Morgunblaðið - 22.05.2017, Page 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MAÍ 2017
Líkamsrækt Margir gera sér ferð í Nauthólsvík, flestir leggja þar rækt við sál og líkama, bera sig að við æfingarnar hver með sínum hætti og láta ekkert hindra sig í ræktinni.
Eggert
Tæplega þrjú hundr-
uð manns sóttu vel
heppnað Reykjavík-
urþing Varðar, Full-
trúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í
Reykjavík, sem haldið
var um helgina. Þingið
sótti sjálfstæðisfólk á
öllum aldri og úr öllum
hverfum borgarinnar
til að ræða borgarmál,
vinna að stefnumótun
og styrkja tengslin sín á milli.
Á þinginu komu fram fjölmargar
hugmyndir, stórar sem smáar, sem
allar miða að því að bæta mannlíf í
Reykjavík með einhverjum hætti.
Einnig var farið yfir stöðuna í hinum
ýmsu málaflokkum borgarinnar og
rætt um hvernig standa megi betur
að rekstri þeirra. Málefnanefndir
unnu að ályktunum sem síðan voru
bornar upp og samþykktar á
þinginu.
Var ómetanlegt fyrir okkur borg-
arfulltrúa að taka þátt í störfum
Reykjavíkurþingsins og skiptast þar
á skoðunum við fjölda fólks sem
gjörþekkir aðstæður í sínum hverf-
um og veit hvernig bæta má þjón-
ustu og rekstur Reykjavíkurborgar.
Vil ég þakka öllum þeim sem sóttu
Reykjavíkurþingið og tóku þátt í
störfum þess. Sérstaklega vil ég
þakka hinum stóra
hópi sjálfboðaliða úr
sjálfstæðisfélögunum
sem lögðu af mörkum
mikið starf í sjálfboða-
vinnu til að gera þetta
glæsilega þing að veru-
leika.
Reykjavíkurþingið
var glæsileg byrjun á
baráttu Sjálfstæð-
isflokksins fyrir borg-
arstjórnarkosningar,
sem fara fram eftir eitt
ár, 26. maí 2018. Nú
verður fjallað um
nokkrar ályktanir þingsins en með
þeim hafa línur verið lagðar að
stefnuskrá flokksins fyrir kosning-
arnar.
Reykjavík á að vera fyrsti kostur
fyrir alla þá sem vilja búa á höf-
uðborgarsvæðinu.
Sjálfstæðisflokkurinn vill að út-
svar verði lækkað í áföngum og verði
komið niður fyrir meðalútsvar á
landsvísu á næsta kjörtímabili.
Reykjavíkurborg skal tryggja
nægjanlegt framboð af lóðum til
sölu. Sjálfstæðisflokkurinn vill að
byggingarréttargjald verði fellt nið-
ur. Lóðir í nýbyggingarhverfum skal
selja á kostnaðarverði.
Með auknum íbúafjölda aukast út-
svarstekjur sem gerir borgina betur
í stakk búna til að sinna grunnþjón-
ustu.
Lagt er til að öllum leigulóðum
íbúðarhúsnæðis verði afsalað til eig-
enda húsnæðis þess sem á lóðunum
stendur.
Sjálfstæðisflokkurinn er fylgjandi
því að afnumin verði sú lagakvöð
sem síðasta vinstri stjórn setti á
Reykjavíkurborg að fjölga borg-
arfulltrúum úr 15 í a.m.k. 23 við
næstu borgarstjórnarkosningar, í
maí 2018.
Sjálfstæðisflokkurinn vill taf-
arlaust endurskoða núgildandi að-
alskipulag Reykjavíkur. Að-
alskipulagið þarfnast betra
jafnvægis í þéttingu byggðar og
nýrra byggingarsvæða.
Samfara áframhaldandi þéttingu
byggðar skal leggja áherslu á nýt-
ingu byggingarlands austan Elliða-
áa. Fullt tillit skal tekið til lífsgæða
íbúa og umhverfis.
Sjálfstæðisflokkurinn telur mik-
ilvægt að standa vörð um græn og
opin svæði í borginni og hlúa að nátt-
úruperlum, svo sem Elliðaárdal,
Laugardal, Öskjuhlíð og svæðinu í
kringum Reynisvatn.
Reykjavíkurflugvöllur verði í
Vatnsmýrinni í aðalskipulagi í
óskertri mynd. Staðsetningu flug-
vallarins verði ekki breytt nema
annar betri kostur bjóðist.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi
lagt áherslu á mikilvægi góðra sam-
gangna í borginni, hvort heldur sem
um er að ræða hjólreiðar, gangandi
vegfarendur, almenningssam-
göngur, leigubíla eða einkabíla. Góð-
ar samgöngur eru undirstaða nú-
tíma lífshátta. Undanfarna áratugi
hefur þessum málum hins vegar
ekki verið sinnt sem skyldi í Reykja-
vík.
Öryggi í umferðarmálum hefur
vikið fyrir gæluverkefnum. Nauð-
synlegt er að forgangsraða í þágu
viðhalds og uppbyggingar á vega-
kerfi höfuðborgarinnar með öryggi
að leiðarljósi. Meðal brýnna sam-
gönguverkefna má nefna Sunda-
braut, bætt umferðarflæði Miklu-
brautar og tengingar við önnur
sveitarfélög.
Örar tæknibreytingar munu setja
mark sitt á samgöngur framtíð-
arinnar og þarf skipulag að taka tillit
til þess.
Stefna Sjálfstæðisflokksins í
skólamálum byggist á því að allir
nemendur hafi aðgang að námi sem
hentar hverjum og einum.
Hagsmunir nemenda skulu ávallt
vera miðpunktur stefnumörkunar og
framkvæmda í skólum borgarinnar.
Lögð verði áhersla á að auka fjöl-
breytni í skólastarfi og fjölga val-
kostum í námsleiðum og rekstr-
arformi skóla. Áhersla verði færð frá
miðstýringu í átt að auknu sjálfstæði
og sveigjanleika í skólastarfi.
Efla þarf tengsl skóla og atvinnu-
lífs. Lögð verði áhersla á að kynna
tækni- og iðngreinar fyrir börnum
til að fleiri nemendur skili sér í iðn-
og tækninám.
Meginviðfangsefni skólastarfs er
aukinn námsárangur og framfarir í
námi og kennslu. Til að meta þann
árangur þarf reglubundnar mæl-
ingar og viðmið sem öllum eiga að
vera aðgengileg. Auka þarf gagnsæi
í árangursmælingum. Tryggja þarf
aðgengi allra skóla að viðeigandi og
stöðluðum skimunar- og mælitækj-
um.
Gera þarf átak í endurbótum og
viðhaldi á skólahúsnæði, sem víða er
í slæmu ásigkomulagi vegna langrar
vanhirðu. Sömuleiðis þarf að lag-
færa og bæta skólalóðir og skóla-
umhverfi.
Hér hefur einungis verið tæpt á
nokkrum atriðum en í framhaldinu
verður gerð grein fyrir fleiri góðum
ályktunum sem samþykktar voru á
hinu glæsilega Reykjavíkurþingi um
helgina.
Eftir Kjartan
Magnússon » Tæplega 300 manns
sóttu Reykjavík-
urþingið og mótuðu
stefnu í borgarmálum.
Þingið var glæsileg
byrjun á baráttu fyrir
borgarstjórnarkosning-
arnar 2018.
Kjartan
Magnússon
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
kjartan@reykjavik.is
Glæsilegt Reykjavíkurþing