Morgunblaðið - 08.04.2017, Síða 39

Morgunblaðið - 08.04.2017, Síða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017 ✝ Margrét BjörkAgnarsdóttir fæddist á fæðing- ardeild Sólvangs í Hafnarfirði 27. febrúar 1966. Hún lést á krabbameins- lækningadeild Landspítalans við Hringbraut 26. mars 2017 eftir stutt en erfið veik- indi. Foreldrar hennar voru Agnar Bjarg Jónsson, f. 1937, frá Siglu- firði og Kristbjörg Elma Elías- dóttir, f. 1940, frá Ólafsvík. Mar- grét var önnur í röð fimm systkina. Systkini í aldursröð eru Kolbrún Sjöfn Indriðadóttir, f. 1960, maki Sigurjón Jónsson, f. 1960, Agnar Páll Agnarsson, f. 1969, maki Steinþóra Ólafs- dóttir, f. 1970, Grétar Þór Agn- arsson, f. 1972, maki Hilda Ólafsdóttir, f. 1973, Linda Dögg Agnarsdóttir, f. 1978, maki Stef- fluttist hún til Keflavíkur og vann þar hin ýmsu störf, þar með talið rak hún mynd- bandaleigur og stofnaði hrein- gerningafyrirtækið Allt hreint sf. ásamt vinafólki. Árið 1995 fluttist hún aftur til Hafnar- fjarðar og vann í fjölda ára hjá Ríkisskattstjóra þar til hún fór í frekara nám. Hún útskrifaðist frá háskólabrú Keilis 2009 og lá leið hennar þaðan í mannfræði við Háskóla Íslands og lauk hún BS-gráðu sinni þar 2013. Hugur hennar stefndi enn hærra og byrjaði hún í meistaranámi í af- brotafræði við Háskóla Íslands. Hún vann sem launafulltrúi á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ frá 2016 og vann þar, þar til yfir lauk. Hagsmunamál minni- hlutahópa voru henni hjartfólg- in, og var hún ein af stofnendum félagssamtakanna Williams- samtökin á Íslandi. Hún hafði mikla unun af matargerð, lestri góðra bóka og af því að ferðast bæði innan- og utanlands. Fjöl- skyldan var þó hennar líf og yndi og alltaf í fyrsta sæti. Útför Margrétar fór fram í kyrrþey 6. apríl 2017 frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði. án Jóhann Sæ- mundsson, f. 1975. Margrét giftist Gunnari Sigurðs- syni, f. 1963, hinn 18. september 1999. Dætur þeirra eru Birta Gyða Gunnarsdóttir, f. 1998, og Gunn- hildur Sól Gunn- arsdóttir, f. 2000. Úr fyrra sambandi átti Margrét með Ásgeiri Hálf- dáni Vilhjálmssyni, f. 1965, dótt- urina Guðrúnu Ýri Ásgeirs- dóttur, f. 1984, maki Ole Kristian Richstad, f. 1976. Börn þeirra eru Freyja Sofie, f. 2012, og Cecilia Björk, f. 2015. Mar- grét var fædd og uppalin í Hafn- arfirði, lauk hún gagnfræða- prófi frá Lækjarskóla og byrjaði nám í tækniteiknun við Iðnskól- ann í Hafnarfirði. Hún stundaði íþróttir af kappi, bæði í hand- bolta og í frjálsum. Árið 1983 Elsku mamma mín. Hvað get ég sagt? Hvernig get ég kvatt þig? Við sem ætl- uðum að verða gamlar saman, sitja saman á elliheimilinu, spila kana og hlæja eins og vitleys- ingar! Það er mér óskiljanlegt að ég eigi aldrei eftir að tala við þig aftur, heyra rödd þína og hlátur, að fá ráð við öllu mögulegu, hvort sem er um tísku, nám og vinnu, hjónaband, móðurhlut- verkið eða jafnvel bara nýjustu uppskriftina sem við vorum að prufa. Að núna séu ekkert nema óteljandi dýrmætar minningar eftir. Ein af mínum fyrstu virkilega skýru, heilu minningum um þig er þegar ég var um það bil fimm ára og þú söngst fyrir mig á hverju kvöldi fyrir háttinn. Þetta kvöld sastu við hliðina á rúminu mínu, straukst á mér handlegg- inn eins og þú gerðir svo oft og söngst hvert lagið á fætur öðru. Ég lá þar með lokuð augun í djúpri slökun og naut þessarar stundar svo óskaplega. Eftir langa stund þagnaðir þú og stóðst rólega á fætur og gekkst í átt að dyrunum, þú opnaðir þær varlega og varst alveg að verða komin út úr herberginu mínu þegar ég hvíslaði „ég er ekki sofnuð“ og þú snerir við, án minnsta pirrings eða reiði, sett- ist aftur við hliðina á mér og söngst mig í svefn með Sofðu unga ástin mín. Sofðu unga ástin mín, – úti regnið grætur. Mamma geymir gullin þín, gamla leggi og völuskrín. Við skulum ekki vaka um dimmar nætur. Það er margt, sem myrkrið veit, – minn er hugur þungur. Oft ég svarta sandinn leit svíða grænan engireit. Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur. Sofðu lengi, sofðu rótt, seint mun best að vakna. Mæðan kenna mun þér fljótt, meðan hallar degi skjótt, að mennirnir elska, missa, gráta og sakna. (Jóhann Sigurjónsson) Þetta er bara ein af mörgum minningum mínum um ást þína, umhyggju og blíðu. Og þó að þú hafir ekki fengið mikinn tíma með „ömmumúsunum“ þínum, þá búa þær vel að öllum minn- ingunum sem þið bjugguð til saman og við Ole munum hjálpa þeim að hlúa að þeim og varð- veita. Að þær viti að amma þeirra var „Ofurmús“ með risa- stórt hjarta, sem sá það góða og jákvæða hvert sem hún leit. Og að ást hennar var og er ótak- mörkuð og býr ávallt í hjarta okkar. Elsku mamma mín, ég þakka fyrir hvern dag sem ég fékk með þér, fyrir hvert orð sem við skiptumst á og fyrir hvern draum sem við deildum. En mest af öllu sit ég hér og er þakklát fyrir að það varst akk- úrat þú sem ég fékk fyrir móður. Þú ert og verður alltaf leiðarljós mitt. Ég elska þig. Guðrún Ýr. Til þín. Eins og marglit blóm á engi óendanleikans. Er kærleikur hugsana okkar til þín. Þú sem ert látin farin á braut hins óþekkta sem okkur eftirlifendum er hulið. Dýrmætar minningar líða hjá árin okkar saman. Brosið þitt og faðmur þinn svo hlýr þú bara þú. En hér er ekkert sem sýnist í gjörningar þoku og sárustu sorgum. En þar sem þú ert erum við hjá þér í huga okkar og sinni. Óskirnar fljúga víða um alheims himna. Í ljóðinu okkar er um þig þessi tæra fegurð kærleikans sem er það göfugasta og besta í mannssálinni. (S. Ósk Óskarsdóttir) Hvíl í friði, elsku Magga okk- ar. Kveðja, Mamma, pabbi og systkini. Nú er komið að kveðjustund, elsku Magga mín. Ég vildi svo gjarnan sitja í eldhúsinu hjá þér núna, með rjúkandi kaffibolla í stað þess að sitja hér ein og skrifa ótímabær minningarorð um einstaka manneskju og vin. Ég vildi geta deilt með þér fleiri sögum af börnum okkar og barnabörnum, lært meira af reynslu þinni í málefnum fatl- aðra og hlegið einu sinni enn að spaugilegum minningum úr Firðinum. Ég vil vera um stund í háum Nokia-stígvélum og mitt- isúlpu. Hugurinn leitar til 1976, í Hafnarfjörðinn, upp á Álfaskeið, í bakgarðinn hjá þér. Þar mátti sjá okkur öllum stundum, í sitt hvorri rólunni, syngjandi íslensk ljóð og söngva. Við röltum á stundum niður Álfaskeiðið og heimsóttum bekkjarsystur, jafn- vel alla leið í sjoppuna neðst á Hverfisgötunni. Við leystum lífs- ins gátur saman, og þó að ein- stakar samræður séu mér gleymdar er sú hlýja og já- kvæðni sem einkenndi þig alltaf fersk í minni mér. Þú sást alltaf til sólar, og sú birta varpaði á aðra ljósi. Þú varðst ung móðir og geisl- aðir í móðurhlutverkinu. Guðrún Ýr, nafna mín, fæddist fyrst og síðan bættust Birta Gyða og Gunnhildur Sól við. Þú nefndir þær yngri oft „Birtan mín og Sólin“, og nafnavalið svo full- komlega í takt við lífssýn þína. Þegar ljóst var að Gunnhildur Sól var lífshættulega veik stuttu eftir fæðingu þá varst þú klettur og fyrir mér ertu löngu orðin móðir aldarinnar. Þú kvartaðir aldrei, og sást alltaf eitthvað já- kvætt við hvert lífsins spor. Stundum var langt á milli okkar en alltaf var eins og við hefðum hist í gær. Við tókum bara upp samræðurnar þar sem frá var horfið og þú varst aldrei að flýta þér eða með hugann við annað en okkur. Þú barst af í bakstri, jóla- skreytingum, háskólanámi, í vinnunni og jafnvel í sauma- klúbbnum okkar litla, þar sem þú gast alltaf rætt af einlægni við okkur hinar og gert það að verkum að stemningin í sauma- klúbbnum var á 50 ára afmæl- isári okkar jafn krúttleg og í fyrsta saumaklúbbnum fyrir 41 ári. Mikið er ég heppin að eiga þig fyrir æskuvinkonu og að hafa sungið hástöfum með þér. Svona söngur verður ekki endurleikinn. Ég þakka fyrir ævilangan vin- skap, elsku Magga, og sendi fingurkoss yfir hafið til Gunnars, Guðrúnar Ýrar og fjölskyldu, Birtu Gyðu og Gunnhildar Sólar. Heyrði ég í hljóði hljóma í svefni og vöku eitthvert undralag. Leitaði að ljóði, lærði að smíða stöku og kveða kíminn brag. Ekki jók það álit mitt né hróður. Engum þótti kveðskapurinn góður. Þú varst skjólið, móðir mín, því mildin þín vermdi þann veika gróður. (Örn Arnarson.) L. Ýr Sigurðardóttir barnalæknir. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð ég alltaf mun þín sakna. (Guðrún V. Gísladóttir) Innilegar samúðarkveðjur til Gunna, Guðrúnar, Birtu og Gunnhildar, Ole, litlu ömmu- stelpnanna þinna, foreldra þinna og systkina. Elsku Magga, takk fyrir allar góðu samverustundirnar, hlátur- inn og hjartahlýjuna þína. Þín Ásgerður (Ása). Í dag kveðjum við yndislega, orkuríka vinkonu og hennar verðu sárt saknað. Við áttum margar hláturríkar stundir. Engri manneskju höfum við kynnst sem hefur gengið í gegn- um jafnmargvíslega erfiðleika með þvílíku jafnaðargeði, sem Möggu. Það er ómetanlega lífs- reynsla að hafa fengið að fylgja henni í gegnum eitthvað af þeim. Magga var fjörug og kallaði ekki allt ömmu sína. Hún var sannur vinur vina sinna, passaði upp á sitt fólk og gat alltaf gefið af sér þrátt fyrir allskyns mót- læti. Magga var alltaf til staðar þegar á þurfti að halda. Við vinkonurnar hittumst reglulega í okkar frábæra „hvít- vínshittingi“ þar sem mikið var skrafað og hlegið, þessar stundir munu lifa í hjarta okkar um ókomna tíð. Það var svo margt eftir sem við ætluðum að gera saman en það var henni líkt að koma okk- ur að óvörum og skilja okkur orðlausar eftir. Hún gerði þetta með reisn eins og allt annað Elsku Magga, við hugsum til þín og minningarnar um þig munu ylja okkur um aldur og ævi. Þínar vinkonur, Ásdís, Sigrún og Þórdís. Margrét Björk Agnarsdóttir Hjartans þakkir, ættingjar, vinir og vandamenn, fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts elskaðs eiginmanns, föður og afa, SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR, löggilts endurskoðanda, Dalalandi 10. Sérstakar þakkir fá Heimahlynning og líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Gleðilegt sumar! Áslaug Benediktsdóttir Margrét Sigurðardóttir Eyþór Sigurðsson Birgitta Sveinbjörnsdóttir Benedikt Sigurðsson Dagný Baldvinsdóttir Guðmundur Sigurðsson Hrafnhildur Proppé og afabörn Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ODDNÝJAR KRISTÍNAR ÞORKELSDÓTTUR, Skúlagötu 15, Borgarnesi. Trausti Jónsson Oddný Sólveig Jónsdóttir Guðmundur Hallgrímsson Júlíana Jónsdóttir Eiríkur Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku litli drengurinn okkar, bróðir og barnabarn, MIKAEL RÚNAR JÓNSSON, Kambahrauni 58, verður jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 12. apríl klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á áfalla- og styrktarsjóð Félags sjúkraflutningamanna á Suðurlandi, kt. 500806-1090, reiknnr. 0586-26-61090. Elva Óskarsdóttir Jón Gísli Guðlaugsson Aníta Ísey Einarsdóttir Karen Elva Jónsdóttir Hrefna Ósk Jónsdóttir Elín Hrönn Jónsdóttir Guðlaugur Bragi Gíslason Elín Hrönn Jónsdóttir Óskar Hjaltason Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KOLBRÚNAR BÆRINGS HALLDÓRSDÓTTUR, Hörðukór 1, Kópavogi. Brynja Björk Kristjánsdóttir, Haukur Eiríksson Sigrún Bærings Kristjánsdóttir, Birgir Guðjónsson Ásthildur Dóra Bærings Kristjánsdóttir, Einar Sverrisson Kristín Þóra Bærings Kristjánsdóttir, Eggert Þorgrímsson ömmubörn og langömmubörn Með fráfalli Birnu okkar höfum við á B5 á Land- spítalanum misst mikilhæfan samstarfsmann og félaga. Það er því með söknuði og trega að við kveðjum þessa góðu konu, en um leið þakklæti fyrir að hafa notið samvista við hana og hennar leiðsagnar. Birna kom til starfa við bæklunar- deildina, sem þá hét A3 sjúkradeild á Borgar- spítalanum, árið 1985 og á því ásamt Rögnu vinkonu sinni lengstan starfsaldur á deild- inni, eða yfir þrjá áratugi. Birna var afburða sjúkraliði og þeir eru margir sjúkling- arnir sem hafa notið góðs af faglegum metnaði hennar og umhyggju. Þá eru þeir ófáir sjúkraliðanemarnir sem fengið hafa hvatningu og handleiðslu undir leiðsögn hennar, en Birna hafði umsjón með verk- legri kennslu sjúkraliðanema til fjölda ára ásamt því að þjálfa þá fyrir árlega keppni iðngreina. Birna hafði mikinn metnað fyrir hönd starfsgreinar sinn- ar og fór meðal annars á veg- um Samnorrænu ráðherra- nefndarinnar til Svíþjóðar og Danmerkur, þar sem hún dvaldi í mánuð til þess að kynna sér starfsemi sjúkra- húsanna þar. Hún var yfir- trúnaðarmaður sjúkraliða á Borgarspítalanum í mörg ár og af hugrekki og metnaði barðist hún fyrir félagið, auk þess sem hún sat í ýmsum nefndum fyrir Sjúkraliðafélag Íslands þar sem hún lagði sitt af mörkum til að bæta hag og Birna Sumarrós Helgadóttir ✝ Birna Sum-arrós Helga- dóttir fæddist 8. febrúar 1950. Hún andaðist 24. mars 2017. Útför Birnu Sum- arrósar fór fram 3. apríl 2017. ímynd stéttarinn- ar. Birna lék alltaf stórt hlutverk í tilveru okkar á B5. Hún hafði sterkar skoðanir, var hreinskilin og kom með góðar ábendingar um hvað mætti betur fara. Hún var mikilvægur liðs- maður í hvers kyns umbóta- starfsemi og alltaf boðin og búin að veita liðsinni sitt þeg- ar eftir var leitað. Hún var einnig hörkudugleg og dríf- andi og hafði hvetjandi áhrif á aðra. Síðast en ekki síst var Birna skemmtilegur félagi sem lét sig aldrei vanta þegar við gerðum okkur glaðan dag. Það er því mikill missir af glaðværð hennar og smitandi hlátri á kaffistofunni. Síðustu mánuðina dvaldi Birna á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi, sem líkist fremur hlýlegu heimili en sjúkrastofnun. Í friðsæld og fögru umhverfi naut hún þar umönnunar og þjónustu, ást- úðar og umhyggju frá stétt- arsystrum sínum sem sinntu frábæru starfi. Það er sárt að horfast í augu við þá stað- reynd að Birna sé farin í leið- ina löngu langt fyrir aldur fram. Hún sem hafði svo margt að lifa fyrir. Megi það verða okkur sem eftir lifum hvatning um að vera þakklát fyrir það sem við höfum og temja okkur auðmýkt og virð- ingu fyrir hvort öðru. Um leið og ég minnist Birnu sem afburða sjúkraliða og góðrar samstarfskonu þakka ég fyrir störf hennar á bækl- unardeildinni og sendi Boga, börnum þeirra og barnabörn- um hugheilar samúðarkveðjur. Fyrir hönd samstarfsfólks á B5, Ingibjörg Hauksdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.