Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Síða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Síða 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.4. 2017 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Enskukennarinn minn í Menntaskólanum á Akureyri var uppá-tækjasamur og skemmtilegur. Hann var vanur að koma með orð dags-ins í upphafi hverrar kennslustundar og við í bekknum áttum að segja honum hvað það þýddi. Þetta gekk svona og svona. Mér er til dæmis eft- irminnileg glíma okkar við hið gagnmerka orð „antidisestablishmentarian- ism“. Það á sumsé við um þá sem eru á móti þeim sem eru á móti kerfinu. Dag einn sneri kennarinn þessu við; fól okkur nemendunum að koma með orð dagsins og freista þess að reka hann á gat. Til að gera langa sögu stutta gekk það afleitlega. Það var alveg sama hvað við grófum djúpt í orðabæk- urnar alltaf þekkti kennarinn orðið og romsaði merkingunni viðstöðulaust úr sér án þess að blása úr nös. Bætti jafnvel við það sem fram kom í orðabókum. Svona gekk þetta vikum saman. Á endanum tókst okkur þó að reka kennarann í vörðurnar. Og hvaða orði ætli við höfum þá verið vopnuð? Jú, það var hið ágæta nafn- orð „mugwump“, sem kennarinn við- urkenndi heldur treglega að hann hefði hvorki heyrt né séð. Á því augnabliki leið bekknum eins og hann hefði klifið þrítugan hamarinn. Síðan eru liðnir tæpir þrír áratug- ir og þetta ágæta orð hefur ekki orð- ið á vegi mínum síðan – fyrr en nú í vikunni að enginn annar en Boris Johnson, utanríkisráðherra Bretlands, gróf það upp og notaði um pólitískan andstæðing sinn, Jeremy Corbyn, formann Verkamannaflokksins. Svo virðist sem orðið hafi komið jafnflatt upp á bresku þjóðina og ensku- kennarann minn forðum daga; samkvæmt fréttum fjölmiðla þurftu flestir að fletta því upp, bæði leikir sem lærðir í tungumálinu. Mikið hefur verið rætt og ritað um málið í Bretlandi og skiptar skoðanir um það hvort orðavalið segi meira um þann sem valdi orðið eða þann sem það var notað um. Ekki skal lagt mat á það hér. Hvar ætli Boris hafi annars lært þetta ágæta orð? Man ekki eftir honum úr bekknum mínum í MA! En hvað merkir nafnorðið „mugwump“ eiginlega? Samkvæmt Merriam-Webster-orðabókinni virðist það upphaflega hafa verið notað um menn sem klufu sig frá Repúblikanaflokknum í Bandaríkj- unum árið 1884 og mun það hafa verið sótt í orðaforða indíána, sem notuðu áþekkt orð um leiðtoga í stríði. Í dag mun orðið einkum eiga við um menn sem standa utan hins hefðbundna flokkakerfis í stjórnmálum og eru annað hvort hlutlausir eða vita ekki hverjum þeir eiga að fylgja. Ykkur er frjálst að spreyta ykkur á beinni þýðingu! Boris Johnson. Ég man ekki eftir því að hann hafi verið í bekknum. AFP Var Boris með mér í bekk í MA? Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Síðan eru liðnir tæpirþrír áratugir og þettaágæta orð hefur ekki orðiðá vegi mínum síðan – fyrr en nú í vikunni ... Páll Steinar Ludvigsson Ég reyni nú oftast að forðast slíkt, þannig að það er ekkert sem ég man eftir. SPURNING DAGSINS Hvað er það neyð- arlegasta sem hefur komið fyrir þig? Fanney Skúladóttir Þegar ég ryksugaði óvart upp af- mælisköku sonar míns. Hún var ekki borin fram. Morgunblaðið/Ásdís Stein Henriksen Ég var niðri á Lækjartorgi að ná strætó og það var mikið af ölvuðum mönnum í kringum mig. Ég tók á sprett, datt og lá flatur. Það héldu allir að ég væri á rassgatinu. Hrefna Rós Sigurðardóttir Wiium Ég gekk einu sinni inn á bensínstöð og fattaði svo að kjóllinn var allur rifinn að aftan. Allt opið. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Morgunblaðið/Golli JÓHANNA GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Sálufélagar í tónlist Forsíðumyndina tók Golli Söngkonan Jóhanna Guðrún flytur sín uppáhaldslög og segir sögur af ferlinum í tónleikaröð sem hefst þann 4. maí. Gítarleikarinn Davíð Sigurgeirsson, spilar undir. Miðaverð er 2.990 kr. og hægt er að kaupa miða á vefsíðunni tix.is. Segðu mér aðeins hvernig hug- myndin að tónleikaröð víða um landið fór af stað. Við Davíð höfum talað um þessa hugmynd í nokkur ár, við spilum svo mikið saman að það er kominn ansi langur listi af flottum lögum sem koma einstaklega vel út. Svo hefur mér oft fundist fólk vera hrifnast af minni rödd í einfaldleikanum, s.s bara gít- arspil og söngur. Nú átt þú langan feril að baki, er eitt- hvert verkefni sem stendur sér- staklega upp úr? Eurovision stendur að sjálfsögðu upp úr. Við hverju mega áhorfendur búast á tónleikunum? Þeir mega búast við afslappaðri stemningu, fallegri tónlist og smá gríni. Nú spilar kærasti þinn á gítar, hvernig gengur að vinna saman sem par? Okkur hefur blessunarlega alltaf samið mjög vel í tónlistinni, þar erum við algjörir sálufélagar. Hverjar eru fyrirmyndir þínar í tónlist? Þær eru ansi margar. En ef ég ætti að nefna íslenska fyrirmynd þá er það meistari Björgvin Halldórsson. Hvernig leggst sumarið í þig og hvað er framundan eftir tónleikaröðina? Ég svo spennt fyrir sumrinu! Ég hlakka til að leika úti með litlu dúllunni okkar Davíðs. Það sem er á stefnuskránni er að semja haug af nýrri músík og vera dugleg að halda tónleika.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.