Morgunblaðið - 22.05.2017, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 22.05.2017, Qupperneq 27
MENNING 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MAÍ 2017 Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Atli Örvarsson tónskáld hlutu ný- verið Nýsköpunarverðlaun Akur- eyrar árið 2017 fyrir frumkvöðla- starf í upptökum á kvikmynda- tónlist í Menningarhúsinu Hofi og sköpun nýrra tækifæra fyrir tón- listarfólk. „Þegar Sinfóníuhljómsveit Norð- urlands starfar sjálfstætt og utan styrkja kallar hún sig SinfoniaNord og hefur undir þessu nafni eflst sem miðstöð þekkingar á við- burðum á Íslandi þar sem sinfónísk tónlist kemur við sögu,“ sagði m.a. í ávarpi sem Unnar Jónsson, for- maður stjórnar Akureyrarstofu, las upp þegar viðurkenningin var veitt. „Upptökustarfsemi Sinfóníu- hljómsveitar Norðurlands felur í sér möguleika á að gjörbreyta stöðu og tækifærum hljóðfæraleik- ara á Norðurlandi og víðar. Þetta gefur atvinnutónlistarmönnum tækifæri til að kenna í hlutastöðu en starfa hjá SN á móti. Gangi þetta allt saman eftir eru góðar lík- ur á að starfsemin verði segull á hæfileikafólk af landinu öllu til bú- setu á Norðurlandi. Upptaka á tón- list fyrir erlendar og innlendar kvikmyndir er í raun útflutningur á hæfileikum og kunnáttu tónlistar- fólks hér fyrir norðan.“ Gleðistund Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, framkvæmdastjóri SN, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra og Unnar Jónsson stjórnarformaður. Frumkvöðlastarf í upptökum verðlaunað Danski leikarinn Mikkel Boe Følsgaard (sem flestir kannast við sem Emil í sjónvarpsþáttunum Erf- ingjarnir) mun túlka Hamlet í bresku kvikmyndinni Hamlet Re- venant sem byggist á leikriti Shakespeare. Fjallað er um málið í Politiken, en greint var frá áform- unum á kvikmyndahátíðinni í Can- nes sem hófst í seinustu viku. Leikstjóri myndarinnar er Ken McMullen og meðal leikara eru Ian McKellen, Gabriel Byrne, Lambert Wilson og Connie Nielsen, en með hlutverk Ófelíu fer Maria Boda. Óhætt er að segja að Mikkel Boe Følsgaard hafi vakið athygli al- þjóðlega kvikmyndabransans 2012 þegar hann lék Kristján sjöunda Danakonung í dönsku kvikmynd- inni En kongelig affære (A Royal Affair). Hann lék einnig í Under sandet (Land of Mine) sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna sem besta erlenda kvikmyndin. Hamlet hefur notið vinsælda á hvíta tjaldinu, en gerðar hafa verið um 50 kvikmyndir um prinsinn danska. Følsgaard er ekki fyrstur danskra leikara til að leika Hamlet í mynd, því Asta Nielsen túlkaði prinsinn 1921. Meðal enskumæl- andi leikara sem leikið hafa Hamlet eru Laurence Olivier, John Giel- gud, Richard Burton, Kenneth Bra- nagh, Mel Gibson og Ethan Hawke Danskur Hamlet í breskri kvikmynd Mikkel Boe Følsgaard Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Elly (Nýja sviðið) Fim 1/6 kl. 20:00 43. sýn Mið 7/6 kl. 20:00 48. sýn Sun 11/6 kl. 20:00 52. sýn Fös 2/6 kl. 20:00 44. sýn Fim 8/6 kl. 20:00 49. sýn Mið 14/6 kl. 20:00 53. sýn Lau 3/6 kl. 20:00 45. sýn Fös 9/6 kl. 20:00 50. sýn Fim 15/6 kl. 20:00 54. sýn Þri 6/6 kl. 20:00 aukas. Lau 10/6 kl. 20:00 51. sýn Opnar kl. 18:30, frjálst sætaval. Panta verður veitingar með dags fyrirvara. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Mið 24/5 kl. 20:00 173 s. Fim 1/6 kl. 20:00 179 s. Lau 10/6 kl. 20:00 185 s. Fim 25/5 kl. 20:00 174 s. Fös 2/6 kl. 20:00 180 s. Sun 11/6 kl. 20:00 186 s. Fös 26/5 kl. 20:00 175 s. Lau 3/6 kl. 20:00 181 s. Mið 14/6 kl. 20:00 Sing-along Lau 27/5 kl. 20:00 176 s. Mið 7/6 kl. 20:00 Sing-along Fim 15/6 kl. 20:00 188 s. Sun 28/5 kl. 20:00 177 s. Fim 8/6 kl. 20:00 183 s. Mið 31/5 kl. 20:00 178 s. Fös 9/6 kl. 20:00 184 s. Allra síðustu sýningar komnar í sölu! RVKDTR- THE SHOW (Litla svið) Lau 3/6 kl. 20:00 5. sýn. Reykjavíkurdætur taka yfir Litla sviðið og láta gamminn geisa. Elly - haustið 2017 (Stóra sviðið) Fim 31/8 kl. 20:00 1. sýn Fim 7/9 kl. 20:00 4. sýn Sun 10/9 kl. 20:00 7. sýn Fös 1/9 kl. 20:00 2. sýn Fös 8/9 kl. 20:00 5. sýn Fim 14/9 kl. 20:00 8. sýn Lau 2/9 kl. 20:00 3. sýn Lau 9/9 kl. 20:00 6. sýn Fös 15/9 kl. 20:00 9. sýn Sýningar í haust komnar í sölu. við að Kristni hafi greinilega liðið ágætlega í þessari sjálfskipuðu út- legð frá listasenunni. „Ef marka má skrif hans sjálfs var Kristinn senni- lega hamingjusamastur á þessum árum, og er frjór og skapandi allt undir það síðasta.“ Kristinn var ekki eini listamað- urinn sem settist að í Hveragerði á þessum tíma og segir Viktor að á árunum 1940 til 1960 hafi bærinn orðið hálfgerð listamannanýlenda. Þar bjuggu m.a. Kristmann Guð- mundsson, Gunnar Benediktsson, Ríkharður Jónsson, Jóhannes úr Kötlum og Elías Mar. Helsta skýr- ingin á vinsældum bæjarins meðal listamanna segir Viktor að hafi væntanlega verið lágur húshit- unarkostnaður. „Í Reykjavík þurfti að hita húsin með kolum, en þau voru dýr. Í Hveragerði var hins vegar hægt að setja rör út í næsta hver og kynda þannig.“ Eins og ævi Kristins hafi ekki verið nægilega átakanleg, þá varð mikið menningarslys eftir að hann lést. „Allt sem var á pappír og striga var ánafnað listasafni ASÍ, en eftir urðu alls skonar skúlptúrar sem var öllum fargað. Bæði sem málari og skúlptúrlistamaður var Kristinn ekki samstiga sam- tímamönnum sínum, og gerði hann m.a. skúlptúra úr efnum sem á þeim tíma þóttu ekki nægilega fín til að geta kallast list, s.s. spónaplötum, og jafnvel pappa. Allt hvarf þetta, og ekki einu sinni vitað hver henti þessum verkum og hvar.“ Segir Viktor tímabært að bæta upp fyrir það tómlæti sem Kristni var sýnt. „Ég vil alls ekki meina að hann hafi verið vanmetinn og ómet- anlegur snillingur, en hann átti merkilegt líffshlaup og bjó yfir áhugaverðum hugmyndum. Hann varð fyrir miklu mótlæti, en var líka uppsigað við flesta. Alla tíð hafði Kristinn óbilandi – og kannski of mikla – trú á sjálfum sér, og lét mótlætið aldrei stöðva sig, var eilíf- lega ungur í anda og sífelt að prufa eitthvað nýtt.“ Hæfileikar Sjálfsmynd Kristins. Hús einbúans Seyðtún var hannað eftir hugmyndum Kristins, og sameinaði vinnustofu, íbúð og sýningarrými. Hæfileikar Mynd tekin á vinnustofu nemenda í Noregi. Kristinn beygir sig niður á miðju ljósmyndarinnar og hefur merkt við eigið verk á myndinni. Ævintýri Frá námsárum Kristins (t.v.) . Merkilegt er að honum skyldi takast að komast út í heim í nám, enda hóf hann lífið nánast sem niðursetningur. Sérstakur Kristinn á sínum eldri árum, hávaxinn og síðskeggjaður. Viktor er ekki ókunnugur útgáfu, en hann stjórnaði á sinum tíma Hótel Búðum og gaf út bók um sögu Búða og Hraunhafnar. Aðrir þekkja Viktor best sem stofnanda auglýsingastofunnar Mátturinn og dýrðin, eða sem stjórnanda ferðaskrifstofanna Óríental og Farvel. Viktor flutti til Íslands fyrir um það bil fjórum árum eftir að hafa búið í Asíu í hér um bil áratug, og var það fyrir hálf- gerða tilviljun að hann keypti hús Kristins Péturssonar. Fór hann í kjölfarið að rannsaka ævi listamannsins. Viktor ólst upp í Hveragerði en segist aldrei hafa kynnst eða vitað af Kristni á uppvaxtarárunum. „Ég sá húsið auglýst til sölu og sama hvað ég reyndi hafði ég ekki áhuga á neinni annarri eign. Gerði ég að lokum til- boð án þess að hafa skoðað húsið sjálfur.“ Eflaust jók það á forvitni Viktors að hann skyldi ekki hafa vitað fyrr af þessum undarlega manni sem bjó í hjarta bæjarins. „Flestallir aðrir Hvergerðingar sem bjuggu hér á þessum tíma eiga minningar um þennan hávaxna, síðhærða og síðskeggjaða mann, sem var einbúi í þessu sérkennilega húsi í rúma fjóra áratugi og hefur eflaust verið með einhvers konar einhverfu. Og hér varð hann fyrir aðkasti eins og sjálfsagt alls staðar annars staðar; þeir fullorðnu stríddu honum og börnin áttu það til að kasta steinum í stóru listamannaglugg- ana á húsinu hans.“ Fljótlega komst Viktor að því að á Þjóðskjalasafninu væru geymd þrjú bókarhandrit sem Kristinn hafði skrifað. „Hægt og sígandi fór mér að renna blóðið til skyldunnar að gera arfleifð hans verðug skil,“ segir Viktor. Útgáfu handritanna verður skipt í þrennt, og koma þau út í öfugri tímaröð. Fyrsta bókin er væntanleg í nóv- ember á þessu ári en áætlað að síðasta bókin komi út árið 2019. „Við byrjum á bókinni Töfratákn, þar sem Kristinn blandar saman æviminningum og hugleið- ingum um listina og samtímamenn sína. Því næst kemur út bókin Úthverfar myndlistarstundir, sem er af svip- uðum toga en segir frá menntun Kristins og mið- tímabilinu í ævi hans,“ segir Viktor. „Loks kemur út Skorinn var mér þröngur stakkur þar sem Kristinn fer yfir erfiða æsku sína og hvernig hann braust til mennta.“ Viktor ritstýrir útgáfunni í samvinnu við Markús Þór Andrésson listfræðing og Ásmund Sigurðsson, graf- ískan hönnuð. Kalla þeir eftir að fólk sem býr yfir upp- lýsingum um Kristin eða á verk eftir hann gefi sig fram. „Við höfum fengið afrit af öllum verkum hans sem eru í eigu opinberra safna en höfum takmarkaða mynd af því hvaða verk eru í einkaeigu,“ segir Viktor, sem jafnframt vonast til að geta komið húsi Kristins, Seyðtúni, aftur í upprunalegt horf innan nokkurra ára og opna þar sýn- ingarsal. „Húsinu hefur verið breytt töluvert frá því sem var, og þegar lesið er hvernig Kristinn skrifar um húsið sést að byggingin hefur öll verið eitt magnað listaverk.“ Flutti í Seyðtún fyrir hálfgerða tilviljun ÓLST UPP Í HVERAGERÐI EN HAFÐI ALDREI HEYRT UM MANNINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.