Morgunblaðið - 24.06.2017, Síða 6
Morgunblaðið/ Árni Sæberg
Í kjölfarið Sex herskip og einn kafbátur frá fimm vestrænum ríkjum sigldu í gær þá leið sem skipalestin PQ17 sigldi árið 1942. Varðskipið Týr fór fyrir skipalestinni.
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja@mbl.is
Sex herskip og einn kafbátur sigldu
saman úr Faxaflóa í gær og þaðan í
fylkingu inn Hvalfjörðinn. Tilefnið
var að minnast þeirra sem létust í
árásum kafbáta og herskipa nasista
á skipalest bandamanna Sovétríkj-
anna, sem nefndist PQ17. 75 ár eru
nú liðin frá atburðinum. Alls lögðu
35 skip af stað úr Hvalfirði áleiðis
til Kólaskaga í Rússlandi árið 1942.
Um var að ræða flutningaskip sem
höfðu meðferðis hergögn handa
Sovétríkjunum. Þótti Hvalfjörður
hentug staðsetning, meðal annars
vegna stærðar sinnar. Til þess að
komast á áfangastað urðu skipin að
sigla hættulega nálægt ströndum
Noregs, þar sem Þjóðverjar héldu
til. Afleiðingin varð sú að aðeins ell-
efu af þeim 35 skipum sem lögðu af
stað komust heil til hafnar. Alls var
24 skipum grandað undan strönd-
um Noregs, og með þeim fórust 153
menn.Varðskipið Týr fór fyrir lest-
inni í gær. Herskipin sem tóku þátt
voru frá Noregi, Danmörku, Bret-
landi, Hollandi og Frakklandi, en
þau eru öll við strendur Íslands um
þessar mundir vegna kafbátaeftir-
litsæfingar Atlantshafsbandalags-
ins. Þá tók einnig kafbátur frá Nor-
egi þátt í siglingunni.
Afrek sem ekki má gleyma
Lagt var af stað klukkan hálf átta
í gærmorgun frá Reykjavíkurhöfn.
Um borð voru meðal annars Guð-
laugur Þór Þórðarson utanríkis-
ráðherra og Magnús Þór Haf-
steinsson, fyrrverandi alþingis-
maður. Magnús ritaði meðal annars
bókina Dauðinn í Dumbshafi – Ís-
hafsskipalestirnar frá Hvalfirði og
sjóhernaður í Norður-Íshafi 1940-
1945. Þá voru að auki um borð
fulltrúar frá níu ríkjum Atlants-
hafsbandalagsins, ásamt fjölda
blaða- og fréttamanna sem sáu um
að skrásetja siglinguna í þaula.
Að sögn Magnúsar var um sögu-
legan atburð að ræða. „Að hér séu
samankomnir fulltrúar stríðandi
fylkinga til þess að minnast saman
þessa atburðar er einstakt.“ Guð-
laugur Þór tók í sama streng. Sagði
hann siglinguna til marks um
hversu langt þessar þjóðir væru
komnar og vonaði að þetta myndi
efla enn frekar samskipti og tengsl
þessara þjóða, á grundvelli sam-
eiginlegrar sögu.
Í Hvalfirði var tekið stutt stopp
þar sem Guðlaugur Þór hélt ávarp.
Talaði hann um mikla hetjudáð
þeirra sem fórust og að afrek
þeirra mættu ekki gleymast. Að
loknu ávarpi var blómsveig varpað í
hafið til minningar um hina látnu. Í
kjölfarið var mínútuþögn í virð-
ingarskyni og að lokum siglt aftur
til hafnar í Reykjavík. Skipin sex,
ásamt norska kafbátnum, héldu æf-
ingum sínum áfram á meðan Týr
lagði að bryggju. Raunir skipa-
lestarinnar PQ17 eru skrifaðar í
sögubækurnar. Landfræðileg stað-
setning Íslands skipti miklu máli
þegar bandamenn Sovétríkjanna
þurftu að ferja hergögn og aðrar
vörur sín á milli. Ekki var það alltaf
hættulaust eins og sannaðist í til-
felli PQ17. Voru allir um borð í Tý í
gær sammála um að minning-
arathöfnin hefði tekist einkar vel.
Heræfing Herskipin og kafbáturinn sem þátt tóku í siglingunni eru við heræfingar NATO. Sigling Lygnt var í sjó þegar skipalestin með Tý í fararbroddi sigldi inn Hvalfjörðinn í gær.
Minntust árásar á
skipalest árið 1942
75 ár liðin frá því að skipalestinni PQ17 var grandað
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017
HaustfegurðviðRín
sp
ör
eh
f.
Haust 10
Í þessari rómantísku haustferð verður haldið til Wiesbaden
sem stendur á bökkum Rínar, rétt vestur af Frankfurt.Við
heimsækjum Heidelberg og Rüdesheim, þar sem kláfur ferjar
okkur upp í vínhæðirnar fyrir ofan bæinn að Niederwald
minnisvarðanum. Á siglingu eftir ánni Rín gefst okkur færi á að
sjá einstaka náttúrufegurð á leið okkar til Koblenz Þýskalands
sem og Deutsches Eck þar sem árnar Mósel og Rín mætast.
3. - 8. október
Fararstjóri: Sigrún Sól Ólafsdóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 124.400 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!