Morgunblaðið - 24.06.2017, Síða 10
Morgunblaðið/Erna Ýr Öldudóttir
Skrautlegir Bílum Kúkú Campers lagt niðri í miðbæ Reykjavíkur.
Víða má sjá svokallaða „camper“-
bíla sem hægt er að gista í og eru
leigðir út til ferðamanna. En má
leggja bílunum hvar sem er til að
sofa í þeim?
„Við höfum engin völd til að reka
fólk í burtu á camper-bílum og við
ráðum því ekki hvort fólk sefur í bíl-
unum sínum,“ segir Kolbrún Jónat-
ansdóttir, framkvæmdastjóri Bíla-
stæðasjóðs. „Við viljum bara að fólk
leggi löglega og borgi fyrir gjald-
skyld bílastæði, meira tökum við
ekki að okkur,“ segir Kolbrún.
Ekki má gista í bílastæði
„Eigi má gista í tjöldum, húsbíl-
um, hjólhýsum og tjaldvögnum á al-
mannafæri í þéttbýli utan sér-
merktra svæða,“ segir í 10. gr.
Reglugerðar um lögreglusamþykkt-
ir nr. 1127/2007.
„Almennt er ekki leyfilegt að
„fyrirberast“ í bílum og lít ég svo á
að fólk megi ekki gista í bílum á al-
mannafæri,“ segir Guðbrandur Sig-
urðsson hjá umferðardeild lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, en
segir aðrar reglur gilda um einkalóð-
ir og skipulögð þjónustusvæði. Guð-
brandur telur þörf á að fjölga þeim
vegna aukins álags af ferðamönnum
en ekki síður fyrir almenning. Lög-
reglan bregðist ekki við nema fá til-
kynningar og þá með því að ræða við
fólk. Kærur séu sjaldgæfar en geti
falið í sér sekt allt að 30 þúsund
krónum segir Guðbrandur.
„Við segjum viðskiptavinum okkar
að það sé einungis leyfilegt að gista á
merktum tjaldsvæðum. Við látum þá
fá bókina „Áningu“ þar sem merkt
eru tjaldsvæði úti um allt land og
brýnum fyrir þeim að nota þau en
getum ekki gert meira eftir að þeir
eru farnir frá okkur,“ segir Viktor
Ólafsson, framkvæmdastjóri KúKú
Campers, sem kannast ekki við að
hafa fengið kvartanir yfir því að fólk
sé að gista í bílum fyrirtækisins á al-
mennum bílastæðum niðri í bæ.
ernayr@mbl.is
Sofið í stæði?
Kampakátir ferðamenn gista í bílum
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
#allravega?
#blikkboli?
#skarpur?
Audi Q2
#ótaggandi
Spáflúnkunýr Audi Q2 gjörbreytir hugmyndum
þínum um bíla og ögrar skilgreiningaáráttunni.
Útbúinn eins og þú hugsar hann, mætir hann á malbikið
eða mölina, fullur sjálfstrausts en #ótaggandi.
Verð frá 4.990.000 kr.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt verkefnalýsingu sem felur
í sér breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur vegna
Stekkjarbakka milli Reykjanesbrautar og Höfða-
bakka. Breytingin felst í því að horfið er frá fyrirhug-
aðri færslu götunnar til norðurs. Samkvæmt gildandi
aðalskipulagi átti að færa götuna um 50 metra til
norðurs, í átt að Elliðaánum. Sunnan við götuna er
íbúðarbyggðin Stekkir.
Stekkjarbakki, sem stofnbraut milli Reykjanes-
brautar og Höfðabakka, hefur verið á aðalskipulagi
borgarinnar allar götur síðan 1967, þegar Að-
alskipulag Reykjavíkur 1962-1983 var staðfest.
Í þeirri áætlun gegndi Stekkjarbakki veigameira
hlutverki, sem hlekkur í hraðbraut sem lá frá Hring-
braut, um Hlíðarfót, Fossvogsdal og áfram um Elliða-
árdal að Suðurlandsvegi. Vegna mikilvægis Stekkjar-
bakka í stofnbrautarkerfinu samkvæmt eldri
aðalskipulagsáætlunum hefur ávallt verið gert ráð
fyrir færslu hennar til norðurs og endurskoðunar á
útfærslu gatnamóta við Höfðabakka, að því er fram
kemur í verkefnalýsingunni. Samhliða færslu hafi
verið gert ráð fyrir að fjölga þyrfti akreinum á göt-
unni, úr tveimur í fjórar.
Í minnisblaði VSÓ Ráðgjafar segir eftirfarandi:
„Áætluð umferð um Stekkjarbakka samkvæmt
umferðarspám Aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030
og svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins 2015-2040
(sem jafnframt eru gildandi skipulagsáætlanir á svæð-
inu) gefa ekki tilefni til tvöföldunar Stekkjarbakka
milli Reykjanesbrautar og Höfðabakka. Þessar um-
ferðarspár sýna mun minni umferð um Stekkjarbakka
en umferðarspá eldra svæðisskipulags gerði, enda
byggði eldra svæðisskipulagið á öðrum forsendum
þar sem veruleg uppbygging í austurjaðri Reykjavík-
ur var sett fram, en fallið hefur verið frá henni. Auk
þess er um talsvert ofmat á umferð að ræða í spám
eldra svæðisskipulags. Því er það mat ráðgjafa að
ekki sé nauðsynlegt að ráðast í tvöföldun gatna á
þessu svæði.“
Markmið og tilgangur breytingar á aðalskipulaginu
er að taka endanlega ákvörðun um framtíðarlegu
Stekkjarbakka og eyða þannig óvissu um skipulag
beggja vegna götunnar. Einnig að tryggja að ekki
verði farið í kostnaðarsamar aðgerðir á gatnakerfinu
nema brýn þörf sé á því.
Teikning/Loftmyndir
Stekkjarbakki óbreyttur
Aðalskipulagi Reykjavíkurborgar verður breytt Hætta
við að færa götuna 50 metra til norðurs í átt að Elliðaánum
Stekkjarbakki Á myndinni er sýnd núverandi lega Stekkjarbakka og áætluð færsla götunnar samkvæmt gildandi
aðalskipulagi. Ekki er nauðsynlegt að ráðast í tvöföldum gatna á þessu svæði, að mati VSÓ ráðgjafar.