Morgunblaðið - 24.06.2017, Side 11

Morgunblaðið - 24.06.2017, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2017 ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ FRÁ GEOSILICA INNIHELDUR HREINAN JARÐHITAKÍSIL *Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf. Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is GeoSilica kísilvatnið fæst í Heilsuhúsinu, öllum helstu apótekum og í Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáralind og Hagkaup Garðabæ. ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR „Ég mjaðmargrindarbrotnaði illa fyrir tíu mánuðum, ég hef verið að taka kísilinn ykkar núna í u.þ.b. 8 mánuði og eftir tveggja til þriggja mánaða inntöku varð ég strax vör við mikinn mun. Í dag finn ég varla fyrir því að hafa brotnað.“ • Styrkir bandvefinn* • Stuðlar að þéttleika í beinum* • Styrkir hár og neglur* • Stuðlar að betri myndun kollagens fyrir sléttari og fallegri húð* 20% AF KJÓLUM Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Opið 11-16 í dag Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Robell gallabuxur Kr. 12.900.- Str. 36-52 30%-50% afsl. Skipholti 30%-70% afsl. Laugavegi Skoðið Facebook.laxdal.is Laugavegi 63 • Skipholt 29b S: 551 4422 SUMARÚTSALAN HAFINN Jakkar-frakkar-kápur Gerry Weber – Betty Barclay gæðafatnaður Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, atvinnu- vega- og nýsköpunarráðherra, hefur ákveðið að gera breytingu á reglugerð um eftirlitsnefnd fasteignasala nr. 931/2016. 17. júní sl. greindi Morgunblaðið frá kæru til ráðherrans vegna reglugerðarinnar, en kæruna lagði fram Brynja Björg Halldórsdóttir, hdl. og fyrrverandi löggiltur fasteignasali. Varðaði kæran framkvæmd við innheimtu árlegs gjalds vegna kostnaðar af störfum eftirlitsnefndar fasteignasala, en nefndin starfar eftir nýlegum lögum um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Fjárhæð gjaldsins er 75 þúsund krónur og innheimtist árlega af hverjum og einum löggilt- um fasteignasala. Brynja hélt til annarra starfa fyrr á árinu en var krafin um gjaldið í júní. Unnið var eftir lista ráðuneytisins um löggilta fasteignasala frá 1. maí sl. og var Brynja meðal þeirra. Því lagði Brynja réttindi sín inn hjá sýslumanni og fékk að vita að krafan yrði felld niður. Taldi framsal of víðtækt Síðar fékk Brynja þær upplýsingar hjá ráðu- neytinu að krafan yrði hvorki felld niður né end- urgreidd. Byggði afstaða ráðuneytisins á 3. mgr. 19. gr. reglugerðarinnar sem bannar slík- ar endurgreiðslur í heild eða að hluta. Reglu- gerðin á stoð í fyrrnefndum lögum um sölu fast- eigna og skipa. Í erindi til ráðuneytisins rakti Brynja að hún teldi að um of víðtækt framsal löggjafarvalds til ráðuneytisins væri að ræða, enda væri í lögum aðeins gefin heimild til að innheimta gjald vegna kostnaðar sem félli til vegna eftirlitsins. Einnig að reglugerðarákvæðið væri mun meira íþyngjandi en lagaheimildin. Þar sem gjaldið rynni ekki til eftirlitsins, í ljósi þess að hún hefði skilað réttindum sínum inn, væri í raun um skattheimtu að ræða og þannig sköpuðust áleitnar spurningar sem gera þyrfti til jafnræðis í skattheimtu. Fyrri framkvæmd rúmist enn innan laganna Samkvæmt fyrrnefndri reglugerðarbreyt- ingu eiga þeir fasteignasalar rétt til hlutfalls- legrar endurgreiðslu sem lagt hafa inn réttindi sín, eða þeir sviptir þeim, áður en sá tími er lið- inn sem fjárhæð gjaldsins er miðuð við. Ráðherra gaf ekki kost á viðtali vegna máls- ins, en í samtali við blaðið sagði Ólafur Teitur Guðnason, aðstoðarmaður ráðherra, að hún hefði talið sjálfsagt að skoða hvort framkvæmd- in væri innan ramma laganna. Afstaða ráðuneytisins, að lokinni skoðun, er að hin nýja framkvæmd rúmist innan laganna en einnig að fyrri framkvæmd rúmist innan lag- anna. Að sögn Ólafs Teits var ákvörðunin um að breyta reglugerðinni tekin af sanngirnisástæð- um. Ánægð með ákvörðunina Brynja segist fegin að ráðuneytið „breyti til betri vegar“ og kveðst sammála því sjónarmiði ráðuneytisins að líta þá til sanngirnissjónar- miða, þó að hún hafi ekki beint vísað til sann- girni í kæru sinni til ráðuneytisins.,,Það er auð- vitað ósanngjarnt að þröngur hópur manna sé látinn greiða tiltekið gjald eingöngu vegna þess að nafnið þeirra er á lista í einn dag á ári,“ segir hún. Brynja bætir því þó við að hún standi við þá skoðun sína að reglugerðarákvæðið sem til standi að breyta sé mun meira íþyngjandi en ákvæði laganna. „Ég tel reglugerðarákvæðið ganga of langt miðað við það sem fram kemur í lögum um fasteignasala,“ segir hún og bætir við: ,,Þess vegna er ég mjög ánægð að ráðu- neytið ætli að breyta ákvæðinu.“ Bregst við kæru fyrrverandi fasteignasala  Ráðherra breytir reglugerð um eftirlit með fasteignasölum  Kærandinn sammála niðurstöðunni Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal krefjast þess nú að Knattspyrnu- félagið Fram klári tafarlaust und- irritun á samningi við Reykjavík- urborg um flutning félagsins í Úlfarsárdal og uppbyggingu íþróttaaðstöðu fyrir iðkendur fé- lagsins og nemendur Dalaskóla. Félagið hefur um árabil verið í viðræðum við Reykjavíkurborg um að staðið verði við undirritaða samninga frá árinu 2008, en eftir bankahrunið samþykkti Fram að bíða með efndir samningsins þar til efnahagsástandið lagaðist og lýsti vilja til breytinga á samn- ingum að ósk Reykjavíkurborgar. Félagið segir borgina engan áhuga hafa á að standa við gerða samn- inga, en borgin kynnti einhliða drög að nýjum samningi í desem- ber sl. „Verði ekki orðið við þessum kröfum innan tveggja vikna frá af- hendingu yfirlýsingu þessarar lít- um við svo á að Fram hafi ekki vilja til að standa við flutning fé- lagsins og munum af þeim sökum leita annarra lausna við þjónustu íþróttastarfs fyrir íbúa hverfisins,“ segir í áskorun íbúanna til stjórn- ar Fram, en hún og listi yfir þá sem skrifað hafa undir hana verð- ur afhentur formanni Fram 3. júlí næstkomandi. Kemur þar einnig fram að það sé mat íbúanna að sá samningur sem Reykjavíkurborg hafi lagt fram sé „á allan hátt ásættanlegur og muni tryggja félaginu, íbúum og nemendum fyrsta flokks að- stöðu til íþróttaiðkunar innanhúss sem og utan til langrar framtíðar“. Borgin sögð erfið viðureignar Guðmundur B. Ólafsson, for- maður samninganefndar Fram, segir nokkra hreyfingu hafa orðið á málinu undanfarna mánuði og að menn séu enn að ræða málin sín á milli. „Það hafa átt sér stað viðræður og við héldum að við værum á lokametrunum, en borgin er stíf við að loka þessu,“ segir hann og heldur áfram: „Það á eftir að ganga frá nokkrum smáatriðum og við vonum bara að það takist sem fyrst.“ Íbúar krefjast þess að gengið verði til samninga  Munu gefa Fram tvær vikur til að skrifa undir Morgunblaðið/Eggert Íþróttir Iðkendur Fram vilja góða aðstöðu í Úlfarsárdal sem fyrst. Háskóli Íslands hefur fært sig upp um 10 sæti á lista Times Higer Education. Rektor Há- skóla Íslands, Jón Atli Bene- diktsson, lætur hafa eftir sér á mbl.is í gær að skólinn sé í mark- vissri sókn. Háskólinn sat í 131. til 140. sæti en situr nú 120. til 130. sæti á lista Times Higer Education yfir 200 bestu skóla í Evrópu. Listinn yf- ir er nú gefinn út í annað sinn. Ít- arlegt mat er gert á frammistöðu há- skólanna þar sem litið er til rannsóknarstarfs, áhrifa rannsókna á alþjóðlegum vettvangi, gæða kennslu, námsumhverfis og al- þjóðlegra tengsla. Á heimslistanum er Háskóli Íslands í sæti 201 - 250. Jón Atli segir það skipta máli fyrir Íslendinga að eiga skóla sem ítrekað er framarlega á evrópska og al- þjóðlega listanum. Það gefi fleiri tækifæri til rannsóknarsamstarfs við aðra háskóla í fremstu röð. Styrkur Háskóla Íslands hefur að sögn Jóns Atla vakið feiknarlega at- hygli á alþjóðavettvangi. Rektor Há- skóla Íslands bendir á að stjórnvöld verði að auka framlög til skólans og rökstyður það með nýrri skýrslu frá Evrópusambandinu um ótvíræð tengsl á milli framlaga til rannsókna, nýsköpunar og menntunar, og fram- leiðniaukningar og hagvaxtar. Háskóli Íslands færist ofar á lista þeirra bestu Sókn HÍ færist nær toppnum. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.