Morgunblaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 98. DAGUR ÁRSINS 2017
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 941 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Þrír látnir í Stokkhólmi
2. Sóley komin í leitirnar
3. Skotbardagi skammt frá
4. Stokkhólmur: Þetta vitum við
Söngkonan og lagahöfundurinn
Neema, frá Montreal í Kanada, heldur
tónleika á Café Rosenberg við Klapp-
arstíg laugardaginn 15. apríl kl. 21.
Neema starfaði náið með Leonard
Cohen heitnum um árabil og stýrði
Cohen upptökum á fyrstu breiðskífu
hennar. Neema hefur haldið tónleika
víða um heim og m.a. komið fram á
tónleikum með Elton John, Jeff Beck
og Cindy Lauper. Neema á ættir að
rekja til Egyptalands og Líbanons og
er tónlist hennar m.a. undir áhrifum
frá þarlendri tónlist.
Neema á Rosenberg
Stína Ágústs-
dóttir söngkona
og sænsku tón-
listarmennirnir
Leo Lindberg, Max
Schultz og
trommuleikarinn
Chris Montgom-
ery flytja nokkur
frumsamin lög
ásamt blöndu af blúsuðum standörd-
um og fönkfylltu poppi í Hannesar-
holti í kvöld kl. 20.
Frumsamin lög, blús
og fönkfyllt popp
Fjallað verður um lífsferil og tón-
list Magnúsar Þórs Sigmundssonar í
Hljómahöllinni í Reykjanesbæ annað
kvöld kl. 20. Tónleikarnir eru liður í
tónleikaröðinni Söngvaskáld á
Suðurnesjum. Kynnir og handrits-
höfundur er Dagný Gísla-
dóttir, söngvari er Elm-
ar Þór Hauksson og
um útsetningar og
píanóleik sér
Arnór B.
Vilbergs-
son.
Farið yfir feril Magn-
úsar í Hljómahöllinni
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 10-18 m/s þegar kemur fram á daginn, hvassast norð-
vestantil. Él um landið norðanvert, en styttir smám saman upp sunnanlands.
Á sunnudag Norðan 5-13 m/s, hvassast austantil, en hægari síðdegis. Stöku él, en yfir-
leitt þurrt og bjart suðvestan- og vestanlands. Frost víða 1 til 6 stig.
Á mánudag Fremur hæg breytileg átt, þurrt að kalla og frost um mestallt land, en snýst í
suðaustan 5-13 með snjókomu og síðar rigningu sunnan- og vestanlands eftir hádegi.
Sundmenn úr Sundfélagi Hafnar-
fjarðar voru sigursælir á fyrsta
keppnisdegi Íslandsmeistaramótsins
í sundi í 50 m laug í Laugardal í gær.
Þrír sundmenn félagsins unnu til
tvennra gullverðlauna hver. Sund-
menn annarra félaga gerðu það einn-
ig gott þótt engin Íslandsmet féllu í
keppninni í gær. Hrafnhildur Lúthers-
dóttir var þó nærri meti. »1
Hafnfirðingar sigur-
sælir í lauginni
KR-ingar eru komnir með
eins vinnings forskot í
rimmu sinni við Keflavík í
undanúrslitum Íslandsmóts
karla í körfuknattleik. KR
marði þriggja stiga sigur í
hörkuleik á heimavelli í
gærkvöldi, 91:88, þar sem
Jón Arnór Stefánsson fór á
kostum. KR þarf aðeins einn
vinning til viðbótar til að
leika til úrslita á Íslands-
mótinu enn eitt árið. »3
KR-ingar með
vinnings forskot
Ágúst Birgisson úr FH var valinn línu-
maður í lið vetrarins í handbolta
karla og hann þakkar þjálfara sínum
fyrir það. „Já, mér finnst það. Hann
sá eitthvað í mér sem aðrir sáu ekki.
Ég ætlaði að sanna fyrir honum og
mér sjálfum að ég gæti eitthvað í
handbolta,“ segir Ágúst, en FH mætir
Gróttu í fyrsta leik í úrslita-
keppninni um Íslandsmeist-
aratitilinn annað kvöld. »4
Hann sá eitthvað í mér
sem aðrir sáu ekki
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
EVE Fanfest er nú í fullum gangi í
Hörpu og hafa gestir alls staðar að
úr heiminum lagt leið sína til lands-
ins á hátíðina. Á hátíðinni er að
finna ýmsa viðburði fyrir spilendur
leikja CCP og er gestum og gang-
andi einnig boðið upp á að fá sér
húðflúr á efri hæð Hörpu. Húðflúr
hafa verið hluti af hátíðinni áður,
en þetta er í fyrsta skipti sem Ís-
lenzka húðflúrstofan tekur þátt í
Fanfest. Á borðinu mátti sjá sér-
stök húðflúr sem tengd eru leikjum
CCP, en Fjölnir Bragason húðflúr-
listamaður segir hins vegar mögu-
legt fyrir spilara að fá ýmislegt
annað sem ekki sé endilega á borð-
inu.
Fjölnir segir að fólk þurfi að
hafa samband fyrir fram og senda
hugmyndir í gegnum Facebook svo
hægt sé að vinna úr þeim. Stærri
og flóknari hugmyndir krefjist
meiri búnaðar en þess sem hafi
komið meðferðis í Hörpu. „Við
gætum þá unnið hugmyndirnar um
kvöldið og fólk mætt morguninn
eftir. Við erum ekki með allar
græjurnar með okkur hérna,“
bætir hann við.
Hátíðin endar á veislu í kvöld
Íslenska tölvuleikjafyrirtækið
CCP stendur að hátíðinni, en þar
mætast spilarar og starfsmenn
fyrirtækisins til að ræða saman um
EVE-tölvuleikjaheiminn og margt
annað sem tengist CCP og leikjum
þess. Hátíðin hefur verið vinsæl
undanfarin ár og hafa fleiri spilarar
sótt hana, m.a. þeir sem spila
sýndarveruleikatölvuleikinn EVE
Valkyrie. Þá eru notendur með
sýndarveruleikagleraugu á sér á
meðan þeir spila, en keppt var í
EVE Valkyrie á hátíðinni í fyrra.
CCP hefur á síðustu árum einblínt
á sýndarveruleikann, ekki bara
með Valkyrie og Gunjack-
leikjunum, heldur er fyrirtækið að
þróa íþróttaleik.
Margt var um manninn á hátíð-
inni í gær og var meðal annars
LARP-leikur (e. Live Action Role
Play) fyrir gesti. Fyrirlestrar voru
í boði allan daginn, bæði á vegum
starfsmanna og spilara.
Veislunni lýkur í kvöld
Þá var einnig boðið upp á að
spila EVE Valkyrie og EVE Online
á svæðinu. Hátíðinni lýkur í kvöld
og getur almenningur keypt sér
miða á lokaveisluhöldin. Þar mun
DJ Kristian Nairn, sem lesendum
gæti verið kunnugur sem Hodor úr
Game of Thrones-þáttunum, þeyta
skífum ásamt Permaband og
Hermigervli.
Húðflúr í Hörpu á Fanfest
EVE Fanfest
er í fullum gangi
í Hörpu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Íslenzka Starfsmenn Íslenzku húðflúrstofunnar búast við að flúra þó nokkra gesti Fanfest í dag.
Flúr „Mig langaði í eitthvað sem táknaði Ísland,“ sagði ung stúlka sem var
gestur á Fanfest og unnu starfsmenn stofunnar að hugmyndinni með henni.