Morgunblaðið - 22.05.2017, Síða 12

Morgunblaðið - 22.05.2017, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MAÍ 2017 Alvöru bónstöð þar sem bíllinn er þrifinn að innan sem utan, allt eftir þínum þörfum. Frábær þjónusta – vönduð vinnubrögð. Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is Bónstöð opin virka daga frá 8-19, Alþrif verð frá 14.500,- (lítill fólksbíll) Bónstöð Pantið tíma í síma577 4700 Spilastund verður haldin í Borgar- bókasafninu, Menningarhúsi Gróf- inni, kl. 15.30-18.30 í dag, mánudag 22. maí. Þar verður hægt að taka þátt í kotrukeppni, sem sumir kalla back- gammon að enskum hætti. Eða fólk getur komið með eigin spil og notið þess að spila við gamla eða nýja spilavini í notalegu umhverfi bóka- safnsins. Viðburðurinn er haldinn í samvinnu við Mannréttindaskrifstofu Íslands og Rauða krossinn. Heitt verður á könnunni og brauð og kökur í boði. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Borgarbókasafnið Grófinni Kotra Tveggja manna tafl, leikið á fjórskiptu borði með oddlaga reitum. Kotrukeppni og borðspil fyrir alla Meðal margra sjálfboðaliða Rauða krossins eru heimsóknavinir um allt land. Hlutverk þeirra er m.a. að rjúfa einsemd og einangrun fólks sem af einhverjum ástæðum hefur misst samband við aðra, eða á ekki heim- angengt. Nú er þörf á fleiri og því heldur Rauði krossinn heimsóknavina- námskeið kl. 17.30-19.30 í dag, mánudag 22. maí, fyrir verðandi heimsóknavini í húsakynnum Rauða krossins í Hafnarfirði og Garðabæ. Endilega … … farið í heimsóknir Skráning: www.raudikrossinn.is Carlo Petrini, formaður og stofnandi Slow Food-samtakanna, heldur erindi í sal 101 á Háskólatorgi í Háskóla Ís- lands kl. 13.30 á morgun, þriðjudag- inn 23. maí. Tildrög stofnunar sam- takanna voru þau að á níunda áratug síðustu aldar gekk Petrini eins og svo margir aðr- ir um Róm og kom við á torginu við Spænsku tröpp- urnar, þar sem nýbúið var að opna McDonald’s veitingastað. Blaðamanninum og sælkeranum Petrini þótti þessi alþjóðlegi skyndi- bitastaður (fast food) einfaldlega vera móðgun við landið og ríkjandi hefðir. Hann gerði sér lítið fyrir og kallaði saman hóp fólks sem var sama sinnis og til að sýna andstöðu við heims- væðingu Fast Food hægelduðu þau kássu á heitum marmaranum á tröppunum. Í framhaldinu voru Slow Food-samtökin stofnuð, en þau eru nú orðin alþjóðleg samtök í 160 lönd- um. Petrini hefur oft fengið viðurkenn- ingu fyrir störf sín. Hann var valinn hetja Evrópu hjá Time Magazine 2004 og einn af þeim 50 ein- staklingum sem gætu bjargað heim- inum í The Guardian 2008. Petrini var gerður að heiðurs- doktor í Aberdeen University og há- skólar víða um heim hafa tekið undir mikilvægi boðskapar samtakanna, m.a. á Íslandi. Einkunnarorð Slow Food-samtakanna eru góður, hreinn og sanngjarn matur og leggja þau áherslu á að það séu mannréttindi en ekki forréttindi að borða heilnæman og góðan mat. Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis. Formaður og stofnandi Slow Food-samtakanna heldur erindi Mannréttindi en ekki forréttindi að borða hollan og góðan mat www.facebook.com/ events/1899902516959903/ Carlo Petrini Ljósmynd/Wikipedia Róm Spænsku tröppurnar í Róm. Guðrún Erlingsdóttir gue32@hi.is FRIÐRIK ÚLFAR Friðrik Úlfar Ingimarsson, nemandi á Listnámsbraut, hefur alltaf haft áhuga á grafískri hönnun. Valið var auðvelt þegar kom að því að velja framhaldsskóla utan heima- byggðar. „Ég var búinn að skoða marga skóla. Verklegt nám hentar mér betur og ég er þakklátur að ég valdi grafíska hönnun í Borgarholts- skóla. Ég hef alltaf haft áhuga á grafískri hönnun. Mér finnst hún skapandi og gefa fjölbreytta mögu- leika þegar hún er unnin í tölvu.“ Hrísey er heimabyggð Friðriks, sem gekk í Hríseyjarskóla. Hrísey er að sögn Friðriks frumkvöðull þegar kemur að umhverfismálum. „Sveitarfélagið var frumkvöðull á Ís- landi í flokkun á rusli og lagði mikla áherslu á umhverfismál. Skólinn tengdi það mörgum fögum, til dæm- is náttúrufræði. Í skólanum fékk ég áhuga á umhverfismálum.“ Áhyggjur af framtíðinni Fjórar grafíkmyndir í seríu mynda verk Friðriks, sem heitir Framtíðin. „Umhverfismál eru mitt hjartans mál. Ég hef mikinn áhuga á þeim en líka miklar áhyggjur. Mig langar að leggja mitt af mörkum til betri framtíðar.“ Friðrik vinnur verk sín í Illustration. Hann teiknar upp viðfangsefnin og setur þau svo saman, þannig að úr verði grafík- listaverk með boðskap. „Ég útskrifast næsta haust og langar til þess að vinna sem graf- ískur hönnuður. Stofna mitt eigið fyrirtæki með umhverfisvænar vörur og bæta umhverfið. Það er samt ekkert meitlað í stein varðandi framtíðina. Verkið mitt er hrein og klár ádeila. Það er aðallega gagnrýni á Ísland sjálft. Ísland er framarlega að mörgu leyti á heimsvísu tengt náttúruvernd og fleiru.“ „Skilaboð mín með verkunum eru í raun einföld. Viltu að framtíðin verði svona? Hvernig viltu að fram- tíðin verði? Ungt fólk hefur miklar áhyggjur af framtíðinni. Alla vega þeir sem ég þekki þó svo að kann- anir segi annað.“ Peningagræðgi rótin að öllu Friðrik segir kynslóðamun vera varðandi umhverfismál. „Unga kyn- slóðin er miklu opnari og hefur meiri áhyggjur af umhverfismálum al- mennt en eldri kynslóðin. Ástæðan fyrir því hvernig komið er fyrir okk- ur í umhverfismálum er peninga- græðgin. Hún er rótin að öllu,“ segir Friðrik og hvetur alla til þess að leggja sitt af mörkum eins og þeir best geta. Bæði sjálfir og í gegnum listina. GUÐRÚN HELENA Guðrún Helena útskrifast úr Borgarholtsskóla í vor. Hún er á Listnámsbraut í grafískri hönnun. „Mig hefur alltaf langað til að verða grafískur hönnuður. Ég flutti til Danmerkur þegar ég var þrettán ára. Í grunnskólanum var okkur kennt alveg ótrúlega vel hvað aug- lýsingar eru. Eftir að ég kynntist þessum heimi fann ég leiðina til þess að tjá list mína með þessu listformi.“ Guðrún er ánægð með námið í Borgarholtsskóla. „Ég gæti ekki verið ánægðari með að hafa valið skólann. Ég er ánægð með kennsl- una og kennarana, sem allir hafa verið æðislegir, ekki einn slæmur kennari.“ Guðrún hefur alltaf haft áhuga á listum. „Meðan aðrir voru í fót- bolta var ég á myndlistarnám- skeiðum. Grafík er mjög áhugaverð. Í rauninni er grafísk hönnun úti um allt. Á auglýsingaskiltum, umferðar- skiltum og bara alls staðar.“ Galdrar í grafískri hönnun Guðrún segir einhverja galdra felast í því að vinna í tölvu. Það kom henni ekki á óvart að hægt væri að sinna listinni í tölvunni. „Það kemur mörgum á óvart sem líta ekki á graf- íska hönnun sem listform. Ég er oft spurð hvort ég sé að læra að hanna bæklinga. Grafísk hönnun er miklu meira en það. Það er hægt að gera listaverk með pensli og striga alveg eins og það er hægt að gera listaverk í tölvu.“ „Ég myndi mæla með þessu fyrir alla. Þetta nám hefur nýst mér ótrúlega vel, ekki bara sem grafísk hönnun heldur hef ég þurft að standa fyrir framan fullt af fólki og útskýra fyrir því verk mín. Námið hefur aukið sjálfstraust mitt í því að koma fram og rökstyðja það sem ég er að gera.“ Verk Guðrúnar samanstendur af þremur ljósmyndum. Verkið er framhald af fyrra verkefni Guð- rúnar. „Mig langaði að setja út á Ungir grafíklistamenn með skýr skilaboð til þjóðarinnar Lokasýning Listnámsbrautar Borgarholtsskóla í grafískri hönnun stendur nú yfir á Borgarbókasafninu – Menningarhúsi, Spönginni. Fjórtán útskriftarnemar sýna verk sín. Á listnámsbraut Borgarholtsskóla er leik- listardeild og kvikmyndadeild ásamt grafískri hönnun. Listaverkin eru fjölbreytt og mörg hver með skýran pólitískan boðskap. Friðrik Úlfar Ingimarsson og Guðrún Helena eiga verk á sýningunni. Þau voru tekin tali ásamt Kristínu Maríu Ingimarsdóttir, kennara við Listnámsbraut Borgarholtsskóla. Morgunblaðið/Hanna Framtíðin Grafíklistaverk Friðriks Úlfars eru með skýran boðskap. Mynd- irnar eru gagnrýni á umhverfisstefnu Íslands og afleiðingar hlýnunar jarðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.