Morgunblaðið - 22.05.2017, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MAÍ 2017
COSTA DEL SOL
28. maí í 7 nætur
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
BÓKAÐU SÓL Á
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TI
Stökktu
frá kr.
52.995
2fyrir1
m/gistingu
48.670
Aguamarina
Allt að
39.950kr.
afsláttur á mann
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Íslenska heilbrigðiskerfið lendir í öðru
sæti þegar mælt er aðgengi og gæði
heilbrigðiskerfa heimsins. Þetta kem-
ur fram í umfangsmikilli rannsókn sem
birt er í The Lancet, einu virtasta og
elsta læknatímariti heims.
Um er að ræða útreikning á heil-
brigðisvísitölu (e. healthcare access
and quality index) sem er reiknuð út
frá aðgengi og gæðum heilbrigðis-
þjónustu með tilliti til dánartíðni af
viðráðanlegum sjúkdómum. Rann-
sóknin tekur til 195 landa og skoðaðar
eru upplýsingar frá árunum 1990 til
2015.
Heilbrigðisvísitala Íslands reiknast
sem 94 af 100 mögulegum og er það
rétt á eftir Andorra sem trónir á
toppnum með 95 af 100. Sviss er í
þriðja sæti með 92 og Noregur og Sví-
þjóð saman í fjórða með 90 stig.
Jákvæð niðurstaða fyrir Ísland
„Þetta er náttúrulega jákvæð niður-
staða fyrir okkur og við erum ennþá
þarna með efstu löndum með frændum
almennt hefur batnað. Það stendur
náttúrlega, eins og við var að búast og
við höfum þekkt lengi, að við Íslend-
ingar stöndum mjög framarlega og heil-
brigðisvísitalan okkar er mjög góð á
mörgum sviðum,“ segir Reynir. Hann
segir heilbrigðisvísitöluna reiknast að
mörgu leyti eftir aðgengi að þjónust-
unni sjálfri og meðferðarúrræðum.
„Þetta er ákveðinn mælikvarði á hversu
auðvelt aðgengi fólk á að þjónustunni og
hversu gott aðgengi er að þeim með-
ferðarúrræðum sem er í boði.“
Sjúkdómabyrði á heimsvísu
Rannsóknin tekur til dánartíðni af
völdum viðráðanlegra sjúkdóma og er
einnig reiknuð með sjúkdómabyrði á
heimsvísu í huga.
„Það er líka verið að fjalla um sjúk-
dómabyrði og við sjáum í þeim sam-
anburði að auðvitað hrjá mismunandi
sjúkdómar mismunandi lönd. Þannig
eru vandamálin hér á Íslandi allt önnur
en þau eru í sumum löndum í Afríku.
Sjúkdómarnir eru öðruvísi þar. Þau eru
til dæmis að glíma við ákveðnar sýk-
ingar, nokkuð sem við glímdum við fyrir
áratugum.“
okkar í Skandinavíu og Evrópu,“ segir
Reynir Arngrímsson, formaður lækna-
ráðs. „Það er verið að mæla hvað hefur
breyst frá árinu 1990 og hvernig þró-
unin hefur verið. Hvort læknisþjónusta
Íslenska heilbrigðiskerfið í 2. sæti
Ísland er í öðru sæti í umfangsmikilli rannsókn á heilbrigðiskerfum heimsins Niðurstöðurnar birtar í
læknatímaritinu The Lancet Aðgengi að þjónustu og meðferðarúrræðum meðal þess sem var skoðað
Morgunblaðið/Ómar
Hringbraut Rannsóknin tekur til 195 landa og eru skoðaðar tölur frá 1990
til 2015. Ísland og Andorra voru einnig meðal efstu landa árið 1990.
Heilbrigðisvísitalan (HAQ
index)
» Reiknast á skalanum 0-100
» Heilbrigðisvísitala Íslands er
94 og er í Ísland í öðru sæti.
» Andorra í efsta sæti með
heilbrigðisvísitöluna 95
» Danmörk er neðst Norður-
landanna með heilbrigðisvísitöl-
una 86 og situr í 24. sæti.
» Mið-Afríkulýðveldið er í
neðsta sæti, með vísitöluna 29.
Hann var tignarlegur flórgoðinn sem gæddi sér á horn-
síli á Mývatni. Höfuð þessa sérstæða fugls er stórt og
svartgljáandi og ganga stórir, gulir fjaðrabrúskar aft-
ur frá augum en þeir minnka þegar líður á sumarið.
Morgunblaðið/Bogi Þór Arason
Tignarlegur á sundi á Mývatni
Flórgoði gæðir sér á síli
Ofn kísilverk-
smiðju United
Silicon hf. í
Helguvík var
gangsettur í gær
klukkan 16 að
sögn Kristleifs
Andréssonar,
framkvæmda-
stjóra öryggis-
og umhverf-
ismála hjá fyr-
irtækinu.
„Búið er að gera yfir þrjátíu lag-
færingar og endurbætur á verk-
smiðjunni. Mælistöðvar hafa verið
settar upp bæði í verksmiðjunni og í
bænum. Það verður því fylgst náið
með gangi mála,“ segir Kristleifur.
Sigrún Ágústsdóttir, sviðstjóri á
Umhverfisstofnun, sagði í samtali
við mbl.is að þær breytingar sem
gerðar hefðu verið á verksmiðjunni
ættu meðal annars að skila sér í því
að óæskilegar lofttegundir eyddust
frekar en að skila sér út í andrúms-
loftið.
Ofninn hefur ekki verið í gangi
frá því að eldur kom upp í kís-
ilmálmverksmiðjunni þriðjudaginn
18. apríl.
Ofn United
Silicon
gangsettur
Verksmiðja
United Silicon.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Þorbjörn Jónsson, formaður
Læknafélags Íslands, segir grein-
ingu Samtaka atvinnulífsins (SA) á
launum lækna hérlendis, sem birt
var í Morgunblaðinu á laugardag,
gefa skakka mynd af raunveruleik-
anum. Samkvæmt henni eru læknar
á Íslandi með 30% hærri regluleg
heildarlaun en læknar á Norður-
löndunum.
„Við teljum að þetta gefi ekki
rétta mynd. Svona samanburður er
alltaf erfiður, sérstaklega vegna
vinnutíma og hvernig launakerfi eru
byggð upp,“ segir Þorbjörn.
Hann segir nauðsynlegt að taka
aldur lækna með inn í reikninginn,
en ungir íslenskir læknar starfi
flestir erlendis og meðalaldur lækna
hérlendis sé almennt hærri en ann-
ars staðar. „Það sem er örugglega
ekki tekið inn í samanburð SA er að
framhaldsnám lækna er og hefur
verið að mestu leyti erlendis. Okkar
vantar á Íslandi reynda yngri
lækna. Þeir koma þá ekki inn í
þennan samanburð, sem er fjöl-
mennur hópur. Þetta leiðir til þess
að meðalaldur lækna á Íslandi er al-
mennt hærri og eldri læknar eru
með hærri laun en yngri.“
Þorbjörn tekur einnig fram að
styrking krónunnar hafi mikil áhrif
á samanburð launa við erlend ríki
og þá ekki bara hjá læknum heldur
öðrum stéttum eins og hjá hjúkr-
unarfræðingum.
Styttri vinnuvika í Skandinavíu
Hann segir að vinnufyrirkomu-
lag, hvað varðar vaktavinnu og
fjölda vinnutíma í viku, hafi mikil
áhrif á niðurstöðurnar. „Í hinum
Norðurlandaríkjunum eru greiðslur
lækna fyrir vaktavinnu teknar út í
vaktafríum en hérlendis eru vakt-
irnar greiddar í peningum. Það
veldur auðvitað líka hærri launum
og svo er vinnuvikan styttri í
Skandinavíu,“ segir Þorbjörn, sem
starfaði um árabil sem læknir í
Noregi.
„Ég get vísað í eigin reynslu, en
þegar ég var að vinna í Noregi var
vaktavinnan 35,5 tímar á viku en
hún er 40 tímar hér óháð því hvort
teknar vaktir eða ekki. Það þarf
alltaf að skila 40 tíma dagvinnu.
Þannig er það ekki í Noregi.“
Laun lækna ekki sambærileg
Formaður
Læknafélagsins segir
samanburð erfiðan
Morgunblaðið/Golli
Læknar Á Íslandi voru 292 íbúar á
hvern lækni í fyrra en 208 í Noregi.
„Ég þekki ekkert til þessa upp-
gjörs, hvorki gagnvart Ólafi eða
öðrum. Þá hafði ég aldrei heyrt
þetta fyrirtæki nefnt fyrr en ég sá
það í skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis,“ segir Bjarki Diego, sem
starfaði sem lögfræðingur hjá
Kaupþingi þegar Búnaðarbankinn
var keyptur af S-hópnum, spurður
um félagið Dekhill og uppgjör af
hagnaði í tengslum við söluna á
Búnaðarbankanum. Ólafur Ólafsson
sagðist ekkert kannast við félagið, í
viðtali við Kastljós, en vísaði á
stjórnendur Kaupþings.
„Það væri helst Hreiðar eða Sig-
urður sem gætu svarað fyrir þetta,
geri ég ráð fyrir,“ segir Bjarki og
vísar til Hreiðars Más Sigurðs-
sonar, fyrrverandi forstjóra Kaup-
þings, og Sigurðar Einarssonar,
fyrrverandi stjórnarformanns
Kaupþings.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir síð-
ustu daga hefur Morgunblaðið
hvorki náð í Hreiðar Má né Sigurð
Einarsson.
Ekki næst í
Kaupþings-
menn
Enn óljóst hver á
félagið Dekhill