Skátablaðið Faxi - 01.03.1968, Page 13
Það var dimman nóvembermorgun=
Herjólfur var að^leggja að bryggjunni.
Vinir og venzlafólk farþeganna beið skipskom-
unnar ásamt verkamönnum skipaafgreiðslunnar.
Við borðstokkinn stóðu farþegarnir, albúnir
að stíga á land. Á meðal þeirra var drukkinn
maður, sem auðsjáanlega lá meira á að komast í
land en hinu fólkinu. Honn reyndi því að kom-
ast í land áður en skipið var fullkomlega logst
að. En kapp er best. með forsjá. Manninum
tókst ekki að stökkva upp á bryggjuna heldur
féll í sjóinn. Hann sló höfðinu við í fallinu
og missti meðvitund.
Það varð þessum manni e.t.v. til lífs að þarna var nærstaddur sv.for.
S'jóskátasveitarinnar, Tón Ögmundsson, og áður en nokkur viðstaddra hafði
Jón kastað sér niður á milli sk.ips og bryggju og náð taki á manninum.
Jóni tókst að halda manniniam uppúr þar til björgunarhring var kastað
niður og drukkni maðurinn var dreginn upp.
Ef hér hefði ekki verið skáti nærstoddur er ekki víst að eins vel
hefði tekist til. Snarræði Jóns Ögmundssonar og mörg önnur dæmi sanna
að kjörorðið "Vertu viðbúinn" er skátanum ávalt efst í huga.
Jón Ögmundsson
Sveitin var upnhaflega
sveit. Stofnendur voru
stofnuð 12. november 1963, sem fjallarekka-
skátar á aldrinum 15-17 ára, sem voru þá
elstu skátar sem. höfðu áhuga fyrir að starfa
og_hlaut sveitin þess vegna nafnið
Öldungar.
1 oktobexmiánuði 1964 kom fram sú hugmynd,
að breyta sveitinni í sjóskáta-
sveit og var það sambykkt eftir
að búið var að ransaka málið frá
öllum hliðum.
Hefur sveitin nú starfað sem
sjóskátasveit síðan. Nú x
haust heldur sveitin upp á
5 ára afmæli sitt.
Sveitarforingi hefur verið
frá upphafi Jón Ögmundsson.
Aðstoðarsveitarforingi er nú
Hörður Hilmisson.