Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.4. 2017
MATUR
Ég hef alltaf verið mikið íítalskri matargerð en núsækjum við áhrifin víðar, til
Miðjarðarhafsins og jafnvel alveg
niður til Marokkó, líka í kryddum.
Við leggjum áherslu á að velja vand-
að og gott hráefni og erum ein-
staklega einföld í samsetningunni.
Látum hráefnið njóta sín, þetta er
hrátt, gróft og einfalt. Það er svolítið
í takt við húsið. Allt það besta er
bara einfalt,“ segir Leifur Kolbeins-
son, yfirkokkur og eigandi Marshall
Restaurant sem var opnaður í mars í
Marshall-húsinu. „Við tengjum okk-
ur svolítið við húsið en hér er Kling
og Bang, Nýlistasafnið og Ólafur
Elíasson.“
Uppskriftin er
hernaðarleyndarmál
Talið berst að osatakökunni sem
bráðnar ljúflega í munni blaða-
manns. Hún er upprunnin frá litlum
veitingastað í San Sebastian á Spáni.
Leifur talar um San Sebastian með
blik í auga og segir bæinn himnaríki
fyrir matgæðinga. Þar má finna 150
veitingastaði á litlu svæði og er unun
að rölta þar á milli og smakka. Oftar
en ekki endaði kvöldið hjá Leifi á La
Vina til að smakka hina víðfrægu
ostaköku.
„Þessi ostakaka er heiðarlega
Morgunblaðið/Ásdís
„Allt það
besta er
einfalt“
’Við leggjum áherslu á að velja vandað oggott hráefni og erum einstaklega einföld ísamsetningunni. Látum hráefnið njóta sín,þetta er hrátt, gróft og einfalt. Það er svolítið í
takt við húsið. Allt það besta er bara einfalt.
Marshall Restaurant er nýr veitingastaður í Mar-
shall-húsinu á Granda. Sótt er suður til Miðjarðar-
hafsins í matargerðinni. Einfaldleikinn er í fyrir-
rúmi hjá Leifi Kolbeinssyni matreiðslumeistara.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
„Þessi ostakaka er
heiðarlega stolin frá
veitingastaðnum,
þannig að ég skírði
hana La Vina. Fólk er
dásamlega hrifið af
henni, hún er dálítið
sérkennileg,“ segir
Leifur Kolbeinsson
um Marshall-kökuna.
Grandalanda-límonaði
Fyrir eitt glas
heimagert sítrussíróp, gert úr sítrónu, lime,
appelsínu og blóðappelsínu.
4,5 cl Grandalandi
1,5 cl Campari
6 cl síróp
4 cl ferskur blóðappelsínusafi
sódavatn
Angostura Bitter
Blandið saman sírópi, Grandalanda, Campari og bló-
ðappelsínusafa í ískalt 40 cl „highball“-glas.
Fyllið svo glasið með klaka, toppið með sódavatni og
hrærið saman. Svettið smá Angostura Bitter í glasið.
Skreytið með sítrusávöxtum eftir smekk, myntu og
kokteilberi.