Freyr

Årgang

Freyr - 01.11.2006, Side 8

Freyr - 01.11.2006, Side 8
SKÓGRÆKT Vanmetnar trjátegundir í íslenskri skógrækt - seinni hluti Tegundir sem ástæða er til að nota í litlu magni í fyrri greininni, sem birt var í 6. tbl. Freys 2006, var fjallað um trjátegundir sem nota mætti að takmörkuðu marki í íslenskri skóg- rækt. Hér heldur umfjöllunin áfram, að þessu sinni um tegundir sem auka mætti notkun á verulega að mati höfundar. Matið byggist á aðlögun og nytsemi tegundarinnar. Aðlögun er miðuð við núverandi veðurfar og loftslagsbreytingar sem í vændum eru á komandi öld miðað við spár um hlýnun. Nytsemi tekur mið af áherslum í íslenskri skógrækt, þ.e. fjölnytjaskógrækt sem innifelur landgræðslu-, timbur-, skjól- og síðast en ekki síst yndis- skógrækt. Garðahlynur (Acer pseudoplatanus) GARÐAHLYNUR (Acer pseudoplatanus) Garðahlynur hefur líkt og askur og álmur aðalútbreiðslu sína í tempraða beltinu í Evrópu. Hann er meiri tækifærissinni en flest önnur eðallauftré, er duglegur að fjölga sér ( röskuðu landi og sýnir mikinn vaxtarþrótt í æsku. Hann er vfða algengari ( landbúnaðarlandi en í skógum og hefur fylgt landbúnaði alllangt norður um Skand- inavíu. Þá hefur hann talsvert verið notaður sem garðtré, ekki síst í bæjum og borgum við sjávarsíðuna. Garðahlynur er ágætlega vind- og seltuþolinn, vex hratt í frjósömum jarðvegi og myndar harðan við sem er eftir- sóttur til smíða. Löng og góð reynsla er af garðahlyn sem garðtré á sunnanverðu landinu þar sem vöxtur er góður þrátt fyrir að haustkal sé algengt á ungum trjém. í öðrum lands- hlutum hefur hann ekki reynst eins vel því kal hefur of oft verið meira en vöxtur. Á undanförnum áratug hefur þó verið breyting þar á til batnaðar. Garðahlyn ætti að nota talsvert í yndisskógrækt og borgar- skógrækt og nú þegar ætti hann að koma til greina í timburskógrækt á frjósömu landi í lágsveitum Suðurlands. Eftir þvl sem hlýnar færist möguleg útbreiðsla hans norðar og lengra inn til landsins. Ekki væri úr vegi að stefna að gróðursetningu á um eða yfir 10.000 plöntum árlega að svo stöddu. IEftir Þröst Eysteinsson, Skógrækt ríkisins Silfurreynir (Sorbus intermedia) og gráreynir (Sorbus x hybrida) SILFURREYNIR (Sorbus intermedia) OG GRÁREYNIR (Sorbus x hybrida) Silfurreynir og gráreynir eru svipaðir að vexti og útliti, báðir ættaðir frá sunnan- verðri Skandinavíu og einkum ræktaðir sem garðtré. Silfurreynir vex ágætlega á sunnanverðu landinu en gráreynirinn er öllu harðgerðari og hentar því betur á landinu norðanverðu. Þeir eru ágætlega vindþolnir en gera kröfu um frjósaman jarðveg ef þeir eiga að ná góðum þroska. Viður þeirra er eftirsóttur af rennismiðum. Hvorug þessara reynitegunda hefur verið notuð í skógrækt. Svipað gildir um notkunarmöguleika þeirra og hlyns og ættu þær að vera gróðursettar I svipuðu magni. 8 FREYR 11 2006

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.