Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Qupperneq 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Qupperneq 21
Persónulega þykir mér þetta miður en svona eru Norðurlönd í dag.“ Hedberg segir marga líta upp til Norður- landanna vegna félagslegs öryggis í ríkjunum og þeirrar staðreyndar að þau eru seinþreytt til vandræða, eins og að fara í stríð. „Það er samt útbreiddur misskilningur að öll þessi ríki séu eins; fólk gengur út frá því að bakgrunnur okkar og saga sé sú sama. Þetta rak ég mig oft á meðan ég var sendiherra í Bosníu. Svo er auðvitað ekki. Norðurlöndin eiga sumt sameig- inlegt, annað ekki.“ Fleiri Íslendingar til Svíþjóðar Eitt af meginverkefnum Hedbergs hér á landi hefur verið að hvetja Íslendinga til að ferðast í auknum mæli til Svíþjóðar og er hann þegar farinn að sjá árangur af því starfi. „Við spyrj- um til dæmis: Hvers vegna farið þið frekar til Danmerkur en Svíþjóðar? Danmörk er bæði minna land og dýrara. Undanfarin tvö ár hefur íslenskum ferðamönnum í Svíþjóð fjölgað um- talsvert og því fögnum við ákaft. Raunar hefur þeim fjölgað í Danmörku og Noregi líka en mest í Svíþjóð,“ segir Hedberg en fjöldi gisti- nátta Íslendinga í Svíþjóð jókst um 43% milli áranna 2014 og 2015. Annað stórt verkefni hefur verið að kynna landanum sænsk einingahús. „Það hefur verið húsnæðisskortur hér á landi, ekki síst á höf- uðborgarsvæðinu, og við Svíar höfum verið að benda á sænsk timburhús sem valkost í því sambandi. Að þessu hefur þó ekki verið hlaup- ið enda er eftirspurnin innan Svíþjóðar gríð- arleg í bili og Íslendingar ennþá dálítið tor- tyggnir í garð timburhúsa, einkum vegna ótta við fúa og eld- hættu að ég held. Að kjósa steinsteypu þýðir þó ekki að vera laus við fúa, eins og dæmin sýna. Allt snýst þetta um byggingartækni og í Sví- þjóð er stór áhersla lögð á forvarnir gegn rakaskemmdum. Timburhús hafa tekið miklum framförum; í Björgvin eru til 14 hæða timburhús og núna stendur til að byggja 80 hæða timburhús í Lundúnum. Það er ekki bara ódýrara að byggja úr timbri, held- ur líka betra fyrir umhverfið. Af ýmsum ástæðum.“ Vanmat stærð landsins Spurður hvað hafi komið honum mest á óvart þegar hann flutti hingað til lands svarar Hed- berg: „Stærðin. Eins og svo margir sem hing- að koma vanmat ég stærð landsins. Margir vinir okkar hafa komið og heimsótt okkur, leigt sér bíl og sagst ætla að keyra hringinn um eyj- una og koma svo aftur í kvöldmat. Það er vita- skuld engin leið. Við hjónin fórum hringveginn í fyrrasumar, 1.600 km, og það tók okkur átta daga. Þetta er enginn skreppitúr.“ Hann brosir. Hedberg segir það líka með nokkrum ólík- indum hversu hratt Reykjavík og nágranna- sveitarfélög hafi vaxið. Hann kom hingað fyrst fyrir allmörgum árum vegna starfa sinna og þá var höfuðborgin mun minni en hún er í dag. „Ég las ævisögu Halldórs Laxness og þegar hann fæddist, árið 1902, bjuggu ekki nema um tuttugu þúsund manns í Reykjavík. Núna er íbúafjöldinn á annað hundrað þúsund. Það tók Stokkhólm á bilinu þrjú til fjögur hundruð ár að stækka eins mikið og Reykjavík gerði á hundrað árum. Það er mjög tilkomumikið.“ Þrátt fyrir þessa miklu stækkun er sam- félagið ennþá smátt á alþjóðamælikvarða og það kann Hedberg vel að meta. „Aðgengi að fólki, þar með talið ráðamönnum, er ótrúlega gott á Íslandi. Það tekur örskotsstund að koma á fundum. Ég á vini sem starfa í Kína og á Ind- landi og þar getur tekið þá tvö ár að ná fundi ráðherra. Hér rekst maður bara á þá á förnum vegi – og forsetann líka ef maður skýst að kaupa pitsu. Þetta er ofboðslega þægilegt og greiðir fyrir málum.“ Hin hliðin á peningnum, þegar allir þekkja alla, er sú að vandamál koma gjarnan upp vegna frændsemi, til dæmis í dómskerfinu. „Það er áskorun sérstaklega fyrir allar smáar þjóðir eins og bent er á í skýrslum sænska ut- anríkisráðuneytisins um mannréttindi í lönd- um Evrópu sem birtar voru núna í vikunni. En samfélagið hér er eigi að síður með þeim allra þróuðustu og sanngjörnustu í heimi.“ Fylgist grannt með þjóðmálum Engin lognmolla hefur ríkt í íslenskum stjórn- málum í tíð Bosse Hedbergs og hann kveðst hafa fylgst spenntur með, ekki síst tilraunum til að setja á laggirnar nýja samsteypustjórn á nýliðnum vetri. „Þetta gekk fram og til baka en hafðist á endanum og ég sé ekki annað en að þessi nýja stjórn virki ágætlega. Sumt er þó frábrugðið því sem ég á að venjast heima í Sví- þjóð. Þar tekur ríkisstjórnin yfirleitt sameig- inlegar ákvarðanir og kemur fram sem einn maður út á við. Hér hef ég tekið eftir því að stundum segir einn ráðherra eitt og annar ráð- herra eitthvað allt annað. Það er áhugavert.“ Hedberg fylgdist einnig grannt með gjald- eyrishaftamálinu og segir vel hafa verið staðið að afnáminu. „Málið var vel undirbúið og vandasamt verkefni leyst af fagmennsku og fumleysi. Einhverjir vogunarsjóðir sitja ennþá á einhverjum milljörðum króna en það er mun minna en það var og ekki vandamál í sjálfu sér. Matsfyrirtækin hafa líka lokið lofsorði á Ísland og hækkað lánshæfismatið. Vonandi gengur allt vel með íslensku krónuna í framtíðinni.“ Munu sakna Breta Böndin berast að Brexit enda hafa Bretar og Svíar margoft gengið í takt innan Evrópusam- bandsins, hvorugu ríki hugnast til dæmis evr- an. „Það er alveg rétt,“ segir Hedberg, „við eigum eftir að sakna Bretanna sem banda- manns innan sambandsins. Hafandi sagt það vona ég innilega að við finnum flöt á samstarfi á nýjum grunni í framtíð- inni enda þurfa þessar þjóðir hvor á annarri að halda. Sama máli gegnir um Íslendinga og Breta; þið hafið líka átt í miklum viðskiptum við þá.“ Bretar munu skilja eft- ir sig stórt skarð í Evrópusambandinu, ekki síst efnahagslega, og Hedberg segir einboðið að ESB þurfi að draga úr umsvifum sínum af þeim sökum. Skarð Breta verði ekki fyllt. „Við Svíar erum til að mynda harðir á því að við munum ekki auka framlag okkar til sambands- ins til að vega á móti brotthvarfi Breta.“ Hedberg segir Brexit ekki hafa komið róti á Svía; þvert á móti hafi stuðningur við Evrópu- sambandið aukist um nokkur prósent, sam- kvæmt könnunum, eftir að niðurstaða Breta lá fyrir. „Eftir Brexit fóru margir Svíar að vega og meta Evrópusambandið, sem er ósköp eðli- legt við breytingar af þessu tagi, og svo virðist sem kostirnir við að vera um borð hafi þá kom- ið upp á yfirborðið í ríkari mæli en gallarnir.“ Mun ekki sakna vor(leysi)sins Sem fyrr segir styttist í dvöl Bosse Hedbergs og eiginkonu hans á Íslandi. Hann segir hana hafa verið afskaplega ljúfa og margs verði að sakna. Vorið er þó ekki í þeim hópi. Ef vor má þá kalla. „Þar sem ég hef búið í Svíþjóð, Frakklandi og Bosníu býst ég alltaf við blíðu vori. Hér á Íslandi er hins vegar alls ekki á vís- an að róa í þeim efnum; maður getur orðið fyr- ir miklum vonbrigðum. Það er ansi niðurdrep- andi að búa við sama hitastigið í febrúar og júní,“ trúir hann mér fyrir. Og brosir. „Myrkrið truflar mig alls ekki; það er meira kuldinn og snjórinn – og bannsettur vindurinn. Hann smýgur gegnum allt. Íslenska veðrið er ófyrirsjáanlegt og það getur verið hættulegt, eins og dæmin sanna. Margir erlendir ferða- menn vanmeta höfuðskepnurnar hér um slóð- ir. Það er ekki bara hálkan á vegunum, heldur ekki síður öldurnar við ströndina sem svipta fólki á haf út með sér.“ Hedberg á auðvelt með að skilja vaxandi áhuga ferðamanna á Íslandi; landið sé afar sér- stakt, því hafi hann kynnst á fjölmörgum ferðalögum, eins og þegar hann fylgdist með háhyrningunum skríða inn Kolgrafafjörðinn til að gæða sér á grunlausri síldinni. „Ég er ákaf- lega þakklátur fyrir þennan tíma hérna á Ís- landi; bæði landi og þjóð. Við hjónin höfum eignast marga góða vini og eigum örugglega eftir að snúa aftur til að heimsækja þá í fram- tíðinni.“ ’ Flestir koma hingað tilað njóta óspilltrar náttúr-unnar og ef maður fær ekkilengur bílastæði við Dettifoss hefur þetta snúist upp í and- hverfu sína. Ekki satt? Fjölgun ferðamanna áhyggjuefni Hedberg hefur líka kynnt sér hugmyndir um sæstreng frá Íslandi til Evrópu og segir þær áhugaverðar frá sjónarhóli Svía. „Ég veit að þetta er umdeilt mál enda þyrfti að fjölga hér virkjunum og engar ákvarðanir hafa verið teknar en ef til þess kæmi myndi sænskur iðn- aður án efa sýna málinu áhuga. Ég veit hins vegar að margir Íslendingar, með Björk í broddi fylkingar, vilja ekki virkja meira en orðið er nú þegar og að sjálfsögðu þarf að taka þau sjónarmið með í reikninginn. Þá veit ég að sumir óttast að orkuverð gæti rokið upp ef þið yrðuð partur af stærra orkuneti. Að mörgu er að hyggja.“ Sendiherrann fylgist bersýnilega vel með fréttum og ör fjölgun ferðamanna hér á landi á óvenjulega skömmum tíma hefur ekki farið framhjá honum. Hedberg geldur varhug við þeirri þróun. „Í ykkar sporum hefði ég áhyggj- ur. Flestir koma hingað til að njóta óspilltrar náttúrunnar og ef maður fær ekki lengur bíla- stæði við Dettifoss hefur þetta snúist upp í andhverfu sína. Ekki satt? Þurfi maður að bíða í langri röð til að snæða hádegisverð á Geysi er mesti sjarminn farinn af heimsókn af þessu tagi. Það sem ég á við er þetta: Það er erfitt að njóta óspilltrar náttúrunnar ef ekki verður þverfótað fyrir fólki.“ Partur af þessari þróun er að skemmti- ferðaskipum fjölgar jafnt og þétt við Íslands- strendur. Hedberg segir það umhugsunarefni. „Íslenska Landhelgisgæslan er gríðarlega fag- leg og vel skipulögð en hún býr aðeins að þremur þyrlum. Hvað ætla menn að taka til bragðs ef skip með tvö til þrjú þúsund farþega sekkur?“ Ísland orðið mjög dýrt „Ísland hefur líklega aldrei verið ódýrt land að ferðast til en núna er það orðið mjög dýrt. Ég held að íslenska krónan hafi styrkst um 30% gagnvart þeirri sænsku síðan ég kom hingað, mest á síðustu átján mánuðum. Nú þegar gjaldeyrishöftin eru úr sögunni virðist krónan ætla að ná einhverju jafnvægi en hún er eftir sem áður óþægileg sterk skv. útflutningsgrein- unum. Ég heyri að margir hafa áhyggjur af þessu og það er svo sem skiljanlegt. Ísland er mjög dýrt land og hvað reiðhjól og bíla varðar þá eru varahlutir í þessi tæki svakalega dýrir. Það hef ég reynt á eigin skinni.“ Samtal okkar fer fram á ensku, eins og hefur orðið algengt þegar Norðurlandabúar stinga saman nefjum. Hedberg kveðst ekki hafa haft þolinmæði til að læra íslensku enda sé málið erfiðara en hann hafði gert sér í hugarlund, jafnvel fyrir Svía. „Íslenskan er býsna flókin; sum orð eru eins og í sænsku en önnur allt öðruvísi og með öllu óskiljanleg. Íslenskan er mun ólíkari sænskunni en bæði norskan og danskan. Sú staða er raunar komin upp að oft er töluð enska á norrænum samráðsfundum þó svo að Íslendingar læri dönsku, en til dæmis Svíar og Finnar eiga erfitt með að skilja hana. Hjólreiðar eru lífsstíll hjá Bosse Hedberg. Hann er með þrjú hjól til umráða hér á landi en á fjölmörg til viðbótar heima í Svíþjóð. 30.4. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.