Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Side 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Side 15
Hún ólst upp á Vatnsendahæð með stórum garði. „Það var eiginlega bara sveit þá. Hún elskar garðinn og plönturnar en ég fæ alveg að vera með í þessu á sumrin.“ Annars konar blóm kalla jafnan á hann á sumrin. „Ég fæ ár- áttu fyrir að mála blóm á sumrin. Ég elska þegar lúpínan kem- ur og er algjör lúpínukarl. Ég geng stundum inn í lúpínuhafið, þetta er svo falleg jurt. Þó þetta sé illgresi finnst mér hún æð- isleg. Ég hef líka málað lúpínumyndir.“ Hvað málunina varðar segist hann hafa lært hvað mest af því að fylgjast með öðrum málurum. Þar efst á blaði er vinur hans Stefán Boulter. „Þó ég byrjaði á undan honum að mála hef ég lært mest af honum. Ég kom honum út í að mála en hann var í teiknimyndageiranum. Hann var lengi lærlingur hjá norska málaranum Odd Nerdrum.“ Hvenær hefurðu helst tíma til að mála, kannski á kvöldin? „Af því að ég er með stúdíóið hérna heima þá get ég hlaupið þangað í 20 mínútur þegar ég fæ löngunina. Ég get ekki skipu- lagt sólarhringinn þannig að alltaf klukkan níu fari ég niður að mála en þá er ég kannski bara ekkert í stuði. Stundum á leið- inni út fer ég aðeins inn í fimm mínútur ef ég man eftir ein- hverju sem ég ætlaði að gera. Það er það góða við olíumálun, ol- íulitirnir þorna hægt. Ég er kannski mánuð með eina mynd en er með nokkrar í gangi á sama tíma. Það er það skemmtilega við olíuna að þú getur hlaupið út án þess að það fari allt í vit- leysu.“ Menning og íþróttir Oft er litið á menningu og íþróttir sem einhvers konar and- stæður en Nilli fæst við hvort tveggja af mikilli ástríðu. „Áður fyrr spurðu vinir mínir af hverju ég væri að mála. Ég skildi það varla sjálfur en þetta var bara köllun. Ég dett inn í einhvern heim þegar ég er að mála. Þetta getur verið eins og jóga. Ég róast rosalega við að mála. Þetta er önnur útrás, önnur köllun. Íþróttirnar eru þessi líkamlega útrás og endorfínið sem þú færð við það erfiði,“ segir Nilli en hann hefur gaman af bæði fótbolta og fimleikum sem oft er stillt upp sem andstæðum. „Ég hef alveg dottið inn á æfingu með Breiðabliki „old boys“, bara til að hlaupa á eftir bolta, það er líka gaman. Ég get ekki bara verið í einhverju einu. Mér finnst gaman að vera í mörgu mismunandi. Þetta er í rauninni allt tengt. Ég get ekki sest fyr- ir framan hvítan striga og byrjað að mála eitthvað, bara fengið hugmynd. Það er aldrei þannig. Ég fæ hugmyndina þegar ég er að labba með hundinn, á hestbaki eða að þjálfa.“ Hann er frekar fyrir fótbolta, fimleika og sund heldur en að æfa inni í líkamsræktarstöð. „Ég er mest í fimleikasalnum,“ segir hann. Hvernig finnst þér þróunin vera hvað varðar hreyfingu hjá almenningi, notum við líkamana okkar nógu mikið? „Það hefur verið mikil vakning og allur aðbúnaður er góður eins og hvað varðar hjólreiðastíga og göngustíga. Það eru mörg útivistarsvæði og líka sundlaugar, það er rosalega mikið í boði og þetta er alltaf að batna,“ segir Nilli og telur að sveigjanlegur vinnutími hjálpi fólki til að stunda reglulega líkamsrækt. Frjáls eins og fuglinn Hvað málaralistina varðar er hann stundum spurður af hverju hann fari ekki í háskólanám. „Ég hef ekki áhuga á því. Ég hef meiri áhuga á námskeiðum, stuttum fyrlestrum, bókum eða bara YouTube. Svo nota ég þá aðferð sem mér finnst henta eða blanda saman einhverjum aðferðum. Það er ekki bara eitthvað eitt sem virkar,“ segir Nilli sem hefur sótt námskeið erlendis. „Mér finnst ég læra mest af því að vera með öðrum málara. Svo þarf maður líka að þróa sig sjálfur. Ég hef málað hundruð málverka og yfir þau aftur. Maður þarf að vera ófeiminn við að reyna,“ segir Nilli en það virðist vera rauði þráðurinn í öllu hjá honum; hann er virkilega ófeiminn við að prófa hlutina. Nilli segist vera listamaður á eigin forsendum. „Ég hef rekið mig á marga veggi í málaralistinni. Ég hef farið í sölugallerí og fengið nei af því að ég er ekki menntaður. Listaheimurinn er svolítið stífur, sem er allt í lagi, þetta truflar mig ekkert, ég held mínar sýningar og fólk hefur áhuga. Ég fæ viðbrögð. Ég fæ í staðinn að vera frjáls eins og fuglinn.“ Nilli fer í stúdíóið að mála þegar andinn kemur yfir hann. 30.4. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Við sérhæfum okkur í miðlun á sviði fyrirtækja, sjávarútvegs og fjármögnunar. www.vidskiptahusid.is Höfum til sölu rekstur og fasteignir á litlu vel búnu gistiheimili á Höfn í Hornafirði í góðum rekstri. Fjárfestingartækifæri í ferðaþjónustu Ólafur Steinarsson Sími: 822 7988 olafur@vidskiptahusid.is Nánari upplýsingar veitir:

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.