Morgunblaðið - 08.04.2017, Blaðsíða 13
Feðgar Notalegt horn með sófa og aðstöðu fyrir börn er innst í kaffihúsinu.
Litla Eden Gróðurhúsastemningin er notaleg á Rósakaffinu og viðurinn gefur hlýlegt yfirbragð. Dóttir Ingibjargar og tengdasonur í heimsókn með son.
bjuggu lengst af og var æskuheimili
mitt. Hér er gott að vera með börn
og gaman að geta leikið sér úti í nátt-
úrunni. Þegar ég var strákur voru
vinsælustu staðirnir til að leika sér á
Hamarinn og áin.“
Stórfjölskyldan hjálpast að
Kristrún kona Gunnars er hlut-
hafi í fyrirtækinu og kemur að dag-
legum rekstri, sér um pantanir og
fleira. Systir Kristrúnar starfar einn-
ig á Rósakaffi. Allar dætur Ingi-
bjargar og tengdasynir hafa
hjálpað til og gera enn, og sama
er að segja um eiginmanninn. „Við
hjálpumst að stórfjölskyldan og mér
finnst notalegt að hafa fólkið mitt
með mér í vinnunni. Aldraðir for-
eldrar mínir sem búa hér á Ási rölta
stundum til okkar og eru öll af vilja
gerð að hjálpa til. Barnabörnin eru
líka stundum með, en þau eru orðin
sex. Svo skiptumst við Gunnar á að
standa vaktina, ég passa litla Víking
son hans á meðan hann og konan
hans vinna á kaffihúsinu.“
Þau segja viðskiptavinina vera
fjölbreyttan hóp, margir þeirra eru
heimamenn, Hvergerðingar, en svo
koma líka ferðamenn, bæði erlendir
og íslenskir. Rútufyrirtækin hafa
tekið Rósakaffi fagnandi því þau hef-
ur vantað kaffihús í Hveragerði til að
stoppa með ferðamenn.
„Hingað koma margir iðnaðar-
menn og annað fólk frá vinnustöðum
að borða í hádeginu, og það er líka
traffík á kvöldin í matinn. Hér geta
sextíu og fimm manns verið í sæti,
svo litla kaffihúsið mitt varð heldur
stærra en það átti að vera,“ segir
Ingibjörg og hlær.
„Hvergerðingar hafa tekið okk-
ur rosalega vel. Ég er sjálf orðin mik-
ill Hvergerðingur eftir að hafa búið
hér lengi og kann sérlega vel við mig.
Hér búa um 2.400 manns og þetta er
eins og þorp, maður þekkir og kann-
ast við marga, mér finnst það nota-
legt.“
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2017
Rósakaffi stendur við aðalgötuna í
Hveragerði, Breiðumörk, og þar geta
gestir sest inn í gróðurhúsið og notið
þess að fá sér ekki aðeins kaffi, kökur
og brauðmeti, heldur er einnig boðið
upp á heitan mat af grillinu, súpur og
salat. Þess má geta að súpubrauðin
þeirra eru með rósablöðum, og að hjá
Hverablómi er búið til úr rósablöðunum
síróp sem fæst í gjafavörubúðinni.
Einnig bjóða Jóna og Guðmundur hjá
Hverablómi fólki að kíkja á rósaræktun-
ina í sínu gróðurhúsi og segja fólki sög-
ur úr gróðurhúsunum.
Rósakaffi er opið frá klukkan 8.30 á
morgnana til klukkan 21 á kvöldin.
Rósablöð í súpubrauðinu
RÓSAKAFFI HVERAGERÐI ER FULLT AF RÓSUM