Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Qupperneq 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.04.2017, Qupperneq 48
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 2017 Arctic er nýjasta kvikmynd danska stórleikarans Mads Mikk- elsen en tökur fóru fram hér á landi og er þeim tökum nýlokið að því er kvikmyndavefurinn Klapptré greindi frá í síðustu viku. Pegasus og Einar Þorsteinsson kvikmyndagerðarmaður eru meðal framleiðenda en brasilíski kvikmyndagerðarmaðurinn Joe Penna leikstýrir og er annar handritshöfunda. Penna hefur verið duglegur að tísta og birta myndir í tengslum við Íslands- dvölina en á Twitter lýsti hann því að við tökur hefði hann klæðst fimm lögum af fatnaði en það hefði samt ekki verið nóg en tökur fóru fram við Nesjavelli og á miðju hálendinu við Fells- endavatn. Þá virðist hann eitthvað hafa verið að spreyta sig við íslenskunám á netinu en hann skrifaði: „Icelandic is fljótlegt og þægilegt tô learn!“ Arctic fjallar um hrakfarir manns á norð- urheimskautinu sem Mikkelsen leikur sem þarf að bjarga sér eftir að björgunarleiðangur mistekst. Fimm lög dugðu ekki Joe Penna er einnig þekkt Youtube-stjarna en þar gengur hann undir nafninu MysteryGuitarMan. Tökuliði Arctic var kalt við tökur hér á landi, í það minnsta leikstjóranum. Mads Mikkelsen er stjarna kvikmyndarinnar Arctic sem var meðal annars tekin upp á hálendi Íslands. ,,Það er ekkert efamál, að vjer Íslendingar værum eigi komnir svo langt í sundi og sundafrekum, ef sundfjelagið Ægir hefði eigi verið, því Ægir hefir vilj- að gagnmenta sundmenn sína og tekist það betur en nokkru öðru sundfjelagi, sem mjer er kunnugt.“ Þessi orð hafði Morgunblaðið eftir Benedikt G. Waage, forseta Íþróttasambands Íslands, í lok apríl 1937 en tilefnið var tíu ára afmæli sundfélagsins Æg- is sem blaðið sló upp með veglegum hætti. Blaðið ræddi einnig við Eirík Magnússon bók- bindara, sem gegnt hafði starfi formanns Ægis frá upphafi, og sagði hann félagið hafa verið stofnað vegna þess að mönnum þótti sundlistin hafa verið í svo mikilli niðurlægingu. „Sundmót virtust helst haldin til að afla íþróttafjelögunum stigafjölda á íþróttamótum,“ sagði Eiríkur og bar að auki lof á Jón Pálsson sundkennara sem var prímusmótor í starfi Ægis á fyrstu árum félagsins. Spurður um markmið félagsins var Eiríkur skjót- ur til svars. „Meiri fullkomnun og hraði.“ GAMLA FRÉTTIN Meiri fullkomnun og hraði Jónas Halldórsson var fremstur meðal jafningja í Ægi á fyrstu árunum og hafði sett 24 íslensk sundmet 1937. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Karl Filip Svíaprins Arnmundur Ernst Backman leikari Orlando Bloom leikari ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 LAUGARDAG, SUNNUDAG &MÁNUDAG 25% AF ÖLLUM VÖRUM OPIÐ 1. MAÍ 12-18 GOCRAZY

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.