Morgunblaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. holar@holabok.is — www.holabok.is Mannslíf í húfi II Friðrik G. Olgeirsson Hér er rakin saga Landssambands hjálparsveita skáta, Landssambands flugbjörgunarsveita og Landsbjargar, landssambands björgunarsveita. Greint er frá tilurð hverrar „sveitar“ fyrir sig og sagt frá helstu björgunarverkefnum þeirra. Bókin er á fimmta hundrað síður og prýdd fjölda mynda. Ósætti innan veiðigjaldanefndar  Harðorð bókun þriggja nefndarmanna um skrif Þorsteins Pálssonar formanns nefndarinnar Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þverpólitísku nefndinni sem Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir sjáv- arútvegsráðherra skipaði í vor til að móta tillögur um „hvernig tryggja megi sanngjarna gjaldtöku fyrir af- not af fiskveiðiauðlindinni,“ líkt og sagði í frétt ráðuneytisins í maí, var ætlað að „skapa grundvöll að þver- pólitískri og víðtækri sátt í sam- félaginu um sjávarútveginn.“ Harla litlar líkur eru taldar á því að sátt náist í nefndinni um tillögur. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins létu þrír fulltrúar í nefndinni, þau Svandís Svavars- dóttir, VG, Páll Jóhann Pálsson, Framsóknar- flokki, og Logi Einarsson, Samfylkingu, bóka á síð- asta fundi nefndarinnar nú í viku- byrjun harðorða gagnrýni á for- mann nefndarinnar, Þorstein Pálsson. Viðreisn og Björt framtíð Tilefni bókunarinnar var grein sem Þorsteinn skrifaði í vefritið Kjarnann í síðustu viku, undir fyr- irsögninni Hvað breyttist með nýrri ríkisstjórn? Þar sagði Þorsteinn m.a.: „Mesta hættan fyrir þessa tvo flokka [Við- reisn og Bjarta framtíð, innskot blm.] í framhaldinu er sú að í því breiða samtali sem lagt hefur verið upp með á nokkrum sviðum nái Sjálfstæðisflokkurinn saman með þeim tveimur flokkum í minnihlut- anum [VG og Framsókn, innskot blm.] sem mest eru á móti breyt- ingum. Á næstu mánuðum eða miss- erum komast þeir flokkar tæpast hjá því að svara hvert hugur þeirra stefnir í þeim efnum.“ Svandís Svavarsdóttir svaraði grein Þorsteins á Kjarnanum næsta dag með grein undir fyrirsögninni Svona er ekki unnið að því að skapa sátt. Svandís gagnrýndi Þorstein fyrir að veitast að flokkum sem ættu sæti í sáttanefnd um sjávarútvegs- mál. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er vitnað í grein Þorsteins Pálssonar í bókuninni og það sem hann skrifar um VG og Framsókn- arflokkinn. Svandís, Páll Jóhann og Logi taka það fram í bókun sinni að vandséð sé að formaður nefndarinn- ar sé að vinna að því marki að ná víðtækri sátt um gjaldtöku í sjávar- útvegi, með tilvitnuðum skrifum. Þorsteinn Pálsson Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Landsöfnunin „Vinátta í verki“ til styrktar Grænlendingum vegna náttúruhamfaranna í Nuugaatsiaq gengur vonum framar. Síðdegis í gær höfðu safnast rúmar 19 millj- ónir króna. Hrafn Jökulsson, forsvarsmaður „Vináttu í verki“, segir aðstand- endur söfnunarinnar í sjöunda himni. Markmiðið hafi verið 16 milljónir sem samsvari einni millj- ón danskra króna. „Við svifum yfir það markmið með tveggja milljóna króna fram- lagi Brims, en áður hafði Eimskip lagt fram sömu upphæð. Aðal- markmiðið er ekki upphæðin sem gefin er heldur gjafmildi, vinátta, samhugur og samstaða sem Ís- lendingar sýna vinum sínum á Grænlandi.“ Að sögn Hrafns munar mest um framlag þúsunda einstaklinga sem leggja inn á söfnunarreikninginn eða hringja í styrktarsímann. „Það eru smáu upphæðirnar sem gleðja mest. Þær eru sterk skilaboð til vina okkar á Grænlandi um að þeir standi ekki einir. Við gleymum ekki vinarþeli þeirra og landssöfn- un sem þeir stóðu að vegna snjó- flóðanna á Flateyri. Grænlending- ar eru innilega þakklátir fyrir stuðning íslensku þjóðarinnar. Það má sjá í öllum fjölmiðlum landsins og á netinu. Þar er Íslendingum þakkað með ótal hjörtum.“ Að sögn Hrafns er ekkert batt- erí né tilkostnaður af söfnuninni sem hófst fyrirvaralaust fyrir fjór- um dögum. Allt sem safnast fer beint til Grænlands. Söfnunin heldur áfram um helgina og segir Hrafn að á morgun fari fram upp- boð á forláta 25 ára gömlum sel- skinspels. Uppboðið verður á Fés- bókarsíðu Hrafns sem jafnframt er upplýsingasíða söfnunarinnar. Tónlistarmenn og aðrir eru að skipuleggja styrktarviðburði og Kiwanis, Lions og Rotary eru farnir af stað með söfnun að sögn Hrafns. „Reykjavík, Árneshreppur og Borgarbyggð hafa lagt söfn- uninni lið. Eftir eru 71 sveitarfé- lag. Við munum merkja á kort þau sveitarfélög sem taka þátt. Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að taka þátt og hvetja aðra til dáða,“ segir Hrafn. 19 milljónir hafa safnast  Selskinspels á uppboði á morgun í Grænlandssöfnuninni Heildarafli þorsks í ís- lenskri fiskveiði- lögsögu á kom- andi fiskveiðiári verður 255 þús- und tonn sem er 11 þúsund tonn- um meira en nú er heimilt að veiða. Ýsukvót- inn verður tæp 40 þúsund tonn en var 34.600 tonn á síðasta ári. Sömuleiðis er aukn- ing í ufsa og mörgum öðrum teg- undum. Kvóti á íslenskri sumargotssíld minnkar hins vegar verulega, fer úr 63 þúsund tonnum í ár niður í tæp 39 þúsund tonn á því næsta. Ástand stofnsins er slæmt vegna sýkingar. Þessar heimildir koma fram í reglugerð sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- ráðherra hefur gefið út. Ráðherra fylgir í öllum tegundum veiðiráð- gjöf sem Hafrannsóknastofnun kynnti nýlega. Tekið er fram í fréttatilkynningu ráðuneytisins að ákvörðunin var tekin í samráði við ríkisstjórn, hagsmunaaðila í sjáv- arútvegi, stjórnarandstöðu og for- mann atvinnuveganefndar Alþing- is. Haft er eftir ráðherra að í heild- ina litið sé niðurstaðan góð tíðindi og bendi eindregið til þess að stjórn fiskveiða hér við land hafi verið ábyrg á síðustu árum og skili nú þessum árangri. helgi@mbl.is Kvóti aukinn um 11 þús- und tonn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir  Heimildir ákveðnar Erlendir ferðamenn og farartæki sem þjónusta þá setja svip sinn á Heilags- andastræti í Reykjavík þessa dagana. Gatan var kölluð þetta vegna þess að upphaflega voru aðeins tvö hús við hana og í þeim bjuggu biskup og dóm- kirkjuprestur. Gatan tók síðan nafn sitt af Læknum úr Tjörninni sem var opinn við hlið götunnar en er nú í stokk undir henni. Ferðamennirnir geta hugað að þægilegri klæðnaði því í dag léttir til sunnan- og vestanlands. Hins vegar rignir áfram norðan- og austanlands. Þar verður þó að mestu þurrt á sunnudag. Andi ferðafólks svífur um Heilagsandastræti Morgunblaðið/Ómar Léttir til á sunnan- og vestanverðu landinu í dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.