Birna hafði mikinn metnað
fyrir hönd starfsgreinar sinn-
ar og fór meðal annars á veg-
um Samnorrænu ráðherra-
nefndarinnar til Svíþjóðar og
Danmerkur, þar sem hún
dvaldi í mánuð til þess að
kynna sér starfsemi sjúkra-
húsanna þar. Hún var yfir-
trúnaðarmaður sjúkraliða á
Borgarspítalanum í mörg ár
og af hugrekki og metnaði
barðist hún fyrir félagið, auk
þess sem hún sat í ýmsum
nefndum fyrir Sjúkraliðafélag
Íslands þar sem hún lagði sitt
af mörkum til að bæta hag og
Birna Sumarrós
Helgadóttir
✝ Birna Sum-arrós Helga-
dóttir fæddist 8.
febrúar 1950. Hún
andaðist 24. mars
2017.
Útför Birnu Sum-
arrósar fór fram 3.
apríl 2017.
ímynd stéttarinn-
ar.
Birna lék alltaf
stórt hlutverk í
tilveru okkar á
B5. Hún hafði
sterkar skoðanir,
var hreinskilin og
kom með góðar
ábendingar um
hvað mætti betur
fara. Hún var
mikilvægur liðs-
maður í hvers kyns umbóta-
starfsemi og alltaf boðin og
búin að veita liðsinni sitt þeg-
ar eftir var leitað. Hún var
einnig hörkudugleg og dríf-
andi og hafði hvetjandi áhrif á
aðra. Síðast en ekki síst var
Birna skemmtilegur félagi
sem lét sig aldrei vanta þegar
við gerðum okkur glaðan dag.
Það er því mikill missir af
glaðværð hennar og smitandi
hlátri á kaffistofunni.
Síðustu mánuðina dvaldi
Birna á líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi, sem líkist
fremur hlýlegu heimili en
sjúkrastofnun. Í friðsæld og
fögru umhverfi naut hún þar
umönnunar og þjónustu, ást-
úðar og umhyggju frá stétt-
arsystrum sínum sem sinntu
frábæru starfi. Það er sárt að
horfast í augu við þá stað-
reynd að Birna sé farin í leið-
ina löngu langt fyrir aldur
fram. Hún sem hafði svo
margt að lifa fyrir. Megi það
verða okkur sem eftir lifum
hvatning um að vera þakklát
fyrir það sem við höfum og
temja okkur auðmýkt og virð-
ingu fyrir hvort öðru.
Um leið og ég minnist Birnu
sem afburða sjúkraliða og
góðrar samstarfskonu þakka
ég fyrir störf hennar á bækl-
unardeildinni og sendi Boga,
börnum þeirra og barnabörn-
um hugheilar samúðarkveðjur.
Fyrir hönd samstarfsfólks á
B5,
Ingibjörg
Hauksdóttir.